Morgunblaðið - 25.04.2001, Side 16
AKUREYRI
16 MIÐVIKUDAGUR 25. APRÍL 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Sveitarstjórn Eyjafjarðarsveitar auglýsir hér með til-
lögu að deiliskipulagi fyrir byggingarreit í landi Brúar-
lands. Skipulagssvæðið er nefnt Brúnahlíð og liggur
nyrst og vestast í landi jarðarinnar. Svæðið er ca 2,5
ha og þar verður heimilt að byggja 8 einnar og
tveggja hæða íbúðarhús.
Tillagan er auglýst með vísan til 25. gr. skipulags- og
byggingarlaga nr. 73/1997 og verður hún til sýnis á
skrifstofu Eyjafjarðarsveitar á Syðra-Laugalandi frá
og með 25. apríl til og með 23. maí 2001. Þeir, sem
vilja gera athugasemd við tillöguna, skulu gera það
með skriflegum hætti fyrir kl. 16.00 miðvikudaginn 6.
júní 2001. Hver sá sem ekki gerir athugasemd fyrir
tilskilinn frest telst samþykkur tillögunni.
Sveitarstjóri
Auglýsing
um deiliskipulag í
Eyjafjarðarsveit
SJÖFN hf. á Akureyri og Goði hf. í
Reykjavík hafa gert með sér víð-
tækan samning um viðskipti með
hreinsiefni, gerð þrifalýsinga og
ráðgjöf.
Goði mun samkvæmt samningn-
um kaupa öll hreinsiefni fyrir slát-
urhús og kjötvinnslur fyrirtækis-
ins um land allt frá Sjöfn og þá
mun Sjöfn sjá vinnslueiningum
Goða fyrir þrifalýsingum, aðstoða
við gerð gæðakerfa og sjá um eft-
irlit með þrifum hjá fyrirtækinu.
Í frétt frá félögunum kemur
fram að samningurinn sé þeim
báðum mikilvægur, en ávinningur
samskonar samninga við önnur
félög í sömu grein hafa haft í för
með sér betri þrif og lækkun
kostnaðar. Samningurinn er þann-
ig liður í því að efla gæðastjórnun
hjá Goða, en þrif verða í kjölfar
hans markvissari auk þess sem
gert er ráð fyrir að sparnaður á
því sviði náist.
Sjöfn og Goði semja
um hreinlætismál
FYRSTU ferðalangar sumarsins
eru komnir á stjá þó að enn sé land-
ið ekki farið að skarta sum-
arklæðum og nokkuð í að gróð-
urinn fari að sýna græna litinn.
Dupoux-hjónin frá Frakklandi áttu
leið um Akureyri í gær og stöldr-
uðu við á einu af bílastæðum bæj-
arins þar sem þau elduðu sér máls-
verð.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Dupoux-hjónin frá Frakklandi höfðu skamma viðdvöl í blíðviðrinu á Akureyri í gær og elduðu sér málsverð.
Franskir ferðalangar
snemma á ferðinni
DAGUR umhverfisins er í
dag, miðvikudaginn 25. apríl,
og verður af því tilefni ýmis-
legt um að vera á Akureyri.
Dagurinn er fæðingardagur
Sveins Pálssonar, fyrsta ís-
lenska náttúrufræðingsins
sem fyrstur manna hvatti til
aðgerða gegn skógareyðingu á
Íslandi.
Á Glerártorgi verða kynn-
ingar og í boði leiðbeiningar
um umhverfismál heimilisins,
m.a. verða veittar upplýsingar
um vorverk í garðinum, vist-
vernd í verki, umhverfis-
merktar vörur og lífrænt
ræktuð matvæli. Sýnikennsla í
runna- og trjáklippingum
verður í gróðarstöð Skógrækt-
arfélags Eyfirðinga í Kjarna-
skógi og hefst hún kl. 17.
Gróðurhúsið í Lystigarðin-
um verður opið frá kl. 10 til 16,
en það var vígt á Degi um-
hverfisins árið 1999. Gengið er
inn frá bílastæði FSA. Einnig
verður opið hús í Gróðrarstöð-
inni, Krókeyri, frá kl. 13 til 18,
en þar eru m.a. ræktuð sum-
arblóm.
Um kvöldið verður stutt
kvöldganga með leiðsögn um
Glerárgil og hefst hún kl. 20.
