Morgunblaðið - 22.03.2001, Blaðsíða 18
LANDIÐ
18 FIMMTUDAGUR 22. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Norður-Héraði - Landbúnaðarhá-
skólinn á Hvanneyri í samvinnu við
framkvæmdanefnd búvörusamninga
og Búnaðarsamband Austurlands
halda námskeið í þessari viku til að
búa bændur undir þátttöku í gæða-
stýringu í sauðfjárrækt samkvæmt
nýjum búvörusamningi.
Í þessari lotu verða haldin nám-
skeið fyrir sauðfjárbændur á Héraði,
í Borgarfirði og Mjóafirði í Golfskál-
anum á Ekkjufelli. Námskeiðunum á
sambandssvæði Búnaðarsambands
Austurlands lýkur síðan eftir páska.
Hér er um að ræða fyrri nám-
skeiðisdag af tveim, leiðbeinendur á
námskeiðunum eru Álfhildur Ólafs-
dóttir frá Landbúnaðarháskólanum
á Hvanneyri og Þórarinn Lárusson
frá Búnaðarsambandi Austurlands.
Þennan fyrri dag er farið yfir og
kynnt Gæðahandbók sem inniheldur
alla efnisflokka og upplýsingar um
gæðastýringuna.
Grunnurinn að gæðastýringunni
er að allt sauðfé bænda sem taka
þátt sé skýrslufært og einstaklings-
merkt til þess að hægt sé að rekja
skrokkana aftur til baka til einstak-
lings á hverju búi. Þátttaka í nám-
skeiðunum er jafnframt forsenda
fyrir þátttöku viðkomandi í gæða-
stýringunni. Þeir einir sem taka þátt
í gæðastýringunni geta tryggt sér að
fullu jöfnunar- og álagsgreiðslur bú-
vörusamningsins.
Framhaldsnámskeið verða haldin
í haust og/eða fyrri part næsta vetr-
ar.
Búa sig undir gæðastýringu
samkvæmt búvörusamningi
Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson
Sauðfjárbændur af Jökuldal á fyrsta gæðastýringarnámskeiðinu sem
Búnaðarsamband Austurlands hélt í Golfskálanum á Ekkjufelli. Frá
vinstri Jón Víðir Einarsson, Arnór Benediktsson, Ingifinna Jónsdóttir,
Guðrún Agnarsdóttir, Ásta Sveinsdóttir og Bryndís Svavarsdóttir.
Húsavík - Ístak hf. átti lægsta tilboð
í gerð brimvarnargarðs á Böku við
Húsavíkurhöfn. Kostnaðaráætlun
Siglingastofnunar hljóðaði upp á
496.844.000 krónur, sex buðu í verk-
ið og voru tilboð sem hér segir:
Höjgaard & Schultz Danmörku
632.171.523 krónur eða 127,24%,
Árni Helgason Ólafsfirði 497.885.000
krónur eða 100,21%, Héraðsverk
ehf. 453.223.150 krónur eða 91,22%,
Norðurtak Sauðárkróki 444.000.000
krónur eða 89,36%, Suðurverk ehf.
425.906.000 krónur eða 85,72% og
Ístak hf. 398.426.568 krónur eða
80,19%.
Tilboð verða nú yfirfarin hjá Sigl-
ingastofnun, verkið felst í gerð 300
metra langs brimvarnargarðs við
höfnina á Húsavík, svonefnds Böku-
garðs. Vinna á kjarna og flokka grjót
í námum við Hlíðarhorn á Tjörnesi
og Kötlum við Húsavík, flytja í garð-
stæði, jafna flá og raða grjóti í þver-
snið samkvæmt teikningum. Áætlað
magn í garðinn er 275 þúsund m3 af
flokkuðu grjóti og kjarnafyllingu.
Áætluð verklok eru eigi síðar en 30.
september 2002. Verkið var boðið út
á evrópska efnahagssvæðinu og
útboðsgögn voru á íslensku.
Tilboð Ís-
taks 80% af
áætlun
Fagradal - Jakob Guðmann Pét-
ursson, bóndi á Rauðhálsi í Mýr-
dal, lét nýlega skoða Renault ’46
árgerð þegar skoðunarstöð
Frumherja var á ferð í Vík í Mýr-
dal.
Jakob segir að hann sé búinn
að eiga bílinn í 48 ár, hann hafi
keypt hann sex ára gamlan og að
bíllinn hafi verið í góðu lagi alla
tíð. Bíllinn er ekki mikið notaður
nú orðið, að sögn eigandans, en
hann tók jafnframt fram að
þegar hann þyrfti að fara til
Víkur færi hann á gamla Ren-
ault.
Jón Hermannsson, skoðunar-
maður hjá Frumherja hf., sagði
bílinn vera í topplagi þrátt fyrir
háan aldur.
54 ára Renault
í góðu lagi
Renaultinn var skoðaður gaumgæfilega og reyndist í góðu lagi.
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Jakob Guðmann Pétursson, bóndi á Rauðhálsi, fyrir framan Renault-inn. Jón Hermannsson skoðunarmaður límir 02-miðann í Renaultinn.
Borgarnesi - Frá því í desember
1999 hafa nemendur í 10. bekk í
Grunnskólanum í Borgarnesi verið
starfsmenn Gámaþjónustu Vest-
urlands. Á átta daga fresti, eftir að
skóla lýkur á daginn, skiptast þeir á
um að safna sorpi frá Borgnes-
ingum í ruslabílinn.
Tilgangurinn er að afla fjár fyrir
skólaferðalag til Svíþjóðar í vor en
heimsækja á vinabekk í Höga-
vångsskolan í Olofström. Krakk-
arnir hafa verið í samskiptum frá
haustinu 1999 og á síðastliðnu vori
komu sænsku krakkarnir ásamt
nokkrum kennurum og fulltrúum
foreldra í vikuheimsókn í Borg-
arnes. Síðan þá hefur tölvupóstur
farið á milli þessara tveggja hópa
auk myndbanda sem sýna daglegt
líf og viðfangsefni úr námi. Og nú
hefur skólinn í Olofström boðið 10.
bekk til sín til að endurgjalda heim-
sóknina. Þess vegna hafa nemendur
lagt ýmislegt á sig í fjáröflunar-
skyni, m.a. haldið kökubasara,
mokað snjó, raðað í poka við-
skiptavina KB og séð um útburð
dreifibréfa af ýmsu tagi í Borg-
arnesi auk sorphirðunnar. Því ætti
eitthvað að hafa safnast í ferðasjóð-
inn 22. maí en þá verður ferðin til
Svíþjóðar að veruleika.
10.-bekk-
ingar í
sorphirðu
Morgunblaðið/Guðrún Vala Elísdóttir
Röðin var komin að þessum hressu krökkum að safna saman rusli.