Morgunblaðið - 22.03.2001, Blaðsíða 15
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. MARS 2001 15
TVEIR elstu starfandi kaup-
menn í Kópavogi, þeir Jón
Björgvinsson og Bóas Krist-
jánsson, eru að hætta rekstri
verslunar sinnar, Blómahall-
arinnar sf., en í haust verða
liðin 34 ára frá opnun hennar.
Mun hún vera þriðja elsta við-
skiptafyrirtæki sem er í gangi
í Kópavogi. Byko er eldra, en
upphafsmennirnir starfa þar
ekki lengur; og eins er með
Skóbúð Kópavogs, sem byrj-
aði tveimur árum á undan
þeim Jóni og Bóasi, upphafs-
maður hennar starfar þar ekki
lengur.
Berjamór hinum
megin við götuna
Morgunblaðið leit inn til
þeirra félaga í gær og spurði
hvers vegna þeir væru að
hætta.
„Það var nú bara svona
ákveðið hjá okkur félögum;
okkur fannst þetta komið á
tíma; allt á sér nú einhvern
tíma endamörk,“ sagði Bóas.
„Við eigum húsnæðið og ætl-
um að selja það. Það yrði allt
of mikill pakki fyrir þann sem
hefði áhuga á að taka við
rekstrinum að kaupa húsnæð-
ið líka, of þungt að takast á við
það. En ef húsnæðið hefði ekki
verið svona stórt og þungt,
hefðum við eflaust getað selt
reksturinn. Það er svona
herslumunurinn hvort við lok-
um annað kvöld eða verðum
helgina.“
Þeir félagar hófu rekstur
Blómahallarinnar árið 1967 og
þá í Hamraborg 11. Þar voru
þeir í 10 ár. Síðan fluttu þeir
verslunina í núverandi húsa-
kynni, í Hamraborg 1-3, árið
1977.
„Þegar við erum að byrja í
þessum rekstri var Kópavogur
að mótast; þá var hægt að fara
yfir götuna hjá okkur og beint
í berjamó,“ sagði Bóas og hló.
En uppbyggingin fór að verða
hröð upp úr því.
„Árið 1967, þegar Blóma-
höllin var opnuð, var þetta
stærsta blómaverslun lands-
ins,“ bætti Jón við. „Og á Þor-
láksmessu 1981 fengum við
10% allra Kópavogsbúa í
heimsókn. Það var algjört
met.
Voru taldir ruglaðir
Það voru reyndar margir
sem álitu okkur vera hálf rugl-
aða að ætla að setja blóma-
verslun á fót hérna í Kópavogi
á sínum tíma. Við boðuðum til
blaðamannafundar þegar við
opnuðum hérna, og okkur var
þá spáð af einu blaðanna, að
við myndum fara á hausinn
með stjórnarhraði. Það var
tæplega hægt að segja að það
væri vegur hingað. Og vorið
eftir, þegar frost fór úr jörð,
ók vörubíll hér um og sökk
beint fyrir framan verslunina
okkar og stóð þar allan dag-
inn.
Þetta hefur gengið mjög vel,
en við lentum í þungum kapít-
ula þegar þeir fóru að byggja
gjána hér, malbika og tvöfalda
vegakerfið með öllu tilheyr-
andi. Það kom hér gríðarmikill
þröskuldur á allt. Og þá fór að
spyrjast út, að ef menn kæm-
ust inn í bæinn, væri öruggt að
þeir kæmust ekki út úr honum
aftur. Þetta var dálítið erfiður
tími að yfirstíga.“
Að sögn þeirra Jóns og
Bóasar er töluvert um að fólk
sé að hringja í þá, vegna þess-
ara tíðinda og umskipta núna.
„Það er klökkt hljóð í fólki og
söknuður. Það er verið að
þakka liðna tíð og óska okkur
góðs gengis í því sem eftir
stendur,“ sögðu þeir og var
ekki laust við að þeir væru
klökkir sjálfir. Kváðust þessir
elstu starfandi kaupmenn í
Kópavogi vilja nota tækifærið
og koma kveðjum til sinna
gömlu og traustu viðskipta-
vina, með þakklæti fyrir góð
kynni.
