Morgunblaðið - 25.04.2001, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 25.04.2001, Qupperneq 1
92. TBL. 89. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR 25. APRÍL 2001 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS STOFNAÐ 1913 MORGUNBLAÐIÐ 25. APRÍL 2001 MILO Djukanovic, forsætisráð- herra Svartfjallalands, sagði í sjón- varpsviðtali í gærkvöld að hann hygðist standa við fyrirætlanir um að halda þjóðaratkvæðagreiðslu um sjálfstæði landsins, þrátt fyrir vax- andi þrýsting af hálfu alþjóðasam- félagsins um endurskoðun áætlana um úrsögn úr júgóslavneska sam- bandsríkinu. „Við höfum kosið stofnun sjálf- stæðs ríkis í Svartfjallalandi,“ sagði Djukanovic í viðtali á óháðu sjón- varpsstöðinni Montena TV. „Sú stefna hefur ekkert breyst.“ Kosningabandalag Djukanovic, „Sigurinn tilheyrir Svartfellingum“, sem samanstendur af Lýðræðis- flokki sósíalista og Jafnaðarmanna- flokknum, vann nauman sigur í þingkosningunum á sunnudag, fékk 42,05% atkvæða, en Sósíalíski þjóð- arflokkurinn, sem áður studdi Slo- bodan Milosevic, fyrrverandi for- seta Júgóslavíu, fékk 40,67%. Kom gott gengi síðarnefnda flokksins, sem styður áframhaldandi samband við Serbíu, mjög á óvart og neyðir Djukanovic til að semja við Frjáls- lynda bandalagið sem er flokkur róttækra aðskilnaðarsinna. Hvatt til viðræðna um áframhaldandi samband Evrópusambandið hefur hert á andstöðu sinni við þjóðaratkvæða- greiðslu um sjálfstæðismálið og Bandaríkjastjórn hefur einnig ítrekað andstöðu sína við endanlega upplausn Júgóslavíu. Talsmenn ESB og Bandaríkja- stjórnar hvöttu til þess á mánudag að stjórnvöld í Svartfjallalandi og Serbíu hæfu strax viðræður um framtíðarskipan mála innan júgó- slavneska sambandsríkisins og Jav- ier Solana, sem fer með utanríkis- og varnarmál í ESB, ítrekaði and- stöðu sambandsins við upplausn Júgóslavíu. Kvað hann það andvígt öllum einhliða aðgerðum sem dreg- ið gætu úr stöðugleika á Balkan- skaga. Richard Boucher, talsmaður bandaríska utanríkisráðuneytisins, sagði að kosningaúrslitin sýndu að Svartfellingar væru klofnir í sjálf- stæðismálinu og ítrekaði þá skoðun Bandaríkjastjórnar að lýðræðislegt Svartfjallaland innan lýðræðislegr- ar Júgóslavíu væri besti kosturinn. Vojislav Kostunica, forseti Júgó- slavíu, stjórnarskrárfræðingur að mennt og hófsamur þjóðernissinni, sagði í gær að kosningaúrslitin í Svartfjallalandi sýndu hve nauðsyn- legt væri að Serbía og Svartfjalla- land stæðu áfram saman en við annan tón kveður í viðtali sem pólska blaðið Gazeta Wyborcza hafði við Djukanovic á mánudag. Þar segir hann að Júgóslavía sé ekki lengur til, hún sé aðeins til- búningur. Vesturlönd leggjast gegn stofnun ríkis í Svartfjallalandi Stjórnin stend- ur við sjálf- stæðisáform Podgorica, Brussel. AFP, Reuters. AP Milo Djukanovic, til hægri, ræðir við fulltrúa Evrópusambandsins, Sven Olaf Petersson, í Podgorica í gær. Sendinefnd ESB hvatti forsætisráð- herrann til að falla frá áformum um sjálfstæði Svartfjallalands. SENDIHERRA Kína í Washington lagði í gær fram formleg mótmæli vegna fyrirhugaðrar sölu Banda- ríkjamanna á vopnum til Taívans. Bandaríkjastjórn vísaði gagnrýni Kínverja á bug. Sendiherrann, Yang Jiechi, kom mótmælunum á framfæri á fundi með aðstoðarutanríkisráðherra Bandaríkjanna, Marc Grossman. Ari Fleicher, talsmaður George W. Bush Bandaríkjaforseta, sagði í gær að það hefði verið rétt ákvörðun að heimila vopnasöluna til Taívans. „Forsetinn telur þetta vera skyn- samlega og rétta stefnu sem komi til móts við lögmæta þörf Taívana fyrir landvarnir.“ Bandaríkjastjórn ákvað á mánu- dag að verða við ósk Taívana um að selja þeim vopn, en þó ekki eins öflug og þeir höfðu vonast eftir. Kínverjar, sem líta á Taívan sem uppreisnar- hérað, segja vopnasöluna verða til þess að auka enn á spennu milli ríkjanna. Kínverjar mótmæla vopnasölu til Taívans Washington. AFP, AP.  