Morgunblaðið - 22.03.2001, Blaðsíða 56

Morgunblaðið - 22.03.2001, Blaðsíða 56
MINNINGAR 56 FIMMTUDAGUR 22. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ MAGNÚS JÓN ÁRNASON né turnar, heldur mannlífið sjálft, að ógleymdu umhverfinu, fjöllum og firði. Við þurfum hvorki sjónauka né löng ferðalög til þess að sjá tign nátt- úrunnar, undur skaparans. Þau birt- ast í hverju barnsauga, hverju blómi, hverjum fjallstindi og hlíðar- vanga“… Ég kynntist Magnúsi Jóni fyrst lítillega þegar ég var í skátastarfi með skátafélaginu Hraunbúum, þá unglingur. Maður bar á þeim tíma ómælda lotningu fyrir stóru strák- unum sem voru eldri og reyndari skátar en við putarnir og reyndum við af kostgæfni að fylgja í spor þess- ara harðjaxla sem ferðuðust um fjöll og firnindi, sungu og spiluðu, og gátu, að því okkur fannst, leyst hvers manns vanda. Já, skátastarfið hafði sinn ljóma. Löngu síðar hitti ég Magnús Jón á öðrum vettvangi. Hann var þá for- ystumaður Alþýðubandalagsins í Hafnarfirði og bæjarfulltrúi. Og líkt og í skátunum hér á árum áður þá leit maður, nýgræðingurinn í pólitík, með vissri lotningu og næstum því óttablöndnum kvíða til fulltrúanna í bæjarstjórn sem höfðu margir hverj- ir mikla og víðtæka reynslu í pólitík og kölluðu ekki allt ömmu sína. Ég hef því líklega verið heppinn, sjálf- stæðismaðurinn, að sitja í minni- hluta í bæjarstjórn Hafnarfjarðar á árunum upp úr 1990 og fylgjast með Magnúsi Jóni og þeim reyndu minni- hlutamönnum sem beindu spjótum sínum að meirihlutanum í bæjar- stjórn þau árin. Þegar síðan Sjálf- stæðisflokkur og Alþýðubandalag mynduðu meirihluta í bæjarstjórn Hafnarfjarðar að loknum sveitar- stjórnarkosningum á vordögum 1994 varð að samkomulagi að Magnús Jón, oddviti Alþýðubandalagsins, settist í stól bæjarstjóra. En eins og oft vill verða í pólitík þá urðu þarna á stundum miklar svipt- ingar og eftir um eins árs samstarf í meirihluta í bæjarstjórn Hafnar- fjarðar varð það hlutskipti okkar beggja að setjast í minnihluta til vorsins 1998. Með okkur oddvitunum tókust góð kynni og aldrei reyndi ég Magnús að öðru en að vera traustur og heiðarlegur í okkar samstarfi. Magnús var mikill málafylgjumaður, íslenskumaður góður, á stundum orðhvass og kjarnyrtur í ræðu og riti og með öllu óragur að láta skoðanir sínar í ljós. Ég kynntist því líka að undir harðri skel stjórnmálamanns- ins, Magnúsar Jóns, voru viðkvæmir strengir og gott hjartalag. Magnús Jón Árnason var bæjar- fulltrúi fyrir Alþýðubandalagið í Hafnarfirði frá árinu 1986 til ársins 1998. Magnús var auk þess valinn til fjölmargra trúnaðarstarfa í nefndum og ráðum fyrir Hafnarfjarðarbæ og sat í stjórn Hafnarfjarðarhafnar allt til dauðadags. Bæjarstjórn Hafnar- fjarðar stendur í þakkarskuld við Magnús fyrir vel unnin störf í þágu sveitarfélagsins. Ég minnist Magnúsar Jóns með hlýju og við Elsa þökkum þér, Maggi minn, allar okkar góðu stundir í leik og starfi og biðjum góðan guð að styrkja fjölskyldu þína og vini. Um engi og tún og ásinn heima ég aftur reika. Sezt í brekkuna silkimjúka og sóleyjarbleika. (D. S.) Hvíl í friði, kæri vinur. Magnús Gunnarsson. Ekki renndi ég í grun, þegar við Magnús Jón Árnason tókum tal sam- an á heimili hans í Hafnarfirði laug- ardaginn 10. mars síðastliðinn, að það yrðu okkar síðustu samskipti hérna megin strandar. Að sönnu var Magnús Jón alvarlega veikur af ill- vígum sjúkdómi, krabbameini, og mjög hafði úr líkamlegu þreki hans dregið. En andinn var með öllu óbugaður hjá mínum góða vini, Magnúsi Jóni. Og á þessu laugar- dagssíðdegi ræddum við eins og svo oft áður áhugamál okkar beggja, stjórnmál líðandi stundar, blönduð reynslu fortíðar og vonum framtíðar. Meðal þess sem á góma bar voru áform pólitískra andstæðinga okkar um einkavæðingu og frjálshyggju á vettvangi grunnskólakennslu. Þar vorum við samstiga, eins og svo oft áður, og fannst félagsleg lausn skyn- samlegri en ísköld