Morgunblaðið - 03.05.2001, Page 6

Morgunblaðið - 03.05.2001, Page 6
FRÉTTIR 6 FIMMTUDAGUR 3. MAÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ LÖGREGLAN í Reykjavík handtók á þriðjudagskvöld ölv- aðan karlmann, sem stolið hafði bifreið með sofandi barni inn- anborðs. Bifreiðin hafði verið skilin eftir í hægagangi fyrir ut- an verslun á Skólavörðustíg og settist maðurinn inn í hana og ók á brott. Hann ók stuttan hring um nágrennið og skilaði bifreiðinni á sama stað. Samkvæmt upplýsingum lögreglunnar í Reykjavík mun hann ekki hafa gert sér grein fyrir því að bifreiðin var ekki mannlaus. Maðurinn var hand- tekinn gekkst hann við brotinu. Að sögn Geirs Jóns Þórisson- ar, aðstoðaryfirlögregluþjóns í Reykjavík, er háttsemi af þessu tagi nær óþekkt hérlendis, seg- ir lögregluna líta atvikið alvar- legum augum og verður mað- urinn kærður fyrir ölvunar- akstur og nytjastuld. Samkvæmt upplýsingum Halldórs Eyjólfssonar, for- stöðumanns tjónasviðs hjá Sjóvá-Almennum, ber eigandi ökutækis ábyrgðina af tjóni sem unnið er á bíl ef hann er tekinn ófrjálsri hendi með þess- um hætti. Það sé því algjört grundvallaratriði að taka lykl- ana úr bifreið þegar hún er yf- irgefin enda séu tjón í þessum tilvikum ekki bótaskyld. Ölvaður stal bíl með barni í ÞÚSUNDIR manna tóku þátt í kröfugöngum og fundum verkalýðs- félaganna víða um land 1. maí og var veðurfar víða nokkuð rakt. Að venju var kröfuganga og útifundur á Ing- ólfstorgi í Reykjavík. Lúðrasveitir fóru fyrir göngumönnum sem margir hverjir báru kröfuspjöld. Baráttu- fundir voru haldnir víða um land og forsvarsmenn verkalýðshreyfingar- innar voru víða meðal ræðumanna. Halldór Björnsson, formaður Starfsgreinasambands Íslands, flutti ræðu á fundi á Húsavík og ræddi um Evrópusambandið, auðlindir, efna- hagsmál og fjölskyldumál. Hann sagði verkalýðshreyfinguna vera boðbera jöfnuðar og bræðralags. Sagði hann ákvarðanir í auknum mæli að verða sameiginlegar í Evr- ópu og þótt Ísland væri ekki hluti af ESB yrðu Íslendingar að taka mið af stefnumótun ESB-landanna í veiga- miklum málum. „Við komumst heldur ekki hjá því að viðurkenna að hvort sem við erum með eða á móti aðild að Evrópusam- bandinu hafa ákvarðanir sam- bandsins leitt til aukinna réttinda og betri lágmarkskjara hér á landi.“ Skipulag verkalýðshreyfing- arinnar svifaseint og dýrt Formaður Starfsgreinasambands- ins sagði atvinnurekendur hafa það fram yfir samtök launafólks að þeir gætu tekið ákvarðanir með skjótum hætti og keyrt þær í gegnum samtök sín án lýðræðislegra vinnubragða. „Verkalýðshreyfingin hefur verið að endurskoða allt skipulag sitt en í reynd er það afar dýrt, óskilvirkt og svifaseint. Hér þarf áræði og kjark til frekari breytinga þar sem menn eiga fyrst og fremst að horfa til árangurs- ríks skipulags,“ sagði Halldór og nefndi að til að vinna slík verk þyrfti kraftmikið fólk sem væri reiðubúið til baráttu fyrir hugsjónir um jöfnuð, réttlæti og bræðralag. Þá sagði formaðurinn að þrátt fyrir yfirlýsingar og loforð stjórnmála- manna og nefndir væri ekkert raun- hæft að gerast í auðlindamálum sjáv- arútvegsins. Sagði hann atvinnulíf víða um landið í rúst þar sem áður hefði verið rekinn blómlegur sjávar- útvegur af dugmiklum einstakling- um. „Búið er að taka lífsbjörgina frá fólkinu og færa yfirráð auðlindarinn- ar í hendur örfárra aðila,“ sagði Hall- dór og bætti við að stór sjávarútvegs- fyrirtæki réðu því að mestu hvar afla væri landað og hann unninn. „Það er skýr vilji okkar að fá réttlátari og skynsamlegri skiptingu af afrakstri auðlindarinnar í sjónum og eignar- hald þjóðarinnar verði tryggt í stjórnarskrá og lögum. Hjá því verð- ur ekki komist að taka sanngjarnt gjald af nýtingu auðlindarinnar og hvetjum við til lagasetningar í því efni sem fyrst.