Morgunblaðið - 25.04.2001, Qupperneq 58

Morgunblaðið - 25.04.2001, Qupperneq 58
DAGBÓK 58 MIÐVIKUDAGUR 25. APRÍL 2001 MORGUNBLAÐIÐ Skipin Reykjavíkurhöfn: Lag- arfoss kemur og fer í dag. Blackbird kemur í dag, Dettifoss fer í dag. Hafnarfjarðarhöfn: Ocean Tiger og Nikolay Afanasjev koma í dag. Lagarfoss fer í dag. Rexnes og Arctic Swan fóru í gær. Fréttir Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur, Sól- vallagötu 48. Skrifstofan er opin alla miðvikud. frá kl. 14–17. S. 551 4349. Fataúthlutun og fatamóttaka er opin annan og fjórða hvern miðvikud. í mánuði, frá kl. 14– 17 s. 552 5277. Styrkur, samtök krabbameinssjúklinga og aðstandenda þeirra. Svarað er í síma Krabbameinsráðgjaf- arinnar, 800 4040 frá kl. 15–17. Mannamót Árskógar 4. Kl. 9–12 baðþjónusta, kl. 9–16.30 klippimyndir, harð- angur, kl. 13 smíða- stofan opin, trésmíði/ útskurður og spilað, kl. 9 hár- og fótsnyrtistofur opnar. Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8– 13 hárgreiðsla, kl. 8– 12.30 böðun, kl. 9–12 vefnaður, kl. 9–16 handavinna og fótaað- gerð, kl. 10 banki, kl. 13 spiladagur og vefnaður. Eldri borgarar í Mos- fellsbæ, Kjalarnesi og Kjós. Félagsstarfið Hlaðhömrum er á þriðjud. og fimmtud. kl. 13–16.30, spil og föndur. Sundtímar á Reykja- lundi kl. 16 á miðvikud. Uppl. hjá Svanhildi í s. 586-8014 kl. 13–16. Tímapöntun í fót-, hand- og andlitssnyrtingu, hárgreiðslu og fótanudd, s. 566 8060 kl. 8–16. Félagsstarf aldraðra, Dalbraut 18–20. Kl. 9 böðun hárgreiðslustofan og handavinnustofan opnar, kl. 13 opin handa- vinnustofan. Félag eldri borgara Kópavogi. Viðtalstími í Gjábakka í dag kl. 15– 16. Skrifstofan í Gull- smára 9 opin í dag kl 16.30–18. Félagsstarf aldraðra, Lönguhlíð 3. Kl. 8 böð- un, kl. 10 hársnyrting og verslunin opin til kl. 13, kl. 13 föndur og handa- vinna, kl. 13.30 enska, byrjendur. Félag eldri borgara Hafnarfirði, Hraunseli, Reykjavíkurvegi 50. Línudans kl. 11, mynd- mennt kl. 13 og píla kl.13:30. Á morgun fimmtudag eru púttæf- ingar í Bæjarútgerð kl. 10–11:30, myndmennt kl. 13, félagsvist kl. 13:30. Leikhúsferð í Þjóðleikhúsið að sjá „Syngjandi í rigning- unni“ 4.maí nk. Sækið pantaða miða í Hraun- seli milli kl. 13.30 og 16. Skoðunarferð í Þjóð- menningarhúsið 10. maí. Skráning hafin í Hraunseli sími 555-0142. Félag eldri borgara Reykjavík, Ásgarði, Glæsibæ. Baldvin Tryggvason verður til viðtals um fjármál og leiðbeiningar um þau mál á skrifstofu FEB í dag kl. 10.30–11.30. Panta þarf tíma. Söng- félag FEB kóræfing kl. 17. Línudanskennsla Sigvalda fellur niður. 27.