Morgunblaðið - 09.03.2001, Blaðsíða 56

Morgunblaðið - 09.03.2001, Blaðsíða 56
MINNINGAR 56 FÖSTUDAGUR 9. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ ✝ Jóhann KristjánHjaltason fæddist í Grindavík 29. maí 1937. Hann lést á heimili sínu í Grinda- vík 28. febrúar síð- astliðinn. Foreldrar hans voru Hjalti Sigurður Þórjóhannesson sjó- maður, f. 24. júní 1900 á Fæti, Ögur- hreppi í N- Ísafjarð- arsýslu, d. í Grinda- vík 26. ágúst 1985, og Kristbjörg Jóhanns- dóttir, húsfreyja á Brimsnesi og seinna í Grindavík, f. 29. sept. 1904 á Bjarnastöðum í Grímsnesi, d. í Grindavík 3. des- ember 1992. Jóhann giftist 26. nóvember 2000 eftir- lifandi eiginkonu sinni Malinee Sodsai, f. í Taílandi 20. ágúst 1960. Jóhann var vél- stjóri í Grindavík, lengst af á Mána GK. Útför Jóhanns fer fram frá Grindavík- urkirkju í dag og hefst klukkan 14. Jói frændi er dáinn, ég trúi þessu ekki. Loksins þegar ham- ingjan brosti við honum, nýgiftur yndislegri konu. Hann ljómaði sem aldrei fyrr. Jói hét fullu nafni Jó- hann Kristján Hjaltason, en hjá okkur var hann alltaf Jói frændi. Líf Jóa var ekki alltaf dans á rós- um. Hann átti í stíði við tvo sjúk- dóma. Annar var Bakkus sem hann hafði unnið sigur á, hinn var hjartað, sem að lokum sigraði hann. Nú hrannast upp margar góðar minningar þegar ég hugsa til baka um kynni mín og Jóa. Við vorum frændur, mjög góðir frændur, sem hittumst oft og brölluðum ýmislegt saman. Það tengdist þó oftast bíl- um, enda náðum við vel saman í áhuga okkar á bílum. Ég kem aldrei til með að gleyma því er Jói kom í heimsókn til for- eldra minna einu sinni sem oftar. Þá var ég 17 ára, nýkominn með bílpróf og iðaði af bíladellu. Jói var nýbúinn að kaupa nýjan Benz, og eins og með alla bíla Jóa, þá var Benzinn hans skreyttur með öllum aukahlutum sem hægt var að fá. Jói sagði: „Jæja Reynir, nú förum við á rúntinn og þú keyrir.“ Ég gleymi aldrei þeirri tilfinningu sem um mig fór, þegar mér svona ungum var treyst fyrir nýjum Benz. Þetta var upphafið að mörg- um bíltúrum hjá okkur frændun- um. Jói reyndist foreldrum sínum vel. Hann var óspar á að þeytast með þau um landið þvert og endi- langt, og að sjálfsögðu oft til Reykjavíkur. Jói og foreldrar hans voru því tíðir gestir í Garðsenda- num hjá foreldrum mínum, Jóni og Lóu. Eftir að foreldrar Jóa féllu frá hélt hann áfram góðu sam- bandi við okkur og þá sérstaklega við mömmu eftir að pabbi veiktist. Það voru ekki margar helgar í seinni tíð sem Jói sótti ekki mömmu og þau fóru síðan saman að heimsækja aðra ættingja og vini. Ég veit að mamma á eftir að sakna þessara heimsókna mikið. Pabbi sem nú dvelur á hjúkr- unarheimilinu Skógarbæ á einnig eftir að sakna heimsókna Jóa, því alltaf hafði hann tíma til að líta við. Síðastliðið sumar kynntist Jói eftirlifandi eiginkonu sinni, Mal- inee. Ég hef sjaldan séð slíka ham- ingju geisla frá nokkrum manni eins og skein frá Jóa frænda þegar þau giftu sig síðastliðinn október. Jói naut þess tíma afskaplega vel, en alltof stutt. Börnin mín, Nína, Reynir Þór og Viktoría eiga erfitt með að skilja að Jói frændi komi ekki oft- ar í heimsókn, með léttleika sinn og glaðværð, að ég tala nú ekki um boð í ísbíltúra. Ég veit að þau munu geyma minninguna um góðan frænda í hjarta