Morgunblaðið - 03.05.2001, Síða 18

Morgunblaðið - 03.05.2001, Síða 18
SUÐURNES 18 FIMMTUDAGUR 3. MAÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ VORTÓNLEIKAR Karlakórs Keflavíkur verða haldnir í dag og næstu daga. Fyrstu tónleikarnir verða í Ytri-Njarðvíkurkirkju í kvöld klukkan 20.30. Tónleikar verða einnig haldnir í Ytri-Njarðvíkurkirkju 8. og 11. maí og Grindavíkurkirkju 6. maí og hefj- ast á sama tíma. Þá verður kórinn með tónleika í Ými, félagsheimili Karlakórs Reykjavíkur við Skógar- hlíð 20 í Reykjavík sunnudaginn 13. maí kl. 17. Efnisskráin samanstendur af ís- lenskum og erlendum lögum. Má þar nefna hefðbundin karlakóralög, verk úr óperum, valsasyrpur og dægur- lög. Frumflutt verður lagið Heim- koman eftir Pálmar Þ. Eyjólfsson. Stjórnandi kórsins er Smári Óla- son tónlistarmaður. Hann hefur starfað sem tónlistakennari og yfir- kennari, organisti, kórstjóri og sjálf- stætt sem tónvísindamaður. Undir- leik á píanó annast Ester Ólafsdóttir tónlistarmaður. Einsöngvarar með kórnum eru Steinn Erlingsson, Rúnar Guð- mundsson, Smári Ólason og Sveinn Sveinsson. Vortónleikarnir eru ein aðalfjár- öflun kórsins og er því mikilvægt að aðsókn verði góð, segir í fréttatil- kynningu frá Karlakór Keflavíkur. Reykjanesbær Vortón- leikar karlakórs- ins í kvöld FYRIRLESTUR um sjálfsvíg og forvarnir þeirra í alþjóðlegu um- hverfi verður haldinn í Kirkjulundi í Keflavík á morgun föstudag. Teo Jan van der Weele hefur verið hér á landi og haldið námskeið um kynferðisofbeldi. Hann hefur víð- tæka reynslu og þekkingu á ýmsum sviðum, einkum á sviði sálgæslunn- ar, segir í fréttatilkynningu. Hann mun fjalla um sjálfsvíg og forvarnir þeirra föstudaginn 6. maí kl. 10 í Kirkjulundi í Keflavík. Hann mun flytja fyrirlestra fyrir hádegi á ensku, síðan verður léttur hádegisverður og loks frekari um- ræður og fyrirspurnir eftir hádegi, kl. 13-14 e.h. Keflavík Fyrirlestur um sjálfsvíg SAMNINGAR eru á lokastigi um hreinsun á olíu- tönkum, leiðslum og öðrum mannvirkjum af Neðra-Nikkelsvæði varnarliðsins sem liggur að byggðinni í Reykjanesbæ. Miðað er við að íslensk stjórnvöld kosti hreinsun yfirborðsmannvirkja og Bandaríkjamenn láti fjarlægja á sinn kostnað lagn- ir og önnur mannvirki neðanjarðar. Verktakar voru í gær byrjaðir að undirbúa hreinsun svæð- isins. Varnarliðið rak olíubirgðastöð á Neðra-Nikkel- svæði en því var hætt fyrir mörgum árum. Eftir standa mannvirki, olíutankar og leiðslur ofan- og neðanjarðar. Þá liggur fyrir að mengun í jarðvegi er yfir viðmiðunarmörkum á ákveðnum stöðum svæðisins. Byggðin í Keflavík og Njarðvík liggur alveg að girðingu um svæðið og hafa bæjaryfirvöld í Reykjanesbæ lengi óskað eftir því að svæðið yrði hreinsað og bærinn fengi það til afnota til áfram- haldandi þróunar bæjarins og uppbyggingar. Íslensk stjórnvöld sjá um hreinsun mannvirkja ofanjarðar Málið hefur verið til umfjöllunar á milli varnar- málaskrifstofu utanríkisráðuneytisins og banda- rískra stjórnvalda. Verið er að semja um að íslensk stjórnvöld kosti hreinsun yfirborðsmannvirkja, eins og þau tóku að sér þegar samið var um þegar tekið var við eignum lóranstöðvarinnar á Hellis- sandi, en Varnarliðið kosti hreinsun lagna sem eru neðanjarðar. Samningum er þó ekki lokið. Gunnar