–29. apríl. Þriggja daga ferð á Snæfellsnes. Brottför frá Ásgarði, Glæsibæ, 27. apríl kl. 9. Þátttakendur vinsam- legast sækið farmiðann í síðasta lagi á morgun fimmtudag 9. maí Garð- skagi-Sandgerði- Hvalnes. Brottför frá Glæsibæ kl. 13. Skrán- ing hafin. Silfurlínan op- in á mánudögum og miðvikud. frá kl. 10–12. Ath. skrifstofa FEB er opin frá kl. 10–16. Uppl. í s. 588 2111. Félagsstarfið, Hæð- argarði 31. Kl. 9 opin vinnustofa, postu- línsmálun og fótaaðgerð, kl. 13 böðun kl. 13.30 samverustund. Gerðuberg, Félagsstarf. Kl. 9-16.30 vinnustofur opnar, frá hádegi spila- salur opinn kl. 10.30 gamlir leikir og dansar. Gjábakki, Fannborg 8. Handavinnustofan opin, kl. 10.30 boccia, kl. 13 félagsvist, kl. 17 bobb. Í tilefni af viku bók- arinnar verða lesin ljóð í Gjábakka fimmtudaginn 26. apríl kl. 14 þeir sem vilja lesa skrái sig í af- greiðslunni. Gullsmári, Gullsmára 13. Kl. 9 vefnaður, kl. 9.10 og 10.10 leikfimi, kl. 10 ganga, kl. 13 keramikmálun, kl. 13.30 enska. Hraunbær 105. Kl. 9– 16.30 bútasaumur, kl. 9– 12 útskurður, kl. 9–17 hárgreiðsla, kl. 11 banki, kl. 13 brids. Hvassaleiti 58–60. Kl. 9 böðun, fótaaðgerðir, hárgreiðsla, keramik, tau- og silkimálun og jóga, kl. 11 sund í Grens- áslaug, kl. 15 teiknun og málun. Kirkjulundur, félags- starf aldraðra, Garða- bæ. Fimmtudaginn 26. apríl: spilað í Holtsbúð kl. 13.30, boccia kl. 10.30, leikfimi kl. 12.10. Dagana 27 og 28. apríl eru uppskerudagar í Kirkjuhvoli kl. 13–18, sýning á tómstunda- vinnu aldraðra, skemmtiatriði og veit- ingar kl. 15 báða dag- ana. Korpúlfarnir, eldri borgarar í Grafarvogi. Hittast á morgun kl. 10 í keilu í Mjódd. Spiluð keila, spjallað, kaffi. All- ir velkomnir. Uppl veitir Þráinn Hafsteinsson s. 5454-500. Norðurbrún 1. Fótaað- gerðastofan opin frá kl. 9–14, kl. 9–12.30 út- skurður, kl. 9–16.45 handavinnustofurnar opnar, kl. 10 sögustund, kl. 13–13.30 bankinn, kl. 14 félagsvist, kaffi og verðlaun. Vesturgata 7. Kl. 8.30 sund, kl. 9 fótaaðgerðir og hárgreiðsla, kl. 9.15 aðstoð við böðun, myndlistarkennsla og postulínsmálun, kl. 13– 16 myndlistarkennsla, glerskurður og postu- línsmálun, kl. 13–14 spurt og spjallað. Vitatorg. Kl. 9 smiðjan og hárgreiðsla, kl. 9.30 bankaþjónusta, kl. 10 morgunstund og fótaað- gerðir, bókband og búta- saumur, kl. 13 hand- mennt og kóræfing, kl. 13.30 bókband, kl. 14.10 verslunarferð. Bústaðakirkja starf aldraðra, miðvikudaga kl. 13–16.30 spilað, föndrað og bænastund. Boðið upp á kaffi. Sjálfsbjörg, félag fatl- aðra á höfuðborg- arsvæðinu, Hátúni 12. Félagsvist kl. 19.30. Hana-nú Kópavogi. Ekki fundur í Bók- menntaklúbbi Hana-nú í kvöld. Næsti fundur 2. maí kl. 20 á Lesstofu Bókasafns Kópavogs. ITC-deildin Melkorka, heldur fund í Menning- armiðstöðinni Gerðu- bergi í kvöld kl. 20. Fundurinn er öllum op- inn. Uppl. veitir Auður Thorarensen s. 567- 6443. Barðstrendingafélagið, Hverfisgötu 105, 2. hæð, spilað í Konnakoti í kvöld kl. 20.30. Allir vel- komnir. Kvenfélag Kópavogs. Gestafundur í kvöld kl. 20.30 í félagsheimilinu Gjábakka. Krabbameinsfélags Hafnarfjarðar heldur aðalfund miðvikudaginn 