Morgunblaðið - 06.05.2001, Blaðsíða 1
Bashar Assad Sýrlandsforseti
(t.v.) og Jóhannes Páll II páfi við
komu hans til Damaskus í gær.
MORGUNBLAÐIÐ 6. MAÍ 2001
101. TBL. 89. ÁRG. SUNNUDAGUR 6. MAÍ 2001 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
STOFNAÐ 1913
Hjá Íslendingum í
Spænskum Forki
22
B
Nýjar aðferðir við
greiningu á litningagalla
10
Þrítugsafmæli
Wings
24
ÍBÚAR þorpsins Khari vinna að
gerð varnargarðs í steikjandi sól-
skininu um 30 km frá borginni Bhuj
í Gujarat-ríki á Norðvestur-Ind-
landi, þar sem gríðarlegt tjón varð
af völdum jarðskjálfta í vetur. Nú
herja þurrkar á fólk á þessu svæði,
þar sem ekki hefur gert ærlega
rigningu í heil tvö ár.
AP
Þurrkar á
Indlandi
Sendibréf
með súkku-
laðiilmi
BRÉF sem Svisslendingar senda
með póstinum 9. maí munu ilma af
súkkulaði. Beitt er tilbúnum efnum
til að láta frímerkin ilma eins og
súkkulaði og þau verða einnig brún á
litinn. Ekki þótti þorandi að láta lím-
ið vera með súkkulaðibragði vegna
þess að þá myndi fólk sleikja allt lím-
ið af frímerkinu.
Tekið er fram í frétt CNN-sjón-
varpsstöðvarinnar að efnið sem veld-
ur súkkulaðianganinni sé alveg laust
við hitaeiningar. Frímerkin eru gefin
út í tilefni aldarafmælis samtaka
súkkulaðiframleiðenda en Svisslend-
ingar eru heimsþekktir fyrir súkku-
laðiframleiðslu sína.
JÓHANNES Páll II páfi lauk í gær
sögulegri heimsókn sinni til Grikk-
lands, sem kann að marka tímamót í
samskiptum austur- og vesturkirkj-
unnar, hinnar grísk-kaþólsku og
rómversk-kaþólsku. Páfi flaug frá
Aþenu til Damaskus í Sýrlandi, þar
sem hann hugðist birta ákall um frið
í Mið-Austurlöndum.
Páfi fór frá Aþenu eftir útimessu
sem um 15.000 rómversk-kaþólskir
íbúar Grikklands sóttu, en þeir eru
alls um 200.000. Fól páfi þeim að
vinna að einingu kristinna manna.
Sagði hann í messuræðu sinni að all-
ir kristnir menn ættu að líta til þess
með „ástríðu“ að skapa megi einingu
meðal allra söfnuða bæði austur- og
vesturkirkjunnar. „Við tökum með
okkur hina hryggilegu arfleifð for-
tíðarinnar (…) við eigum enn langt í
land,“ sagði páfi.
Á föstudag baðst páfi fyrirgefn-
ingar á því misrétti sem rómversk-
kaþólskir menn hafa beitt grísk-kaþ-
ólska frá því kirkjan klofnaði fyrir
tæpum 1.000 árum. Enginn róm-
versk-kaþólskur páfi hefur síðan
heimsótt Grikkland, fyrr en nú.
Engin formleg kveðjuathöfn var
við brottför páfa frá Aþenu, sem var
jafnlátlaus og koma hans þangað.
Engir fulltrúar grísk-kaþólsku kirkj-
unnar voru viðstaddir. Æðsti maður
grísku rétttrúnaðarkirkjunnar,
Kristodoulos erkibiskup, hafði með
semingi samþykkt páfaheimsóknina.
Óskað langra lífdaga til að upp-
lifa frið í Landinu helga
Í sýrlenzka dagblaðinu Tishrin,
sem er málgagn sýrlenzkra stjórn-
valda, var Jóhannesi Páli páfa í gær
óskað langrar ævi og að hann „megi
upplifa frið“ í Mið-Austurlöndum.
