Morgunblaðið - 03.05.2001, Page 53

Morgunblaðið - 03.05.2001, Page 53
UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. MAÍ 2001 53 Vordagar 20% afsláttur af öllum vörum fimmtudag til sunnudags Einstakt tækifæri DOMUS MEDICA KRINGLUNNI AKUREYRI SUÐURLANDSBRAUT 54 JIP SKETCHERS STARF óperusöngv- ara hefur löngum verið sveipað ævintýraljóma. Vissulega fáum við söngvarar sem búsettir erum á erlendri grund oft og tíðum skemmti- leg og ögrandi verkefni og tækifærin til ferða- laga eru mörg og heillandi. En starfinu fylgja margir ókostir, til dæmis álag svo vik- um og mánuðum skipt- ir, fjarvera frá fjöl- skyldu, truflandi kvefpestir, misjafnir leikstjórar og hljóm- sveitarstjórar, svo ekki sé nú minnst á óperustjóra og um- boðsmenn. Þó finnst mér þetta allt vera hjóm hjá því sem ég varð vitni að á æfingu í Íslensku óperunni í febrúar síðast- liðnum. Aðstaðan er slæm baksviðs og ekki batnar ástandið þegar komið er upp á svið. Leikstjórn í Íslensku óperunni felst aðeins að nokkru leyti í því að túlka sviðsverkið, en að mestu leyti í því að reyna með hugvitsam- legum hætti að koma öllu sómasam- lega til skila í þrengslunum sem boðið er upp á. Aðstaðan er eins og gesta- þraut fyrir jafnvel alvana óperuleik- stjóra. Ísland hefur tekið stakkaskiptum síðan ég flutti utan fyrir 13 árum. Allt virðist hafa þróast til betri vegar – nema aðbúnaður þeirra sem basla við að setja upp óperur í Ingólfsstræti. Maður spyr sjálfan sig: Hvers vegna? Áhuginn er nægur og uppselt á nán- ast allar sýningar. En svarið sem ég fæ er ávallt það sama: Skortur á pen- ingum og skortur á húsnæði við hæfi. En kvað ekki nýverið við nýjan tón? Var ekki lofað föst- um stöðum fyrir söngv- ara, atvinnusöngvara? Það ber auðvitað að þakka og lofa. Ánægju- legt er að Björn Bjarna- son menntamálaráð- herra skuli loksins veita þessari stétt þá viður- kenningu sem felst í að hópur atvinnufólks geti helgað sig óperuflutn- ingi í heimalandi sínu. Sá galli er þó á gjöf Njarðar að þessir at- vinnumenn hafa ekki sæmandi aðstöðu til að stunda list sína. Gamla Bíó var gott kvikmyndahús en er afleitt óperuhús eins og áður var drepið á, það sé ég best eftir áralangt starf í erlendum óperuhúsum. Gamla bíó er í besta falli léleg afsökun fyrir því að geta sagt að óperulistin í landinu sé ekki lengur vegalaus. Nú hugsa ef til vill margir: Jæja, ætla söngvararnir að fara að heimta að byggt verði sérstakt óperuhús fyr- ir sig? Og slíkar hugrenningar kynnu að eiga rétt á sér ef sá sem þetta skrifar hefði ekki ásamt fleirum tekið þátt í tenóratónleikum og fleira í þeim dúr til styrktar því að reist verði Tónlistarhús og ýmislegt annað gert sem gæti orðið íslensku tónlistarlífi til gagns. Nei, krafa okkar er mjög hógvær og kallar ekki endilega á hús- byggingar. Óperusöngvarar sætta sig fullkomlega við að deila húsnæði með öðrum. Óskandi væri að sjá viðlíka hóg- værð víðar. Það er nefnilega til hús sem vel gæti hýst söngvara og það er Þjóðleikhúsið. Þar ættu leikarar, dansarar og söngvarar ásamt hljóm- sveit að geta unnið saman að listsköp- un í sátt og samlyndi árið um kring, eins og í um það bil 100 leikhúsum í Þýskalandi. En Þjóðleikhúsið vill ekki menntaða söngvara inn fyrir