Morgunblaðið - 25.04.2001, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 25.04.2001, Blaðsíða 21
VIÐSKIPTI MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. APRÍL 2001 21 AF 435 milljóna króna viðskipta- vild sem Lína.Net afskrifaði á sl. ári voru 224,5 milljónir afskrifaðar vegna Irju, 112,7 milljónir vegna Gagnaveitunnar og 98 milljónir vegna Loftnets. Þetta kom fram á aðalfundi Línu.Nets í gær. Eins og kom fram í Morgun- blaðinu í gær varð 36 milljóna króna tap af reglulegri starfsemi félagsins en vegna 435 milljóna króna gjaldfærðrar viðskiptavildar nam tap ársins 472 milljónum króna í heild. Lína.Net keypti á árinu 2000 100% hlutafjár í einkahlutafélög- unum Gagnaveitunni ehf. og Irju ehf. Gagnaveitan var sameinuð félaginu á árinu en nafn Irju hefur verið breytt í Tetralína.Net ehf. Stór hluti kaupverðs afskrifaður Í skýringum í ársreikningi um hina gjaldfærðu viðskiptavild segir að sá hluti kaupverðs í Gagnaveit- unni og Irju sem var umfram bók- fært eigið fé félaganna og hefur ekki verið heimfærður á einstakar eignir hinna keyptu eigna teljist viðskiptavild. „Þá fjárfesti félagið á árinu í örbylgjubúnaði sem gengur undir nafninu Loftnet. Sá hluti kaupverðsins sem hefur ekki verið heimfærður á einstakar eignir telst einnig viðskiptavild,“ segir í reikn- ingnum. Rekstrartekjur samstæðunnar eru um 369 milljónir króna þar af eru tekjur móðurfélagsins tæpar 316 milljónir. Af tekjum samstæð- unnar eru 178 milljónir vegna sam- starfssamnings við Íslandssíma um þróun og uppbyggingu ljósleiðara- kerfisins. Af 351 milljón króna rekstrar- gjöldum samstæðunnar eru 296 milljónir tilkomnar vegna móður- félagsins. Af gjöldum samstæðunn- ar eru 149 milljónir króna vegna reksturs kerfa, 96 milljónir vegna skrifstofu- og stjórnunarkostnaðar og 59 milljónir vegna annars rekst- urs, s.s. kynninga. Þá námu af- skriftir tæpum 47 milljónum króna. Eigið fé félagsins var um sl. ára- mót alls 439 milljónir króna. Þar af var hlutafé 331 milljón, endurmat 9 milljónir og óráðstafað eigið fé 99 milljónir króna. Fram kom á fund- inum að óráðstafað eigið fé hafi að miklu leyti orðið til vegna yfir- verðs hlutafjár sem fært er á móti uppsöfnuðu tapi. Kaldir vindar blása um fyrirtækið Alfreð Þorsteinsson, stjórnarfor- maður Línu.Nets, sagði á aðal- fundinum að kaldir vindar hefðu blásið um fyrirtækið, „bæði frá Landssímanum og ákveðnum póli- tískum öflum.“ Hann sagði mjög óvenjulegt það pólitíska áreiti sem fyrirtækið hefði starfað undir. „Ég er þó sannfærður um það að þegar stundir líða fram verður það talið mikið heillaspor að þetta fyr- irtæki hafi verið stofnað og þá held ég að ýmsir vildu Lilju kveðið hafa,“ sagði Alfreð. „Eftir að fyrirtækið var stofnað hafa gjöld m.a. vegna gagnaflutn- inga lækkað stórkostlega. Það er engin tilviljun að á síðasta aðal- fundi Landssímans var spjótunum beint eingöngu að Línu.Neti sem virðist af einhverjum ástæðum pirra forráðamenn þess ágæta félags, sem við eigum ekki í neinu stríði við. Landssíminn hefur unnið markvert brautryðjendastarf á undanförnum áratugum og á eftir að vera leiðandi hér áfram. En samkeppnin er nauðsynleg og það sýnir sig að með stofnun Línu.Nets og fleiri fjarskiptafyrirtækja hafa gjöld lækkað til notenda.