Morgunblaðið - 03.05.2001, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 03.05.2001, Qupperneq 1
98. TBL. 89. ÁRG. FIMMTUDAGUR 3. MAÍ 2001 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS STOFNAÐ 1913 MORGUNBLAÐIÐ 3. MAÍ 2001 KÍNVERJAR vöruðu í gær við nýju vígbúnaðarkapphlaupi ef Banda- ríkjastjórn hætti ekki við umdeild áform sín um að koma upp gagneld- flaugavarnakerfi en Rússar sögðust vera tilbúnir að ræða við bandaríska embættismenn um áformin. Kínverj- ar og Rússar svöruðu þannig ræðu sem George W. Bush Bandaríkjafor- seti flutti í fyrrakvöld. Hann hvatti þá til þess að ABM-sáttmálinn frá 1972, sem takmarkar gagneldflaugavarnir, viki fyrir nýjum samningi til að gera Bandaríkjunum kleift að verjast hugsanlegum eldflaugaárásum óvin- veittra ríkja í þriðja heiminum eða árásum sem kynnu að verða gerðar fyrir mistök. Embættismenn í Washington sögðu í gær að Donald Rumsfeld varnarmálaráðherra hefði gefið skip- un um að allri samvinnu um varnar- mál við Kínverja yrði hætt í bili. Kín- verjar hafa neitað að skila banda- rískri njósnaflugvél sem varð að nauðlenda á Hainan fyrir skömmu og héldu áhöfninni í gíslingu í 11 daga en leyfðu í gær bandarískum fulltrúum að skoða vélina. Síðar í gærkvöldi var sagt að skipun Rumsfelds hefði verið misskilin, hann vildi aðeins að farið yrði vel yfir slík samstarfsverkefni. Bush forseti sagði að Bandaríkja- stjórn hygðist ráðfæra sig við banda- menn sína í Evrópu og Asíu um áformin og kvaðst vilja ræða þau við Vladímír Pútín Rússlandsforseta fyr- ir leiðtogafund átta helstu iðnríkja heims í sumar. Hann kvaðst einnig stefna að því að fækka langdrægum kjarnorkueldflaugum Bandaríkj- anna. Rússar tilbúnir til viðræðna Kínverska fréttastofan Xinhua birti í gær fyrsta svar kínverskra stjórnvalda við ræðunni. „Áform Bandaríkjastjórnar um gagneld- flaugavarnir eru brot á ABM-sátt- málanum, eyðileggja öryggisjafn- vægið í heiminum og geta valdið nýju vígbúnaðarkapphlaupi,“ sagði frétta- stofan. Ígor Ívanov, utanríkisráðherra Rússlands, áréttaði að rússneska stjórnin vildi halda ABM-sáttmálan- um en sagði að hún vildi ræða hug- myndir Bush. „Við erum tilbúnir til að ræða málið og kynna afstöðu okk- ar.“ Ráðherrann sagði að þeir alþjóð- legu samningar, sem hefðu verið gerðir frá því að ABM-sáttmálinn var undirritaður, væru mjög flóknir, þeirra á meðal samningarnir um bann við kjarnorkutilraunum og fækkun kjarnavopna. „Þess vegna stöndum við svo fast á því að halda í ABM-sáttmálann og styrkja hann,“ sagði Ívanov. Hann bætti við að hann hlakkaði til að ræða við bandaríska sérfræðinga um sáttmálann og fyr- irkomulag eldflaugavarna í framtíð- inni. Hörð viðbrögð Kínverja við ræðu Bush um eldflaugavarnir Vara við vígbún- aðarkapphlaupi Washington, London. Reuters, AP.  Viðbrögð Evrópuríkja/28 SILVIO Berlusconi, leiðtogi bandalags hægrimanna á Ítalíu, sést hér á kosningafundi í Napólí í gær. Franska dagblaðið Le Monde tók á mánudag undir harða gagn- rýni breska vikuritsins The Eco- nomist á Berlusconi í liðinni viku og sagði að auk þess sem um- deildur viðskiptaferill hans og rannsóknir vegna meintra skatt- svika og mafíutengsla gerðu hann vanhæfan til að gegna embætti forsætisráðherra mætti benda á ofurtök hans á fjölmiðlum og sam- starf hægriflokks hans við Þjóð- arfylkinguna, flokk fyrrverandi fasista. Berlusconi hefur falið lög- fræðingum sínum að kanna hvort hægt sé að fara í meiðyrðamál gegn The Economist. AP Berlusconi í eldlínunni BANDARÍKJASTJÓRN fordæmdi í gær aðgerðir Ísraelshers á sjálf- stjórnarsvæði Palestínumanna á Gaza-svæðinu í gærmorgun. Skriðdrekar og jarðýtur Ísraels- hers héldu inn á Gaza í dögun og jöfn- uðu um tuttugu hús við jörðu í flótta- mannabúðum í Rafah. Aðgerðin tók fjórar klukkustundir og var að sögn ætlunin að flæma burt palestínska byssumenn. Palestínskur unglingur lét lífið og fjórtán særðust. Ísraelsher sagði þetta hafa verið „réttmætar