Morgunblaðið - 25.04.2001, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 25.04.2001, Blaðsíða 6
FRÉTTIR 6 MIÐVIKUDAGUR 25. APRÍL 2001 MORGUNBLAÐIÐ MIKIL óánægja er meðal heimilis- lækna með núverandi ástand í heilsugæslumálum, kjör og starfsað- stæður. Þetta kom fram á opnum fundi heilbrigðisnefndar Sjálfstæðis- flokks um málefni heilsugæslunnar sem haldinn var í gær. Með auknum fólksflutningum til höfuðborgarsvæðisins hefur álag á heilsugæslustöðvar í Reykjavík, Kópavogi, Seltjarnarnesi og í Mos- fellsbæ aukist en þar eru nú mun fleiri íbúar á hvern heimilislækni en æskilegt þykir. Guðmundur Einarsson, forstjóri heilsugæslunnar í Reykjavík, sagði að ekki hefði tekist að byggja heilsu- gæsluna upp nógu hratt til að sinna þeirri fjölgun íbúa sem orðið hefði í borginni og það ylli einnig erfiðleik- um að kjör heilsugæslulækna væru úrskurðuð af kjaranefnd þar sem þeim væru ákveðin hámarkskjör. Þetta væri erfið staða því vilji væri fyrir því kaupa meiri vinnu af heim- ilislæknum en heimilt væri. Hann sagði stöðuna á mörgum heilsu- gæslustöðvum vera án vandræða en að sumar þeirra ættu erfitt með að sinna þeirri eftirspurn sem væri eftir þjónustu þeirra. Til dæmis hefði þurft að seinka stækkun heilsu- gæslustöðvarinnar í Grafarvogi og enn væri beðið eftir því að hægt verði að byggja stöð í Voga-Heimahverfi – grónu hverfi sem aldrei hefði notið heilsugæslustöðvar. Þetta hefði stuðlað að því að skaða þjónustu heilsugæslunnar. Ekki vildi Guð- mundur þó meina að skortur væri á heimilislæknum á höfuðborgarsvæð- inu nú en sá skortur væri fyrirsjáan- legur. Hann sagði unnið að sameig- inlegri stefnumótun þar sem vinna skyldi að miðstýringu til að sam- ræma þjónustu og nýta krafta sem best en einnig skyldi stuðla að dreifi stýringu til að efla nýjungar í starfi, auka kostnaðarvitund og bæta ná- lægð við viðskiptavini. Starfsumhverfi óaðlaðandi Áætlað hefur verið að um 30 heim- ilislækna vanti á höfuðborgarsvæðið til að anna eftirspurn almennings eftir þjónustu heimilislækna og 20% af stöðum heimilislækna á lands- byggðinni eru ósettar. Helga Þor- bergsdóttir, hjúkrunarforstjóri í Vík í Mýrdal, sagðist enda telja þetta mönnunarvandamál verulega ógn við starfrækslu heilsugæslustöðv- anna, bæði í borg og sveit. Flestir heimilislæknar starfa ein- göngu sem ríkisstarfsmenn með þeirri undantekningu að 15–20 læknar í Reykjavík starfa sjálfstætt á stofu samkvæmt sérstökum samn- ingi við Tryggingastofnun ríkisins. Síðastliðin 16 ár hefur ekki verið gerður slíkur samningur við fleiri heimilislækna og heyrðust háværar óánægjuraddir frá fundargestum sem sögðu starfsumhverfið í dag vera óaðlaðandi og í einkavæðingu mætti sjá vaxtarbrodd sem gæti virkað hvetjandi fyrir fólk að sækja inn í starfið. Fyrirsjáanleg er um- talsverð fækkun í hópi heimilislækna á næstu 10 árum vegna þeirra sem ná eftirlaunaaldri og hélt Ólafur Mixa, yfirlæknir á heilsugæslunni í Lágmúla, því fram að sú staðreynd að heimilislæknar væru einu sér- fræðingarnir í læknisfræði sem ekki hefðu rétt til sjálfstæðs stofurekst- urs mundi ekki hvetja unga lækna til að leggja í sérnám í þeirri grein. Tryggja þyrfti sérfræðingum í heim- ilislækningum rétt til að stunda eigin rekstur til samræmis við aðra sér- fræðinga í læknisfræði. Hann sagði stjórnvöld reyndar gera umhverfi til einkareksturs. Ríkið vildi hafa hönd í bagga með hvernig fyrirtæki væru rekin og eftirlit með starfsemi væri alltaf að aukast. „Frelsið við einka- rekstur reynist þá platfrelsi,“ sagði Ólafur. Þörf á nýjum áherslum Heimilislæknir í fundarsal tók undir orð Ólafs og lýsti yfir undrun sinni með orð lækningaforstjórans um að enginn skortur væri á heim- ilislæknum, hann væri víst fyrir hendi og margir kollega sinna hefðu hugleitt í fullri alvöru að hætta heim- ilislækningum og fara yfir í aðrar sérgreinar. Sjálfur væri hann ný- kominn heim til Íslands eftir áratugs dvöl