“ Á fundinum var samþykkt til- laga um að stjórnarmenn verði fimm talsins í stað sjö áður. Í stjórn sitja áfram Alfreð Þor- steinsson, Helgi Hjörvar, Guð- mundur Þóroddsson og Hreinn Jakobsson. Nýr í stjórn er Ragnar Atli Guðmundsson. Í árslok átti einn hluthafi meira en 10% hlut en það var Orkuveita Reykjavíkur með 64,4% hlut. Stjórnarformaður Línu.Nets segir stofnun félagsins heillaspor Afskrift vegna Irju nam 225 milljónum króna Morgunblaðið/Jim Smart GUÐLAUGUR Þór Þórðarson borg- arfulltrúi segir að forsvarsmenn Línu.Nets séu að viðurkenna hrika- leg fjárfestingamistök, enda séu um 70% af fjárfestingum félagsins í gagnafyrirtækjum afskrifaðar á einu ári. „Við þekkjum Irjudæmið en þar afskrifa þeir nú í þessu uppgjöri 250 milljóna króna fjárfestingu um 225 milljónir en þetta eru ekki einu mis- tökin. Gagnaveitan sem þeir keyptu á 150 milljónir er afskrifuð um 113 milljónir,“ segir Guðlaugur. Hann vísar þeim skýringum á bug að hér sé um eðlilega afskrift að ræða. „Almenna reglan er sú að þeg- ar afskrifa á viðskiptavild þá er það gert á einhverjum árum á móti tekjum sem að fjárfestingunni er ætl- að að skila. Það vekur líka athygli að innborgað hlutafé frá stofnun félags- ins skv. ársreikningi, er um 920 millj- ónir króna. Heildar eigið fé í árslok er meira en 50% lægra eða komið niður í 432 milljónir króna á þessum stutta tíma. En þrátt fyrir þetta innborgaða hlutafé eru heildarskuldir komnar í árslok upp í 1,6 milljarða króna auk ábyrgða hjá þessu fyrirtæki sem eru í miklum áhætturekstri. Þess má geta að heildartekjur á þessu ári eru áætl- aðar 590 milljónir króna. Niðurstaðan er sú að þeir geta ekki nýtt sér það sem að þeir keyptu og reykvískir skattgreiðendur þurfa að greiða þann kostnað sem af því hlýst.“ Guðlaugur Þór Þórðarson um afkomutölur Línu.Nets Hrikaleg fjár- festingamistök UNDIRBÚNINGSSTJÓRN að stofnun Sparisjóðs Vestfirðinga hefur boðað stofnfund sparisjóðsins laugar- daginn 28. apríl næstkomandi, klukk- an 16 á Núpi í Dýrafirði. Sparisjóð- irnir sem sameinast munu í Sparisjóð Vestfirðinga eru Eyrasparisjóður, Sparisjóður Þingeyrarhrepps, Spari- sjóður Önundarfjarðar og Sparisjóð- ur Súðavíkur. Er þetta í samræmi við ákvörðun aukafunda stofnfjáraðila þessara sjóða í lok október á liðnu ári. Átta afgreiðslustaðir verða hjá hin- um sameinaða sparisjóði, í Króks- fjarðarnesi, á Patreksfirði, Tálkna- firði, Bíldudal, Þingeyri, Flateyri, Ísafirði og í Súðavík. Í fréttatilkynn- ingu kemur fram að ekki er gert ráð fyrir uppsögnum starfsmanna vegna sameiningarinnar. Afgreiðslur verða allar opnar með óbreyttu sniði, en af- greiðslan á Ísafirði flytur í nýtt hús- næði í Aðalstræti 20 í lok maímán- aðar. Höfuðstöðvar hins sameinaða sjóðs verða á Þingeyri. Undirbúningsstjórn hefur lagt til að Angantýr Valur Jónasson á Þing- eyri verði sparisjóðsstjóri, Hilmar Jónsson á Patreksfirði verði útibús- stjóri, Eiríkur Finnur Greipsson á Flateyri aðstoðarsparisjóðsstjóri og Steinn Ingi Kjartansson á Súðavík skrifstofustjóri. Afgreiðslur sjóðsins í Barðastrandarsýslu verða með bankanúmerið 1118, en afgreiðslur í Ísafjarðarsýslu verða með banka- númerið 1128. Samkeyrsla á tölvu- tækum gögnum, svo sem bankareikn- ingum viðskiptavina, fer fram að kvöldi 4. maí nk. Stofnfundur Sparisjóðs Vestfirðinga boðaður
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.