Morgunblaðið - 22.03.2001, Blaðsíða 69
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. MARS 2001 69
DAGBÓK
STJÖRNUSPÁ
ef t i r Frances Drake
HRÚTUR
Þú ert oftast hrókur alls
fagnaðar en reynist fólki
stundum of hviklyndur.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Þú þarft að varast alla stöðnun
og því þarftu að fylgjast vel
með í þínu fagi og á öðrum
sviðum líka. Þú kannt að þurfa
að hverfa frá vissu verkefni.\
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Gættu þín að láta engan mis-
nota tilfinningar þínar, hvort
heldur um er að ræða vini og
vandamenn eða aðra aðila.
Fátt er eins dýrmætt og að
kunna að verja sjálfan sig.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Ef þú gáir vel muntu finna
munstur í ringulreiðinni sem
ríkir á vinnustað þínum. Láttu
hana ekki hrífa þig með sér
heldur stattu fast á þínu.\
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Hlauptu ekki upp til handa
eða fóta út af einhverjum blá-
ókunnugum heldur geymdu
þér að fella dóm yfir honum
þar til þú hefur kynnst kostum
hans og göllum.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Það eru mikil sannindi í því
fólgin að illt sé að leggja ást á
þá sem enga kann á móti.
Farðu þér því hægt í málefn-
um hjartans og leyfðu hugan-
um að vera með í spilinu.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Láttu ekki einhver aukaatriði
leiða þig afvega frá þýðingar-
mestu hlutunum í áætlun
þinni. Bíddu ekki eftir öðrum
heldur taktu strax til þinna
ráða.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Einbeittu þér að þeim hlutum
sem þú kemst auðveldlega yfir
og getur leyst svo að vel fari.
Við annað skaltu leita þér
nauðsynlegrar aðstoðar.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Sjaldan er ríkari ástæða til að
gæta heilsu sinnar en þegar
streitan er í algleymingi.
Reyndu að leita jafnvægis og
forðast öfgar á hvern veginn
sem er.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Þú þarft ekki að bera allar
syndir heimsins. Það er nóg að
þú hafir stjórn á eigin málum
svo þú skalt láta aðra um sín
og ekki reyna að hafa stjórn á
þeim líka.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Láttu ekki draga úr gleði þinni
þótt allir í kringum þig séu
ekki viðhlæjendur þínir því
máltækið segir að ekki séu all-
ir viðhlæjendur vinir.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Farðu varlega í öll kynni af
ókunnugum því að ef þú ferð
of geyst verða vonbrigðin
þeim mun sárari er í ljós kem-
ur að misjafn er sauður í
mörgu fé.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Þú munt gangast undir ein-
hvers konar þolraun í dag en
þarft út af fyrir sig ekki að
hafa af því neinar áhyggjur því
þú ert vel undir hana búinn.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
STAÐAN kom upp á Ís-
landsmóti skákfélaga sem
lauk fyrir skömmu. Félag-
arnir Björn Þorfinnsson
(2255) og Sigurður Páll
Steindórsson (2205) öttu
hér kappi saman. Sá fyrr-
nefndi nýtti sér vel tíma-
hrak hvíts og fékk nú
ávöxt erfiðisins. 36... Bd6!
37.Dc3 Hvítur myndi tapa
skiptamun til viðbót-
ar ef hann tæki bisk-
upinn. 37... Dxh5 og
hvítur féll á tíma en
staða hans er orðin
afar erfið. Lokast-
aðan í 2. deild varð
þessi: 1. Skákfélagið
Grandrokk a-sveit
29½ vinningur af 42
mögulegum. 2. Tafl-
félag Bolungarvíkur
28½ v. 3. Taflfélag
Reykjavíkur c-sveit
22 v. 4. Skákfélag
Akureyrar b-sveit
20½ 5. Taflfélag Akraness
a-sveit 20 v. 6. Taflfélagið
Hellir c-sveit 18 ½ v. 7.
Skákfélag Reykjanesbæjar
a-sveit 15 v. 8. Taflfélag
Reykjavíkur d-sveit 13½ v.
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Svartur á leik.
LJÓÐABROT
SORG OG VIZKA
Ei vitkast sá, er verður aldrei hryggur,
hvert vizkubarn á sorgar brjóstum liggur.
*
Á sorgarhafs botni sannleiks perlan skín.
Þann sjóinn máttu kafa, ef hún skal verða þín.
Steingrímur Thorsteinsson
ORÐUR OG TITLAR
Orður og titlar, úrelt þing, –
eins og dæmin sanna, –
notast oft sem uppfylling
í eyður verðleikanna.
Árnað heilla
50 ÁRA afmæli. Í dag,fimmtudaginn 22.
mars, verður fimmtugur
Benedikt Vilhjálmsson, raf-
eindavirkjameistari. Hann
og eiginkona hans, Sigríður
Friðný Halldórsdóttir, taka
á móti gestum á Lagarfljót-
sorminum (ferjunni) frá kl.
20.30 á ytri höfninni.
