Morgunblaðið - 25.04.2001, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 25.04.2001, Blaðsíða 52
HESTAR 52 MIÐVIKUDAGUR 25. APRÍL 2001 MORGUNBLAÐIÐ Nýhestamót Sörla Tölt – opinn flokkur 1. Katrín Gestsdóttir á Stormi 6 v. frá Strönd 2. Adolf Snæbjörnsson á Hörpu 8 v. frá Reykjavík 3. Pálmi Adolfsson á Frey 7 v. frá Lambleiksstöðum 4. Sigurður Ævarsson á Djákna 6 v. frá Suður-Nýjabæ 5. Páll Ólafsson á Hrímu 6 v. frá Tungu Tölt – áhugamannaflokkur 1. Jón Sigurðsson á Gormi 6 v. frá Grímsstöðum 2. Þorsteinn Eyjólfsson á Kóngi 7 v. frá Hurðarbaki 3. Ólafur Ólafsson á Funa 8 v. frá Grjóteyri 4. Guðrún Astrid á Gloríu 12 v. frá Mykjunesi 5. Þorsteinn Lárusson á Jötni 9 v. frá Enni Tölt – nýliðaflokkur (knapar sem ekki hafa keppt áður) 1. Andreas Bergmann á Gígju 17 v. frá Álftanesi 2. Viggó Sigurðsson á Sokka 11 v. 3. Linda Bragadóttir á Funa 10 v. frá Skarði 4. Ingi Björnsson á Þyt 12 v. frá Miðkoti 100 m brokk 1. Viggó Sigurðsson á Sokka 11 v. 2. Hreinn Bjarnason á Hendingu 18 v. frá Skipanesi 3. Sigurður Ævarsson á Djákna 6 v. frá Suður-Nýjabæ 100 m skeið 1. Páll Ólafsson á Vordísi 9 v. frá Tungu 2. Daníel Ingi Smárason á Kambi 8 v. frá Svignaskarði Töltmót Þyts og Hestamiðstöðvarinnar á Gauksmýri, 12. apríl Opinn flokkur 1. Svanhildur Hall á Kráki frá Gauskmýri 2. Herdís Einarsdóttir á Kæti frá Grafarkoti 3. Halldór Sigurðsson á Heru frá Brekku 4. Magnús Lárusson á Giffli frá Grafarkoti 5. Sverrir Sigurðsson á Jasmín frá Höfðabakka Áhugamenn 1. Ingvar J. Jóhannsson á Pötu frá Víðidalstungu 2. Hjördís Ó. Óskarsdóttir á Öfga frá Höfðabakka 3. Árborg Ragnarsdóttir á Hrund frá Hvammstanga 4. Malin Person á Hel frá S-Kolugili 5. Andrea Laible á Snældu frá N-Vatnshorni Unglingaflokkur 1. Fanney D. Indriðadóttir á Ásjónu frá Grafarkoti 2. Helga R. Níelsdóttir á Skjóna frá Fremri-Fitjum 3. Helga U. Björnsdóttir á Kormáki frá Reykjum 4. Gerður R. Sigurðardóttir á Gælu frá Kolugili 5. Katrín S. Rúnarsd. á Frosta frá Neðra-Vatnshorni Samanlagðir sigurvegarar þriggja töltmóta á Gauksmýri í vetur Opinn flokkur: Herdís Einarsdóttir, Grafarkoti Áhugamenn: Andrea Laible, Neðra-Vatnshorni Unglingar: Fanney D. Indriðadóttir, Grafarkoti. Töltmót Sleipnis og Loga í Ölfushöllinni Sleipnir – 16 ára og yngri 1. Sandra Hróbjartsdóttir á Verðanda frá Grund 2. Kristinn Loftsson á Glanna frá Strönd 3. Sigrún A. Brynjarsdóttir á Loga frá Voðmúlastöðum 4. Daníel I. Larsen á Ljúfi frá Sandhólaferju 5. Emil Þ. Guðjónsson á Gunndísi frá Strönd 17 ára og eldri 1. Sigurður Ó. Kristinsson á Kviku frá Egilsstaðakoti 2. Svanhvít Kristjánsdóttir á Faldi frá Syðri-Gróf 3. Sigursteinn Sumarliðason á Toppi frá Selfossi 4. Steindór Guðmundsson á Ófeigi frá Miðhjáleigu 5. Brynjar J. Stefánsson á Röst frá Voðmúlastöðum Logi – 16 ára og yngri 1. Eldur Ólafsson á Silkisif frá Torfastöðum 2. Thelma K. Grant á Mekki frá Bjarnastöðum 3. Andri Þ. Valgeirsson á Framari frá Árgerði 4. Tinna