Morgunblaðið - 03.05.2001, Qupperneq 44

Morgunblaðið - 03.05.2001, Qupperneq 44
44 FIMMTUDAGUR 3. MAÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ Þ að var undarlegt að heyra þetta af munni miðdemókratans en ekki varð um villst; miðjumaðurinn kvaðst halda að líklega væru pólitískar öfgar stundum bestar til að ná ár- angri. Maðurinn sem um ræðir er virtur stjórnmálamaður hér í Dan- mörku og þykir tjá sig af skynsemi um mál sem eiga það til að vera rædd af meira kappi en forsjá. Eitt þeirra og raunar það sem áðurnefndur maður vísaði til, eru málefni innflytjenda. Staðreyndin er sú að í Dan- mörku hefur Danski þjóðarflokk- urinn, sem hefur á stefnuskrá sinni að fækka innflytjendum, stýrt umræðunni um málefni þeirra í mörg herrans ár. Það hef- ur orðið til þess að jafnaðar- menn, sem verið hafa við stjórn- völinn í níu ár, hafa séð sig knúna til þess að sýna almenningi að þeir taki á mál- um af hörku. Fjöldamörg dæmi eru um málefni einstaklinga, sem hefði mátt leysa með því að gera undantekningu. Þess í stað hafa þau farið í óleysanlegan hnút sem kallað hefur mikla erfiðleika og armæðu yfir þá sem um ræðir, auk þess sem þau eru enn einn naglinn í kistu umburðarlyndis gagnvart ókunnugum. Dæmi um mál sem farið hafa úr böndunum vegna stífni þeirra embættismanna sem að því komu snýst um tamílska konu frá Sri Lanka, sem kom til Danmerkur fyrir nokkrum mánuðum ásamt ársgömlum syni sínum til að vera hjá eiginmanninum sem búið hefur í Danmörku í níu ár. Hjónaband og barn þótti hins vegar ekki næg „tenging við landið“, sem er að- alröksemdin fyrir því að veita inn- flytjendum dvalarleyfi í landinu. Umsókn konunnar var því ekki að- eins hafnað; hún var flutt með valdi frá heimili sínu og ekki skilið við hana og grátandi smábarnið fyrr en dyr flugvélarinnar lok- uðust á Kastrup. Allt var að sjálfsögðu sýnt í kvöldfréttum sjónvarps. Konan var handtekin af yfirvöldum við komuna til Sri Linka, enda eiga yf- irvöld í blóðugum átökum við skæruliða tamíla en henni var sleppt eftir að danskir embættis- og hjálparstarfsmenn lögðu fram mótmæli. Hið dapurlegasta í mál- inu er að eftir tvo mánuði á eig- inmaðurinn rétt á því að óska eftir því að fjölskyldan verði sameinuð þar sem hann hefur þá búið nógu lengi í landinu. Hann mun að öllum líkindum fá jákvætt svar sem þýð- ir að eiginkona hans og barn verða flutt aftur til Danmerkur á kostn- að danska ríkisins. Einhver hefði sagt að gera hefði mátt undantekningu í þessu tilfelli, af mannúðarástæðum og svo hreinlega til að spara fé hins op- inbera. Ekki var við það komandi þótt málið endaði á borði innanrík- isráðherrans, Karenar Jespersen. Ráðherranum var svo mikið í mun að sýna að jafnaðarmenn sýndu enga linkind að skynsemisrök réðu engu. Endalausar deilur um hvort múslimskar konur megi bera slæður í skóla og vinnu eru ekki til marks um að mikill vilji sé til þess að koma til móts við þá sem flust hafa til Danmerkur. Ekki heldur áralangar deilur um hvort múslim- ar geti fengið eigin grafreit, eða jafnvel mosku. Þrátt fyrir að hundruð þúsunda íbúa landsins játist íslam hefur kirkjumála- ráðherrann ekki viljað ganga lengra en segja að þeir fái „kannski“ grafreit, rétt eins og grafreitur sé ávísun