sér. Ekki má gleyma Ellu, nágranna- konu Jóa, sem alltaf var til staðar ef Jóa vanhagaði um eitthvað. Jóa þótti afskaplega vænt um Ellu. Ég votta Malinee og öðrum sem að þótti vænt um Jóa, mína dýpstu samúð. Hvíldu í friði elsku frændi. Guð blessi þig. Reynir Jónsson. Jói frændi er dáinn, okkur systkinunum finnst erfitt að trúa því. Hann átti alltaf fastan sess í hjarta okkar. Hann var blíður og góður mað- ur, sem kom best fram meðal ann- ars í því hvað hann sinnti vel ömmu og afa í Hæðó. En ömmu reyndist hann sérstaklega góður eftir að afi fór á Skógarbæ. Það var alltaf tilhlökkunarefni þegar von var á Jóa frænda í heimsókn og oft kom hann færandi hendi. Á síðasta ári kynntist Jói eft- irlifandi konu sinni, Malinee, en þá öðlaðist líf hans nýtt gildi. Við systkinin biðjum Guð að blessa Jóa frænda og gefa Malinee styrk til að takast á við sorgina. Nína, Reynir Þór og Viktoría Sif. Þær voru margar minningarnar sem hrönnuðust upp í huga mér þegar ég frétti að frændi minn og vinur Jóhann K. Hjaltason væri látinn. Minningar sem náðu marga áratugi aftur í tímann. Allt frá uppvaxtarárum okkar Jóa hér í Grindavík til dagsins í dag. Þegar við Jói vorum að alast upp var Grindavík lítið sjávarþorp þar sem drengjahópurinn var ekki stærri en svo að leikfélagarnir voru oft nokkrum árum eldri eða yngri. Þannig var það með okkur Jóa, hann var þremur árum eldri en ég en iðulega einn af leikfélögunum. Þegar ég lít til baka man ég Jóa á Gimli, eins og hann var oftast nefndur, sem rólyndan og glað- sinna drengs sem átti þó stundum sínar beisku stundir. Jói var einkabarn foreldra sinna sem létu sér sérlega annt um upp- eldi hans og velferð, þessu hefur Jói sjálfsagt aldrei gleymt því eftir því var tekið hvað hann var natinn við foreldra sína þegar aldurinn færðist yfir þau og þau þurftu á honum að halda. Á æskuárum okkar Jóa snérist allt líf í Grindavík um sjó og störf honum tengd. Flestir ungir menn litu á það sem sjálfsagðan hlut að feta í fótspor feðranna og fara á sjóinn og þannig var það með Jóa, hann byrjaði ungur að sækja sjó- inn og sjómennskan varð hans ævistarf fram til síðustu ára. Fyrst sem háseti á ýmsum bátum en síð- ar sem vélstjóri og þá lengst af á Mána GK. Síðasta ár var hann starfsmaður hjá Vísi hf og líkaði honum sérstaklega vel að vinna þar. Ekki veit ég til þess að Jói hafi átt mörg áhugamál utan eitt sem var bílar. Allt frá því að Jói eign- aðist sinn fyrsta bíl 18 ára gamall snérist líf Jóa meira og minna um bíla. Mér er minnistæður fyrsti bíllinn hans, bandarískur bíll, ekki man ég hverrar tegundar hann var, en fallegur var hann í augum okkar strákanna. Við snérumst eins og skopparakringlur kringum Jóa og bílinn í þeirri von að fá að sitja í og það fengum við en aðeins með því skilyrði að við hjálpuðum honum að bóna. Því bílinn varð ætíð að vera svo vel gljáandi að hægt væri að spegla sig hvar sem á hann var litið. Þannig var það með aðra bíla sem Jói átti eftir að eignast um ævina, sem voru marg- ir, og ætíð gljáandi. Segir þetta meir um Jóa en mörg orð, hann var einstakt snyrtimenni, það var sama hvort horft var á Jóa sjálfan, komið inn á heimili hans eða inn í bílinn, niður í vélarrúmið á bátnum hans, allstaðar sama snyrti- mennskan. Jói missti