Morgunblaðið - 03.05.2001, Side 15

Morgunblaðið - 03.05.2001, Side 15
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. MAÍ 2001 15 ALLSÉRSTÆÐ myndlist- arsýning verður opnuð á Garðatorgi í dag kl. 10. Að henni standa 300–400 börn á aldrinum 2–6 ára og er þar um að ræða samstarfs- verkefni allra sex leikskól- anna í Garðabæ. Í raun er þetta ekki eingöngu mynd- listarsýning, því þarna verða ekki bara málverk til sýnis heldur einnig lág- myndir og margt fleira. „Þetta er liður í dagskrá vegna 25 ára afmælis Garðabæjar á þessu ári. Af því tilefni hafa börnin unnið myndverk sem tengjast bænum sínum og þau eru meðal þess sem sjá má á sýningunni. Og sögu leik- skóla Garðabæjar verða jafnframt gerð þarna skil í máli og myndum,“ sagði Kamma Níelsdóttir, leik- skólastjóri á Kirkjubóli, að- spurð um tilefni sýning- arinnar. Umfangsmikil og fjölbreytt sýning „Þetta er umfangsmikil sýning og mjög fjölbreytt. Þrír skólanna eru með hópverkefni en á hinum þremur er meira um ein- staklingsmyndir. Þarna verða yfir 100 myndir, auk allra hinna verkanna. Því væri e.t.v. réttara að kalla þetta myndverkasýningu. Einn skólanna hefur t.d. gert alla fuglana í Garðabæ og annar blómin sem hér finnast o.s.frv. Þannig að af ýmsu er að taka. Við höfum samt unnið að gerð verkanna óháð hvert öðru, svo að útkoman er þeim mun óvæntari og skemmtilegri. Hver skóli hefur fundið sitt efni og enginn í raun það sama þótt allir séu að fjalla um eitt og sama bæjarfélag. En við höfum haft mikla samvinnu, leikskólastjórarnir; höfum fundað mánaðarlega síðan í haust, og jafnvel nokkur skipti í hverjum mánuði, en ekki endilega um framlag hvers og eins skóla, heldur um þemað sem átti að vera og er Garðabær fyrr og nú. Þetta er búið að vera óhemju vinna en það er líka mikil gleði ríkjandi í litlum hjörtum með árangurinn,“ sagði Kamma. Opin hús á laugardag Við opnunina syngja elstu börnin í leikskólunum undir stórn Ernu Aradóttur, leik- skólastjóra á Bæjarbóli, við undirleik Jóhanns Baldvins- sonar organista. Sýningin verður opin til sunnudags- ins 6. maí. Á laugardaginn, 5. maí, verður svo opið hús á leik- skólum í Garðabæ, þar sem fólki gefst kostur á að skoða leikskólana og kynna sér starf þeirra. Á Bæj- arbóli og Sunnuhvoli verður opið hús frá klukkan 10–12, á Kirkjubóli og Lundabóli verður opið hús frá klukkan 11–13 og á Kjarrinu verður opið hús frá klukkan 13–15. Morgunblaðið/Jim Smart Hér má sjá lítinn hluta af þeim fjölmörgu listaverkum sem eru á myndverkasýningu leikskólanna í Garðabæ. Leikskólabörn halda myndlistarsýningu Garðabær KVENFÉLAG Bessastaða- hrepps ákvað fyrir nokkru að gefa hreppsbúum skrúðgarð og var hann formlega afhent- ur 27. apríl síðastliðinn. Skrúðgarðurinn er vestan- meginn við sundlaug Bessa- staðahrepps og stendur til að setja upp hlið með þeim möguleikum að hægt sé að opna frá sundlaugargarði yfir í garðinn. Framkvæmdir hófust sum- arið 1991 en þegar byrjað var á verkinu kom í ljós að það vantaði moldarfyllingu upp á 2.000–3.000 rúmmetra. Þegar upp var staðið hafði 200 bíl- hlössum af mold verið ekið í