25. apríl í safnaðarheim- ili Fríkirkjunnar við Linnetstíg, kl. 20:30. Að loknum aðalfund- arstörfum verður fræðslufundur þar sem fulltrúar stuðningshóp- anna Styrkur og Ný rödd segja frá starfsemi sinni. Fundurinn er öll- um opinn. Lífeyrisþegadeild SFR. Aðalfundur lífeyr- isþegadeildarinnar verð- ur haldinn laugardaginn 28. apríl kl. 13.30 í félagsmiðstöðinni Grett- isgötu 89, 4 hæð. Venju- leg aðalfundarstörf og önnur mál. Samtök psoriasis- og exemsjúklinga halda að- alfund sinn fimmtudaginn 26.4. í Grand Hóteli v/Sigtún kl. 20. Orlofsnefnd húsmæðra í Reykjavík hefur laus pláss í ferð á Hótel Örk dagana 29. apríl–4. maí og á Snæfellsnes 25.–27. maí. Upplýsingar á skrifstofunni Hverf- isgötu 69 mán.– fimmtudaga kl.17.–19. og í síma 551–2617. Í dag er miðvikudagur 25. apríl 115. dagur ársins 2001. Gang- dagurinn eini. Orð dagsins: Sjórinn gekk yfir Babýlon, hún huldist gnýjandi bylgjum hans. (Jeremía, 51, 42.) MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT- STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 165 kr. eintakið. Víkverji skrifar... Í NÝJASTA tölublaði Ísal-tíðinda,fréttabréfi Íslenska álfélagsins, er greint frá svonefndum hugmynda- banka innan fyrirtækisins en í hann geta starfsmenn lagt ábendingar sín- ar og tillögur um hvaðeina er snertir starfsemina. Segir meðal annars að algjör sprenging hafi orðið í fjölda hugmynda sem rignt hefur inn en þær voru 256 á síðasta ári. Árið 1999 voru þær 206 og árið 1998 168. Víkverja þykir þetta framtak með hugmyndabankann forvitnilegt en starfsmenn eru hvattir til að senda tillögur um hvers kyns málefni er snerta rekstur og starfsemi. Er þeim skipt í flokka til dæmis eftir því hvort þær snúast um sparnað, öryggi, að- búnað eða hreingerningu og þær falla undir hin ýmsu svið starfsem- innar, tæknisvið, rafgreiningu steypuskála eða önnur. Og til að gera það eftirsóknarvert að leggja höfuðið í bleyti og setja fram ábendingar og tillögur eru verðlaun í boði. Annars vegar peningaverðlaun á bilinu 2.500 og uppí 30 þúsund og í fyrra voru veitt í fyrsta sinn sérverðlaun sem voru ferð til Noregs, m.a. heimsókn til systurfyrirtækis í Noregi, Söral. Segir í Ísal-tíðindum að hugmyndin um þessi sérverðlaun hafi komið frá Norðmönnum, þeir boðið starfs- manni sínum hingað til lands og því hafi Ísal gripið hugmyndina á lofti og farið fram á að þeir tækju við starfs- manni héðan. Sá sem lagt hefur inn flestar hugmyndir síðustu árin, Sveinn Pétursson, hlaut þessi verð- laun en hann hefur síðustu fimm árin lagt inn 36 hugmyndir. x x x MJÖG margar hugmyndir hljótaverðlaun og má sjá af töflu í fréttablaðinu að flest árin er það vel yfir helmingur innkominna tillagna. Má nefna sem dæmi að árið 1991 kom inn 101 tillaga og voru 42 verð- launaðar. Árið 1993 hlutu 60 tillögur af 105 verðalun, 