Morgunblaðið - 25.04.2001, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 25.04.2001, Blaðsíða 15
Framkvæmdir byrja í sumar VINNA við fyrsta áfanga nýs útivistarsvæðis í Lindarbergi í Hafnarfirði hefst í sumar en bæjarráð hefur samþykkt að ganga til samninga við lægst- bjóðanda í verkið. Að sögn Kristins Ó. Magn- ússonar bæjarverkfræðings er í framtíðinni gert ráð fyrir leikvöllum, sleðabraut og skólagörðum á svæðinu sem liggur í Setbergshlíðinni. „Þetta er töluvert stórt svæði sem liggur í snar- brattri brekku og við munum gera flata fleti þannig að börnin geti nýtt þá til að leika sér,“ segir hann. Að auki verða göngustígar lagðir um allt svæðið til að tengja þær götur sem liggja að svæðinu. Gert ráð fyrir að hefja framkvæmdir á fyrsta áfanga svæðisins í sumar en hann tekur í stórum dráttum til gerða göngustíga, jöfnun jarðvegsyfirborðs, hleðslu grjótkants við áætlaða skóla- garða og gerð bílastæðis. Einnig tekur hann til beða, grassáningar og annars yfir- borðsfrágangs. Ráðgert er að fyrsta áfanga svæðisins verði lokið um miðbik ágústmánaðar en ekki er ljóst hvenær ráðist verður í seinni hluta verks- ins. Nýtt leik- og útivistarsvæði í Setbergshlíð við Lindarberg Setbergshverfi !$%&$'%()'*+'                                              !    HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. APRÍL 2001 15 LITARHÁTTURINN Í NÆRMYND LANGVARANDI MÖTT ÁHRIF DOUBLE AGENT Fond de Teint Équilibrant. Farði sem jafnar húðina. Fullkominn árangur fyrir blandaða húð! Nýjung: Einkaleyfi á samsetningu. Hárnákvæm lagfæring með tvíþættri virkni. Kemur jafnvægi á fitumyndun, mattar og skýrir litarháttinn. Þurr svæði eru slétt og mjúk. Litarhátturinn er jafn, mattur og eðlilegur allan daginn. Veglegir kaupaukar. Kynning í dag og á morgun Háholti 14, Mosfellsbæ sími 586 8000 Í BLÍÐVIÐRINU í gær notaði margur hestamaðurinn tækifærið og skrapp í útreiðartúr, eins og glöggt mátti sjá ef litið var upp í hesthúsahverfið í Víðidal, sem bað- að var í sól. Þar voru einnig á ferð þrjár danskar stúlkur sem vinna við tamningar hér á landi, og voru þær einmitt að störfum þegar Morg- unblaðið bar að garði. Þær kváðust heita Maria Rasmussen, Susi Haugaard Pedersen og Lena Ziel- inski og hafa búið á Íslandi í nokk- ur ár. Þeim líkaði vel dvölin hér á landi og sögðust ekkert vera á heimleið í bráð. Nóg um að vera á svæðinu „Það er heilmikið framundan hjá okkur; það er búið að vera í gangi bæði unglinga- og barnanámskeið uppi í Reiðhöll og námskeið fyrir hræddar konur, sem hafa misst kjarkinn og eru að koma inn á ný,“ sagði Auðunn Valdimarsson, fram- kvæmdastjóri Hestamannafélagsins Fáks, en það heldur utan um um- rætt svæði í Víðidalnum. „Um næstu helgi er MR-mót barna og unglinga uppi í Reiðhöll. Síðan er Æskulýðsdagur Fáks 5. maí, og svo stórmót 10.-13. maí, Reykjavíkurmeistaramótið. Þá má nefna hina frægu Kvennareið Fáks, en þær hyggjast storma í mat yfir til Gustkvenna að þessu sinni. Síðan er miðnæturtölt 19. maí og svo stendur til að fara í fjölskylduferð 20. maí upp að Reynisvatni. Þá er að nefna aðalmótið okkar, sem var kallað hvítasunnukappreið- ar hér í gamla daga; það verður 24.