Kvöldgangan byrjar á bíla-
stæði Glerárskóla en farið
verður um neðsta hluta gils-
ins. Á eftir verður litið á
„rauða millilagið“ við Borgar-
brautina, en það er talið vera
9-10 milljóna ára gamalt.
Dagskrá á Degi
umhverfisins
Kynningar,
opin hús og
kvöldganga
SKREF fyrir skref er heiti á nýjum
geisladiski sem nú er að koma í
verslanir. Diskurinn hefur að geyma
12 lög í flutningi listamanna sem
margir hverjir eru landsþekktir en
diskurinn er gefinn út til styrktar
handknattleiksdeild KA. Áhersla var
lögð á að verkið yrði eins eyfirskt og
hugsast gæti, þ.e. að flytjendur
byggju á svæðinu og lögin væru úr
firðinum.
Jón Björnsson, sparisjóðsstjóri
Sparisjóðs Norðlendinga, átti hug-
myndina, en Kristján Edelstein og
fyrirtæki hans Stúdíó Hljóðlist tók
að sér upptökur og útsetningar auk
þess sem Pálmi Gunnarsson tók
einnig þátt í að koma diskinum út.
Fjögur laganna eru ný og hafa
ekki heyrst áður en þau lög sem áður
hafa komið út eru í nýjum útsetn-
ingum.
Flytjendur eru Pálmi Gunnars-
son, Óskar Pétursson, Michael Jón
Clarke, Audrey Clarke, Inga Eydal,
Sigrún Anna Arngrímsdóttir, Frið-
rik Ómar, Herdís Ármannsdóttir,
Jón Björnsson og PKK.
Diskurinn er til sölu í Pennanum/
Bókvali og er hægt að nálgast hann
bæði norðan og sunnan heiða, en
einnig verður gengið í hús á Akur-
eyri og hann boðinn til kaups.
Geisladiskur til styrktar handknattleiksdeild KA
Aðstandendur disksins Skref fyrir skref.
Skref fyrir skref með tólf
nýjum og eldri lögum
MINNINGARMÓT um Marjo Krist-
insson fór fram í Skautahöllinni á
Akureyri um liðna helgi. Marjo var
mikil driffjöður í Skautafélagi Ak-
ureyrar og vann jafnt fyrir allar
deildir, þ.e. ísknattleik, listhlaup og
krullu (curling) og því þótti við hæfi
að keppt yrði í öllum greinunum á
mótinu.
Mótið var með léttu yfirbragði og
skemmtu keppendur sér vel frá
föstudagskvöldi og fram á sunnu-
dag. Stefnt er að því að gera minn-
ingarmótið að árlegum viðburði í
lok keppnistímabils og er markmið
þess ekki endilega að sigra heldur
að vera með og hafa gaman af.
Keppendur komu frá Reykjavík og
tóku þátt í listhlaupi og krullu en
því miður komst ekkert ísknatt-
leikslið að þessu sinni.
Mótið hófst í keppni í krullu og
komu ísknattleiksmenn þar á óvart
og sigruðu með glæsibrag en sex lið
tóku þátt. Í sigurliðinu voru þeir
Sveinn Björnsson, Sigurgeir Har-
aldsson, Baldur Óli Baldursson,
Steinar Sigurðsson og Clark
McCormick.
Audrey Freyja Clarke úr SA
sigraði í listhlaupskeppninni, Hild-
ur Ómarsdóttur úr SR varð í öðru
sæti og Kristín Helga Hafþórsdóttir
úr SA í því þriðja.
Tveir ísknattleikir voru spilaðir á
mótinu, annars vegar milli kvenna-
liðs og unglinga og höfðu þeir síð-
arnefndu betur í bráðabana, 11-10,
og hins vegar milli kvennaliðs og
Old boys þar sem gamalmennin
höfðu sigur 17-11.
Minningarmótinu lauk með sýn-
ingu frá akureysku listhlaupastelp-
unum sem sýndu frábæra tilburði.
Minningarmót um Marjo Kristinsson
Keppt í íshokkí,
listhlaupi og krullu
Stúlkurnar sem sýndu listhlaup. Frá vinstri, aftari röð: Kristín Helga
Hafþórsdóttir, Audrey Freyja Clarke, Helga Margrét Clarke, Auður
Dögg Pálsdóttir og fyrir framan eru Urður Ylfa Arnardóttir og Ingi-
björg Bragadóttir.