Morgunblaðið - 22.03.2001, Side 25

Morgunblaðið - 22.03.2001, Side 25
ÚR VERINU MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. MARS 2001 25 Á MEÐAN margir sjómenn voru í verkfalli voru trillusjómenn að gera það gott. Þetta mátti greini- lega sjá í Ólafsvíkurhöfn um síð- ustu helgi þegar trillurnar komu hver á fætur annarri að landi með góðan afla, langmest veiddan á línu. Á sama tíma mátti sjá marga stærri bátana bundna við bryggju vegna sjómannaverkfalls. Þegar blaðamann bar að garði síðdegis á laugardag var Gautur Hansen, trillukarl úr Ólafsvík, að koma með eitt og hálft tonn af þorski að landi. Afli Gauts er dæmi um það sem margar trillur hafa verið að landa síðustu dagana. Blíðskapar- veður hefur líka orðið til þess að trillurnar við Breiðafjörðinn hafa sótt stíft undanfarna daga og vik- ur. Verkfalli hefur nú verið frestað um sinn og fá því smábátarnir samkeppni um þann gula frá stærri bátunum fram til mánaða- móta að minnsta kosti. Má því bú- ast við mikilli veiði næstu daga og miklu framboði af fiski. Morgunblaðið/Elín Una Jóns Gautur Hansen á Kóna SH 41 hefur komið með góðan afla að landi síðustu dagana. Góður afli hjá smábátunum FRAMLEIÐSLA á fiskimjöli í Perú og Chile er nokkuð minni í upphafi ársins, miðað við undanfarin ár, vegna takmörkunar á veiðum. Sala á mjöli hefur auk þess farið hægar af stað á þessu ári að mati IFOMA, Al- þjóðasamtaka mjöl- og lýsisframleið- enda. Veiðar á uppsjávarfiski við Perú og Chile hafa verið takmarkaðar töluvert á þessu ári og spáði IFOMA því í upphafi ársins að framleiðsla á mjöli og lýsi myndi dragast saman vegna þessa. Hömlur voru settar á veiðar á svæðum við Perú í janúar, auk þess sem sjávarútvegsráðuneyt- ið þar í landi hefur með lagasetn- ingum reynt að draga úr afkastagetu flotans og fækka skipum. Í þeim felst einnig að fiskiskipum verður úthlut- að veiðileyfum gegn gjaldi. Veiðar á uppsjávarfiski við Chile voru bannaðar frá 22. janúar til 25. febrúar sl. Þó voru heimilaðar veiðar á sardínu og ansjósu við suður- ströndina en veður hamlaði veiðun- um nokkuð. Í Chile taka ný fiskveiði- stjórnunarlög gildi á miðju þessu ári en í þeim felst að einstökum fyrir- tækjum verður úthlutað veiðiheim- ildum eða kvóta í tilteknum tegund- um. Samkvæmt IFOMA má einnig rekja tregðu á mjölmarkaði til mik- illa birgða í Kína. Þá hafi nýjar og hamlandi reglur um notkun fiski- mjöls í verksmiðjum sem ekki fram- leiða jórturdýrafóður mikil áhrif á eftirspurnina í Evrópu, í kjölfar kúa- riðufársins. Verð á fiskimjöli hefur lækkað lítillega á þessu ári en IFOMA bendir á að verð á soyamjöli hafi einnig lækkað. Heldur dregið úr framleiðslu á fiskimjöli ♦ ♦ ♦ LAXASJÚKDÓMURINN roð- flyðrusýking, sem bakterían gyro- dactylus salaris veldur, hefur komið upp að nýju í tveimur norskum ám, aðeins ári eftir að tilkynnt var að ráðið hefði verið niðurlögum sýking- arinnar sem upp kom í þeim. Er þetta í annað sinn á skömmum tíma sem slíkrar sýkingar verður vart í á sem talið var að hefði verið hreinsuð. Bakteríuna er að finna í 42 ám og vatnakerfum í Noregi og hefur verið reynt að útrýma henni í 25 þeirra. Þar af hafa 14 verið taldar hreinar. Árnar sem sýktar eru að nýju eru Isa og Glutra í Rauma á Mæri. Roðflyðrusýking er eins og nafnið gefur til kynna sjúkdómur sem leggst á roð laxins og drepur hann að lokum. Veikin hefur lagst á eldislax og ógnar hún villtum laxi svo mjög að veiðar á honum kunna að heyra sögunni til í Noregi, segir Inger Mette Hogstad dýralæknir í samtali við NTB. Sýking í ánum

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.