á að íslömsk heittrúarstefna tröllríði öllu. Umræða sem ætti að snúast um hvernig hinir nýju íbúar Dan- merkur geti aðlagast samfélaginu snýst þess í stað um það að sýna fram á að ekkert sé gefið eftir gagnvart útlendingunum. Stjórnmálamaðurinn sem minnst var á í upphafi sagði mál- um svo komið að líklega væri best að borgaraflokkarnir kæmust til valda, þar sem slíkt væri eina von- in til þess að hægt væri að gera breytingar til batnaðar á útlend- ingalöggjöfinni dönsku án þess að allt yrði vitlaust. „Sjáðu til, ef þeir íhaldssömustu leggja til breyt- ingar grunar engan að verið sé að ganga of langt.“ Hann taldi sumsé hlutverk mið- flokkanna vera að styðja slíka stjórn á þingi, þvinga fram breyt- ingar með hótunum að láta af stuðningi en láta íhaldsmennina um að sannfæra almenning. Nú þegar hafa nokkrir stjórn- málaflokkar danskir lýst því yfir að málefni innflytjenda verði helsta kosningamálið í næstu kosningum og miðdemókratinn er ekki einn um að koma sér fyrir í skotgröfunum. Jafnaðarmenn, einkum þeir eldri, eru farnir að láta á sér kræla og lýsa eftir opn- ari og málefnalegri umræðu en verið hefur, segjast vera búnir að fá nóg af því að Danski þjóð- arflokkurinn fari fyrir henni. Það hefur hins vegar ekki leitt til nokkurs skapaðs hlutar enda með öllu óljóst hvernig jafn- aðarmenn ætla að höfða til þess fjölda kjósenda sem hefur yfirgef- ið þá, m.a. vegna þess að þeir voru ósáttir við linkind flokksins gagn- vart útlendingum. Sá ótti á ekki síst rætur sínar að rekja til þess óróleika sem grípur marga á tím- um alþjóðavæðingar, tæknium- byltingar og endalausra fólksflutn- inga. Heimurinn er ekki lengur stór, hann verður minni og minni – eða kannski færist hann bara nær. En miðdemókratinn marg- umræddi nefndi fleiri dæmi um ágæti þess að þeir sem eru á ysta kanti stjórnmála fengju að taka til sín. Hann kvaðst t.d. þeirrar skoð- unar að eina vonin um frið í Mið- Austurlöndum fælist í því að láta herskáustu Ísraelana og Palest- ínuarabana setjast niður að samn- ingaborði. Röksemdin var sú sama; enginn úr þeirra herbúðum myndi telja að þeir hefðu gefið of mikið eftir. Amma sagði stundum að það væri sama hvaðan gott kæmi, og áðurnefndur rökstuðningur færir orðatiltækið skrefi lengra; líklega er best að gott komi þaðan sem síst er á því von. Þótt það sé reyndar afskaplega dapurlegt, einkum og sér í lagi fyrir þá sem barist hafa fyrir umbótum allt sitt líf. Sama hvaðan gott kemur Málum er nú svo komið að kannski er best að gott komi þaðan sem síst er á því von. VIÐHORF Eftir Urði Gunnarsdóttur urdur@mbl.is HANNES Hlífar Stefánsson vann frábæran sigur á alþjóðlegu skák- móti sem lauk fyrir helgina, eins og fram kom í síðasta skákþætti. Hér á eftir fylgir frásögn Hannesar af mótinu og skýringar hans við sig- urskákina úr síðustu umferð móts- ins: Nýlega fékk ég boð um að taka þátt í alþjóðlegu skákmóti í Egypta- landi. Í fyrstu var ég ekkert sérstak- lega spenntur, því bæði voru verð- laun lág og eins gæti verið um framandi aðstæður að ræða. Þar sem ég hafði einnig fengið boð á minningarmót Capablanca á Kúbu 3.