Morgunblaðið - 03.05.2001, Side 28
ERLENT
28 FIMMTUDAGUR 3. MAÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
GERHARD Schröder, kanzlari
Þýzkalands, tók við hátíðlega at-
höfn í gær við lyklunum að ný-
byggðri kanzlarahöll í Berlín sem
hýsir bæði skrifstofur kanzlara-
embættisins og embættishíbýli
kanzlarans.
Axel Schultes, aðalarkítekt hinn-
ar umdeildu nýbyggingar, afhenti
Schröder risastóran táknrænan
lykil við athöfn sem fjöldi fyrir-
menna var viðstaddur, þ.á m. öll
þýzka ríkisstjórnin að utanrík-
isráðherranum frátöldum, sem er í
embættiserindum í Bandaríkj-
unum.
Er Schröder sneri lyklinum í
ámóta stórri og táknrænni skrá
sagði hann vígslu nýju kanzlara-
hallarinnar marka lok flutninga
ríkisstjórnarinnar frá Bonn til
Berlínar en þeir voru ákveðnir eftir
að Berlínarmúrinn féll og Þýzka-
land sameinaðist.
Sagði kanzlarinn að hið nýja
starfsumhverfi stjórnarráðsins
myndi „örva virkni“ þess. Kanzl-
arahöllin stendur við bakka árinnar
Spree, andspænis þinghúsinu,
Reichstag.
Dró Schröder þó enga dul á að
sér þætti byggingin allt of stór og
að hann hefði fremur kosið að flytja
inn í hús byggt af meiri hæversku.
Það var Helmut Kohl, fyrirrennari
Schröders í embætti, sem valdi
hönnunina á nýju kanzlarahöllinni.
Frá því ríkisstjórnin og þingið
fluttu til Berlínar árið 1999 hefur
Schröder notað gömlu austurþýzku
stjórnarráðsbygginguna sem
bráðabirgðaaðsetur kanzlaraemb-
ættisins. Viðurkenndi hann að það
hefði farið ágætlega um sig þar, en
það hefði ekki annað komið til
greina en að hann flytti í stóru nýju
kanzlarahöllina þar sem ekki mætti
láta þá gríðarlegu fjárfestingu sem
í henni lægi fara til spillis. Heildar-
kostnaður við bygginguna er í
kringum 465 milljónir marka, and-
virði um 21 milljarðs króna.
Gerhard Schröder tekur við lyklunum að nýrri kanslarahöll í Berlín
Hefði
kosið
látlausari
byggingu
AP
Frá vígsluathöfninni við aðalinngang nýju kanzlarahallarinnar í gær.
Berlín. AFP.
Gerhard Schröder kanzlari (t.v.)
nýtur hér aðstoðar Axels Schult-
es arkítekts við að handleika
táknrænan lykil við vígsluat-
höfn nýju kanzlarahallarinnar í
Berlín í gær.
FYRRVERANDI félagi í Ku Klux
Klan-samtökum, sem hatast við
blökkumenn og ýmsa aðra hópa, var
dæmdur í gær í lífstíðarfangelsi fyrir
sprengjutilræði í kirkju árið 1963 en
það varð fjórum blökkustúlkum að
bana.
Það tók kviðdóm, sem skipaður
var fjórum blökkumönnum og átta
hvítum mönnum, stutta stund að
komast að þeirri niðurstöðu að
Thomas Blanton, sem nú er 62 ára,
bæri ábyrgð á sprengingu, sem varð
í einni kirkna blökkumanna í Birm-
ingham í Alabama fyrir 38 árum.
Varð hún fjórum stúlkum á aldrinum
11 til 14 ára að bana en auk þess slös-
uðust meira en 20 manns.
Hoover svæfði málið
Hryðjuverkið í kirkjunni olli eins
konar þáttaskilum á sínum tíma því
að það varð til að stórefla mannrétt-
indabaráttu blökkumanna. Það gekk
hins vegar ekki vel að koma lögum
yfir hina seku. Bandaríska alríkis-
lögreglan, FBI, nefndi fljótlega fjóra
menn, sem hún taldi seka, en Edgar
Hoover, þáverandi yfirmaður henn-
ar, taldi ólíklegt að unnt væri að
sanna á þá sök. Var málið þá lagt til
hliðar en opnað aftur þremur árum
síðar.
Þeir, sem grunaðir voru auk
Blantons, voru þeir Robert
Chambliss, sem var dæmdur fyrir
morð 1977 og lést í fangelsi; Herman
Cash, sem lést án þess að vera
ákærður, og Bobby Frank Cherry.
Hefur réttarhöldum yfir honum ver-
ið frestað þar til læknar hafa metið
andlegt ástand hans.
