Morgunblaðið - 25.04.2001, Page 27
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. APRÍL 2001 27
HVAÐ er til ráða þegar kórstjóri
finnur ekki nótur að verkinu sem
hann vill flytja með kórnum sínum?
Hilmar Örn Agnarsson organisti í
Skálholti heyrði fyrir nokkrum ár-
um á geisladiski með Dómkórnum í
Riga í Lettlandi afar fallegt verk
eftir franska tónskáldið Gabriel
Fauré, Ave verum corpus, fyrir kór,
einsöngvara, orgel, hörpu og hljóm-
sveit. Hilmar hóf leit að verkinu, en
það virtist hvergi fáanlegt, hvorki
hjá stærri né smærri nótnaforleggj-
urum. Netið gaf engin svör, og
lærðar bækur um tónlist gátu held-
ur ekki gefið neinar upplýsingar um
verkið. Engar aðrar upptökur virt-
ust heldur til með verki Faurés.
Hilmar Örn brá á það ráð að fá til
liðs við sig Skarphéðin Hjartarson
söngvara og tónlistarkennara, sem
þekktur er að góðu tóneyra, og fékk
hann til að skrifa verkið niður eftir
geisladiskinum góða frá Riga. Þetta
gerðu reyndar gömlu meistararnir,
þegar þeir vildu verða sér út um
verk annarra tónskálda, oft voru
ekki önnur ráð en að skrásetja verk
eftir heyrn. Að sögn Hilmars Arnar
var þetta mikil vinna, en árangur-
inn er sá að nú er verkið tilbúið til
flutnings og verður flutt á tónleik-
um Skálholtskórsins í Fossvogs-
kirkju í kvöld kl. 20.00.
Upprisan er þema tónleikanna
Hann segir verkið mikinn gull-
mola og eitt það fegursta sinnar
tegundar. Reyndar hefur Hilmar
Örn lagt fram kenningu um tilurð
verksins. Hann komst að því að
Fauré, sem var snjall organisti, var
góðvinur organistans í dómkirkj-
unni í Riga um aldamótin, og vera
má að verkið hafi verið vinargjöf
Faurés til Lettans. Vegna einangr-
unar landsins á síðustu öld, hafi
verkið svo dagað uppi í Riga og
hugsanlega ekki verið til nema í því
eina handriti sem Fauré skildi þar
eftir. Með Skálholtskórnum syngja
einsöngvararnir Sigrún Hjálmtýs-
dóttir og Anna Sigríður Helgadótt-
ir. Hljómsveitin er leidd af Gretu
Guðnadóttur; Kári Þormar leikur á
orgel og Monica Abendroth á
hörpu.
En það er fleira á efnisskrá tón-
leika Skálholtskórsins í Fossvogs-
kirkju. Upprisan er þema tón-
leikanna og miðast verkefnaval við
það. Meðal verka sem kórinn syng-
ur fyrir hlé eru Ave María eftir Sig-
urð Þórðarson, Heill þér himneska
orð eftir Fauré, Agnus Dei eftir
Bizet Laudate dominum eftir Moz-
art og svo verk Faurés Ave verum
corpus, en víst má telja að það sé
frumflutningur þess á Íslandi. Til
að undirstrika upprisu Krists verð-
ur síðasta verk fyrir hlé Hallelúja
kórinn úr Messíasi eftir Händel.
Eftir hlé er eitt verk á dagskrá,
Gloría í D-dúr, eftir Vivaldi, en það
hefur verið aðal vetrarverkefni
kórsins.
Að sögn Hilmars Arnar eru félag-
ar í Skálholtskórnum einkum
mjólkurbændur, grænmetis- og
blómabændur úr sveitunum við
Skálholt. Kórinn fagnar tíu ára af-
mæli sínu um þessar mundir og því
er íbúum höfuðborgarsvæðisins
boðið að hlusta. Hilmar segir Foss-
vogskirkju eitt fegursta hús
Reykjavíkur, það sé hús sorgarinn-
ar, en þeim hafi þótt það táknrænt
að tengja það þema tónleikanna,
upprisunni, þar sem gleðin og lífið
sigra að lokum.
Skálholtskórinn syngur í Fossvogskirkju í kvöld
Kórverk eftir Fauré
heimt úr glatkistunni
Skálholtskórinn ásamt Sigrúnu Hjálmtýsdóttur sópransöngkonu sem syngur einsöng á tónleikunum.