-21. maí ákvað ég hins vegar að slá til. Fyrra mótið hentaði ágætlega sem upphitun fyrir minningarmótið um heimsmeistarann fyrrverandi. Einnig pössuðu tímasetningar og flugleiðir vel saman, þ.e. París- Egyptaland og París-Kúba. Mótið var haldið í borginni Tanta 120 km frá Kaíró í Egyptalandi. Keppendur á mótinu voru 38, þar af 5 stórmeistarar og 26 alþjóðlegir, flestir frá gömlu austantjaldslönd- unum. Keppendur fóru með rútu á staðinn frá flugvellinum. Boðið var upp á ágætishótel í borginni, en mat- urinn var ekki upp á marga fiska. Fyrstu dagana var boðið upp á of- soðið kjöt af ýmsu tagi, sem kom þó ekki í veg fyrir að flestir fengu þegar í stað í magann. Ég var þó svo hepp- inn að magakveisan kom ekki fyrr en eftir mótið! Sérstaklega var Þjóð- verjinn Stefan Loeffler illa haldinn í maganum. Honum var ekki skemmt þegar sást hvar einn þjónninn hellti kranavatni í kolsýruflöskurnar til að geta selt okkur og þénað smá aura! Þegar leið að miðju móti fengum við þær gleðifréttir að nú gætum við pantað hvað sem væri á matseðlin- um. Ánægjan var þó skammvinn því flesta dagana var okkur tilkynnt, að „í dag bjóðum við bara upp á... kjúk- ling“! Aðstæður á keppnisstað voru lélegar. Teflt var í íþróttasal og sátu menn á garðstólum að tafli. Það var allframandi fyrir okkur þegar við skruppum á salernið, að sjá 15-20 Egypta beygja sig í átt til Mekka í einu horninu! Skákmótið byrjaði vel hjá mér og ég var kominn með 4 vinninga eftir 5 umferðir. Í sjöttu umferð lenti ég í erfiðri stöðu á móti búlgarska stór- meistaranum Spasov og þrátt fyrir góða baráttu varð ég að játa mig sigraðan eftir 130 leiki! Ég náði þó 2½ vinningi í síðustu þremur um- ferðunum, sem tryggði mér efsta sætið á mótinu ásamt Azer Mirzoev frá Azerbadjan. Var ég þó úrskurð- aður sigurvegari eftir stigaútreikn- ing. Lokastaða efstu manna á mótinu varð þessi: 1. Hannes 6½ v. 2. Azer Mirzoev 6½ v. 3. Alexander Fominyh, Vasil Spasov 6 v. 5.-10. Ibragim Khamrakulov, Dimitry Komarov, Dimitar Dochev, Milos Jirovsky, Radek Kalod, Vyacheslav Ikonnikov 5½ v. Allir þessir skákmenn eru stór- meistarar eða alþjóðlegir meistarar og fjórir þeirra eru með yfir 2.550 skákstig. Í síðustu umferð tefldi ég við Hvít-Rússann Sergey Kasparov. Upp kom Caro-Kann vörn og skipt- ist snemma upp á drottningum. Ég fékk aðeins betra endatafl, en sjón er sögu ríkari. Hvítt: Hannes (2.570) Svart: Sergey Kasparov (2.456) [B19] Caro-Kann 1. e4 c6 2. d4 d5 3. Rd2 dxe4 4. Rxe4 Bf5 5. Rg3 Bg6 6. h4 h6 7. Rf3 Rd7 8. h5 Bh7 9. Bd3 Bxd3 10. Dxd3 e6 11. Bf4 Rgf6 12. 0–0–0 Be7 13. Kb1 0–0 14. Re4 Rxe4 15. Dxe4 Rf6 16. De2 Dd5 17. Re5 De4 18. Dxe4 Rxe4 Stöðumynd 1 Við tefldum byrjunarleikina frek- ar hratt og fyrst núna fór ég að hugsa mig um. Það liðu þó ekki nema nokkrar mínútur þar til and- stæðingur minn kom að borðinu án þess að setjast og sagði „draw“, en sá dónaskapur herti bara sigurvilj- ann hjá mér. 19. Be3... Nýr leikur í stöðunni. Markmið hans er að gera svörtum erfiðara fyrir að losa um sig með c5. Í skák milli þeirra Karls Þorsteins og Lobr- on í Reykjavíkurskákmótinu 1984 varð framhaldið 19. Hhe1 Rf6 20. g4 Hfd8 21. Hd3 c5 22. Hed1 cxd4 23. Hxd4 Hd8 og eftir tvöföld hróka- kaup stóð hvítur aðeins betur. Skák- inni lauk þó með jafntefli um síðir. 19...Hfd8 20. c4 Kf8 Svartur fellur nú í þá gryfju að bíða átekta, en slíkt getur leitt til hægláts „svíðings“. Betra var 20. c5. 