Morgunblaðið - 03.05.2001, Qupperneq 68
DAGBÓK
68 FIMMTUDAGUR 3. MAÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Skipin
Reykjavíkurhöfn: Í
gær kom Selfoss og í
dag Saturnus væntan-
legt. Arnarfell fer út.
Hafnarfjarðarhöfn: Í
gær fór Selfoss frá
Straumsvík.
Fréttir
Kattholt. Flóamarkaður
í Kattholti, Stangarhyl
2, opinn þriðjud. og
fimmtud. kl. 14–17.
Félag frímerkjasafn-
ara. Opið hús laugar-
daga kl. 13.30–17.
Mannamót
Árskógar 4. Kl. 9–12
bókband og öskjugerð,
kl. 9–16.30 opin handa-
vinnustofa, útsaumur
og bútasaumur, kl. 9.45
helgistund að morgni,
kl. 10.15 leikfimi, kl. 11
boccia, kl. 13 opin
smíðastofa.
Bólstaðarhlíð 43. Kl. 9
leikfimi, kl. 9–12 mynd-
list, kl. 9–16 handa-
vinna, kl. 14–17 gler-
skurður.
Eldri borgarar í Mos-
fellsbæ, Kjalarnesi og
Kjós. Félagsstarfið
Hlaðhömrum er á
þriðjud. og fimmtud. kl.
13–16,30, spil og fönd-
ur. Kóræfingar hjá Vor-
boðum kór eldri borg-
ara í Mos. á
Hlaðhömrum á
fimmtud. kl. 17–19.
Uppl. hjá Svanhildi í s.
586 8014 kl. 13–16.
Félagsstarf aldraðra
Dalbraut 18–20. Kl. 9
handavinnustofan opn-
uð, kl. 9.30 dans-
kennsla, gler- og postu-
línsmálun, kl. 13 opin
handavinnustofan og
klippimyndir, kl. 14.30
söngstund.
Félagsstarf aldraðra,
Lönguhlíð 3. Kl. 11.10
leikfimi, kl. 13 föndur
og handavinna.
Félagsst., Furugerði 1.
Kl. 9 smíðar og út-
skurður, glerskurðar-
námskeið og leirmuna-
gerð, kl. 9.45
verslunarferð í Austur-
ver, kl. 13.30 boccia. Í
kvöld verður vordans-
leikur kl. 20. Hljóm-
sveitin Í góðum gír
leikur fyrir dansi. Veit-
ingar. Allir velkomnir.
Félag eldri borgara í
Hafnarfirði, Hraunseli,
Reykjavíkurvegi 50.
Púttæfingar í Bæjarút-
gerð kl. 10–11.30. Bingó
kl. 13.30. Á morgun,
föstudag: Tréútskurður
í Flensborg kl. 13, brids
kl. 13.30. Leikhúsferð í
Þjóðleikhúsið að sjá
Syngjandi í rigningunni
á morgun, 4. maí. Rúta
frá Hjallabraut 33 og
Hraunseli kl. 19. Skoð-
unarferð í Þjóðmenn-
ingarhúsið 10. maí.
Skráning hafin í
Hraunseli í síma 555-
0142. Sigurbjörn Krist-
insson verður með Mál-
verkasýningu í Hraun-
seli fram í maí.
Félag eldri borgara í
Reykjavík, Ásgarði,
Glæsibæ. Kaffistofan er
opin virka daga frá kl.
10–13. Matur í hádeg-
inu. Miðvikudaginn 9.
maí: Garðskagi, Sand-
gerði, Hvalsnes. Fugla-
skoðun. Brottför frá
Glæsibæ kl. 13. Skrán-
ing hafin. Fræðslunefnd
FEB stendur fyrir ferð
í Hveragerði 16. maí.
Náttúrulækningaheim-
ilið, Garðyrkjuskólinn
og hverasvæðin heim-
sótt og skoðuð. Brottför
frá Glæsibæ kl. 9.
Skráning hafin. Silfur-
línan opin á mánudög-
um og miðvikudögum
frá kl. 10–12. Ath. skrif-
stofa FEB er opin frá
kl. 10–16. Upplýsingar í
síma 588-2111.