- 27. maí. Svo er alltaf farið með borgarfulltrúana í Reykjavík í út- reiðartúr með borgarstjórann í far- arbroddi, og það verður sennilega 23. maí næstkomandi. Þetta er búið að vera svona í fjögur ár og hefur tekist mjög vel; allt í sátt. Svo hef- ur verið boðið upp á mat í félags- heimilinu á eftir,“ sagði Auðunn að lokum. Morgunblaðið/Sigurður Ægisson Dönsku tamningakonurnar þrjár að störfum í Víðidalnum í gær. Frá vinstri: Maria, Lena og Susi. Eru danskar en stunda tamningar á Íslandi Víðidalur BORGARRÁÐ samþykkti á fundi sínum í gær að taka til- boði Ris ehf. í fimmta áfanga Selásskóla sem er fullnað- arfrágangur. Fyrirtækið var lægstbjóðandi með tæpar 175 milljónir króna í verkið, sem eru 93,66% af kostnaðaráætl- un. 11 buðu í verkið og átti Sveinbjörn Sigurðsson ehf. hæsta tilboðið sem hljóðaðí upp á tæpar 246 milljónir króna. Kostnaðaráætlun var tæpar 187 milljónir. Tilboði Ris ehf. tekið Selás HREPPSNEFND Bessa- staðahrepps hefur ákveðið að friðlýsa jörðina Hlið sem fólkvang. Friðlýsing- arskilmálar ásamt korti hafa verið sendir til Nátt- úruverndar ríkisins til vinnslu en það er svo um- hverfisráðherra að stað- festa friðlýsinguna. Að sögn Gunnars Vals Gíslasonar, sveitarstjóra í Bessastaðahreppi, er það á stefnuskrá hreppsnefndar að taka viss svæði í hreppnum og friða þau. „Þetta eru sérstaklega svæði í kringum tjarnir og fjörur og það varð úr að jörðin Hlið, sem er í eigu hreppsins, varð fyrst fyrir valinu. Fyrr á árinu voru nokkrar lóðir deiliskipu- lagðar þar og út af stóð af- gangur jarðarinnar sem er eiginlega vestasti tanginn í Bessastaðahreppi og þetta land er í sjálfu sér ekki vel byggilegt. Þarna var um tíma kríuvarp og þarna eru ósnortnar fjörur og að mestu ósnortið land og menn vilja halda í það.“ Rétt að ganga alla leið og friðlýsa Gunnar segir að allar fjörur og tjarnir í Bessa- staðahreppi séu á nátt- úruminjaskrá sem sé eins konar óskalisti Náttúruvernd- ar ríkisins um friðlýsingar á landinu. „Menn leita gjarnan inn á náttúruminjaskrá og fylgjast með hvað þar er lagt til og hvað er hægt að skoða af hálfu nátt- úruverndar og ef þar fara saman sjónarmið af hálfu sveitarfélags og Nátt- uúruverndar ríkisins þá er það mat Bessastaðahrepps að það sé rétt að ganga alla leið og friðlýsa,“ segir hann. Hann bendir þó á að samþykki þriggja aðila þurfi ávallt að liggja fyrir við friðlýsingu lands, land- eiganda, sveitarfélags og Náttúruverndar sem sé fulltrúi ríkisvaldsins. Þess vegna hafi verið tiltölulega einfalt að friðlýsa Hlið þar sem sveitarfélagið og land- eigandi er sami aðilinn. „Þess vegna tókum við hana fyrst og kláruðum hana,“ segir hann. Hreppsnefnd hefur þó haft auga á fleiri svæðum til friðlýsingar og er Kast- húsatjörn eitt þeirra. „Þar er fuglalíf mjög mikið og því hefur hreppsnefnd unnið að friðlýsingu tjarn- arinnar. En í þessu tilfelli þurfa þrír aðilar að koma við sögu, þ.e. sveit- arfélagið, ríkið og landeig- endur sem eru tveir í þessu tilfelli, annars vegar Bessastaðahreppur en hins vegar einkaaðilar. Hluti tjarnarinnar jafnvel friðaður Þetta hefur tekið lengri tíma af þessum sökum og ekki er útséð hvernig það fer því landeigandinn hef- ur ekki sætt sig við friðlýs- ingu á sínum hluta lands- ins. Því kemur jafnvel til greina að friðlýsa þann hluta tjarnarinnar sem er í eigu Bessa- staðahrepps og er það í skoðun hjá umhverf- isnefnd hrepps- ins.“ Gunnar segir friðlýsingarnar ekki ganga á byggingarland í hreppnum þó að formlega séð fylgi alltaf einhver skerðing á landi slíkum friðlýsingum. „Það er að mati manna mikilvægt að taka svæði á borð við fjörur og vernda þau til framtíðar þannig að kom- andi kynslóðir geti notið þeirra eins og við og það þykir mönnum best að gera með þessum hætti,“ segir hann. Jörðin Hlið friðlýst Verndun fyrir komandi kynslóðir Bessastaðahreppur „Að mestu ósnortið land og menn vilja halda í það.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.