D. Tryggvadóttir á Lyftingu frá Kjarnholtum 5. Hunter I. Muscat á Fífu frá Torfastöðum 17 ára og eldri 1. María Þórarinsdóttir á Hnotu frá Fellskoti 2. Knútur Ármann á Garúnu frá Friðheimum 3. Stígur Sæland á Arney frá Torfastöðum 4. Magnús Einarsson á Glófaxa frá Þúfu 5. Kristinn B. Þorvalds. á Sunnu frá Stóra-Vatnsskarði VEL á þriðja þúsund hestamanna brugðu sér um helgina á sýningar í reiðhöll til að fylgjast með glæstum gæðingum og snjöllum knöpum leika listir sínar. Fákur hélt sína árlegu sýningu í Reiðhöllinni í Víðidal þar sem boðið var upp á sýningu föstu- dags- og laugardagskvöld og lögð sérstök áhersla á föstudagskvöldið sem hefur til þessa fengið lélega að- sókn. Sýningarstjórarnir Hafliði Halldórsson og Vignir Jónasson höfðu lofað húsfylli á föstudagskvöld en þótt ekki hafi það tekist nú geta þeir vel við unað því mæting var góð, á sjöunda hundrað sem þykir gott miðað við fyrri sýningar. Alls hafa því komið á sýninguna um 1.400 manns sem verður að teljast viðunandi. Breyttar kröfur og væntingar Frekar góður rómur var gerður að sýningu fáksmanna sem þýðir þó ekki að hún hafi verið eitthvað betri en fyrri sýningar. Liggur það frekar í því í að kröfur og væntingar sýning- argesta hafa breyst, menn hafa að því er virðist gert sér grein fyrir því að á þeim árum sem boðið hefur verið upp á hestasýningar í Reiðhöllinni í Víði- dal er búið að koma víða við og reyna margt. Verður því alltaf erfiðara að bjóða upp á eitthvað nýtt og spenn- andi. Sýningargestir koma í dag fyrst og fremst til að horfa á góða hesta og fái þeir þá ósk uppfyllta fara þeir glaðir heim. Og það gat ýmislegt gott að líta í Víðidalnum að þessu sinni og má þar nefna Sportmenn úr Keflavík sem voru með vel æft atriði sem féll vel í kramið. Sýning þeirra Suðurnesja- manna er gott dæmi um það hvað vel ríðandi áhugamenn geta dundað sér við hafi þeir reiðhöll, góða hesta og frjósamt hugarflug. Hegri út úr leyndarskápnum Kynbótahross voru að venju sýnd og vekja alltaf áhuga. Mætti þar nefna nokkur til sögunnar en fremst- ur þeirra var án efa stóðhesturinn Hegri frá Glæsibæ sem er undan Ófeigi frá Flugumýri og Kolfinnu frá Glæsibæ. Vignir Jónasson sýndi Hegra. Kolfinna þessi er móðir gæð- ingsins kunna Sölva frá Glæsibæ en það sem vekur kannski mesta athygli er að þessi hestur hefur fengið fyrstu verðlaun síðan ’98 og með ólíkindum hvað hróður hans hefur farið leynt því klárinn er 9 vetra gamall. Ætla má því að frægðarsól hans fari nú rís- andi úr þessu því hér gæti vel verið á ferðinni einn áhugaverðasti stóðhest- urinn sem komið hefur fram undan Ófeigi. Með Hegra var sýndur Snerr- ir frá Bæ sem kom prýðilega fyrir hjá Olil Amble en féll þó eigi að síður í skuggann fyrir þeim móálótta. Annar ungur stóðhestur er Hrim- ur frá Hofi sem Vignir Jónasson sýndi. Sá er undan Skorra frá Blönduósi og Hlökk frá Hólum. Með honum var sýnd fjögurra vetra hryssa, Íris frá Ármóti, sem er undan Frama