Félagsstarfið, Hæðar-
garði 31. Kl. 9–16.30
opin vinnustofa, gler-
skurður, kl. 10 leikfimi,
kl. 13.30 bókabíll, kl.
15.15 dans.
Gerðuberg, félagsstarf.
Sund og leikfimiæfing-
ar falla niður. Kl. 10.30
helgistund. Börn úr
leikskólanum Hólabergi
koma í heimsókn. Frá
hádegi vinnustofur og
spilasalur opinn. Kl. 14
koma gestir frá Hlíð-
arbæ í heimsókn. Börn
úr leikskólanum Hóla-
borg einnig. Allar veit-
ingar í kaffihúsi Gerðu-
bergs. Allar
upplýsingar um starf-
semina á staðnum og í
s. 575 7720.
Gjábakki, Fannborg 8.
Handavinnnustofan op-
in leiðbeinandi á staðn-
um kl. 9–15, gler og
postulín kl. 9.30, leik-
fimi kl. 9.05, kl. 9.50 og
kl. 10.45, kl. 13 taumál-
un og klippimyndir.
Gullsmári, Gullsmára
13. Kl. 9.15 postulíns-
málun, kl. 10 jóga og
ganga, kl. 13 brids, kl.
14 boccia, kl. 13–16
handavinnustofan opin,
leiðbeinandi á staðnum.
Hana-nú, Kópavogi.
Fundur í Tónlistar-
klúbbi Hana-nú verður
í félagsheimilinu Gull-
smára í kvöld, fimmtu-
dag 3. maí, kl. 20. Allir
velkomnir með góða
diska eða kassettur og
kynna tónlist sem þeim
líkar hvort svo sem hún
er frá Klakksvík eða
Kúbu. Leikin lög með
Buena Vista Social
Club og Annika Höjdal
syngur Mitt vakra
heim. Missið ekki af
notalegri kvöldstund
við ljúfa tónlist frá öll-
um heimshornum. Síð-
asti fundur að sinni.
Hraunbær 105. Kl. 9–
16.30 bútasaumur,
perlusaumur og korta-
gerð, kl. 9.45 boccia, kl.
14 félagsvist. Bingó
föstudag kl. 14. Kaffi-
veitingar.
Hvassaleiti 56–58. Kl. 9
opin handavinnustofa
búta- og brúðusaumur,
kl. 10 boccia, kl. 13
handavinna, kl. 14
félagsvist.
Kvenfélag Fríkirkjunn-
ar í Reykjavík. Munum
fundinn í kvöld á kaffi
Flóru kl. 20.
Norðurbrún 1. Kl. 9
handavinnustofurnar
opnar, útskurður, kl. 10
leirmunanámskeið.
Vesturgata 7. Kl. 9.15–
15.30 handavinna, kl. 10
boccia, kl. 13–14 leik-
fimi, kl. 13–16 kóræf-
ing.
Vitatorg. Kl. 9 smiðjan,
kl. 9.30 glerskurður,
fatasaumur og morgun-
stund, kl. 10 boccia, kl.
13 handmennt, körfu-
gerð og frjálst spil.
Gullsmárabrids. Brids-
deild FEBK í Gull-
smára býður alla eldri
borgara velkomna að
bridsborðum í félags-
heimilinu að Gullsmára
13 á mánudögum og
fimmtudögum. Mæting
og skráning kl. 12,45.
Spil hefst kl. 13.
Kristniboðsfélag
kvenna Háaleitisbraut
58–60. Fundurinn í
kvöld er í umsjá Fjólu
Guðlaugsdóttur og
hefst með kaffidrykkju
kl. 16. Allar konur vel-
komnar.
GA-fundir spilafíkla
eru kl. 18.15 á mánu-
dögum í Seltjarnarnes-
kirkju (kjallara), kl.
20.30 á fimmtud. í
fræðsludeild SÁÁ Síðu-
múla 3–5 og í Kirkju
Óháða safnaðarins við
Háteigsveg á laugard.
kl. 10.30.
