Morgunblaðið - 22.03.2001, Page 53

Morgunblaðið - 22.03.2001, Page 53
UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. MARS 2001 53 Land Rover Discovery XS Series II Nýskr. 6. 1999, 2500cc Diesel vél, 5 dyra, sjálfskiptur, blár, ekinn 30 þ2x. Topplúga, ABS, leður, spólvörn o.m.fl. Verð 3.500 þ. RITUAL ROUGE BRILLIANT NÝTT VARAGLOSS HELENA RUBINSTEIN DRAUMKENND FEGURÐ ww w. he le na ru bi ns te in .c om AFMÆLIS- KYNNING fimmtudag til laugardags Bjóðum ykkur velkomin og minnum á veglega kaupauka j l i i l A Ð R A R N Ý J U N G A R : Libia s n y r t i v ö r u v e r s l u n Göngugötu Mjódd sími 587 0203  DOUBLE AGENT farði sem mattar og jafnar litarháttinn.  CRESCENDO maskari með fjölbreytta eiginleika.  FORCE C PREMIUM frískandi C-vítamín hlaup.  LIP SCULPTOR loksins sérvara fyrir fínu línurnar umhverfis varirnar.  LIQUID METAL varalitur, alveg ný formúla með málmkenndri áferð. ,,BLINDFLUG í efnahagsmálum er hið mesta hættuspil.“ Menn skyldu halda, að yfirlýsing þessi væri gefin af ábyrgðarlaus- um stjórnarandstæð- ingum. Svo er reyndar ekki. Hér talar formað- ur Samtaka iðnaðarins á Iðnþingi nýafstöðnu. Raunar sagði hann að Samtökin hefðu varað við þenslu í hagkerfinu allt frá 1998. Fór ekki milli mála að hann taldi þau hafa talað fyrir daufum eyrum stjórn- valda. Stjórnarand- stöðuna þarf því ekki að undra, þótt aðvaranir hennar séu látnar sem vindur um eyrun þjóta. En það er fleira en ummæli iðnrekenda, sem er órækur vitnisburður um lausatök í stjórn efnahagsmála nú um stundir. Nýju frumvarpi til laga um heimild til handa ríkisstjórn til að selja hlutafé í ríkisbönkunum fylgir um- sögn Seðlabanka Íslands. Þar veltir Seðlabankinn því m.a. fyrir sér hvort heppilegt sé að ríkið selji eign sína í bönkunum miðað við núverandi að- stæður í þjóðarbúskapnum. Orðrétt umsögn bankans: ,,Hér varðar mestu hvort líklegt sé að einkavæðing bankanna muni stuðla að minna eða meira ójafnvægi í þjóðarbúskapnum en nú þegar er fyrir hendi. Þar sem þessi áhrif eru óviss er ekki hægt að fullyrða að neitt í núverandi stöðu mæli sérstaklega með eða móti sölu. Þó má e.t.v. segja að í ljósi þess hve efnahagsástandið er viðkvæmt um þessar mundir og áhrifin óljós þurfi að gæta þess sérstaklega vel við út- færslu sölunnar að hún verði ekki til þess að ýta undir ójafnvægi.“ Hér er talað tæpitungulaust um ,,ójafnvægi í þjóðarbú- skapnum“, ,,viðkvæmt efnahagsástand um þessar mundir“, og að varast beri aðgerðir sem ,,ýta undir ójafn- vægi“. Stjórnarandstaðan á Alþingi veit fullvel hvernig slíku tali af hennar hálfu er tekið í þingsölum af forystu ríkisstjórnarflokkanna. Forsætisráðherrann bregst ævinlega ókvæða við og vísar öll- um slíkum fullyrðing- um á bug með hrópyrð- um og skútyrðum, og illyrðum í garð talsmanna stjórnar- andstöðunnar. Á engum aðvörunum er tekið hið minnsta mark og blind- flugið þreytt af kappi án leiðar- merkja eða hæðarmæla. Í áminnstri umsögn Seðlabankans segir svo í samantekt: ,,Áhrif á fjár- málamarkaði af sölu ríkisins á hlut- um sínum í Landsbankanum og Bún- aðarbankanum eru í sjálfu sér óviss. Mestu skiptir hvernig tekjum ríkis- sjóðs af sölu hlutabréfa í bönkunum verður varið. Ef fjárfesting hins op- inbera á komandi ári eykst vegna söl- unnar, mun það auka eftirspurn og verðbólgu. Því er brýnt að koma í veg fyrir að tekjur af sölunni leiði til auk- inna ríkisútgjalda.“ Það er ekki að ósynju að Seðla- bankinn brýnir fyrir ríkisstjórn að auka ekki ríkisútgjöld. Þrátt fyrir há- vaðasamar aðvaranir á Alþingi við af- greiðslu fjárlaga hefir allt komið fyr- ir ekki. Allt hefir verið látið vaða á súðum og ríkisútgjöld aukin milli ára langt umfram verðlagsþróun. Fjár- lög eru þó aðal tæki stjórnvalda til að hafa áhrif á verðþenslu í efnahags- málum. Virt er að vettugi ráðgjöf innlendra og erlendra sérfræðinga að draga úr ríkisútgjöldum sem kost- ur er til að slá á háskalega og vaxandi spennu. Þverúð ríkisstjórnar að vilja engum ráðum taka er óskiljanleg, og þeim mun furðulegri sem í hlut eiga margir hollvinir hennar. Sá uggur hlýtur að sækja að mönnum að úrslit- um ráði ógóðir fésýslumenn, sem einkum hafa það sér til ágætis unnið í fjármálum að ganga þann veg um efnahag Reykjavíkurborgar á sinni tíð að Sjálfstæðisflokkurinn hlaut að hrökklast þar frá völdum; og vandséð að hann heimti þau í bráð af þeim ill- vígu sökum. Þar voru menn líka í blindflugi – og brotlentu. Blindflug Sverrir Hermannsson Efnahagsmál Virt er að vettugi ráð- gjöf innlendra og erlendra sérfræðinga, segir Sverrir Hermannsson, að draga úr ríkisútgjöldum sem kostur er til að slá á háskalega og vaxandi spennu. Höfundur er formaður Frjálslynda flokksins. Ókeypis lögfræðiaðstoð öll fimmtudagskvöld milli kl. 19.30 og 22.00 í síma 551 1012 Orator, félag laganemaStórhöfða 21, við Gullinbrú, s. 545 5500.www.flis.is  netfang: flis@flis.is flísar FRÁBÆRAR SNYRTIVÖRUR Handsnyrtivörur frá = og Depend. Augabrúnaliturinn í bláu pökkunum frá Tana. Vax- og hitatæki til háreyðingar, háreyðingarkrem, vaxstrimlar og svitalyktareyðir frá Frábært verð og frábær árangur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.