Morgunblaðið - 22.03.2001, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 22.03.2001, Blaðsíða 16
AKUREYRI 16 FIMMTUDAGUR 22. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ Blaðbera vantar • Skerjafjörður Upplýsingar fást í síma 569 1122 Hjá Morgunblaðinu starfa um 600 blaðberar á höfuðborgarsvæðinu í Huldugil og Teigahverfi • Blaðburður verður að hefjast um leið og blaðið kemur í bæinn. Góður gö gutúr sem borgar sig! Morgunblaðið, Kaupvangsstræti 1, Akureyri. Sími 461 1600 ÞAÐ var mikið fjör í Hlíðarfjalli við Akureyri í gærmorgun þegar um 200 nemendur úr Síðuskóla skelltu sér í fjallið í sólskini og blíðskaparveðri. Daginn notuðu þau til þess að renna sér í brekk- unum, ýmist á skíðum, brettum, sleðum, snjóþotum eða þeim far- artækjum sem hæfðu best smekk hvers og eins. Að þessu sinni voru það yngri deildirnar sem fengu að nota sól- ardaginn til skíðaferðar og skemmtu sér allir konunglega enda tilefni til. Morgunblaðið/Kristján Nemendur Síðuskóla höfðu með sér nesti í Hlíðarfjall og gátu því fengið sér í svanginn á milli ferða. Krakkarnir í Síðuskóla voru á snjóbrettum, skíðum, sleðum og snjóþot- um og skemmtu sér hið besta í blíðunni. Fjör í fjallinu Á fleygiferð á sleða í Hlíð- arfjalli. „ÉG ER alveg óskaplega glaður og ánægður og þá ekki síst fyrir hönd bæjarbúa sem beðið hafa eftir þessu lengi,“ sagði Hólmkell Hreinsson, forstöðumaður Amtsbókasafnsins á Akureyri, en bæjarstjórn Akureyrar samþykkti á fundi sínum í fyrradag áætlun um rekstur, fjármál og fram- kvæmdir á vegum bæjarsjóðs fyrir árin 2002 til 2004. Samkvæmt henni verður 420 milljónum króna varið á tímabilinu til fjárfestinga á sviði menningarmála og mun bróðurpart- ur upphæðarinnar fara í nýbyggingu við Amtsbókasafnið á Akureyri, samtals um 2.400 fermetra bygg- ingu. 14 ára bið á enda Bæjarbúar hafa lengi beðið eftir að byggt yrði við Amtsbókasafnið en sem kunnugt er samþykkti bæjar- stjórn á 125 ára afmæli Akureyrar- bæjar í ágúst 1987 að gefa íbúunum slíka byggingu í afmælisgjöf. Efnt var til samkeppni um bygginguna en síðan hefur lítið þokast þar til nú að hillir undir að byggingin rísi. Safnið var þegar orðið of lítið fyrir 14 árum þegar ákveðið var að byggja við og hafa heilu bókastafl- arnir verið fluttir í geymslu auk þess sem þrengt hefur verið að starfsem- inni að sögn Hólmkels, m.a. með því að troða inn fleiri hillum og minnka þá aðstöðu sem starfsfólk hefur til umráða. Á þessu tímabili hefur fjöldi bóka og blaða komið út þannig að þörf fyrir viðbótarhúsnæði er orðin ansi brýn að sögn Hólmkels. Auk þess sem byggt verður við safnið verður eldra húsnæði umbylt en hann sagði að einungis hefði lág- marksviðhaldi verið sinnt á þessu tímabili enda hefðu menn ævinlega verið að bíða eftir að nýbygging við safnið kæmist á dagskrá. Sómi fyrir bæinn Nýbyggingin verður boðin út nú á næstu dögum en að sögn Hólmkels er áætlað að hafist verði handa á vordögum og að byggingin verði tek- in í notkun fullbúin í árslok 2003. „Ég er ánægður með bæjarstjórn Akureyrar, að drífa nú í þessu brýna verkefni og ég er sannfærður um að það verður mikill sómi að þessari byggingu fyrir bæinn,“ sagði Hólm- kell. Um 420 milljónum króna varið á sviði menningarmála á næstu þremur árum Nýbyggingin við Amts- bókasafnið að veruleika Sviptingar á fjölmiðla- markaði TÖLUVERÐAR sviptingar hafa orðið á fjölmiðlamarkaðnum á Akur- eyri að undanförnu, nú síðast með sameiningu Dags og DV undir merkjum DV. Þá kemur nýtt viku- blað út á Akureyri í dag, fimmtudag, sem fengið hefur nafnið ak-vikublað. Eftir að fréttamaður Stöðvar 2 á Akureyri lét af störfum á dögunum hefur Stöð 2 gert samning við sjón- varpsstöðina Aksjón, til reynslu til þriggja mánaða. Aksjón mun nú sjá um fréttaflutning fyrir Stöð 2 og hef- ur myndatökumaður stöðvarinnar flutt sig yfir til Aksjón. Þá hefur út- varpsstöðin Frostrásin hætt starf- semi en hún var rekin í bænum til fjölda ára. DV hefur rekið eins manns rit- stjórnarskrifstofu við Strandgötu í mörg ár en með sameiningunni við Dag flyst sú starfsemi í húsnæði Dags, þar sem öll starfsemi DV verð- ur til húsa. Vikublaðið Vikudagur hefur verið gefið út á Akureyri í rúm þrjú ár en blaðið er selt í áskrift og lausasölu. Með útgáfu fyrsta tölublaðs ak-viku- blaðs í dag eykst samkeppnin á þeim markaði