föður sinn árið 1985 og annaðist eftir það móður sína af sérstakri umhyggju þar til hún andaðist árið 1992. Eftir andlát hennar bjó Jói einn og hef ég grun um að hann hafi oft verið einmana þó ekki léti hann það uppi. Það var því ljós í myrkrinu þegar hann kynntist thailenskri konu Malinee Sodsay og þau hófu sambúð. Þau giftu sig síðan í 26. nóvember á síðasta ári og átti Jói ekki nógu sterk orð til að lýsa þeirri breyt- ingu sem orðið hefði á lífi hans og hve ánægður hann væri. En skjótt skipast veður í lofti, því miður naut Jói ekki lengi þeirrar hamingju sem hann hafði orðið aðnjótandi. Hann andaðist 28. febrúar, sofnaði út af á heimili sínu, en hann hafði um nokkurt skeið verið veill fyrir hjarta. Ég kveð með söknuði góðan dreng og megi æðri máttur veita konu hans styrk. Halldór Ingvason. JÓHANN KRISTJÁN HJALTASON Nú er hún gengin þessi kona sem leiddi mig við hönd sér þeg- ar ég var barn en studdi sig við mig þegar ég var orðin fullorðin. Mamma fæddist árið 1917 inn í fá- tæka fjölskyldu og fyrri hluta æv- innar bjó hún við kröpp kjör. Árið 1936 giftist hún mannsefni sínu, Árna Gunnlaugssyni og hófu þau búskap sinn á Borg á Ólafs- firði þar sem tvö fyrstu börnin fæddust. Þaðan fluttu þau í Háa- gerði þar sem fjögur börn bættust við og voru börnin þá orðin sex á tíu árum. Íbúðin í Háagerði var tveggja herbergja og gólfplássið það vel nýtt að næst yngsta barnið svaf á hillu inni í fataskáp. Aldrei kvartaði samt mamma enda ann- álaður dugnaðarforkur sem tók öllu sem verða vildi með bros á vör. Létt lund hennar hefur senni- lega verið það sem hélt henni gangandi og ekki veitti af þegar pabbi lagðist alvarlega veikur sama veturinn og þau voru að byggja sér framtíðarheimilið í Vesturgötu 12. Til að tryggja að þau gætu staðið við greiðslur fór hún að beita bjóð á nóttunni með- an börnin sváfu. Þarna var mömmu vel lýst enda var hún þannig að henni féll aldrei verk úr hendi meðan henni entust kraftar til að vinna. Ekki létu foreldrar SIGURBJÖRG VIGFÚSDÓTTIR ✝ Sigurbjörg Vig-fúsdóttir fæddist á Hofi á Höfðaströnd 30. september 1917. Hún lést á dvalar- heimilinu Horn- brekku 16. febrúar síðastliðinn og fór útför hennar fram frá Ólafsfjarðar- kirkju 24. febrúar. mínir við það sitja að eignast börnin sex því eftir nokkurt hlé bættust tvö við og var mamma orðin 45 ára þegar ég fæddist. Þær eru margar góðar minningarnar úr Vesturgötunni eins og hvernig pabbi og mamma dönsuðu á stofugólfinu í hvert skipti sem harmoniku- lag heyrðist í útvarp- inu, en dans var eitt af aðaláhugamálum þeirra beggja. Ferða- lög voru þeim líka hugleikin en því miður urðu tækifæri þeirra til ferðalaga saman allt of fá því pabbi dó árið 1978. Fráfall hans var okkur öllum mikið áfall, ekki síst mömmu sem var alltaf hálf vængbrotin eftir það. Undir það síðasta átti mamma við erfið veikindi að stríða og lífs- löngunin slokknaði löngu áður en lífið sjálft fjaraði út. Þessi sterka kona sem alltaf hafði staðið af sér storma og stórsjói lét að lokum bugast. Nú þegar að kveðjustundinni er komið er mér efst í huga þakklæti fyrir að hafa átt þessa stórkost- legu konu fyrir móður og fengið að alast upp í þessari stóru og sam- heldnu fjölskyldu. Ég veit að ég tala fyrir munn okkar allra systkinanna