21. g4 Rf6 22. f3 Rd7 23. f4 Stöðumynd 2 Nú eru sennilega margir sem halda að staðan sé steindautt jafn- tefli eftir 23. Rxe5 24. dxe5 c5 25. Kc2 og hrókauppskipti, en slíku var ég einmitt að vonast eftir. Ég mundi nefnilega eftir lærdómsríka enda- taflinu sem Khalifman vann gegn Jóhanni Hjartarsyni í Tilburg 1994. Þar kom eftirfarandi staða upp: Stöðumynd 3 Framhaldið varð 41…g6 42. g4 gxh5 43. gxh5 a5 44. Bd2 Kh7 45. f5 Bh4 46. b4 exf5+ 47. Kxf5 cxb4 48. axb4 a4 49. Bc1 Bg5 50. Ba3 Kg8 51. b5 Bd8 52. c5 bxc5 53. Bxc5 Kh7 54. Ke4 Kg7 55. Kd5 Bc7 56. b6 Bb8 57. b7 f5 58. Bd6 Ba7 59. Kc6 f4 60. e6 f4 61. e7 1-0 23… a6 24. Kc2 Rxe5 25. dxe5 b5 26. Bb6! Hxd1 27. Hxd1 Ke8 28. Kc3 Hb8 29. Bc7 Hb7 30. Bd6 Bh4? Eftir þennan afleik verður svarta staðan afar erfið. Síðasti möguleik- inn fólst í 30. bxc4. 31. b4! f6 32. Hd3 Kf7? 33. Bc5 Stöðumynd 4 Úrslitin eru ráðin. Hvítur hótar nú Hd8 og eftir rökréttasta fram- haldið, 33…fxe5 34. fxe5, fengi hvíti hrókurinn einnig svigrúm til að hreiðra um sig á f-línunni. 33...g5 34. hxg6+ Kxg6 35. Hd6 h5 36. gxh5+ Kf5 37. exf6 Bxf6+ 38. Bd4 Bh4 39. Hxc6 Be1+ 40. Kb3 Kxf4 41. Bc5 a5 42. cxb5 Bxb4 43. Bxb4 Hxb5 44. Hc4+ Kf3 45. Ka4 1–0 Úr mótaáætlun Skáksambandsins 3.5. SÍ. Landsmót í skólaskák 6.5. SA. 10 mínútna mót 7.5. Hellir. Atkvöld 9.5. TR. Hraðskákmót öðlinga SKÁK T a n t a , E g y p t a l a n d i IV. TANTA-SKÁKMÓTIÐ 18.–27.4. 2001 SKÁK Sigurför Hannesar til Egyptalands Daði Örn Jónsson Hannes Hlífar Stefánsson Stöðumynd 3 Stöðumynd 4 Stöðumynd 1 Stöðumynd 2 Sveinn Pálsson og Jónas Róbertsson Norðurlands- meistarar í tvímenningi Sveinn Pálsson og Jónas Róberts- son sigruðu í Norðurlandsmótinu í tvímenningi var haldið 1. maí í Safn- aðarheimili Dalvíkurkirkju. Mótið tókst í alla staði mjög vel. Spilaður var monrad barometer með þátt- töku 26 para undir styrkri stjórn Ólafs Ágústssonar keppnisstjóra. Sigurvegararnir, Sveinn Pálsson og Jónas Róbertsson, hlutu 746 stig. Í öðru sæti Stefán Vilhjálmsson og Hermann Huijbens með 701 stig og í þriðja sæti urðu síðan Björn Þor- láksson og Reynir Helgason með 700 stig. BRIDS U m s j ó n A r n ó r G . R a g n a r s s o n Gullsmárabrids Bridsdeild FEBK Gullsmára spilaði tvímenning fimmtudaginn 26. apríl. Miðlungur 126. Beztum árangri náðu: NS Helga Helgad. – Þórhildur Magnúsd. 147 Sigurpáll Árnas. – Sigurður Gunnlaugss. 142 Leó Guðbrandss. – Aðalsteinn Guðbr. 136 AV Stefán Ólafss. – Sigurjón H. Sigurjónss 138 Þorgerður Sigurgeirsd. – Stefán Friðbj.138 Guðni Ólafsson – Kjartan Elíasson 132 Eldri borgarar spila brids að Gullsmára 13 alla mánudaga og fimmtudag. Skráning kl. 12.54. Eldri borgarar spiluðu tvímenn- ing á tíu borðum í Gullsmára Kópa- vogi mánudaginn 30. apríl. Miðlung- ur 168. Beztum árangri náðu: NS Viðar Jónsson – Sigurþór Halldórsson 226 Dóra Friðleifsd. – Guðjón Ottósson 201 Kristján Guðmundss.–– Sig. Jóhannsson 183 AV Sigurður Björnsson – Auðunn Bergsv.s. 208 Jón Andrésson – Einar Markússon 203 Sigurpáll Árnason – Sigurður Gunnl.s. 192 Eldri borgarar spila brids á mánu- dögum og fimmtudögum að Gull- smára 13. Skráning kl. 12.45.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.