Morgunblaðið - 22.03.2001, Page 63

Morgunblaðið - 22.03.2001, Page 63
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. MARS 2001 63 K O R T E R ...veldu rétt kr. kr. Frábært Kringlukast 20% afsláttur af Triumph undirfatnaði Kringlunni 8-12/ www.olympia.is MARBERT á allra vörum — Creamy lip color eru mjúkir, rakagefandi varalitir sem þekja vel, innihalda A, C og E vítamín, apricotolíu og almondolíu. Með MARBERT varalit færðu mjúkar og fagrar varið Með hverjum MARBERT varalit fylgir varalitahlustur með spegli að gjöf. Útsölustaðir: Libia Mjódd, Nana Hólagarði, Hagkaup Kringlunni, Hagkaup Smáratorgi, Hagkaup Skeifunni, Hagkaup Spönginni, Laugarnes Apótek, Gallery Förðun Keflavík, Árnes Apótek Selfossi, Apótek Vetmannaeyja, Húsavíkur Apótek, Hagkaup Akureyri. www.marbert.com KARSTEN Engsig Sørensen, pró- fessor við Viðskiptaháskólann í Árós- um í Danmörku, kemur hingað til lands í lok mars. Hann mun kenna í félagarétti og verðbréfamarkaðsrétti við lagadeild Háskóla Íslands auk þess að flytja tvö erindi á vegum lagadeildar HÍ, Lögmannafélags Ís- lands, Lögfræðingafélags Íslands og Félags lögfræðinga í fjármálafyrir- tækjum. Fyrri fyrirlesturinn verður hald- inn miðvikudaginn 28. mars í Sunnu- salnum á Hótel Sögu kl. 8–9.30 um morguninn. Þar mun Karsten flytja erindi um Evrópurétt og félagarétt. Fundurinn er öllum opinn og er að- gangur 1.000 kr., innifalinn er morg- unmatur. Seinni fyrirlesturinn verður hald- inn fimmtudaginn 29. mars á Grand Hótel, Setrinu, kl. 12–14. Þar mun Karsten flytja erindi um skattalegar hindranir á frjálsu flæði fólks, fyrir- tækja og fjármagns innan Evrópska efnahagssvæðisins. Fundurinn er öll- um opinn og kostar 2.500 kr. Innifalin í verði er tvírétta máltíð og kaffi. Nauðsynlegt er að skrá sig á fyrir- lesturinn hjá skrifstofu Lögmanna- félags Íslands fyrir 27. mars eða með tölvupósti á netfangið: jonak@lmfi.is. Fyrirlestrar um þýðingu evrópuréttar fyrir félaga- og skattarétt EFTIRFARANDI ályktun var sam- þykkt á fjölmennum aðalfundi Meinatæknafélags Íslands sem hald- inn var 17. mars sl.: „Aðalfundur Meinatæknafélags Íslands beinir þeirri eindregnu áskorun til fjármálaráðherra Geirs H. Haarde að markvisst verði unnið að því að ljúka gerð kjarasamnings við félagið. Samningur félagsins við fjármála- ráðherra fyrir hönd ríkissjóðs rann út 31. okt. sl. Af hálfu félagsins hefur verið unnið vel og markvisst að gerð nýs samnings. Það hlýtur að vera sjálfsögð krafa að fjármálaráðherra sjái til þess að samninganefnd rík- isins hafi það bolmagn sem til þarf til að semja við stéttarfélag sem hefur sjálfstæðan samningsrétt. Ef ekki þá verður að krefjast fullrar afturvirkni samninga til 1. nóv. 2000.“ Skora á ráð- herra að ljúka gerð kjara- samninga ÖLLU áhugafólki um blómaskreyt- ingar gefst tækifæri á að fylgjast með norsku blómaskreytingarmeist- urunum Runi Kristoferssen og Kai Bratbergsengen þegar þau verða með sýnikennslu í páskaskreyting- um í húsakynnum Garðyrkjuskóla ríkisins, Reykjum í Ölfusi, sunnu- daginn 25. mars frá kl. 14 til 16. Þeim til aðstoðar verða nemendur blóma- skreytingarbrautar skólans. Runi og Kai eru hér á landi í boði Garðyrkjuskólans. Þennan sama dag, eða sunnudagskvöldið 25. mars frá kl. 20 til 22.30, verða þau með sýnikennslu fyrir fagfólk í Mörkinni 6, Reykjavík, en þar verða einnig sýndar páskaskreytingar. Sú sýni- kennsla er haldin í samvinnu við Félag blómaverslana. Nauðsynlegt er að fólk skrái sig á þessa sýnikennslu á skrifstofu Garð- yrkjuskólans eða í gegnum netfangið mhh@reykir.is. Sýnikennsla í páska- skreytingum ♦ ♦ ♦ alltaf á þriðjudögum

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.