90 ÁRA afmæli. Í dag,fimmtudaginn 22.
mars verður níræð Pálína
Guðrún Einarsdóttir frá
Tálknafirði, húsmóðir, bú-
sett á Hrafnistu í Reykja-
vík. Eiginmaður hennar var
Þórarinn Jónsson sem lést
1973. Pálína tekur á móti
vinum og vandamönnum nk.
laugardag 24. mars kl. 16 á
Hrafnistu í Reykjavík, í
salnum Helgafelli á 4. hæð,
C-álmu.
50 ÁRA afmæli. Í dag,fimmtudaginn 22.
mars, verður fimmtugur
Tryggvi Jónasson, kíróp-
raktor/hnykklæknir. Eig-
inkona hans er Sigurlaug
Kristín Hraundal. Þau hjón-
in eru að heiman á afmæl-
isdaginn.
70 ÁRA afmæli. Ámorgun, föstudaginn
23. mars, verður sjötugur
Sigurður Marinó Sigurðs-
son, Brekkugötu 21, Vog-
um, Vatnsleysuströnd.
Hann tekur á móti ættingj-
um og vinum á afmælisdag-
inn í Samkomuhúsinu Glað-
heimum, Vogum, Vatns-
leysuströnd, kl. 19.
EF lesandinn vill ekki verða
af góðum konfektmola ætti
hann að skyggja á hendur
vesturs og suðurs, og setja
sig inn í vanda austurs í vörn
gegn sex spöðum. En það er
sanngjart að vara „neytand-
ann“ við – þetta er seigur
moli og seinmeltur, og ekki
fyrir viðkvæmar tennur.
Norður gefur; allir á
hættu.
Norður
♠ ÁKD
♥ 642
♦ Á53
♣ ÁD72
Vestur Austur
♠ 84 ♠ 732
♥ DG105 ♥ Á93
♦ 10874 ♦ 96
♣ 964 ♣ KG853
Suður
♠ G10965
♥ K87
♦ KDG2
♣ 10
NS spila vel útfært Stand-
ard-kerfi:
Vestur Norður Austur Suður
– 1 lauf Pass 1 spaði
Pass 2 grönd Pass 3 tíglar
Pass 4 spaðar Pass 4 grönd
Pass 5 tíglar Pass 5 hjörtu
Pass 6 spaðar Allir pass
Með tveimur gröndum
sýnir norður 18–19 HP og
síðan gott hámark þegar
hann stekkur í fjóra spaða
við þremur tíglum makkers
á eftir. Suður afræður þá að
spyrja um lykilspil og fær
upp fjögur. Hann spyr næst
um trompdrottninguna og
norður segist eiga hana með
stökki sínu í sex spaða.
Makker spilar út hjarta-
drottningu og þú tekur með
ás. En hvað svo?
Þetta er nógu seigt undir
tönn á opnu borði (þótt
bragðgott sé), hvað þá þegar
aðeins tvær hendur sjást.
En austur veit þó eitt og
annað um spil sagnhafa.
Suður á a.m.k. fimmlit í
spaða og fjórlit í tígli. Tæp-
lega vantar hámann inn í tíg-
ulinn, svo slemman stendur
óhjákvæmilega ef suður á tíu
spil í litunum sínum. Austur
ætti því að gera ráð fyrir því
að suður eigi aðeins níu spil í
spaða og tígli, og þar með
eingöngu ellefu örugga
slagi: fimm á spaða, hjarta-
kóng, fjóra á tígul og laufás.
Sé staðan þannig gæti
sagnhafi reynt við tólfta
slaginn með því að svína
laufdrottningu og það er þér
ekki á móti skapi. En það er
til önnur leið og mun betri –
það er að segja, ef þú spilar
hjarta um hæl í öðrum slag.
Sagnhafi drepur, spilar lauf-
ás og trompar lauf. Fer inn í
borð á tígulás og trompar
aftur lauf. Og enn inn á
blindan, nú á spaða, til að
stinga lauf í þriðja sinn. Síð-
an tekur hann trompin (og
hendir hjarta í það síðasta
heima) og leggur upp. Með
öðrum orðum – sígildur „öf-
ugur blindur“, þar sem sjötti
trompslagurinn kemur með
því að stinga þrjú lauf heima.
Vörnin við þessari hættu
leynir verulega á sér. Þú
verður að spila trompi í öðr-
um slag og taka þannig eina
innkomu úr borðinu strax.
BRIDS
Umsjón Guðmundur
Páll Arnarson
Ég held ég sé með hús
sem þið ráðið við að
kaupa. Hvernig líst
ykkur á Síberíu?
Yfirhafnir
Útsala
50% afsláttur
Opið laugardag
frá kl. 10—16
Mörkinni 6,
sími 588 5518
Síðustu
dagar
Ný sending af
yfirhöfnum frá
tískuverslun
v. Nesveg, Seltjarnarnesi.
Sími 561 1680.
GOLLAS
TRYGGÐU
BARNINU ÞÍNU
ÞÆGINDI
I Í
2001
w w w.
o
o
. i
s