122 af 168 árið 1998 og í fyrra voru 169 verðlaunaðar en þá komu inn eins og fyrr segir 256 til- lögur. Þetta hlýtur að þýða að tillögurnar eru að meira og minna leyti brúkleg- ar eða skipta verulegu máli. Sem þýðir líka að menn hafa gruflað í þessu og sett fram hlutina í fullri al- vöru. Enda til einhvers að vinna líka fyrir utan það að tillögunum er ætlað að leiða til betrumbóta. x x x EFLAUST eru starfsmenn fleirifyrirtækja hvattir á svipaðan hátt til að huga að því sem betur mætti fara á vinnustað sínum. Hlýt- ur þessi þáttur að geta viðhaldið góð- um starfsanda innan fyrirtækja ekki síst ef menn finna hvatningu frá for- ráðamönnum fyrirtækja í þessa átt og ef þeir vita að tillögurnar eru teknar alvarlega og þeim hrint í framkvæmd ef þær eru taldar geta orðið starfseminni til framdráttar á einhvern hátt. Þessa leið ættu sem flest fyrirtæki að nota sem eina af mörgum til að viðhalda góðum starfsanda og skiptir þá varla máli hvort fyrirtækin eru stór eða smá, með flókna starfsemi eða einfalda, það er alltaf hollt að reyna svolítið á heilasellurnar og reyna að skoða um- hverfi sitt út frá alls konar sjónar- hornum. x x x OG ENN vill Víkverji stinga uppáað útvarpsstöðin Klassík 100,7 reyni að taka upp kynningu á tónlist- inni sem leikin er og að leikin verði heil tónverk en ekki einstakir kaflar. Það er að minnsta kosti skárra þegar kynning er ekki fyrir hendi að fá órofin tónverk en ekki einn kafla í senn og síðan eitthvert allt annað verk. Er ekki hægt að kippa þessu í liðinn eða er þetta of dýrt? KONA frá Akureyri hafði samband við Velvakanda og vildi kvarta yfir hrað- akstri í Kaupvangsstræti á Akureyri. Það er alveg hræðilegt hversu hratt er ekið upp og niður gilið og þó sérstaklega á kvöldin. Er ekki eitthvað hægt að gera í þessum málum? Nú er farið að vora og allt að lifna við í Listagilinu og getur þetta skapað mikla hættu fyrir gangandi veg- farendur. Gisting eða íbúðaskipti VELVAKANDA barst bréf frá eldri hjónum í Kan- ada sem eru að ráðgera 1–2 vikna ferð til Íslands um miðjan júní. Þau hafa mikinn áhuga á íslenskri náttúru og hlakka mikið til að sjá miðnætur- sólina. Eru þau að leita sér að gistingu – eða íbúðaskipt- um – á þessum tíma. Þeir sem geta liðsinnt þeim eru beðnir að hafa samband við: John Baumhard, 15 Old Church Rd. King City ON L7B IK4, Canada. Myndasögur Moggans ÉG er 10 ára stelpa og ætla að kvarta yfir nýju breyt- ingunni á Myndasögum Moggans. Það er fáránlegt að hafa bara eina blaðsíðu því núna hafa börnin miklu minna efni til þess að lesa. Gætuð þið breytt þessu? annars kvarta ég aftur. Ég hef alltaf lesið Myndasögur Moggans og hef alltaf beðið spennt eftir Myndasögun- um og systkini mín líka. Ég er viss um að fleiri krökk- um finnst það sama og mér. Erna Dís 10 ára. Tapað/fundið Nokia-sími, veski og