varnaraðgerðir“, eftir að Palestínumenn hefðu ráðist að her- mönnum með handsprengjum og skotvopnum á þessu svæði á þriðju- dag. „[Palestínumenn] notuðu íbúðar- húsin til að gera árásir á okkar menn og við urðum að koma í veg fyrir að það endurtæki sig,“ sagði Olivier Raf- owicz, talsmaður Ísraelshers. Í yfirlýsingu frá bandaríska utan- ríkisráðuneytinu segir að hernaðar- aðgerðir Ísraela á Gaza grafi undan friðarviðleitni. Bandaríkjastjórn hvetur jafnframt Palestínustjórn til að stöðva sprengikúluárásir frá sjálf- stjórnarsvæðunum á gyðingaþorp. Utanríkisráðherra Ísraels, Shimon Peres, átti í gær fund í Washington með Colin Powell, bandarískum starfsbróður sínum. „Sem stendur er ástandið ískyggilegt,“ sagði Peres eft- ir fundinn en bætti við að Ísraels- stjórn væri staðráðin í að binda enda á ofbeldið. Powell sagði það forgangs- verkefni að draga úr ofbeldinu og bætti við að þeir hefðu rætt um fjölg- un landnemabyggða gyðinga á svæð- um Palestínumanna sem hafa verið hart gagnrýndar og sagðar ýta undir frekari úlfúð. Peres mun hitta George W. Bush Bandaríkjaforseta í dag. Ariel Sharon, forsætisráðherra Ísraels, sagði í gær að Jórdandalur- inn, sem er aðallega byggður Palest- ínumönnum, myndi „að eilífu“ verða undir stjórn Ísraela vegna þess hve mikilvægur hann væri til að verjast árásum að austan. Reuters Palestínsk kona grætur yfir rústum húss síns í flóttamannabúðunum í Rafah á Gaza-svæðinu í gær. Ísraelar gagnrýndir fyrir aðgerðir á Gaza Jerúsalem, Washington. AFP, AP. LEIÐTOGI nýnasistasamtak- anna Vigrid hefur að sögn Aftenposten ritað ríkissak- sóknara Noregs bréf og kraf- ist þess að þeir sem segi svo- kallaða ljóskubrandrara verði ákærðir. Slík fyndni sé „ein- staklega illgirnislegt og hættulegt kynþáttahatur“. Leiðtoginn, Tore Tvedt, segir að með ljóskubröndur- um sé verið að beina spjót- unum að viðkvæmustu borg- urum landsins, ungum stúlkum með norrænt útlit. Á þessum aldri séu þær ber- skjaldaðar fyrir ósvífni þeirra sem segja niðrandi sögur af ljóskum. Tvedt vill að menn verði skyldaðir til að greiða sér- hverri ljóshærðri stúlku eða konu í landinu 250.000 nkr., um 2,7 milljónir króna, fyrir að segja slíka brandara. Einnig beri að setja á stofn sjóð er nemi sem svarar 70 milljörðum ísl. kr. til að berj- ast gegn fordómum gagnvart ljóskum. Á heimasíðu Vigrid eru teiknimyndasögur þar sem gyðingar, múslimar og litir menn eru óspart hæddir og gert gys að þeim. Ljósku- brandar- ar bann- aðir? NÝ áætlun færeysku landstjórnar- innar, sem samþykkt var í lög- þinginu í síðustu viku, hefur verið harðlega gagnrýnd. Meðal annars segir einn kunnasti hagfræðingur Færeyja að hún sé „ábyrgðarlaus“ og ávísun á mikinn fjárlagahalla. Hagfræðingurinn Kári Petersen, sem áður var ráðuneytisstjóri í fær- eyska fjármálaráðuneytinu, segir í viðtali við blaðið Sosialurin að sjálf- stæðisáætlunin muni leiða til fjár- lagahalla upp á sex til sjö milljarða íslenskra króna á fáum árum. Segir hann að áætlunin gangi ekki upp, meðal annars vegna þess að land- stjórnin hyggist skera niður danska styrkinn á sama tíma og hún er að auka opinber útgjöld úr hófi fram. Samkvæmt áætluninni, sem An- finn Kallsberg lögmaður vill ræða um við forsætisráðherra Danmerkur síðar í mánuðinum, eiga Færeyjar að verða orðnar sjálfstæðar 2012. Þeg- ar á næsta ári á að skera niður danska styrkinn um fjóra til fimm milljarða ísl. kr. en hann er nær 16 milljarðar kr. á ári. Kári segir að vilji Færeyingar venja sig af danska styrknum á 12 til 15 árum megi ríkisútgjöldin ekki hækka neitt og sé miðað við 25 til 30 ár megi þau aðeins hækka um 1% á ári. Þau hafi hins vegar hækkað um 5% á ári síðastliðin þrjú ár. Bendir hann á að í áætlun landstjórnarinnar sé ekki að finna stafkrók um efna- hagslegar afleiðingar hennar. Ábyrgð- arleysi gagnrýnt Þórshöfn. Morgunblaðið.  Deilt um flest/32 Sjálfstæðisáætlun Færeyinga
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.