Gunnarsson, skrifstofustjóri varnarmálaskrifstofu utanríkisráðuneytisins, segir að verið sé að vinna í samningum um Neðra-Nikkelsvæðið og við það miðað að þeim ljúki á næstunni. Bæjarstjórinn ánægður Ellert Eiríksson, bæjarstjóri í Reykjanesbæ, segir að unnið hafi verið að þessu verkefni frá 1987 og því sé hann sérstaklega ánægður með að sjá að málið sé komið á það stig að hreinsun geti hafist. Starfsmenn Íslenskra aðalverktaka voru síðdegis í gær að flytja vinnubúðir á svæðið. Ekki hefur verið samið um hreinsun mengaðs jarðvegs á gamla olíubirgðasvæðinu eða um skil varnarliðsins á landinu til íslenskra stjórnvalda en vinna við að fjarlægja mannvirki er liður í því. Ein- hverjr rannsóknir verða gerðar á mengun í tengslum við þær framkvæmdir sem nú eru að hefjast. Ellert vonast til að hægt verði að semja um framhaldið sem allra fyrst á þessu ári. Verktakar undirbúa hreinsun mannvirkja af Neðra-Nikkelsvæði Varnarliðið lætur fjarlægja mannvirki neðanjarðar Reykjanesbær byggðarlag á þessum tíma og Árni Helgason organisti vildi taka okk- ur í kórinn,“ segir Þórarinn. Hann segir að áhuginn hafi verið mikill hjá þeim bræðrum. „Þegar við komum í land á kvöldin áttum við eftir að klöngrast í kolniðamyrkri út í Járngerðarstaðahverfi til að læra raddirnar. Maður mætti alltaf en oft dauðþreyttur.“ Hann segir að þetta sé breytt. Unga fólkið fáist ekki í kirkjukór- inn, það sé ekki í tísku í dag, en hins vegar flykkist það í aðra kóra. Árni Helgason var organisti þegar Þórarinn byrjaði í kirkju- kórnum en lengst söng hann þó með Vigni, syni Árna, sem var org- anisti í um fjörutíu ár. Síðan tók Siguróli Geirsson við og nú er Guð- mundur Emilsson söngstjóri. Þór- arinn hefur verið viðloðandi kór- starfið allan þennan tíma en tekur fram að hann hafi misst töluvert úr vegna sjómennskunnar en hann stundaði sjóinn í 48 ár, var til að mynda lengi skipstjóri og útgerð- armaður Alberts GK. „Ég hef allt- VIÐ bræðurnir mættum alltaf á æfingar þegar við komum af sjón- um á kvöldin en vorum oft dauð- þreyttir,“ segir Þórarinn Ólafsson, fyrrverandi skipstjóri og útgerð- armaður í Grindavík, sem sungið hefur með kirkjukórnum í hálfan sjötta áratug. Þórarinn byrjaði að syngja með kirkjukórnun í Grindavík árið 1945 þegar hann var nítján ára gamall. Hann verður 75 ára á þessu ári og er elsti kórfélaginn en segist vera að hætta. Hann eigi orðið erfitt með að standa í kirkj- unni. Guðmundur bróðir Þórarins byrjaði í kórnum á sama tíma, þá sautján ára, og hann syngur enn, nú í kirkjukórnum í Keflavík. Unga fólkið fæst ekki í kirkjukórinn „Það var mikið söngfólk í báðum mínum ættum. Móðir mín söng í kirkjukórnum og föðurbróðir minn. Grindavík var ekki stórt af haft mikla ánægju af að syngja og svo er góður félagsskapur með fólkinu sem syngur saman. Það myndast sérstakt samband milli fólks sem vinnur svona náið sam- an,“ segir Þórarinn. Ekki mönnum sinnandi Þórarinn seldi útgerð Alberts á árinu 1996 en hóf saltfiskverkun tveimur árum síðar, þá orðinn 73 ára gamall. Hann rekur nú fisk- verkunina Þrótt í Grindavík og hefur tíu manns í vinnu um þessar mundir. „Árið 1997 var slæmt hjá mér. Eftir að ég seldi útgerðina hafði ég ekkert að hugsa um og var ekki mönnum sinnandi. Ég fór því út í það að kaupa þetta hús og byrjaði að salta fisk.