“ Halldór sagði að koma yrði í veg fyrir algjör yfirráð útgerðarmanna á fiskistofnunum og stuðla yrði að eðli- legri dreifingu aflaheimilda og treysta þannig byggð í landinu. Halldór sagði það stærsta verkefn- ið nú að ná því markmiði að dagvinnu- launin nægðu til að lifa góðu og inni- haldsríku fjölskyldulífi. Hann sagði réttindi barnafólks hérlendis lakari en í grannlöndum, foreldrar væru knúnir til að vinna of langan vinnudag vegna of lágra grunnlauna. „Hér verðum við að snúa við blaðinu. Fjöl- skyldan á að vera útgangspunktur en ekki afgangsstærð.“ Öflugasta verkfærið til að útrýma misrétti Grétar Þorsteinsson, forseti Al- þýðusambands Íslands, ávarpaði bar- áttufund í Borgarnesi og minntist m.a. á velferðarkerfið. Sagði hann traust og víðtækt velferðarkerfi öfl- ugasta verkfærið til að útrýma mis- rétti og fátækt, jafna aðstöðu og for- senda sáttar. Kvað hann íslenska verkalýðshreyfingu vilja virkt kerfi og réttlátt. „Því miður hefur íslenska velferð- arkerfið verið að þróast í gagnstæða átt. Hér hefur verið reynt að þrengja velferðarkerfið þannig að það sé að- eins til fyrir hina allra verst settu, en með mjög misjöfnum árangri, ekki síst fyrir þá sem kerfið á þó helst að þjóna,“ sagði Grétar meðal annars. Þá sagði hann húsnæðisvandann orð- inn knýjandi í kjölfar þess að félags- lega kerfinu hefði verið lokað. Sagði hann um tvö þúsund fjölskyldur og einstaklinga nú bíða eftir leiguhús- næði við hæfi. Grétar sagði baráttu launafólks fyrir réttindum sínum vera hreina mannréttindabaráttu og rétturinn til frjálsra samninga væri varinn sem mannréttindi. Sagði hann öllum inn- gripum stjórnvalda mótmælt. „Þetta ætti ekki að þurfa að taka fram í lýð- ræðisríki í upphafi 21. aldarinnar en er því miður nauðsynlegt eftir að lög voru sett á verkfall sjómanna fyrir fá- einum vikum. Sú umdeilda lagasetn- ing virðist raunar hafa fært allar um- ræður um lausn hinnar viðkvæmu deilu mörg skref aftur á bak og gefið útgerðarmönnum þá von að enn einu sinni muni stjórnvöld grípa inn og skilja öll megin deilumálin eftir óleyst. Slíkt myndi fyrst og fremst bitna á sjómönnum.“ Guðmundur Gunnarsson, formað- ur Rafiðnaðarsambands Íslands, gerði verðlagsmál og fákeppni að um- talsefni í ræðu sinni á útifundi í Reykjavík. Kanna þarf forsendur að inngöngu í ESB „Á Íslandi er verðlag á flestum nauðsynjavörum mun hærra en ann- ars staðar. Það ríkir fákeppni, völd hafa safnast á hendur örfárra aðila sem hafa hrifsað til sín allan slaka sem myndast hefur í íslensku hag- kerfi. Augljóst er að til þess að knýja fram eðlilegt verðlag hér á landi verð- ur að brjóta á bak aftur einokunina og það verður gert með inngöngu í Evr- ópusambandið. Stjórnvöldum er ekki stætt á að hafna því að kanna á hvaða forsendum innganga stendur til boða. Það verður ekki gert nema að taka umræðu um aðild á dagskrá. Þjóðin á rétt á því að meta hvað hún vill.“ Guðmundur sagði einnig að breyttu samfélagi fylgdi aukið virð- ingarleysi, græði og firring, klám og glæpir væru orðnir þættir í daglegu lífi. Hann sagði verkalýðshreyf- inguna nú ganga gegnum breytinga- skeið og hann sagði þau eiga að taka höndum saman um stofnun hagdeild- ar sem hefði verðlagseftirlit með höndum, héldi uppi öflugum al- mannatengslum og veitti aðhald. Kjaramál og auðlindir meðal umfjöllunarefna verkalýðsleiðtoga 1. maí Nauðsynlegt að taka sanngjarnt auðlindagjald Morgunblaðið/Árni Sæberg Kröfuganga verkalýðsfélaganna í Reykjavík fór fram í rigningarsudda. LÆKNAR sem óska eftir aðild að samningi Tryggingastofnunar og Læknafélags Íslands verða að sækja um það að hausti til að fá aðild í byrjun næsta árs. Aðild að samningnum þýðir að TR tekur þátt í kostnaði sjúklinga hjá viðkomandi læknum en séu læknar ekki aðili að samningnum þurfa sjúklingar að greiða fullt gjald. Hulda Hjartardóttir, sérfræðingur í kvenlækn- ingum og ritari stjórnar Læknafélags Íslands, seg- ir í grein í nýlegu Læknablaði að hún hafi