markaðshyggja. Þegar við kvöddumst bundum við það fastmælum að hittast aftur að nokkrum dögum liðnum. En af þeim endurfundum verður ekki á þessu tilverustigi, því það rann hratt úr stundaglasinu og að kvöldi sunnu- dagsins 11. mars var Magnús Jón Árnason allur, aðeins 53 ára gamall. Það er skarð fyrir skildi með fráfalli þessa góða drengs og sakna ég og fleiri samferðamenn hans vinar í stað. Við leiðarlok vil ég þakka honum lærdómsrík samskipti og traust samstarf umliðna áratugi. Það var gott að eiga Magnús Jón að, hvort heldur var í blíðu eða stríðu. Við átt- um oftar en ekki samleið á hinum pólitíska vettvangi, sem umfram annað tengdi okkur í starfi og leik. Þó kom fyrir að vík varð milli vina og við urðum á öndverðum meiði í stjórnmálunum. En hvort heldur sem var slitnaði aldrei strengur vin- áttu og gagnkvæmrar virðingar okk- ar í millum. Magnús Jón var atorkumaður í hverju því sem hann tók sér fyrir hendur. Hvort heldur það var á vett- vangi stjórnmálanna, fyrst fyrir Al- þýðubandalagið og síðar Samfylk- inguna, ellegar í skátastarfi og síðar sem ötull stuðningsmaður hand- boltamanna í Haukum; alls staðar þar sem hann lét til sín taka tóku menn mið af nærveru hans og skoð- unum. Hann hafði ávallt mikil áhrif á um- hverfi sitt, hvar sem hann bar niður. Ekki síst í störfum sínum sem bæjarfulltrúi um árabil og um skeið sem bæjarstjóri í Hafnarfirði. Því var einnig að heilsa, þegar kom að ævistarfinu, kennslu grunnskóla- barna, lengst af í Víðistaðaskóla í Hafnarfirði. Þar var hann sannar- lega á heimavelli og var óumdeilt skólamaður í fremstu röð. Sem stjórnmálamaður var Magn- ús Jón mikill málafylgjumaður og fastur fyrir. Sumum fannst hann jafnvel of hvass og harður í baráttu sinni og báru þeir sömu sig illa und- an beittum brandi hans þegar í heit- ar pólitískar orðræður var komið. Og því leyni ég ekki, að betra var að hafa Magnús sem samherja en andstæð- ing þegar átakamál voru uppi. Við Magnús Jón áttum sérlega gott og náið samstarf þegar flokkar okkar unnu saman í meirihlutasam- starfi á árunum 1986–1990. Ég hygg, og er ekki einn um þá skoðun, að það tímabil hafi um margt verið eitt mesta framfaraskeiðið í hafnfirskum bæjarmálum, en þá leiddu Alþýðu- flokkur og Alþýðubandalag Hafnar- fjörð til nýrra tíma. Magnús Jón var formaður bæjarráðs þessi ár og þótt hann héldi fast á sjónarmiðum síns flokks, Alþýðubandalagsins, í sam- starfi við Alþýðuflokkinn var hann jafnframt sanngjarn og víðsýnn og gerði sér ljóst að ef samstarfið ætti að ganga yrðu báðir aðilar að sýna trúnað, traust og umburðarlyndi hvor í annars garð. Og það gekk eftir hnökralaust og verkin sýna merkin. Á tíunda áratug síðustu aldar vor- um við um nokkurra ára skeið hvor sínum megin víglínunnar í stórsjóum hafnfirskra stjórnmála. Oft tókumst við á og létum gamminn geisa. Þetta tímabil var um margt erfitt í sam- skiptum þessara tveggja félags- hyggjuflokka í Hafnarfirði. Það breytti þó ekki því, að þegar við hitt- umst á þessum umrótatíma og áttum tveggja manna tal um lífsins gagn og nauðsynjar fór ævinlega vel á með okkur. Innst inni vorum við held ég ávallt sannfærðir um að hjörtu okkar slægju í takt þegar kæmi að afstöð- unni til grundvallaratriða stjórnmál- anna. Það styrkti okkar bönd og gerði ónæmari en ella fyrir dægur- þrasi og hversdagsdeilum. Og að því kom að flokkar okkar náðu saman á landsvísu og síðustu árin vorum við samskipa í pólitíkinni innan Samfylkingarinnar. Í því sam- einingarferli var Magnús Jón ötull og dugmikill og trúði staðfastlega á nauðsyn þess að jafnaðar- og félags- hyggjumenn sameinuðust í barátt- unni fyrir betri og réttlátari skipan mála í þjóðfélaginu. Það var gagnlegt og gaman að vera samvistum við Magnús Jón Árnason. Hann var vel að sér um menn og málefni og ennfremur glöggur á kjarna máls. Á glöðum og góðum stundum utan verkefna hversdagsins var hann hrókur alls fagnaðar og stutt í bros og