erlendis og kvaðst finna fyrir áberandi deyfð innan stéttarinnar sem var ekki til staðar áður en hann hélt af landi brott. Hugarfarsbreyt- ing væri meðal lækna sem kæmi ekki á óvart þegar litið væri til þess að endurnýjun innan stéttarinnar væri engin og þess bæri að geta að með- alaldur heimilislækna hér á landi væri um fimmtugt. Fundarmenn skoruðu á þing- mennina Ástu Möller og Árna Ragn- ar Árnason að spyrja nýjan heil- brigðisráðherra hvort nýrra áherslna eða breytinga væri að vænta á vinnureglum um stöðu heimilislækna. Ásta Möller sagðist mundu gera það en sagði fundar- mönnum einnig að ef Sjálfstæðis- flokkur hefði haft ráðuneyti heil- brigðismála á sinni könnu sl. 10 ár væri staðan önnur í heimilislækning- um í dag. Uppbygging heilsugæslunnar gengur of hægt FLUGMÁLASTJÓRN vinnur að rannsókn á meintum mistökum sem gerð voru við viðgerð á lítilli Cessna- flugvél sem flugfélagið Jórvík hafði í sínum rekstri á síðasta ári. Heimir Már Pétursson, upplýsinga- og kynn- ingarfulltrúi Flugmálastjórnar, segir að málið hafi borist Flugmálastjórn síðastliðinn mánudag þegar reynt hafi verið að ræsa nýviðgerðan hreyf- il vélarinnar hjá viðhaldsverkstæðinu Flugporti sem er í eigu Jórvíkur. Þegar hreyfillinn var gangsettur hafi komið í hann skrölt og óhljóð. For- sagan er sú að þegar vélinni var var flogið yfir Bláfjöll 28. janúar sl. hafi komið titringur í hreyfilinn. Flug- maðurinn dró úr aflinu og lenti heilu og höldnu á Reykjavíkurflugvelli. Vélin hefur síðan að mestu leyti stað- ið óhreyfð. Heimir Már segir að í síðustu viku hafi starfsmenn Flugports skipt um strokk hreyfilsins og þá hafi komið í ljós að ventill í honum hafði brotnað. Að því loknu var hreyfillinn gangsett- ur og komu þá fram í honum miklar gangtruflanir. Þá voru menn frá Flugmálastjórn kallaðir til í þeim til gangi að skoða hreyfilinn. „Sú skoðun leiddi í ljós að einn af ventlum hreyf- ilsins var of lítill og það lítur út fyrir að ventillinn hafi verið úr hreyfli ann- arrar tegundar,“ segir Heimir Már. Hann segir að þessi vél eigi sér sögu hjá Flugmálastjórn. Lofthæfis- skírteini var tekið af henni 26. októ- ber sl. en hún fékk síðan aftur loft- hæfisskírteini 29. desember fyrir verkflug, þ.e. ekki má fljúga henni með farþega. Vélinni flogið í trássi við bann Heimir Már segir að lofthæfisskír- teinið hafi verið tekið af vélinni á grundvelli viðhaldsmála hennar sem Flugmálastjórn var ekki sátt við. Einnig var 100 tíma skoðun vanrækt og var vélin komin 44 tíma fram yfir þá skoðun 8. júní sl. þegar hún var færð til skoðunar á Flugvélaverk- stæði Guðjóns V. Sigurgeirssonar. 10. júní var vélin tekin úr skoðuninni áður en henni lauk. Var vélin því aldr- ei með 100 tíma skoðunina þótt annað væri fullyrt í umsókn um endurnýjun á lofthæfisskírteini 2. ágúst sl. Vél- inni er síðan flogið með farþega í trássi við bann þar um 3.–14. ágúst eða þar til Flugmálastjórn gerði flug- rekstrarstjóra Jórvíkur aðvart sem stöðvaði þá flugið. Heimir Már segir að þarna sé um vítaverð brot að ræða og þetta og viðhaldsmál vélarinnar hafi leitt til þess að lofthæfisskírteini var tekið af vélinni. Heimir Már segir að rannsókn Flugmálastjórnar nú snúist um það hver hafi síðast átt við hreyfilinn og hver viðhaldssaga hans er. Jón Grétar Sigurðsson, flugrekstr- arstjóri Jórvíkur, segir að komið hafi í ljós að það hafi verið brotinn ventill í hreyfli vélarinnar og í framhaldi hafi verið skipt um strokk í vélinni hjá Flugporti. Í uppkeyrslu hafi síðan komið í ljós að stykki úr ventlinum virðist hafa borist inn á aðra strokka hreyfilsins. Jón Grétar segir að það sé Jórvík og Flugporti óviðkomandi að ventill úr annarri gerð flugvélar hafi verið sett í hreyfilinn. „Hún var í viðhaldi þessi flugvél hjá Flugvéla- verkstæði Guðjóns og það var þetta fyrirtæki sem framkvæmdi síðustu viðgerð á strokknum. Við skiptum um strokkinn eftir að vélin hafði bil- að.