Íslenska bútasaums-
félagið. Laugardaginn
5. maí kl. 14 verður
sýning í Ráðhúsi
Reykjavíkur á verkum
félaga í Íslenska búta-
saumsfélaginu. Opið
daglega kl. 12–18 til 13.
maí. Laugard. 12. maí
verður aðalfundur Ís-
lenska bútasaums-
félagsins á Hallveigar-
stöðum, Túngötu 14, kl.
12:45. Helgina 12.–13.
maí verður búta-
saumshátíð félagsins í
Hússtjórnarskólanum
Sólvallagötu 12. Þar
verða stutt námskeið,
kynning bútasaums-
verslana og kaffi og
vöfflur síðdegis báða
dagana. Skráningar-
frestur er til 1. maí.
Uppl. s. 551-8619, 564-
2715 og halhar-
@mmedia.is.
Minningarkort
Slysavarnafélagið
Landsbjörg, Stangarhyl
1, 110 Reykjavík. S. 570
5900. Fax: 570 5901.
Netfang: slysavarna-
felagid@landsbjorg.is
Minningarkort Rauða
kross Íslands eru seld í
sölubúðum kvenna-
deildar RRKÍ á sjúkra-
húsum og á skrifstofu
Reykjavíkurdeildar,
Fákafeni 11, s. 568-
8188.
Minningarkort Hvíta-
bandsins fást í Kirkju-
húsinu, Laugavegi 31, s.
562-1581 og hjá Krist-
ínu Gísladóttur, s. 551-
7193 og Elínu Snorra-
dóttur, s. 561-5622.
Minningarkort Sjúkra-
liðafélags Íslands eru
send frá skrifstofunni,
Grensásvegi 16,
Reykjavík. Opið virka
daga kl. 9–17. S. 553-
9494.
Í dag er fimmtudagur 3. maí, 123.
dagur ársins 2001. Krossmessa
að vori. Orð dagsins: Verið stað-
fastir í bæninni. Vakið og biðjið
með þakkargjörð.
(Kól. 4, 2.)
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156,
sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT-
STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 165 kr. eintakið.
Víkverji skrifar...
Í HUGA margra er 1. maí hátíð-isdagur. Þá hvetja forystumenn
verkalýðshreyfingarinnar launafólk
til nýrra átaka og minnast menn bar-
áttu verkafólks fyrir bættum kjörum
og félagslegum réttindum. Athygli
Víkverja var vakin á því að þennan
dag var ekki flaggað við höfuðstöðv-
ar ASÍ í Reykjavík. Sjálfsagt er hér
um mistök að ræða en það hlýtur að
vera ástæða til að nota fánastengur
ASÍ á þessum hátíðisdegi launafólks.
x x x
VÍKVERJI hefur tvisvar áskömmum tíma þurft að leita til
sérfræðilækna. Ekki gekk það alveg
þrautalaust að komast á þeirra fund
með erindin. Fyrir mörgum vikum
hringdi Víkverji til að panta tíma hjá
öðrum sérfræðingnum og fékk þá
þau svör að einungis væru teknar
niður pantanir á sérstökum bókunar-
dögum. Víkverji fékk síðan uppgef-
inn hvenær næsti bókunardagur var.
Þegar að honum kom var sérlega
mikið að gera hjá Víkverja svo að það
gleymdist að panta tíma. Nokkrum
vikum síðar var aftur gerð tilraun til
að panta tíma. Læknaritarinn gaf
upp tiltekinn bókunardag og að
þessu sinni passaði Víkverji upp á að
gleyma ekki deginum. Þegar hann
rann upp fékk Víkverji hins vegar
þau svör að það væru allir tímar upp-
bókaðir; þeir sem vildu fá tíma yrðu
að hringja snemma að morgninum.
Þess má geta að samtalið fór fram kl.
10:30. Eftir að hafa flett í dagbókinni
fram og aftur sagði ritarinn að Vík-
verji væri „heppinn“, því það hefði
verið að losna tími.