„Við bjóðum hans heilagleika páfann
velkominn til Sýrlands; megi Guð
veita yður það langa lífdaga að þér
megið upplifa frið í Landinu helga,“
segir í forystugrein blaðsins. Páfi,
sem verður 81 árs hinn 18. maí, verð-
ur í 4 daga á biblíuslóðum í Sýrlandi.
Hvetur alla kristna
menn til einingar
Páfi lýkur Grikklandsheimsókn og heldur til Sýrlands
AP
Aþenu, Damaskus. Reuters, AFP.
Jihad-mað-
ur sagður
myrtur á
Vestur-
bakkanum
Jerúsalem. Reuters.
ÍSRAELSKIR hermenn skutu til
bana einn af forystumönnum Jihad-
hreyfingar múslima í Betlehem á
Vesturbakkanum
í gærmorgun. Á
sama tíma var
beðið fyrstu við-
bragða pólitískra
forystumanna
Ísraela og Palest-
ínumanna við nið-
urstöðum og til-
lögum sérskip-
aðrar nefndar
sem undir banda-
rískri forystu var falið að gera óháða
úttekt á átakabylgjunni sem nú hef-
ur staðið í sjö mánuði.
Vitni og palestínskir sjúkrahúss-
starfsmenn vottuðu að ísraelskir
sérsveitarmenn hefðu skotið yfir 20
byssuskotum að Ahmed Khalil Esaa
Ismail í þorpinu Ertass, rétt við
Betlehem. Í yfirlýsingu frá Jihad-
hreyfingunni, sem Reuters barst á
faxi til Beirút, var Esaa Ismail póli-
tískur baráttumaður sem hafði setið
í átta ár í ísraelskum fangelsum.
Boðaði hreyfingin hefndaraðgerðir.
Talsmenn Palestínumanna sögðu
Ísraelsmenn hafa gert sig hér seka
um skipulagt morð. Ísraelsk yfirvöld
hafa tilskilið sér rétt til að „taka úr
umferð“ Palestínumenn sem leggja
á ráðin um árásir á Ísrael en þau
neita því að í þessu felist beinlínis
stefna um að taka menn af lífi.
Opinberlega sagðist Ísraelsher
ekki hafa orðið var við neitt óvenju-
legt á því svæði sem Esaa Ismail var
drepinn.
Yfirmaður leyniþjónustu palest-
ínsku heimastjórnarinnar á Vestur-
bakkanum, Tawfiq Tirawi, sagði í
gær að ísraelskum skriðdrekum
hefði verið beitt til að eyðileggja 10
aftanívagna sem palestínska leyni-
lögreglan í Jeríkó notaði. Ísraelar
segja ástæðu árásarinnar þá, að liðs-
menn palestínsku leyniþjónustunnar
í Jeríkó hefðu tekið þátt í að skipu-
leggja hryðjuverkaárásir.
Arafat ræðir nefndar-
skýrslu við Mubarak
Á föstudag fengu leiðtogar Ísraela
og Palestínumanna drög að skýrslu
fimm manna alþjóðlegrar nefndar-
sem bandaríski fyrrverandi öld-
ungadeildarþingmaðurinn George
Mitchell fór fyrir. Að sögn heimilda-
manna innan ísraelsku stjórn-
sýslunnar segir í skýrslunni, sem
var ekki gerð opinber, að Ísrael skuli
stöðva frekari landnemabyggðir
gyðinga en nefndin geri það hins
vegar ekki að tillögu sinni að alþjóð-
legt friðargæzlulið verði sent á vett-
vang. Jasser Arafat Palestínuleið-
togi átti í gær viðræður um
skýrsluna við Hosni Mubarak
Egyptalandsforseta.
Jasser
Arafat
♦ ♦ ♦