garðinn, bæði til að rétta hann af og eins til að fylla í mýri sem var á hluta svæðisins. Fengu kvenfélagskonur við- urkenningu hreppsins fyrir framlag til fegrunarátaks í hreppnum haustið 1996. Rúmlega 3.000 fermetrar leigðir til 99 ára Það var Álfheiður Friðriks- dóttir sem átti hugmyndina að þessum garði og hvatti til að kvenfélagið yrði sér úti um lóðarskika í hreppnum til ræktunar. En sú sem gerði þessa hugmynd að veruleika var Guðný Bjarnar, þáverandi formaður félagsins, en hún stóð fyrir því að stofnaður yrði svonefndur Laufskála- sjóður. Í boði hjá Vigdísi Finnbogadóttur á Bessastöð- um 19. apríl 1986, þar sem kvenfélagskonur fjölmenntu til að fagna tímamótunum, var sjóðurinn svo stofnaður. Guðný Bjarnar hófst handa við samningaumleitanir við hreppsnefnd og niðurstaðan varð sú að Kvenfélaginu var úthlutað 3.170 fermetra lóðar- skika til afnota endurgjalds- laust til 99 ára frá 1. janúar 1989 að telja. Árið 1990 var ráðinn landslagsarkitekt, Yngvi Þór Loftsson, til að hanna útlit garðsins, og Páll Fróðason skrúðgarðyrkju- meistari var ráðinn sem verk- taki í framhaldi af því. Ætlaður hreppsbúum allt frá upphafi En hvers vegna að gefa hreppnum skrúðgarðinn? „Þetta kom fyrst til um- ræðu þegar hreppurinn átti 120 ára afmæli,“ sagði Sigríð- ur Rósa Magnúsdóttir, for- maður Kvenfélags Bessa- staðahrepps, í samtali við Morgunblaðið í gær. „En við vildum ekki skila honum öðruvísi en fullbúnum og þá fannst okkur garðurinn ekki vera kominn í viðunandi horf. En hann er það núna. Og á 75 ára afmæli kvenfélagsins, sem var 25. apríl síðastliðinn, og á 15 ára afmæli Laufskála- sjóðsins, var ákveðið að nota tækifærið og láta garðinn af hendi. Þetta svæði var ætlað til afnota fyrir hreppsbúa allt frá upphafi, rétt eins og Skallagrímsgarðurinn í Borg- arnesi. Kvenfélagið stóð að ræktuninni en nú er þetta orðið heilmikið verkefni svo að við höfum ekki getað sinnt þessu einar. Tímarnir hafa líka breyst; nú eru flestar konur útivinnandi og frítími naumur. Því var sú ákvörðun tekin að afhenda Bessastaða- hreppi skrúðgarðinn form- lega á einmitt þessum tíma- punkti enda við hæfi. Garðurinn mun þó áfram heita „Kvenfélagsgarðurinn“. En er ekki vindasamt þarna og mikil selta og því ill- mögulegt til ræktunar? „Það voru margir sem vildu meina að þetta myndi ekki ganga, að það væri ekki hægt að rækta trjágróður nálægt sjó, en nú er búið að afsanna margt af því,“ sagði Sigríður. Að lokum er þess að geta að 17. júní næstkomandi stendur til að afhjúpa í skrúðgarðinum minnismerki um þetta átak kvenna í Bessastaðahreppi. Á 75 ára afmæli sínu færir kvenfélagið hreppnum stórgjöf Morgunblaðið/Ásdís Sigríður Rósa Magnúsdóttir, núverandi formaður Kvenfélags Bessastaðahrepps, í skrúð- garðinum sem félagið hefur nýverið gefið hreppnum. Skrúðgarður, gjörið svo vel Bessastaðahreppur KÓPAVOGSBÆR á í viðræð- um við byggingafyrirtækið Ris ehf. um tveggja hæða byggingu yfir gjána í Kópa- vogi. Áður hafði lóðinni verið úthlutað til Eiríks Sigurðsson- ar, m.a. fyrir verslun 10–11, en hún var tekin af honum þar sem hann stóð ekki við