frá Ragnheiðarstöðum og Krás frá Laugarvatni sem kom þarna fram með afkvæmum. Temjum fyrst – sýnum svo Þá var sýnd þarna í sóló-sýningu fjögurra vetra hryssa, Sól frá Reykjavík, og hefði hún, þrátt fyrir að vera bráðefnileg, mátt sitja heima og hvíla sig. Þulir margtóku fram með mikilli aðdáun að hún væri að- eins tamin í einn mánuð eins og reyndar framganga hennar bar glöggt vitni um. Sýning þessarar hryssu vekur spurningar um það hver sé tilgangurinn að koma fram með svo lítið tamið trippi. Voru þetta síðustu forvöð að sýna þessa efnilegu hryssu? Mátti ekki gefa henni hálfan mán- uð í tamningu til viðbótar og mæta þá frekar með hana á reiðhallarsýningu í byrjun maí fyrst svona bráðliggur á að sýna hana í Reiðhöllinni? Hver er tilgangurinn að sýna lítið tamið trippi sem hoppar og skoppar reiðvöllinn þveran og endilangan og fer vart lengd sína á hreinum gangi, hvorki brokki né tölti? Um sýningu Sólar hinnar efnilegu má segja að þar hefði betur verið heima setið en af stað farið því þarna var um hreina afskræmingu að ræða á því sem á að vera fallegt og hest- vænt. Vísast hefði enginn gert at- hugasemd við sýningu Sólar ef allt hefði gengið upp eins og þegar sýn- ingarstjórar skoðuðu hana fyrir sýn- inguna en þetta dæmi sýnir vel að mikil áhætta er tekin með því að velja svo lítið tamin hross til reiðar inn á sýningu. Í heild var þetta prýðileg sýning margt gott að sjá sem gladdi augað. Ekkert svo sem nýtt annað en ungu hrossin sem lítið eða ekki hafa komið fram. Atriðin sum hver kannski frek- ar hraðsoðin eins og oft vill verða en eins og alltaf voru það betri hrossin sem héldu sýningunni uppi og sáu til þess að flestir gátu farið heim glaðir og sáttir. Þágufallið á förum úr íslenskri hestamennsku Nýir þulir spreyttu sig á Hesta- dögum að þessu sinni, þau Tómas Ragnarsson sem hefur þokkalega rödd og góðan húmor og svo Sólveig Ásgeirsdóttir sem er starfsmaður á skrifstofu samtaka hestamanna og má spá henni góðum frama á þessum vettvangi. Hún hefur góða og skýra rödd, þekkir vel til í hestamennsk- unni, bæði menn og hesta, og hefur gott vald á íslensku máli sem er því miður orðið fáheyrt á hestamótum. Það hefur verið verulegt áhyggjuefni málvöndunarmanna í röðum hesta- manna hversu málfar margra þula á samkomum þeirra er lélegt. Verður ekki betur séð ef fram heldur sem horfir að þágufall verði horfið úr mál- vitund hestamanna innan fárra ára. Á Hestadögum 2001 keyrði alveg um þverbak í þessum efnum. Færri komust að en vildu Á Sauðárkróki var blásið í fyrsta sinn til leiks í reiðhöllinni sem ber nafnið Svaðastaðir með einni stór- sýningu norðlenskra hestamanna og er það mál manna sem með fylgdust að vel hafi til tekist og líklega einu mistökin að hafa sýningarkvöldin ekki tvö í stað eins. Ingimar Ingi- marsson sýningarstjóri sagði að blint hefði verið rennt í sjóinn með aðsókn og eins hversu margir kæmust í höll- ina. Raunin hefði orðið sú að því mið- ur