sín- ar dyr, ekki nema til þess að setja upp stjörnum prýddar sýningar á fjög- urra til fimm ára fresti. Það er ekki Þjóðleikhúsinu að þakka að til eru innlendir söngvarar sem hafa öðlast getu og reynslu til að takast á við þessi verkefni, þegar leikhúsinu þóknast að ráðast í þau. Tónlistarhúsið er svo kapítuli út af fyrir sig. Þar mun ríkja Sinfóníu- hljómsveitin ein. Ekki er samstarfs- viljinn meiri á þeim bænum en í Þjóð- leikhúsinu. Sinfóníuhljómsveitin vill helst ekki af söngvurum vita nema þegar hún sjálf ákveður að ráðast í glæsisýningar í Laugardalshöllinni, sem er auðvitað kjörið hús til knatt- leikja en miður gott til óperuflutn- ings. Ef vel liggur á þeim ráða kannski æðstu menn hljómsveitar- innar íslenska óperusöngvara í litlu hlutverkin en í aðalhlutverkum eru einatt erlendar „stórstjörnur“ sem kunna að vinna hratt; ekki að ég sé að kvarta undan því, ég er líka útlend- ingur þar sem ég vinn. Sinfónían hefur líka gjarnan sam- band við okkur óperusöngvarana til að syngja á sívinsælum óperu- eða óperettukvöldum. Þannig tekst henni að krækja í nokkra áheyrendur sem hún fengi ekki ella. En að deila með okkur húsnæði, nei, það er af og frá. Góður maður í hljómsveitinni sagði mér að óperan ætti bara að fá sitt eig- ið húsnæði. Ég tek undir að hún á allt gott skilið. En blessaður hljóðfæra- leikarinn gat auðvitað ekki frekar en nokkur annar bent á hvaðan fjármun- irnir fyrir byggingu og rekstri óperu- hússins ættu að koma. Ópera er fremur verðmætaskapandi í andlegu tilliti en veraldlegu. Skiptir því máli að hagrætt verði í tónlistarmálum Ís- lendinga svo að þetta listform fái vax- ið og dafnað með öðru. Ekki treysti ég mér til að rökræða við þá, sem skapa veraldlegu verð- mætin í landinu, um hve stóra sneið listamenn eiga að fá af heildarkök- unni. Það er hins vegar mikilvægt að nýta þá sneið til annars en að byggja og reka hús sem ekki eru nauðsynleg. Eftir að allur rekstrarkostnaður hef- ur verið greiddur þarf að vera nægur afgangur til listsköpunar. Liggur í hlutarins eðli að mest hagræði fæst af samstarfi og samtakamætti. Samein- ingar stofnana og jafnvel sveitar- félaga eru ekki gerðar til gamans heldur leiða þær til aukinnar hag- kvæmni. Hví skyldi það ekki eiga við um óperuna, leikhúsið, sinfóníu- hljómsveitina og danlistina? Íslendingar eru stolt þjóð en ekki milljónaþjóð og verða að sníða sér stakk eftir vexti. Óperan nýtur vin- sælda á Íslandi og á fullan rétt á sér. Henni verður að skapa betri skilyrði, annaðhvort í Þjóðleikhúsinu eða hinu nýja Tónlistarhúsi. Hún verður að standa jafnfætis leiklistinni og hljóm- sveitarleiknum. Besta sönnun þessa eru tilraunir síðustu ára hjá Íslensku óperunni sem eru vísir að öðru og meira. Ég vona að mér leyfist að tala tæpi- tungulaust: Á meðan við sættum okk- ur við að Gamla bíó sé helsta óperu- hús okkar er óperunni sem listformi í kot vísað á Íslandi. Óperunni í kot vísað Gunnar Guðbjörnsson Tónlist Óperan nýtur vinsælda á Íslandi og á fullan rétt á sér. Gunnar Guðbjörns- son segir að skapa verði óperutónlist betri skil- yrði, annaðhvort í Þjóð- leikhúsinu eða hinu nýja Tónlistarhúsi. Höfundur er tenórsöngvari.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.