fleira tapaðist SR. FLOSI týndi lykla- kippu með 4–5 lyklum, veski, sólgleraugum og GSM-síma af gerðinni Nokia 3210, einhvers stað- ar á svæði 101 Reykjavík á tímabilinu frá skírdegi þar til síðastliðinn sunnudag. Finnanda heitið fundar- launum. Upplýsingar í síma 561-5608. Gullúr tapaðist GULLÚR tapaðist í Hafn- arstræti, gæti hafa verið á skemmtistað, aðfaranótt sumardagsins fyrsta. Skil- vís finnandi er vinsamleg- ast beðinn að hafa samband í síma 695-0140. Karlmannsjakki í óskilum SÁ, sem saknar karlmanns- jakka með lyklakippu, GSM-síma og fjarstýringu í vasanum, getur vitjað hans í síma 557-3990. Jakkinn er svartur og úr einhvers kon- ar regnefni. Gullmen tapaðist Í BYRJUN mars datt gull- men með litlum steini af keðju í Fossvogshverfi, Höfðabakka eða Hamra- hverfi. Skilvís finnandi er vinsamlegast beðinn að hafa samband í síma 581- 3966. Dýrahald Fresskött vantar gott heimili AF óviðráðanlegum ástæð- um vantar þriggja ára gamlan högna nýtt heimili. Hann er steingrár á litinn, þrifinn, mannelskur og heimakær. Hann er geltur og eyrnamerktur og hefur alltaf verið mjög heilsu- hraustur. Er ekki einhver hjartahlýr tilbúinn að taka hann að sér og bjarga lífi hans? Upplýsingar í síma 564-2073 eða 691-1532. Tóbías er týndur TÓBÍAS er tæplega árs gamall fressköttur. Hann er bröndóttur, fjörugur og forvitinn. Hann lagði af stað í ævintýraför frá heim- ili sínu í Hafnarfirði (Set- bergslandi) mánudaginn 9. apríl sl. og hefur ekkert spurts til hans síðan. Hans er sárt saknað af mönnum og dýrum. Þeir sem hafa orðið hans varir vinsamlegast hafið sam- band í síma 555-0701 eða 869-7002. Mjása er týnd MJÁSA hvarf frá heimili sínu að Vesturvallagötu fyrir um það bil tveimur vikum. Hún er grábrönd- ótt, ólarlaus en merkt í eyra. Mjása mjálmar mikið. Ef einhver getur gefið upp- lýsingar um ferðir Mjásu, vinsamlegast hafið sam- band í síma 551-8494 eða 860-5566. VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 frá mánudegi til föstudags Hraðakstur á Akureyri K r o s s g á t a LÁRÉTT: 1 útgjöld, 8 þrautir, 9 vesæll, 10 óvild, 11 harma, 13 blóðsugan, 15 kjökra, 18 urga fram og aftur, 21 gagn, 22 gam- ansemi, 23 ávinningur, 24 leika á. LÓÐRÉTT: 2 mjólkurafurð, 3 nauti, 4 óhreinkaði, 5 mergð, 6 guðs, 7 fall, 12 megna, 14 mánuður, 15 næðing,16 dögg, 17 ilmur, 18 vinna, 19 fjáður, 20 forar. LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU: Lárétt: 1 fegin, 4 kelda, 7 lemur, 8 múgur, 9 núa, 11 ræna, 13 barr, 14 fossa, 15 hagl, 17 krók, 20 ann, 22 káf- ar, 23 aftur, 24 ryrar, 25 tærar. Lóðrétt: 1 fælir, 2 gaman, 3 norn, 4 káma, 5 lygna, 6 akr- ar, 10 únsan, 12 afl, 13 bak,15 hákur, 16 gæfur, 18 ritar, 19 kórar, 20 arar, 21 naut. 6 8 11 15 22 1 24 12 3 10 17 21 4 9 13 18 23 14 5 19 7 20 2 16
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.