Um svipað leyti þurfti Víkverji að
leita til annars sérfræðings og fékk
tíma tiltekinn dag kl. 13:40. Víkverji
þurfti að fá sig lausan úr vinnu til að
komast í tímann. Á læknastofunni
var nokkur hópur manna sem beið
eftir að komast að. Læknir sem Vík-
verji ætlaði að hitta kom út af stofu
sinni kl. 13:40 og spurði ritarann
hvort einhver væri mættur. Hún
sagði að það biðu þrír. Þetta fannst
Víkverji undarlegt í ljósi þess að
hann mætti nákvæmlega á réttum
tíma, en svo virtist sem læknirinn
hefði hins vegar tekið sér óvenju-
langan matartíma. Um tíma biðu
fimm sjúklingar eftir lækninum, sem
flestir þurftu að gera sér að góðu að
bíða í 30–40 mínútur eftir að komast
að.
Víkverja finnst óþolandi fram-
koma við sjúklinga að láta þá bíða
vegna þess að læknirinn tekur sér
langan matartíma. Það hlýtur að
vera hægt að skipuleggja tímann
þannig að sjúklingar þurfi ekki að
bíða að óþörfu. Vissulega geta komið
upp óviðráðanleg tilvik sem riðla
vinnuplani en Víkverji hefur grun um
þetta sé of algengt. Á biðstofunni sat
t.d. maður sem var að bíða eftir öðr-
um lækni og hann hafði beðið í tæpan
klukkutíma þegar Víkverji komst að
hjá sínum lækni eftir 40 mínútna bið.
x x x
VÍKVERJI var einn þeirra semfylgdist spenntur með Form-
úlu-kappakstrinum um síðustu helgi.
Finnski ökumaðurinn Häkkinen,
sem lengi hefur verið í uppáhaldi hjá
Víkverja, virtist þar loksins vera
kominn í fyrra horf. Hann náði að
komast fram úr Schumacher, helsta
keppinauti sínum, þegar þriðjungur
var eftir að keppninni. Þegar Häkk-
inen átti nokkur hundruð metra eftir
í mark bilaði hins vegar bíll hans.
Það var hreint út sagt skelfilegt að
horfa upp á þetta og erfitt að trúa því
að Häkkinen myndi ekki ná að kom-
ast í markið. Staðan í keppninni hefði
orðið miklu meira spennandi ef úr-
slitin hefðu orðið á annan veg. En
vonandi herðist Häkkinen við þetta
mótlæti og kemur með sigurvilja til
næstu keppni.
ÁGÆTI Víkverji. Í pistli
þínum 1. maí sl. ræðir þú
um að flytja hina stöku frí-
daga eins og sumardaginn
fyrsta og uppstigningardag
á föstudag í stað fimmtu-
dags svo lengra helgarfrí
fáist! Ég er algerlega
ósammála þessu – það á að
hafa hin gömlu gildi sem
mest í hávegum – nóg er að
gert nú þegar! Það eru fá
lönd í heiminum sem hafa
jafnmarga frídaga og Ís-
lendingar, hvað þá sum-
arfrí.
Af því þú skrifar í Mogg-
ann, sem alltaf hallast held-
ur í vestur og styður einka-
framtakið, mætti þá alveg
eins koma með þá tillögu að
fella niður alla þessa
aukafrídaga og hafa þetta
bara eins og í henni Amer-
íku þar sem er nánast aldr-
ei frí!!! Fella niður annan í
þessu og hinu, vinna á
föstudaginn langa og svo
framvegis! Sonur minn er
að vinna í Bandaríkjunum
og fær hálfsmánaðar sum-
arfrí og það virðast fáir
aukafrídagar þar nema 4.
júlí! Sjálfsagt er þetta gott
fyrir vinnuveitendur en ég
held að vinnugleði starfs-
fólks sé ekki mikil eða það
hefi ég á tilfinningunni! Það
er fyrirtak að fá stakan frí-
dag – og slappa af, ekki er
geðið svo gott, a.m.k. finnst
það ekki í umferðarmenn-
ingu Reykvíkinga – það er
mun heilbrigðara að slappa
af í einn dag heldur en
drekka frá sér vit og rænu í
tvo og berjast við timbur-
menn þann þriðja í löngu
fríi! Annars mætti ef til vill
safna öllum helgum sem og
jólum og páskum saman og
skeyta við sumarfríið – þá
væri jafnvel tími til að fara
til tunglsins! Góða ferð!