tíma- fresti sem hann fékk, sam- kvæmt upplýsingum frá Kópavogsbæ. Benjamín Magnússon, arki- tekt sem teiknaði bygginguna, segir að hún sé liður í því að fá heilsteypta mynd á Hamra- borg. Um er að ræða tvær um 1.000 fermetra hæðir auk bílastæða og lítils kjallara í vestari endanum og nær byggingin yfir um þriðjung gjárinnar frá Hamraborg í suðurátt. Benjamín og Auður Sveinsdóttir landslagsarkitekt sigruðu í samkeppni um skipulag miðbæjarins í Kópa- vogi og er byggingin liður í þeirri heild þótt fyrsta hug- mynd hennar hafi orðið til fyrr, að sögn Benjamíns. Hún er númer 8 við Hamra- borg og stefnir m.a. á útlínur tónlistarhússins en kirkjan er fyrsta húsið við götuna. Húsið tengir því miðbæjarsvæðið við tónlistarhúsið og Gerðarsafn en í framtíðinni er gert ráð fyrir að gjánni verði alfarið lokað. Ris ehf. var eini umsækj- andinn um lóðina í seinni út- hlutuninni. Ekki er búið að út- hluta lóðinni formlega, en viðræður standa yfir. Meðal annars milli fyrirtækisins og viðkomandi hönnuða, arki- tekta og verkfræðinga, en fyrrnefndar teikningar voru samþykktar í deiliskipulagi vegna fyrri úthlutunar og er Ris ekki bundið af þeim. Samkvæmt teikningunum er gert ráð fyrir súlum undir miðri byggingunni þar sem nú er umferðareyja, nýjum stoð- veggjum til hliðanna og stál- virki þar ofan á, en þarna hef- ur verið gert ráð fyrir versl- unarhúsnæði, veitingastöðum og skrifstofum. Ákvörðunin kom á óvart Eiríkur Sigurðsson fékk lóðina m.a. fyrir verslunina 10–11. Hann segist hafa farið fram á frest til hausts til að hefja framkvæmdir en Kópa- vogsbær hafi ekki fallist á það og tekið lóðina af sér. „Til stóð að hefja fram- kvæmdir nú í vetur en mér fannst skynsamlegt að fara af stað í haust,“ segir hann og vísar í því sambandi til þensl- unnar í framkvæmdum. „Kópavogsbær var ekki tilbú- inn að verða við þeirri ósk og það kom mér mjög á óvart.“ Að sögn Eiríks stóð hvorki á fjármögnun né öðru hjá hon- um. Unnið hefði verið að verk- inu á þriðja ár en vegna spenn- unnar á byggingamarkaðnum hefði ekki verið skynsamlegt að hefja framkvæmdir strax. Hann segir ennfremur að áætlaður byggingatími hafi verið níu til tólf mánuðir. Byggt yfir gjána í Kópavogi Viðræður við Ris í stað 10–11 Morgunblaðið/ÁsdísTeikningin sem samþykkt var í deiliskipulaginu. Kópavogur ÁKVEÐIÐ hefur verið að setja upp umferðarljós á gatnamótum Lækjargötu, Öldugötu og Hverfisgötu í Hafnarfirði og á framkvæmd- um að ljúka fyrir haustið, að sögn Ernu Hreinsdóttur, tæknifræðings í gatnadeild bæjarverkfræðings í Hafnar- firði. Vegna þessa var verfræði- fyrirtækið Línuhönnun fengið til að kanna ástand Hverfis- götubrúarinnar sem reyndist mjög lélegt. Í kjölfarið ákvað bæjarráð Hafnarfjarðar að fela bæjarverkfræðingi að bjóða út endurgerð um- ræddra gatnamóta ásamt tvö- faldri brú á lækinn en Land- mótun mun sjá um um- hverfismótunina. Umferðarljós við Lækjarskóla Hafnarfjörður Morgunblaðið/Golli Ákveðið hefur verið að setja umferðarljós við gatnamót Lækjargötu, Öldugötu og Hverfisgötu í Hafnarfirði.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.