til muna en ak-vikublaði verður dreift frítt til lesenda sinna. KRISTJÁN Þór Júlíusson, bæjar- stjóri á Akureyri, fer fram á það við jafnréttisnefnd bæjarins að hún upplýsi um þau tilvik þar sem núverandi bæjarstjórn hefur brot- ið lög við ráðningu starfsfólks. Til- efnið er bókun nefndarinnar frá síðasta fundi þar sem lýst var yfir ánægju með niðurstöðu dóms í máli fyrrverandi deildarstjóra leik- skóladeildar, en jafnframt kemur fram í bókuninni að nefndin sé ekki sátt við að Akureyrarbær fái ítrekað á sig mál vegna jafnrétt- isbrota og er bæjarstjórn hvött til að fara að lögum svo að ekki komi til fleiri málaferla af þessu tagi. Bæjarstjóri segir að umrædd málaferli snúist ekki einvörðungu um meint brot á jafnréttislögum, heldur og alls ekki síður um fjár- hæðir og bendir í því sambandi á síðara mál fyrrverandi jafnréttis- fulltrúa, Ragnhildar Vigfúsdóttur, en þar hafi ágreiningur verið um bótafjárhæðir. „Það hefur aldrei annað legið fyrir en að núverandi bæjarstjórn hlíti niðurstöðu Hæstaréttardóms,“ sagði Kristján. Nefndin upplýsi um meint brot Varðandi þann hluta bókunar- innar þar sem jafnréttisnefnd hvetur bæjarstjórn til að fara að lögum segir bæjarstjóri að skilja megi hana sem svo að nefndin telji Akureyrarbæ vinna með þeim hætti að ekki samrýmist lögum. Í kjölfar þessa vill Kristján Þór að nefndin upplýsi um þau mál sem henni hafa borist vegna meintra brota bæjarins á ákvæðum jafn- réttislaga við ráðningu starfsfólks frá því að núverandi bæjarstjórn tók til starfa. „Mér vitanlega hefur núverandi bæjarstjórn ekki brotið lög, þau málaferli sem verið hafa í gangi og dómar fallið í eru vegna mála sem áttu sér stað fyrir mörgum árum. Það er alrangt að við höfum brotið lög eins og nefndin heldur fram,“ sagði Kristján Þór. Bæjarstjóri um bókun jafnréttisnefndar Núverandi bæjarstjórn ekki brotið jafnréttislög Millikan með fyrirlestur RUTH Garrett Millikan, prófessor í heimspeki frá Connecticut-háskóla í Bandaríkjunum, heldur almennan fyrirlestur í kvöld, fimmtudags- kvöldið 22. mars, klukkan 20, í stofu 14 í Háskólanum á Akureyri, Þing- vallastræti 23. Að fyrirlestrinum stendur kennaradeild Háskólans á Akureyri. Millikan er einn þekktasti og um- deildasti heimspekingur samtímans. Hún vakti mikla athygli fyrir fyrstu bók sína, Language, Thought, and Other Biological Categories, sem kom út árið 1984. Hún hefur skrifað tvær bækur eftir það auk fjölmargra greina. Það sem er einkum frumlegt við heimspeki hennar er að hún legg- ur þróunarkenningu Darwins til grundvallar flestu því sem hún skrif- ar. Hún telur að það sjónarhorn geti leyst margan vanda sem heimspek- ingar og vísindamenn standa frammi fyrir. Fyrirlestur hennar nefnist Til- gangur: Um margbrotinn tilgang í huga og menningu (Purposes and Cross-purposes: On the Many Lev- els of Purposiveness in the Mind and in Culture) og er öllum opinn. Kennaradeild Háskólans á Akureyri STARFSEMI Fjórðungssjúkra- hússins á Akureyri á Kristnesi verður kynnt á opnu húsi á morg- un, föstudaginn 23. mars, frá kl. 14 til 17. Á Kristnesi starfrækir FSA öldrunarlækninga- og endurhæf- ingardeild. Fólki gefst kostur á að skoða legudeildirnar og þjálfunar- aðstöðu iðjuþjálfa og sjúkraþjálf- ara, en nýjast á því sviði er þjálf- unarsundlaug sem tekin var í notkun í desember síðastliðnum. Kristnes á sér rúmlega 70 ára sögu sem heilbrigðisstofnun, en þar er mikil og merk saga um bar- áttu við berklaveikina. Nú hefur Kristnes fengið nýtt hlutverk inn- an öldrunarlækninga og endurhæf- ingar sem ekki er síður mikilvægt. Fyrir utan að skoða húsnæðið og kynna sér starfsemina verður fólki boðið upp á veitingar og er það von starfsfólks að sem flestir sjái sér fært að koma í heimsókn. Gengið er inn um aðalinngang á norður- hlið. Opið hús á Kristnesi ♦ ♦ ♦ Kennsla um búddisma KENNSLA um búddíska hugleiðslu sem ber heitið „Eight Steps to happiness“ verður á Akureyri fimmtudaginn 22. mars. Kennslan fer fram á ensku og verður haldin í Glerárgötu 32 (gengið inn að aust- anverðu) og hefst kl. 20.30. Kennari er búddamunkurinn Venerable Kelsang Drubchen sem er kennari hjá Karuna í Reykjavík, samfélagi Mahayana-búddista á Ís- landi. Aðgangseyrir er 1.000 kr. en 500 kr. fyrir námsmenn og öryrkja. ♦ ♦ ♦
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.