innilegan hlátur. Oftar en ekki var kær eig- inkona hans, Jóhanna Axelsdóttir, þá með í för, enda náið og gott þeirra í milli. Við Jóna Dóra sendum Jóhönnu, börnum, barnabörnum og ástvinum hans öllum okkar innilegustu sam- úðarkveðjur og biðjum góðan Guð að milda sára sorg. Blessuð sé minning Magnúsar Jóns Árnasonar. Guðmundur Árni Stefánsson. Kveðja frá Samfylkingunni Við Magnús Jón urðum fyrst mál- vinir fyrir mörgum árum þegar við vorum báðir félagar í Alþýðubanda- laginu. Mér er í minni löng og mikil rökræða í kjölfar miðstjórnarfundar sem haldinn var í Risinu á Hverf- isgötunni. Við sátum nokkur og skeggræddum vinstri vænginn og hörmuðum það hlutskipti íslenskra jafnaðarmanna að hafa kvíslast í fleiri en einn farveg. Magnús Jón hlustaði með íhygli, skaut af og til inn orðum, en það fór ekki á milli mála að hann var alfarið þeirrar skoðunar að fyrr en síðar yrði það sögulega slys leiðrétt. Þetta var líklega hálfum áratug fyrir hrun Berlínarmúrsins. Þótt Gorbatsjov væri farinn að boða perestrojku sína austan og vestan hins ósýnilega járn- tjalds sá ekkert okkar fyrir þá þíðu í alþjóðastjórnmálum sem átti eftir að gerbreyta pólitísku landslagi einnig á Íslandi. Örlögin höguðu því svo, að leiðir okkar Magnúsar Jóns lágu á næstu árum sjaldan saman nema sem málvina á götu eða pólitískum fundum. Það var ekki fyrr en í að- dragandanum að stofnun Samfylk- ingarinnar sem ég kynntist í reynd þeim miklu mannkostum sem hann bjó yfir. Hann reyndist í hópi skel- eggustu stuðningsmanna þess að jafnaðarmenn sameinuðu krafta sína, var hollur hugsjónum sínum og vinum, og aldrei deigur í baráttunni fyrir sameiningunni sem hann trúði einlæglega á. Innan Alþýðubanda- lagsins var hann í hópi þeirra sem tóku forystu í sameiningarmálinu, og það má með sanni segja að hefði hans fulltingis ekki notið við væri Samfylkingin tæpast til í dag. Hann var í senn einn af forystumönnum flokksins og sá mannasættir sem til þurfti til að leiða erfitt og strítt sam- einingarferlið til lykta. Ég hitti hann nokkrum sinnum áður en hann fór í leyfið til Bandaríkjanna, þaðan sem hann kom að lokum helsjúkur. Hann var fullur af hæglátri bjartsýni fyrir hönd síns nýja flokks, og ekki laust við að hann væri svolítið stoltur af því að hafa átt þátt í að ýta honum úr vör. Nú er þessi góði félagi skyndi- lega látinn langt fyrir aldur fram, harmdauði öllum sem honum kynnt- ust, og skilur eftir sig skarð sem eng- inn getur fyllt. Eftir lifir minningin um baráttugleði og bjartsýni Magn- úsar Jóns sem hvetur okkur til að fylgja hugsjónum hans eftir af enn meiri krafti en áður. Fyrir hönd Samfylkingarinnar þakka ég honum innilega ómetanlegt framlag hans og óska Jóhönnu og fjölskyldunni allri guðs blessunar. Össur Skarphéðinsson. Nú er Magnús Jón farinn. Í árs- byrjun frétti ég að hann hefði komið veikur heim úr námsdvöl í Banda- ríkjunum. Við höfðum þekkst lengi og fyrir rúmum aldarfjórðungi vor- um við bæði kennarar við Víðistaða- skóla í Hafnarfirði. Á miðjum átt- unda áratugi síðustu aldar vorum við saman í þriggja kennara hópi, kenn- araráði, sem starfaði ásamt skóla- stjóra, yfirkennara og umsjónar- SJÁ NÆSTU SÍÐU                                           ! " !  #$ %&&       !"   # !   $$    $ %$ & '($!"  ) !  $ * + # ! !"    , '()(   )  -./%01  $"#  '(& ! ' $ $  2#$ (* '$ * ' ' ! "    *   "    #+ ,&& %$ (3$$ )  $!"  ',$4!               *1.5--  &  #    ! ' ! "    *  "   "   #% %&& -        ./" ! -01 &&  )   *   2+& -(      !    3     3    ! "  4 ) 5"  !  0/ !   6 )"  * )"  !"  ,  ! ,   ,    ,             *6 -0*67/77.- & , 88 4   "    6   ! 5 ) 3 " #&  7    !  8   $!"  1"2 1"$$ 1"   !"  6 3$9* $!"  6 :(# $ * 02 * $$ -!;46$$ 71"+ $ $4$ 2$(            17+1- 5/  <$#  *$#" #=>   ? ! "   9 "  ./" !  #+ ++&  ,)$!"  1"2  1"$$ &1"$!"   "+! $$ )5(1"$$  2   7 '$!"  +4!$1"$!"   # ! + 1"$$   ,
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.