þegar ég að lokum vil þakka elstu systur okkar, Þórdísi Árnadóttur, þann mikla stuðning, ást og hlýju sem hún sýndi mömmu, síðustu æviár hennar. Elsku mamma, minningin um þig mun fylgja okkur öllum um ókomna tíð. Þín Oddný. Í þá tvo áratugi sem við hjónin höfum þekkt Sjöfn og Þór- arin höfum við átt margar ánægjustund- ir með þeim, ekki hvað síst í Asíu. Við höfum líkt og þau farið til Asíu á hverju ári eftir áramót og verið þar í 5–6 vikur. Eftir að vera búin að þeytast vítt og breitt um Austurlönd var það alltaf hvíld í lokin að hitta Sjöfn og Þórarin á Pattaya í Taílandi og SJÖFN MARTA HARALDSDÓTTIR ✝ Sjöfn Marta Har-aldsdóttir fædd- ist í Reykjavík 30. mars 1931. Hún lést á Pattaya í Taílandi 3. febrúar síðastlið- inn og fór minning- arathöfn um hana fram í Seltjarnarnes- kirkju 23. febrúar. vera með þeim í nokkra daga áður en farið var heim. Sjöfn var einstak- lega þægileg og indæl kona sem eignaðist auðveldlega vini hvar sem hún var. Hún kunni svo sannarlega að njóta hvíldarinnar sem Hótel Montien býður upp á, en það er hótelið sem þau hjónin kusu að dvelja á í Taílandi. Þarna áttu þau hjónin má segja sitt annað heim- ili og þekktu þau flest starfsfólkið sem lét þau finna að þau voru meðal vina. Sjöfn hafði þann góða eiginleika að segja hug sinn um menn og málefni á þægilegan og einfaldan hátt. Það var oft gaman að heyra hana ræða við sameiginlegan vin okkar Ashu, sem saumaði á okkur alls konar fatnað og lét hún þá í ljós á sinn rólega hátt, ef henni þótti að eitthvað mætti betur fara. Síðustu árin átti Sjöfn við heilsuleysi að stríða, en hún kvart- aði aldrei og lét sig alltaf hafa það að fara í þessi löngu ferðalög sem hún elskaði. Hún Sjöfn bjó sér og manni sín- um fallegt og notalegt heimili, þangað sem alltaf var notalegt að koma. Hann Þórarinn vinur okkar hef- ur misst elskulegan lífsförunaut og erfitt verður að fylla það skarð. Megi minningin um yndislega konu fylgja honum alla tíð. Við Astrid vottum honum og börnunum okkar innilegustu sam- úð. Astrid Ellingsen og Bjarni Jónsson. MORGUNBLAÐIÐ tekur afmælis- og minningargreinar til birtingar endurgjaldslaust. Greinunum er veitt viðtaka á ritstjórn blaðsins í Kringlunni 1, Reykjavík, og á skrifstofu blaðsins í Kaupvangsstræti 1, Akureyri. Þá er enn fremur unnt að senda greinarnar í símbréfi (569 1115) og í tölvupósti (minning@mbl.is). Nauðsynlegt er, að símanúmer höfundar/sendanda fylgi. Um hvern látinn einstakling birtist formáli, ein uppistöðugrein af hæfilegri lengd, en aðrar greinar um sama einstakling takmarkast við eina örk, A-4, miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd, - eða 2.200 slög. Tilvitnanir í sálma eða ljóð takmarkast við eitt til þrjú erindi. Mikil áhersla er lögð á, að handrit séu vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi útprent- uninni. Auðveldust er móttaka svokallaðra ASCII-skráa sem í daglegu tali eru nefndar DOS-textaskrár. Þá eru ritvinnslukerfin Word og Wordperfect einnig auðveld í úrvinnslu. Birting afmælis- og minningargreina-          %     . % !               (   -. C 2 2(  ' ") , 6      #7 / +  /      %" 8 )  %%)  1 &@  %)  D7 /,$&' (   %)  ")( )' !  '   %)  / &7 !%)  '&*  *+,
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.