í febrúar óskað eftir aðild að samningi TR og LÍ. Var hún að hefja einkarekstur á stofu með öðrum kvensjúk- dómasérfræðingi en læknar höfðu þá nýverið gengið út úr þeim rekstri og kom hún í stað þeirra. Kveðst Hulda hafa fengið það svar frá trygginga- yfirlækni að sækja hefði þurft um aðild fyrir 30. nóvember á síðasta ári til að komast á samninginn í byrjun þessa árs. Þeir sem sæki um á tímabilinu 1. desember 2000 til loka nóvember í ár geti ekki hafið störf sam- kvæmt samningnum fyrr en í byrjun næsta árs. Var bent á að þetta hefði verið kynnt með auglýs- ingu í Læknablaðinu. Hulda kveðst þá hafa skrifað TR á ný og bent á að hún væri að ganga inn í rekstur annars læknis sem væri að hætta störfum en hann skrifaði einnig TR og báðir læknarnir lýsa þar þörf fyrir kven- sjúkdómalækna í Reykjavík. Hulda segir erindi sínu hafa verið synjað aftur og segir rökstuðning TR þann að nauðsynlegt sé að vita fyrirfram hversu margir sérfræðingar muni starfa sam- kvæmt samningi við stofnunina svo hægt sé að leggja fram raunhæfa fjárhagsáætlun. Telur Hulda ólíklegt að fjárhagsáætlun TR sé svo nákvæm að ekki sé hægt að gera ráð fyrir nýj- um sérfræðingum og bendir á að fjölda nýrra lækna mætti áætla út frá þróun síðustu ára. „Þykir mér sennilegra að þetta sé byrjun á ferli þar sem settur verður kvóti á fjölda sérfræðinga og samningum skammtað rétt eins og sett hefur verið þak á aðgerðir og reikninga sjálfstætt starfandi lækna af TR. Eftir nokkur ár gætum við verið kom- in í svipaða aðstöðu og heimilislæknar eru nú, en þeim er algerlega synjað um samninga við TR.“ Ákvæði í samningi við LÍ Kristján Guðjónsson, deildarstjóri hjá TR, sem hefur séð um samningamál við lækna, sagði þetta ákvæði um tímasetningar vera í samningi við LÍ og hefði verið ákveðið á síðasta sumri að hrinda því í framkvæmd. Með því að taka nýja lækna inn á samninginn í ársbyrjun væri hægt að vinna nákvæmari fjárhags- áætlun. Það væri mjög misjafnt hversu margir læknar óskuðu eftir aðild hverju sinni. Hann sagði nýja lækna í sjálfu sér alltaf samþykkta en aðild þeirra gæti ekki hafist fyrr en í byrjun hvers árs. Læknum aðeins veitt aðild að samningi við TR einu sinni á ári UMBOÐSMAÐUR Alþingis hefur í nýju áliti sínu komist að þeirri nið- urstöðu að stjórnendur Sjúkrahúss Reykjavíkur, nú Landspítala - há- skólasjúkrahúss í Fossvogi, hafi ekki farið að stjórnsýslulögum þegar um- sækjanda um stöðu félagsráðgjafa til afleysinga í eitt ár við sjúkrahúsið var ekki veittur nægur rökstuðning- ur fyrir því að hann var ekki ráðinn. Tveir sóttu um starfið, sem auglýst var laust í ársbyrjun 1999, og taldi sjúkrahúsið báða hæfa. Sá félagsráð- gjafi sem ekki var ráðinn, kona, leit- aði til umboðsmanns Alþingis. Leiðbeiningar ófullnægjandi Í niðurstöðu sinni beinir umboðs- maður þeim tilmælum til Landspít- ala - háskólasjúkrahúss að leitast við að svara beiðni viðkomandi félags- ráðgjafa um rökstuðning, komi fram ósk hans þess efnis. Telur umboðs- maður að samkvæmt stjórnsýslulög- um hafi félagsráðgjafanum ekki ver- ið veittar fullnægjandi leiðbeiningar um rétt hans til að fá ákvörðun sjúkrahússins um ráðninguna rök- studda. Umboðsmaður Alþingis telur að sjúkrahúsið hafi ekki gert næga grein fyrir þeim meginsjónarmiðum sem réðu þeirri niðurstöðu að velja þann félagsráðgjafa sem var ráðinn í umrædda stöðu á öldrunarsviði. „Þá verður það að teljast ófull- nægjandi að vísa til þess í rökstuðn- ingnum að báðir umsækjendur hafi talist hæfir en að annar hafi verið val- inn í kjölfar viðtals. Engin grein er gerð fyrir því í bréfum sjúkrahússins hvaða atriði leitast var við að upplýsa með viðtölunum og hvaða þýðingu þau höfðu fyrir niðurstöðuna,“ segir ennfremur í álitinu. Ráðning félagsráðgjafa við Sjúkrahús Reykjavíkur Ekki farið að stjórn- sýslulögum

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.