Morgunblaðið - 03.05.2001, Side 22

Morgunblaðið - 03.05.2001, Side 22
NEYTENDUR 22 FIMMTUDAGUR 3. MAÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ AGE FITNESS Áhrifaríkur kraftur ólífutrjáa - Yngri húð á 8 dögum. Hamraborg 14a sími 5642011 Kynning í dag og á morgun Kynnum m.a. Age Fitness, nýtt krem sem eykur teygjanleika húðarinnar og verndar hana gegn utanaðkomandi áreiti. Age Fitness inniheldur hreint efni unnið úr laufblöðum ólífutrjáa. Áferðin og ilmurinn er frábær. Líttu við og fáðu ráðgjöf og sýnishorn. TILFÆRINGAR eiga sér stað á sumum verslunum Kringlunnar um þessar mundir og þá eru nýjar versl- anir að bætast við en alls eru 160 fyrirtæki nú með rekstur í Kringl- unni. „Verslunin Knickerbox hefur ný- lega fært sig um set innan Kringl- unnar en eigendur hennar áttu verslunarrými í norðurhlutanum. Þar sem Knickerbox var áður kemur kvenfataverslunin Iðunn á Seltjarn- arnesi,“ segir Einar Halldórsson, framkvæmdastjóri Kringlunnar. „Þá hefur verslunin Elegance hætt rekstri í Kringlunni en verslunin var flutt í eigið húsnæði á Laugavegin- um. Þar sem Elegance var kemur ný verslun sem ekki er tímabært að segja frá að svo stöddu nema að um er að ræða sérverslun með fatnað. Nýja verslunin verður opnuð um mánaðamótin júlí/ágúst,“ segir Ein- ar og bætir við að þrjár breytingar séu síðan fyrirhugaðar í haust sem allar taki til tilfæringa sem og komu nýrra verslana. Eins og fram hefur komið í fjöl- miðlum hafa breytingar m.a. átt sér stað á rúllustigum Kringlunnar. Eru fleiri breytingar fyrirhugaðar í þeim efnum? „Við höfum undanfarin þrjú ár verið að breyta ásýndinni og erum nú að fara að stað með þriðja áfang- ann. Við ætlum m.a. að skipta um loft og lýsingu á fyrstu hæðinni og laga innganginn fyrir framan Hag- kaup í samræmi við það sem hefur verið gert annars staðar. Þá er einn- ig fyrirhugað að endunýja lýsingu á bílastæðum,“ segir Einar og bætir við að byrjað verði á framkvæmd- unum í maí og þær kláraðar í lok júlí. Breytingar í Kringlunni Iðunn meðal nýrra verslana Morgunblaðið/Ásdís KÍLÓIÐ af ferskum jarðarberjum kostaði frá 1.145 krónum og upp í 1.745 krónur í gær þegar kannað var verð á þeim í nokkrum stór- mörkuðum í Reykjavík. Í Danmörku og Noregi er kílóið af jarðarberjum selt langt undir þúsund krónum þessa dagana, jafnvel ítölsk lífrænt ræktuð jarð- arber kostuðu í Kaupmannahöfn í gær undir þúsund krónum eða 920 krónur kílóið. Engir tollar eru lagðir á innflutt jarðarber hér á landi samkvæmt upplýsing- um frá landbúnaðarráðu- neytinu. Í gær kostaði kíló af jarð- arberjum frá rúmlega 440 krónum og upp í 511 krónur í verslununum ISO, Super Brugsen og Irmu í Kaupmannahöfn. Jarðarberin sem til sölu eru í Kaupmannahöfn koma frá Spáni. Samkvæmt upplýsingum frá Kaup- mannahöfn voru jarðarber t.d. á tilboði hjá grænmetissala í mið- borginni. Þar voru tveir 450 g bakkar, alls 900 g, seldir á 25 krónur danskar eða kíló á um 320 íslenskar krónur. Í Ósló kostaði í gær kíló af ferskum jarðarberjum í Jacob’s, sem telst matvöruverslun í fínni kantinum, um 712 ís- lenskar krónur. Í Rema 1000, sem er lágvöru- verðsverslun, kostuðu 500 g bakk- ar af jarðarberjum 18 norskar krónur í gær og kílóverðið er þá 36 krónur eða um 381 íslensk króna. Hér á landi var kílóið ódýrast selt á 1.145 krónur í Bónus um há- degisbil í gær. Í Hagkaupum fór kílóverðið úr 1.745 niður í 1709 krónur fyrir nokkrum dögum. Í Nóatúni var kílóið af jarðarberjum selt á 1.745 krónur í gær svo og í Nýkaupum. Engin jarðarber voru til hjá Nettó í gær. Í Fjarðarkaup- um kostuðu 200 g bakkar 329 krónur. Á öllum stöðunum nema í Fjarðarkaupum voru jarðarberin sögð hollensk og merkt frá Kings. Í Fjarðarkaupum voru berin belg- ísk. Ef borið er saman kílóverð á jarðarberjum í Kaupmannahöfn og í Reykjavík kemur í ljós að berin eru allt að 241% dýrari í Reykja- vík ef miðað er við 1.745 króna kílóverð í Reykjavík og 511 krónur í Kaupmannahöfn. Að sögn Einars Þórs Sverr- issonar framkvæmdastjóra Ávaxtahússins eru berin hollensk sem fást í Bónus, Nýkaupum og Hag- kaupum. Þau eru ný- komin á mark- að og hann segir að það kunni að skýra hátt verð. Hann segir ekki ólíklegt að verðið lækki hratt á næstunni. Jón Þorsteinn Jónsson markaðs- stjóri hjá Nóatúni segir að verð á jarðarberjum lækki oft ekki fyrr en lengra líður á uppskerutímabil- ið en þessi vara er keypt á upp- boðsmörkuðum í Hollandi. Tekið skal fram að ekkert tillit var tekið til gæða í þessari könnun heldur einungis spurt um verð. Engir tollar lagðir á innflutt jarðarber hérlendis Jarðarber 241% dýrari í Reykjavík en í Kaupmannahöfn Þegar borið var saman verð á ferskum jarðarberjum í lágvöruverðsverslununum Remi í Ósló og Bónus í Reykjavík í gær kom í ljós að berin voru seld á 223% hærra verði í Bónus en Remi. Morgunblaðið/Golli Sterk gó l fe fn i Ármúla 23, sími 533 5060

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.