Er þessu hér með komið til
skila.
Morgunblaðið/Jim Smart
Þeir félagar Jón Björgvinsson og Bóas Kristjánsson hafa staðið lengi hinum megin búð-
arborðsins í verslun sinni, Blómahöllinni, og þakka nú fyrir sig.
Ljósmynd/Snorri Snorrason
Þessi loftmynd af Kópavogi frá árinu 1956 gefur dálitla innsýn í hvernig umhorfs var þarna
skömmu áður en starfsemi Blómahallarinnar hófst.
Blómahöllin í Kópavogi er að hætta starfsemi eftir 34 ára samfelldan rekstur
„Allt á sér nú einhvern
tíma endamörk“
Kópavogur
FERILL umhverfismats
vegna fyrsta áfanga í
færslu Hringbrautar er að
hefjast en stefnt er að því
að framkvæmdir hefjist í
haust. Fyrsti áfangi nær
frá Rauðarárstíg að Þor-
finnstjörn. Að sögn Ólafs
Bjarnasonar, yfirverkfræð-
ings hjá embætti borgar-
verkfræðings, er um þess-
ar mundir verið að skila
inn tillögum að matsáætlun
til Skipulagsstofnunar.
„Þannig að þetta er í lög-
bundnum farvegi,“ sagði
Ólafur. Í fyrsta áfanganum
verður Hringbrautin leidd
undir brúna á Bústaðavegi
en Vatnsmýrarvegur verð-
ur felldur niður og gatan
lögð suðurfyrir Umferðar-
miðstöðina og Tanngarð.
Ný gatnamót
við Rauðarárstíg
Vegna nýrrar tengingar
Hringbrautar við Miklu-
braut, móts við Rauðarár-
stíg, mun vestasta húsið
við sunnanverða Miklu-
braut, hús nr. 16, verða rif-
ið. Að sögn Ólafs Bjarna-
sonar liggja fyrir
samningar um kaup borg-
arinnar á öllum íbúðum í
húsinu nema einni. Einnig
verður leikskólinn Sólbakki
við Vatnsmýrarveg að
víkja. Hann er í eigu Rík-
isspítala en rekinn af Leik-
skólum Reykjavíkur. Eins
og fyrr sagði er stefnt að
því að framkvæmdir hefjist
í haust og ljúki á næsta ári.
Kostnaður hefur verið
áætlaður um hálfur millj-
arður króna.
Miklar skipulagsbreyt-
ingar framundan
Eftir færslu götunnar
mun gamla Hringbrautin
áfram þjóna Landspítalan-
um og hverfinu í grennd og
breytast úr stofnbraut í
safngötu. Fram hefur kom-
ið að tvenn ljósastýrð
gatnamót verða á nýju
Hringbrautinni, annars
vegar þar sem hún tengist
Laufásvegi og Hlíðarfæti
og hins vegar við Njarð-
argötu. Jafnhliða verður
nyrsti hluti Njarðargötu
endurbyggður á um 250
metra kafla. Ákvörðun um
gerð nýs vegar um Hlíð-
arfót liggur ekki fyrir og
tengist m.a. framtíð
Reykjavíkurflugvallar en í
tillögum að svæðisskipulagi
höfuðborgarsvæðisins er
gert ráð fyrir að Hlíðarfót-
ur liggi í göngum meðfram
Öskjuhlíð.
Framkvæmdir við norð-
ur-suðurflugbraut Reykja-
víkurflugvallar tengjast
flutningi Hringbrautarinn-
ar að því leyti að brautin
verður stytt um 90 metra
vegna gatnagerðarinnar.
Þá er unnið að nýju deili-
skipulagi fyrir lóð Land-
spítalans, en svæði spítal-
ans mun ná milli nýju og
gömlu Hringbrautar. Einn-
ig er í framtíðinni gert ráð
fyrir verslunarmiðstöð á
lóð Umferðarmiðstöðvar-
innar.
Þrjár bílasölur
eiga að víkja
Þrjár rótgrónar bílasölur
í borginni standa í vegi
hinnar nýju legu Hring-
brautarinnar; Aðalbílasal-
an og Bílasala Matthíasar
við Miklatorg og Bílasala
Guðfinns við Vatnsmýrar-
veg.