hefði orðið að vísa mörgum frá en líklega hafi verið í húsinu upp undir átta hundruð manns. Sex hundruð miðar hefðu verið seldir en frítt var fyrir 12 ára og yngri. Sagði Ingimar það vissulega leiðinlegt að þurfa að vísa fólki frá en um annað hafi ekki verið að ræða. „Miðað við þessar viðtökur taldi hann víst að grundvöllur væri góður fyrir tveimur sýningum því nú væri stefnt að því að halda sýningu sem þessa á hverju ári framvegis. Þetta lukkaðist mjög vel enda hafði ég úr virkilega góðum efniviði að spila fyrir sýninguna og ég fann það greinilega að menn víða á Norðurlandi voru til- búnir að leggja mikið á sig til að sem best tækist til í þessari frumraun okkar,“ sagði Ingimar. Enn hrífur Hrímnir Sýningin tók rétt rúmar tvær stundir og af þeim atriðum sem í boði voru er á engan hallað þótt fyrst sé getið hins aldna höfðingja, Hrímnis frá Hrafnagili, sem þarna kom fram 26 vetra gamall. Hrímnir vakti verð- skuldaða athygli þegar hann kom fyrst fram á Vindheimamelum fyrir 20 árum og alla tíð síðan hefur fram- ganga hans vakið mikla athygli og hrifningu og svo var einnig nú. Þrátt fyrir aldurinn virðist þessi mikli höfð- ingi halda sínum töfrum og reisn vel. Björn Sveinsson, eigandi Hrímnis, sýndi hann nú í taumi og hefur hann engu tapað í fótaburði, takti og til- þrifum. Þá vöktu athygli tvö leirljós hross Halldórs frá Vatnsleysu sem Arndís Björnsdóttir sýndi og svo Birta frá Ey sem Gísli Gíslason sýndi. Þá kom þarna fram eitt hross úr kynbótasýningu sem fór fram á Sauðárkróki á föstudag og laugar- dag, Gola frá Ysta-Gerði, sem Bald- vin Ari Guðlaugsson sýndi en hún hafði meðal annars hlotið 9,5 bæði fyrir tölt og brokk og 8,51 fyrir hæfi- leika sem er með því hæsta hjá skeið- lausu hrossi. Stóðhestarnir og hálf- bræðurnir Hilmir og Galsi frá Sauðárkróki gáfu tóninn í upphafi sýningar með skörpum skeiðsprett- um í gegnum höllina en sá síðar- nefndi kom fram með afkvæmum síð- ar á sýningunni. Reiðhallarhelgin mikla Ekki er neinum vafa undirorpið að óheppilegt hefur verið að hafa stór- sýningar sunnan og norðan heiða sömu helgi því ætla má að einhverjir að norðan myndu slæðast suður á sýningu þar og öfugt ef sýningarnar væru sín hvora helgina. Sama gildir um hestakostinn, ekki þarf að vera að keppa um einstök hross sem fengur er í að fá til sýningar. Verður þess vonandi gætt að þetta endurtaki sig ekki. Stórsýningar norðan og sunnan heiða Tvær stórsýningar á einni og sömu helginni er nokkuð sem fáa hefur órað fyrir en sú varð raunin um helgina. Fákur með Hesta- daga í Víðidal og norðlenskir hestamenn með sína frumraun á Svaðastöðum við Sauðárkrók. Valdimar Kristinsson fór í Víðidalinn og ræddi við Ingimar Ingimars- son sýningarstjóra fyrir norðan. Knapar áranna komu fram, frá vinstri talið Sigurður Matthíasson, Sævar Haraldsson, Logi Laxdal, Sigurður Sigurðarson og Sigurbjörn Bárðarson. Úrslit
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.