„4 litlar stúlkur“
Bandaríska dómsmálaráðuneytið
komst að þeirri niðurstöðu 1980 að
Hoover hefði stungið undan mikil-
vægum sönnunargögnum en þó
komst ekki almennilegur skriður á
málið fyrr en sýnd var um það heim-
ildarmynd eftir Spike Lee, „4 litlar
stúlkur“.
Alríkislögreglan hóf nýja rann-
sókn og Blanton gaf sig fram í maí sl.
Það sem reið baggamuninn í réttar-
höldunum var segulbandsupptaka
frá árinu 1964. Hafði FBI komið fyr-
ir hlustunartækjum undir eldhús-
vaskinum heima hjá Blanton og tók
upp samtal hans og konu hans þar
sem hann viðurkenndi að hafa gert
sprengjuna sem notuð var. Sækjend-
ur minntu einnig á að Blanton hefði
hreykt sér af ódæðinu við félaga sinn
í Ku Klux Klan, sem raunar var upp-
ljóstrari fyrir FBI, og fullyrt þá að
hann yrði aldrei sakfelldur.
Dómurinn yfir Blanton er talinn
mikill sigur fyrir mannréttindabar-
áttu blökkumanna í Suðurríkjum
Bandaríkjanna og einnig fyrir þá
saksóknara sem hafa verið að taka
upp gömul en óleyst mál af þessu
tagi.
Fyrrverandi Ku Klux
Klan-félagi í lífstíðar-
fangelsi fyrir morð
Dómurinn
féll eftir
nærri
fjörutíu ár
Birmingham. AP, AFP.
AP
Thomas Blanton leiddur brott
úr réttarsalnum er dómurinn
hafði verið kveðinn upp.
LEIÐTOGAR NATO-ríkja í Evrópu
brugðust í gær varfærnislega við
ræðu George W. Bush Bandaríkjafor-
seta þar sem hann kynnti umdeild
áform sín um að koma upp eldflauga-
varnakerfi og hvatti til þess að ABM-
sáttmálinn frá 1972, sem takmarkar
eldflaugavarnir, viki fyrir nýjum
samningi.
Bush sagði ennfremur í ræðu í
fyrradag að hann stefndi að því að
fækka langdrægum kjarnavopnum
Bandaríkjanna án sérstaks afvopnun-
arsamnings við Rússa og kvaðst ætla
að hafa samráð við önnur ríki um eld-
flaugavarnirnar. Hann lýsti ABM-
sáttmálanum sem tímaskekkju og
sagði að hann yrði að víkja fyrir nýj-
um samningi sem myndi gera Banda-
ríkjamönnum og bandamönnum
þeirra kleift að koma upp eldflauga-
vörnum til að verjast hugsanlegum
árásum óvinveittra ríkja í þriðja
heiminum.
Markmiðið með ABM-sáttmálan-
um var einmitt að hindra slík eld-
flaugavarnakerfi og hann var einn af
grunnþáttum fælingarstefnu stór-
veldanna í kalda stríðinu.
Bush sagði að í sáttmálanum væri
ekki tekið mið af tækniframförum,
sem orðið hefðu síðustu þrjá áratugi,
og hann meinaði Bandaríkjamönnum
að leita nýrra leiða til að verjast nýj-
um hættum eftir lok kalda stríðsins.
Þetta er í fyrsta sinn sem Bush
ræðir áformin um eldflaugavarnirnar
opinberlega frá því að hann tók við
forsetaembættinu í janúar. Hann
veitti þó ekki nýjar upplýsingar um
hvers konar eldflaugavarnakerfi
hann hefði í huga og sagði ekkert um
hvað það myndi kosta eða hvenær því
yrði komið upp.
Forsetinn kvaðst hins vegar stefna
að því að fækka kjarnavopnum
Bandaríkjanna eins mikið og mögu-
legt er í „samræmi við þarfir Banda-
ríkjanna og skuldbindingar okkar
gagnvart bandamönnum okkar“.
Bandaríkjamenn eiga nú 7.295
kjarnaodda og Rússar 6.094. Rússar
hafa lagt til verulega kjarnorkuaf-
vopnun og bandarískir embættis-
menn hafa rætt þann möguleika að
fækka kjarnaoddum Bandaríkjanna í
1.500.
Lofar samráði
Bush lagði áherslu á að Banda-
ríkjastjórn myndi ekki koma upp eld-
flaugavarnakerfi án þess að hafa náið
samráð við leiðtoga ríkja í Evrópu og
Asíu.
Bush hringdi einnig í Vladímír Pút-
ín Rússlandsforseta í fyrradag til að
útskýra áformin um eldflaugavarn-
irnar og kvaðst vilja eiga fund með
honum fyrir leiðtogafund átta helstu
iðnríkja heims í sumar.