“ Jón Grétar vildi ekki tjá sig um hvers vegna 100 tíma skoðun vélar- innar hafi verið vanrækt, eins og kemur fram í máli kynningar- og upplýsingafulltrúa Flugmálastjórn- ar. Jón Grétar segir að vélin sé ekki í eigu Jórvíkur heldur einkaaðila en í viðhaldi hjá Flugporti en Jórvík hafi haft umráð yfir henni fram eftir síð- asta ári. „Málið snýst ekki um fyr- irtækið heldur eingöngu þennan strokk og hvernig það má vera að all- ar líkur bendi til þess að vitlaus vent- ill hafi verið settur í strokkinn síðast þegar hann var tekinn af flugvélinni í júlí á síðasta ári.“ Flugmálastjórn kannar viðhaldssögu lítillar Cessna-vélar Rannsakað hver hafi sett rangan ventil í vélina ÞAÐ sem af er árinu hefur 17 sáttamálum verið vísað til ríkis- sáttasemjara og þar af hafa samn- ingar náðst í 5 málum, síðast í gær milli starfsmanna Hafnarfjarðar- bæjar hjá Samiðn og Verkamanna- félaginu Hlíf annars vegar og launanefndar sveitarfélaga hins vegar. Ótalin eru fjölmörg sátta- mál sem hafa verið hjá sáttasemj- ara frá því á síðasta ári og þar á meðal er sjómannadeilan. Samn- ingafundur í þeirri deilu í gær varð árangurslaus, að sögn ríkissátta- semjara, og hefur hann boðað nýj- an fund á morgun, fimmtudag. Síðasta kjaradeila, sem vísað var til sáttasemjara, var á mánudag þegar hann fékk til sín mál ríkisins og starfsmannafélags Sinfóníu- hljómsveitar Íslands. Önnur sáttamál þessa árs sem samningar hafa tekist í er hjá mat- reiðslumönnum og flugmálastarfs- mönnum hjá ríkinu, verkafólki á Kumbaravogi og rafvirkjum hjá Norðurorku á Akureyri. Af þeim 12 málum sem eftir er að ljúka með samningi eru 7 hjá ríkinu. Þetta eru kennarar við Há- skóla Íslands og Kennaraháskól- ann, verkfræðingar, sjúkraliðar, hjúkrunarfræðingar, náttúrufræð- ingar og meðlimir Sinfóníuhljóm- sveitarinnar. Önnur óleyst mál eru hjá verkfræðingum hjá Reykjavík- urborg, verkstjórum á Grundar- tanga og sveitarfélögin eiga eftir að semja við náttúrufræðinga, félagsráðgjafa og þroskaþjálfa. Sáttamál sem vísað hefur verið til sáttasemjara á árinu Búið að semja í 5 af 17 málum Morgunblaðið/ Jón Svavarsson Ekki var annríkið á samningafundi sjómanna og útvegsmanna í Karp- húsinu í gær meira en svo að Helgi Laxdal, formaður Vélstjórafélagsins, gat hlaupið undir bagga með starfsmönnum ríkissáttasemjara og bakað vöfflur í tilefni samnings Hlífar og Samiðnar við Hafnarfjarðarbæ og Launanefnd sveitarfélaga. SAMNINGAFUNDUR hefur verið boðaður í Karphúsinu í dag vegna kjaradeilu ríkisins og Félags háskólakennara við Háskóla Íslands. Ekki var fundað í gær en á fundi á mánu- dag segir Róbert Haraldsson, formaður Félags háskólakenn- ara, að „mjakast“ hafi áleiðis í samkomulagsátt. „Viðræðurnar eru á of við- kvæmu stigi til að hægt sé að segja meira um stöðuna,“ segir Róbert en vika er til stefnu þar til boðað verkfall á að hefjast í Háskólanum 2. maí og standa til 16. maí, eða á þeim tíma sem próf áttu að fara fram í skól- anum. Mjakast áfram hjá háskóla- kennurum ÁKVEÐIÐ hefur verið að fresta frekari viðræðum um sameiningu sveitarfélaga í Rangárvallasýslu fram til haustsins. Sameining tíu hreppa í sýslunni var felld í kosn- ingum 21. mars sl. í fjórum hreppum en nokkrar þreifingar hafa átt sér stað síðan. Að sögn Guðmundar Inga Gunnlaugssonar, sveitarstjóra Rangárvallahrepps, byrjaði hrepps- nefnd Holta og Landsveitar á að bjóða til viðræðna hreppsnefndum Djúpárhrepps og Ásahrepps en sam- einingin var felld í hreppunum. Hreppsnefnd Djúpárhrepps sam- þykkti að ganga til viðræðna en hreppsnefnd Ásahrepps hafnaði því. Þá komu saman hin sjö sveitar- félögin, sem eru öll austan Ytri- Rangár. Ákveðið var að leggja fyrir allar hreppsnefndirnar tillögu um það hvort þær vildu taka upp við- ræður um sameiningu. Rangárvalla- hreppur og Vestur-Eyjafjallahrepp- ur höfnuðu viðræðum. Sameiningu sveitarfélaga frestað
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.