Ágúst Jónsson, skrif-
stofustjóri borgarverk-
fræðings, sagði í samtali
við Morgunblaðið, að bíla-
sölunum hefði á síðasta ári
verið úthlutað lóðum í nýju
hverfi við Klettháls og ætl-
ast væri til að rekstri
þeirra á núverandi stað
lyki áður en framkvæmdir
hefjast í grennd við Bú-
staðabrúna.
Umhverfismat vegna flutnings Hringbrautar
Stefnt að fram-
kvæmdum í haust
Hringbraut
NOKKRAR kvartanir hafa
borist til hreinsunardeildar
borgarinnar yfir staðsetn-
ingu söfnunargáma fyrir
dagblaðapappír og mjólk-
urfernur, ýmist vegna þess
að gáma vanti eða þeir séu á
röngum stað.
„Oft hafa kvartanir við
rök að styðjast og reynt er
að bregðast við þeim,“ sagði
Pétur Elínarson, eftirlits-
maður með blaðagámum hjá
hreinsunardeild borgar-
innar, í samtali við Morg-
unblaðið, en til hans berast
kvartanirnar.
„Við verðum að hlusta á
það sem fólki finnst um þetta
og reynum að gera eins vel
og við getum.“
Pétur segir ýmis vand-
kvæði á því að finna rétta
staðsetningu fyrir gámana
og önnur söfnunarílát.
Síðustu daga hafa Morg-
unblaðinu borist til eyrna
tvenns konar kvartanir
vegna staðsetningar blaða-
gáma í borginni. Annars
vegar vegna þess að söfn-
unarílát, sem lengi stóðu við
Eskihlíð 20, hafi verið fjar-
lægð og hins vegar vegna
þess að gámi hafi verið val-
inn óviðeigandi staður á
horni Freyjugötu og Njarð-
argötu, rétt við hliðið á garði
listasafns Einars Jónssonar.
Pétur hafði ekki heyrt
fyrr af málinu á Freyjugötu
og Njarðargötu og sagði að
kvartanirnar virtust ekki
hafa komist til skila.
Við Eskihlíðina sagði Pét-
ur að um það hefði verið að
ræða að þrjú 1.100 lítra ker
á hjólum voru þar efst í
brekkunni til að taka við
pappír en þau voru óstöðug,
höfðu skemmt bíla þegar
þau fuku tóm af stað og eins
höfðu krakkar leikið sér að
því að ýta þeim til. Kerin
voru því fjarlægð en í þeirra
stað settur stór gámur neðst
í Eskihlíðina. „Gámarnir eru
aldrei færðir til að ástæðu-
lausu,“ sagði Pétur.
Hann sagði að í grónum
hverfum gæti verið erfitt að
finna gámunum stað, ekki
síst vegna þess að bílarnir
sem losa gámana verða að
geta ekið beint framan að
þeim. Það takmarki mögu-
leika í staðarvali.
3–400 kg á
gangstéttinni
Pétur sagði eitthvað um
að hringt hefði verið vegna
breytinganna í Eskihlíð,
hann kvaðst hafa óskað eftir
öðrum tillögum um betri
staðsetningu en engin hefði
fundist.
„Það hefur aldrei staðið á
okkur að setja niður gáma ef
fólk bendir á góða staðsetn-
ingu,“ segir Pétur.
Við Eskihlíðina mun eitt-
hvað um að pappír hafi verið
skilinn eftir á gangstéttinni,
þar sem ílátin stóðu áður.
Pétur sagði að svo virtist
sem vaninn væri ríkur í
fólki. Eitt sinn, nokkrum
dögum eftir að gámur var
færður af einum stað á ann-
an í Breiðholti, hefði þurft
að fjarlægja 3–400 kg af
pappír af gangstéttinni.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Nágrönnum, sem rætt hafa við Morgunblaðið, finnst lítil
prýði að gáminum á horni Njarðargötu og Freyjugötu, við
girðinguna á garði Listasafns Einars Jónssonar.
Söfnun-
argám-
arnir
stundum
umdeildir
Reykjavík