Kveðja,
Ragnar Eiríksson,
Sauðárkróki.
Auðveld lausn
GUÐMUNDUR Guð-
mundsson hringdi í Velvak-
anda og vildi koma á fram-
færi hugmynd að lausn
kjaradeilu sjómanna: Þetta
er einfalt. Það verður að
banna brottkastið. Sá fisk-
ur sem annars færi í sjóinn
verður að koma í land og
hann skal svo setja á mark-
að og andvirði hans komi
óskipt til áhafnarinnar.
Miðað við þá milljarða, sem
talið er að sé verðmæti þess
afla sem hent er í sjóinn,
ætti þetta að vera nægilega
góð búbót til sjómanna til
að setja niður þessar deil-
ur.
Tapað/fundið
Ljósbrún hliðartaska
tapaðist
LAUGARD. 21. apríl sl.
tapaðist í Kolaportinu ljós-
brún hliðartaska. Í tösk-
unni voru tvenn gleraugu,
lyklakippa og hárbursti, en
engir peningar. Fundar-
launum heitið.
Uppl. í s. 431-1698 eða
898-7616.
Grá dúnúlpa
tapaðist
GRÁ dúnúlpa frá Next tap-
aðist á þvottaplaninu hjá
OLÍS við Álfheima mið-
vikudaginn 25. apríl sl.
Skilvís finnandi er vinsaml.
beðinn að hafa samb. í s.
587-3394.
Hvítagullskross
tapaðist
FYRIR tveimur mánuðum
tapaðist hvítagullskross al-
settur demöntum. Gæti
hafa tapast í Garðabæ eða í
Reykjavík. Uppl. í síma
891-6090.
Brúnn leðurjakki
tapaðist
FYRIR páska tapaðist
gamall brúnn leðurjakki,
merktur Paramount, með
hvítum ullarkraga. Í jakk-
anum var svart leðurveski,
sænskt ökuskírteini, debet-
kort og gsm Bosc-sími með
hálfglærri orange-litaðri
framhlið. Þeir, sem vita
hvar þetta gæti verið nið-
urkomið, vinsaml. hafi
samb. við Guðmund Þröst
Björgvinsson í s. 848-3140
eða netfang: thule@isl.is.
BMX-listhjól
tapaðist
RAUTT BMX Trek 3-list-
hjól hvarf frá Meðalholti 7
sunnudaginn 29. apríl sl.
Fundarlaun. Uppl. hjá Ein-
ari í s. 847-6666.
Baby Born-dúkka
í óskilum
BABY Born-dúkka í
heimaprjónuðum fötum
fannst á leiksvæðinu í
Hólahringnum í Breiðholti.
Uppl. í s. 557-4138 eða 696-
9462.
Dýrahald
Hundur
í óskilum
SVARTUR og brúnyrjótt-
ur hundur er í óskilum á
Hundahótelinu á Leirum.
Eigandi er vinsamlega beð-
inn að vitja hans strax.
Uppl. í síma 566-8366 eða
698-4967.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Til Víkverja
K r o s s g á t a
LÁRÉTT:
1 allhvassan vind, 8 smá-
öldur, 9 beina, 10 reið, 11
áans, 13 korn, 15 með lús,
18 skerti, 21 stórfljót, 22
munnbita, 23 bjórnum, 24
gata í Reykjavík.
LÓÐRÉTT:
2 kaka, 3 penings, 4 kerl-
ing, 5 veiðarfærið, 6 espa,
7 nagli, 12 spils, 14 sjó, 15
sjá, 16 vinningur, 17
botnfall, 18 skjót, 19 illt,
20 sláturkeppur.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
Lárétt: 1 detta, 4 sólin, 7 lúkan, 8 ógnar, 9 art, 11 reif, 13
hráa, 14 ólmur, 15 fjöl, 17 ólar, 20 kal, 22 undin, 23 ellin,
24 iðrar, 25 tjara.
Lóðrétt: 1 dílar, 2 takki, 3 asna, 4 snót, 5 lúnar, 6 narra,
10 romsa, 12 fól, 13 hró, 15 fauti, 16 öldur, 18 lalla, 19
ranga, 20 knár, 21 lest.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16