Stóreflir varnir/22 BRETLAND mun hrista af sér niðursveifluna í efnahagslífi heimsins samkvæmt nýrri spá Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (IMF). Horst Köhler, fram- kvæmdastjóri gjaldeyrissjóðs- ins, sagði í gær að efnahags- ástandið í heiminum væri „viðkvæmt“ um þessar mundir, en að rætast ætti úr því síðar á þessu ári. IMF birtir á morgun nýja skýrslu um horfur í efnahags- málum í heiminum. Financial Times greindi frá því í gær að þar væri gert ráð fyrir að að- eins myndi draga lítillega úr hagvexti í Bretlandi á þessu ári, úr 3% í 2,6%, en að hann myndi aukast á ný í 2,8% á næsta ári. Ef þessi spá gengur eftir yrði staða bresks efnahagslífs ein sú besta í heimi, en búist er við að niðursveiflan í Bandaríkjunum komi illa niður á Evrópu- og Asíulöndum. Brown segir efnahags- stefnuna hafa sannað sig Breski fjármálaráðherrann, Gordon Brown, sagði á fundi með banka- og kaupsýslufólki í London í gær að efnahags- stefna Verkamannaflokksins hefði sannað sig. „Við munum áfram færa stöðugleika og hag- vöxt,“ sagði Brown, en búist er við að ríkisstjórnin boði brátt til þingkosninga. Bretar sneiða hjá efnahags- lægð London. AFP. JUNICHIRO Koizumi, nýr leiðtogi stjórnarflokksins í Japan, gaf í gær til kynna að hann myndi beita sér fyrir endurskoðun á hinni friðsömu stjórnarskrá landsins og heimsækja umdeilt minnismerki um Japani sem fallið hafa í styrjöldum. Hvort tveggja er líklegt til að valda ugg meðal nágrannaríkjanna í Asíu. Koizumi var kjörinn formaður Frjálslynda lýðræðisflokksins í gær og búist er við að hann taki við emb- ætti forsætisráðherra á morgun af Yoshiro Mori sem sagði af sér vegna mikilla óvinsælda. Á fréttamanna- fundi eftir formannskjörið í gær kvaðst Koizumi vera fylgjandi end- urskoðun stjórnarskrárinnar en hún leggur bann við því að Japan beiti valdi til að bregðast við milliríkja- deilum og haldi úti her. Japanir hafa hingað til farið í kringum síðar- nefnda ákvæðið með því að nefna herafla sinn „varnarsveitir“ og Koiz- umi sagði að við þetta yrði ekki unað. „Hvert land hefur sinn her sem er nauðsynlegur til að letja önnur ríki til að gera innrás.“ Koizumi ítrekaði einnig að hann hygðist heimsækja Yasukuni-minn- ismerkið, sem reist var til heiðurs þeim 2,5 milljónum Japana sem fallið hafa í styrjöldum frá miðri 19. öld. Meðal þeirra sem minnst er eru dæmdir stríðsglæpamenn sem bandamenn tóku af lífi eftir heims- styrjöldina síðari. Formlegar heimsóknir japanskra stjórnmálamanna til minnismerkis- ins hafa iðulega vakið reiði í ná- grannaríkjunum og Kínverjar hafa hvatt Koizumi til að láta það vera. Þá hafa stjórnvöld í Suður-Kóreu látið í ljósi áhyggjur af „þjóðernissinnuð- um tilhneigingum“ hins verðandi forsætisráðherra. Koizumi sagði hins vegar í gær að hann hygðist gera sitt besta til að bæta tengslin við nágrannaríkin. Verðandi forsætisráðherra Japans Friðsöm stjórnar- skrá endurskoðuð? Tókýó. AFP.  Vill breyta/24 STJÓRNENDUR Alþjóðlegu geim- stöðvarinnar komust í gær að sam- komulagi um að leyfa bandarískum auðkýfingi, Dennis Tito, að heim- sækja stöðina þrátt fyrir áhyggjur af að það samræmdist ekki öryggis- sjónarmiðum. Tito verður því fyrsti „geim- ferðamaðurinn“, en hann greiddi rússnesku geimferðastofnuninni sem svarar um 1,9 milljörðum króna fyrir ferðina. Geimferða- stofnun Bandaríkjanna (NASA) hafði mótmælt því að Rússar seldu ferðir til geimstöðvarinnar, en féllst á að gera þessa undantekn- ingu. Tito fer til geimstöðvarinnar með rússneskri geimflaug, sem skotið verður á loft á laugardag, og mun dvelja þar í sex daga. Reuters „Geimferðamaðurinn“ Dennis Tito veifar til ljósmyndara í gær, eftir að hafa skoðað geimskutluna sem flytur hann til geimstöðvarinnar. Tito fær að fara út í geim Washington. AP. JÚGÓSLAVÍUHER tilkynnti í gær að ákærur hefðu verið lagðar fram á hendur 183 hermönnum vegna glæpa sem framdir voru í átökunum í Kosovo á árunum 1998 og 1999. Í yfirlýsingu frá hernum segir að hermennirnir hafi meðal annars ver- ið ákærðir fyrir morð, ofsóknir og illa meðferð, ólöglegar handtökur, barsmíðar og þjófnað. Ekki er þó minnst á stríðsglæpi. Talsmenn Sameinuðu þjóðanna og mannréttindasamtaka fögnuðu þess- um fregnum í gær. Talið er að þús- undir Kosovo-Albana hafi fallið í árásum Serba á héraðið og hundruð þúsunda neyddust til að flýja heimili sín. Hermenn ákærðir Belgrad. AFP, AP. ♦ ♦ ♦
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.