“ Þórarinn er ekki með eigin út- gerð heldur kaupir fisk af smábát- um. Hann segir að trillurnar fiski vel og hann þurfi því ekki að kvarta undan hráefnisskorti í verkfalli sjómanna. „En það er skelfilegt að sjá bátana bundna við bryggju á besta tíma ársins.“ Þórarinn Ólafsson skipstjóri hefur sungið í kirkjukórnum í Grindavík í 55 ár Morgunblaðið/Jim Smart Þórarinn Ólafsson hefur mikla ánægju af kórsöng. Var oft þreyttur á æfingunum Grindavík OPIÐ hús verður fyrir almenning í varnarstöðinni á Keflavíkurflug- velli á laugardag, kl. 11 til 16, í til- efni af því að fimmtíu ár eru liðin frá því íslensk stjórnvöld og banda- rísk gerðu varnarsamning ríkj- anna. Þar gefst fólki kostur á að kynnast lífinu og starfinu á Kefla- víkurflugvelli og sögu varnarliðs- ins. Afmælis varnarsamningsins frá 1951 verður minnst með ýmsum hætti á morgun og laugardag. Í fréttatilkynningu frá upplýsinga- skrifstofu varnarliðsins kemur fram að á laugardag verða bifreiða- stæði fyrir gesti opna hússins við stóra flugskýlið næst vatnstanki vallarins og þar gefst kostur á að njóta fjölbreyttrar skemmtunar með „karnival“-sniði fyrir alla fjöl- skylduna með lifandi tónlist, þraut- um og leikjum auk hressingar af ýmsu tagi. Varnarliðið hefur oft boðið til skemmtunar af þessu tagi en kynningin nú er mun viðameiri, að sögn Friðþórs Eydals upplýs- ingafulltrúa. Flugvélakostur varnarliðsins, gestkomandi flugvélar og annar búnaðar varnarliðsins verður til sýnis á flughlaðinu ásamt slökkvi- og björgunarbifreiðum slökkviliðs- ins og snjóruðningstækjum. Í öðru flugskýli gegnt gömlu flugstöðinni verða ítarlegar sögusýningar og ljósmyndasýningar, þ. á m. sýning Baldurs Sveinssonar á ljósmyndum af flugvélakosti varnarliðsins frá upphafi. Þá gefst gestum kostur á að skoða gamlar uppgerðar her- bifreiðar í eigu félaga í Fornbíla- klúbbnum og annarra, heimsækja íþróttahúsið, keilusalinn, hjóla- skautasal og kvikmyndahús varn- arliðsins. Einnig verður opið hús í slökkvi- stöðinni og framhaldsskólanum, High-School, þar sem fram fer mót íslenskra og bandarískra skóla- lúðrasveita, svo og í kirkju varn- arliðsins þar sem kórar hinna ýmsu safnaða varnarliðsmanna munu syngja fyrir gesti. Ekki er gert ráð fyrir umferð einkabifreiða eða fótgangandi gesta milli aðskilinna svæða sem opin verða almenningi en stræt- isvagnar verða í stöðugum förum með gesti á milli staða og í skoð- unarferðir um flugvallarsvæðið í fylgd leiðsögumanna. Aðgangur er ókeypis og allir vel- komnir, segir í fréttatilkynning- unni. Umferð er um Grænáshlið of- an Njarðvíkur. Gestir eru vinsamlega beðnir að hafa ekki með sér hunda. Opið hús vegna afmæl- is á Keflavíkurflugvelli Keflavíkurflugvöllur ♦ ♦ ♦ ÞAÐ var galsi og gaman hjá nemendum tíunda bekkjar í Grunnskóla Sandgerðis þegar þeir fögnuðu lokum samræmdra prófa. Héldu þau upp á tímamót- in, eins og margir jafnaldrar þeirra um allt land. Á laugar- dagskvöldið hittust nemendurnir í skólanum, skemmtu sér saman og fóru síðan í skrúðgöngu um bæinn í blíðskaparveðri. Voru þeir með frumlega hatta í tilefni dagsins og gengu undir fána bekkjar síns. Morgunblaðið/Reynir Sveinsson Fagna lokum sam- ræmdra prófa Sandgerði

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.