Fyrstu viðbrögð leiðtoga banda-
manna Bandaríkjanna við áformum
Bush um eldflaugavarnir voru var-
færnisleg og þeir beindu þess í stað
athyglinni að loforðum forsetans um
að hafa samráð við önnur ríki og
fækka kjarnavopnum Bandaríkjanna.
„Ég fagna loforði forsetans um að
fækka bandarísku kjarnavopnunum,“
sagði Robin Cook, utanríkisráðherra
Bretlands. „Það eru góðar fréttir að
Bush forseti skuli hafa rætt við Pút-
ín.“
Bush kann að þurfa að fá leyfi
bresku stjórnarinnar til að endurnýja
ratsjárstöðvar í norðurhluta Eng-
lands til að þær geti verið hluti af eld-
flaugavarnakerfinu. Tony Blair, for-
sætisráðherra Bretlands, hefur
hingað til neitað að svara því afdrátt-
arlaust hvort hann myndi samþykkja
slíka beiðni og sagt að hún hafi ekki
enn verið lögð fram formlega.
Varað við
vígbúnaðarkapphlaupi
Joschka Fischer, utanríkisráð-
herra Þýskalands, kvaðst hafa
áhyggjur af áformum Bandaríkja-
stjórnar en fagnaði loforði Bush um
að hafa samráð við Rússa og NATO-
ríkin í Evrópu. Fischer var staddur í
Washington og kvaðst ætla að nota
ferðina til að ræða málið frekar við
Colin Powell, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna.
George Robertson, framkvæmda-
stjóri Atlantshafsbandalagsins, gaf út
yfirlýsingu þar sem hann fagnaði um-
mælum Bush. „Rétt er af forsetanum
að beina athyglinni að þessum nýju
hættum og ég er ánægður með loforð
hans um náið samráð við bandamenn-
ina,“ sagði hann.
Anna Lindh, utanríkisráðherra
Svía, sem gegna nú formennsku í
Evrópusambandinu, gagnrýndi hins
vegar áformin um eldflaugavarnirn-
ar. „Þetta getur valdið nýju vígbúnað-
arkapphlaupi,“ sagði hún í samtali við
Aftonbladet.
Franska stjórnin sagði ekkert um
ummæli Bush en Jean-Louis Dufour
ofursti, varnarmálasérfræðingur
rannsóknastofnunarinnar CERI í
París, sagði að Bush hefði aðeins gert
yfirborðslega tilraun til að hafa sam-
ráð við Rússa og NATO-ríkin í Evr-
ópu áður en hann flutti ræðuna.
„Þetta er mjög flókið mál og hann af-
greiddi það í tíu mínútna símtali,“
sagði Dufour.
Nokkrir varnarmálasérfræðingar
spáðu því að NATO-ríkin í Evrópu
myndu að lokum samþykkja áform
Bandaríkjastjórnar þrátt fyrir efa-
semdir þeirra og áhyggjur af því að
þau kunni að valda nýju vígbúnaðar-
kapphlaupi. „Ég tel að Evrópuríkin
dragi að lokum þá ályktun að það
þjóni betur öryggishagsmunum
þeirra að ergja ekki Bandaríkjamenn
um of,“ sagði Timothy Garden, fræði-
maður við Konunglegu alþjóðamála-
stofnunina í London.
Stjórn Ástralíu tók ræðu Bush vel
og kvaðst ætla að heimila Bandaríkja-
mönnum að nota sameiginlegar her-
stöðvar í Ástralíu fyrir eldflauga-
varnakerfið.
Talin geta grafið undan
alþjóðlegum samningum
Nokkrir varnarmálasérfræðingar
sögðust óttast að áform Bandaríkja-
stjórnar gætu grafið undan alþjóðleg-
um samningum sem gerðir hafa verið
í öryggismálum frá því að ABM-sátt-
málinn var undirritaður árið 1972, svo
sem samningum um afvopnun og
bann við kjarnorkutilraunum.
Demókratar í Bandaríkjunum
gagnrýndu einnig áform Bush og
sögðu að ekki hefði enn verið sannað
að eldflaugavarnakerfið gæti þjónað
tilætluðum tilgangi. Þingmenn úr
báðum stóru flokkunum í Bandaríkj-
unum veltu því einnig fyrir sér hvern-
ig Bush hygðist lækka skatta og eyða
um leið 60–100 milljörðum dala, and-
virði 5.600–9.400 milljarða króna, í
eldflaugavarnir án þess að draga úr
öðrum útgjöldum til varnarmála.
Bandaríkjaforseti kynnir áform um að koma upp eldflaugavarnakerfi
Viðbrögð
Evrópuríkja
einkennast
af varfærni APGeorge W. Bush Bandaríkjafor-
seti flytur ávarp sitt.
Washington, London. Reuters, AP, AFP.