Morgunblaðið - 22.03.2001, Síða 60

Morgunblaðið - 22.03.2001, Síða 60
Fake Disorder Mosfellingarnir Ólafur Þór Andrésson gítarleikari, Páll Ingi Guðmundsson söngvari, Þorgrímur Kolbeinsson bassaleikari, Egill Þorkelsson trommu- leikari og Axel Þór Axelsson gítarleikari skipa Fake Disorder og eru öðru hvoru megin við sextánda aldursárið. Sveitin leikur hratt harðkjarnarokk eða þungt þungarokk og á sér heimasíðuna http://fake-disorder.8k.com/. Morgunblaðið/Golli Heróglymur Úr Fossvogshverfinu í Reykjavík kemur hljómsveitin Heróglymur. Hana skipa þeir Þórður Hermannsson, gítarleikari og söngvari, Daníel Freyr Sig- urðsson trommuleikari, Kristján Jökull Sigurðsson bassaleikari, Pétur Kjartan Kristinsson gítarleikari og Trauti „Tinni“ Laufdal Aðalsteinsson gítarleikari. Þeir félagar eru allir fæddir 1987 nema Tinni sem er fæddur 1983. Heróglymur leikur venjulegt rokk. Sensor Dúettinn Sensor skipa Óli Þ. Geirsson, forritari og rapp- ari, og Hjörtur Sigurðsson forritari. Óli er á sextánda ári en Hjörtur á því sautjánda, báðir Reykvíkingar. MÚSÍKTILRAUNIR, hljóm- sveitakeppni félagsmiðstöðvarinn- ar Tónabæjar, hófust sl. fimmtu- dag. Í kvöld og annað kvöld verður tilraununum fram haldið en í kvöld er annað undanúrslitakvöld til- raunanna og sjö hljómsveitir keppa um að komast í úrslitin 30. mars. Á fyrsta undanúrslitakvöldinu voru engar tvær hljómsveitir eins; þær léku óhemju fjölbreytta tón- list og á endanum komust áfram gruggrokksveit og önnur sem flutti lagræna tölvutónlist. Í kvöld eru sveitirnar ekki síður fjöl- breyttar; leika allt frá hörðu drum ’n bass í þungarokk. 28 tímar í Sýrlandi Fyrir sigur í Músíktilrauna fást 28 hljóðverstímar í Sýrlandi sem Skífan gefur. Fyrir annað sæti fást 28 tímar í Grjótnámunni sem Spor gefur. Geimsteinn gefur efnileg- ustu hljómsveitinni 25 hljóðvers- tíma, Tónabúðin og Tónastöðin verðlauna söngvara, Tónabúðin þann besta með Shure-hljóðnema og Tónastöðin þann efnilegasta með Sennheiser-hljóðnema. Hljóð- færahús Reykjavíkur gefur gjafa- bréf besta bassaleikaranum og besta hljómborðsleikaranum, Sam- spil besta trommuleikaranum vöruúttekt, Rín besta gítarleikar- anum gjafabréf en sá fær líka gjafabréf frá Tónastöðinni. Japis gefur sigursveitunum geisladiska og verðlaunar besta rapparann með gjafabréfi. Tölvumenn fá verðlaun líka, sá besti fær dag í hljóðveri Thule-útgáfunnar, hljóð- kort frá Nýherja og gjafabréf frá Tónastöðinni. Styrktaraðilar Mús- íktilrauna eru að auki Hard Rock Café, Vífilfell, Domino’s Pizza, Flugfélag Íslands, Íslandsflug, Rás 2 og Nings. Snafu og Vígspá leika Rás 2 sendir út úrslitakvöldið og leggur til kynni öll kvöldin, Ólaf Pál Gunnarsson. Jón Skuggi Stein- þórsson sér um hljóm á tilraun- unum en hljóðkerfið er frá Mar- teini. Gestasveitir leika áður en keppnissveitirnar byrja í kvöld og á meðan atkvæði eru talin í lokin. Í kvöld leika harðkjarnasveitirnar Snafu og Vígspá en Snafu varð í öðru sæti í síðustu tilraunum og Vígspá á rætur að rekja til tilraun- anna. Annað til- raunakvöld í Tónabæ Annað undanúrslitakvöld Músíktilrauna verður í kvöld. Árni Matthíasson segir frá hljómsveitunum sem keppa að þessu sinni. Halim Hörður Stefánsson gítarleikari, Sigurður Á. Gunnarsson bassaleikari, Ragnar Sólberg gítarleikari/söngvari og Magnús F. Unnarsson trommari. Þeir eru úr Hafnarfirði, leika melódískt rokk og eru fjórtán til tuttugu ára. Hemra Hljómsveit af Vesturlandi, skipuð þeim Davíð Rósenkrans Haukssyni sem leikur á bassa, Hauki Árna Vilhjálmssyni sem syngur, Márusi Hirti Jónssyni sem leikur á gítar og Sverri A. Jónssyni sem leikur á trommur. Þeir félagar eru á aldrinum frá tvítugu upp í tuttugu og þriggja og leika metal-rokk. Skam Skam skipar aðeins einn maður, Elvar Finnur Grét- arsson. Hann leikur á hljómborð og tölvast, er rúmlega tvítugur, úr Reykjavík og leikur hart drum ’n bass. Morgunblaðið/Jim Smart Hemúll Reykvíkingurinn Arnar Jónsson kallar sig Hemúl. Hann leikur á tölvur og syngur, en Arnar er jafn- fram aldursforseti Músíktilrauna að þessu sinni, þó ekki sé hann nema rétt kominn á 24. aldursárið. MÚSÍKTILRAUNIR 60 FIMMTUDAGUR 22. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.