Morgunblaðið - 06.05.2001, Blaðsíða 60
60 SUNNUDAGUR 6. MAÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
NÝTT OG BETRA
Álfabakka 8, sími 587 8900 og 587 8905
FYRIR
1090 PUNKTA
FERÐU Í BÍÓ
Þið munuð aldrei trúa því hversu
nálægt heimsendi við vorum
HK DV
Ó.H.T RÚV
strik.is
www.sambioin.is
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30.
Vit nr. 224.
Sýnd kl. 2 og 3.50.
Vit nr. 203.
Sýnd kl. 10.30.
Vit nr. 225
2 fyrir 1 Sýnd kl. 2, 3.50 og 6.
Íslenskt tal. Vit nr 213.
Sýnd kl. 2 og 3.50.
Enskt tal. Vit nr 214
Sýnd kl. 3,50. Ísl tal.
Vit nr. 183.
Sýnd kl. 3.40, 5.50, 8
og 10.15. Vit nr. 207
Sýnd kl. 1.50.
Ísl. tal. Vit nr. 169
Sýnd kl. 5.30 og 8
B.i.16. Vit nr. 201
Miss Congeni
i
ality
y
Kvikmyndir.com
Christopher McQuarrie
leikstjóri Usual Suspects
með annan smell með
óskarsverðlaunahafanum
Benicio Del Toro, Ryan
Phillippe, Juliet Lewis
og James Caan
Óeðlilega
snjöll!
Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20. B.i.16 ára. Vit nr. 228Sýnd kl. 3.45, 5.55, 8 og 10.10. . Vit nr. 223
FRUMSÝNING
HK DV
Joel Silver framleiðandi Matrix er hér á ferðinni með
dúndur spennumynd með topp húmor. Stefnir í að verða
stærsta Steven Seagal myndin frá upphafi í USA.
Frábær tónlist í
flutningi DMX!
Kvikmyndir.com
HL Mbl
Strik.is
Tvíhöfði
Sýnd kl. 8 og 10.15.
Vit nr 220. B.i.14.Forsýning í dag, sunnudag kl. 2 og 4. Vit nr. 231
HÁSKÓLABÍÓ
þar sem allir salir eru stórir
Hagatorgi sími 530 1919
Sýnd kl. 8
GSE DV
ÓFE Sýn
Sýnd kl. 3, 5.30, 8 og 10.30.
Mánudag kl. 5.30, 8 og 10.30.
Sýnd kl. 3, 5.45, 8 og 10.15.
Mánudag kl. 5.45, 8 og 10.15.
FRUMSÝNING
kirikou
og galdrakerlingin
Sýnd sunnudag kl. 2 og 4.Sýnd sunnudag kl. 2 og 4.
Mbl
Afmælismynd Filmundar
eftir Þorfinn Guðnason.
HK DV
Yfir 5 vikur á
topp 20
Strik.is
Ó.H.T Rás2
SV Mbl
Lalli Johns
Yfir 6000 áhorfendur
Sýnd kl. 6 og 10.30.Sýnd kl. 3 og 10.30. Mánudag kl. 10.30.
HK DV
Kvikmyndir.com
strik.is
Ó.H.T RÚV
Sýnd kl. 7. Sýnd kl. 10. B. i. 16.
Sýnd kl. 5.45. B.i.16 ára.
Sýnd aftur vegna fjölda áskorana
Sýnd kl. 8.
UM síðustu helgi fór fram Lands-
lagskeppni Bylgjunnar. Var það lag-
ið „Beint í hjartastað“ sem fór með
sigur af hólmi í flutningi Einars
Ágústs, en lagið á Grétar Örvarsson.
Í kjölfar keppninnar hafa heyrst
gagnrýnisraddir bæði frá keppend-
um og F.T.T., Félagi tónskálda og
textahöfunda. Er gagnrýnin á þá leið
að framkvæmd keppninnar hafi ver-
ið um margt undarleg; margt af því
fólki sem að henni hafi komið, bæði
úr hópi höfunda, flytjenda og full-
trúa dómnefndar, tengist fjölmiðla-
risanum Norðurljósum á einn eða
annan hátt og forsendur heiðarlegr-
ar og sanngjarnrar keppni hafi þar
með verið brostnar.
„Sex af átta höfundum sem tóku
þátt í þessari keppni höfðu samband
við mig,“ segir Jon Kjell Seljeseth,
sem átti lagið sem hafnaði í öðru
sæti. „Allir höfðu þeir fundið fyrir
því að ekki væri allt sem sýndist.
Ýmsu væri ábótavant hvað varðaði
framkvæmdina og fyrirkomulagið á
keppninni. Í framhaldi af því tók ég
þetta mál upp fyrir hönd höfundanna
á fundi hjá F.T.T. Ég hef tekið þátt í
fjölmörgum svona keppnum og ég
hef aldrei orðið var við eins mikið af
skrýtnum hlutum og í þessari, ég
verð bara að segja það.“
Jón bætir svo við: „Þar sem er
reykur, er jafnan eldur.“
Norðurljósalagið
Magnús Kjartansson, formaður
F.T.T., hafði þetta um málið að
segja: „Svona söngvakeppnir eru
orðnar vinsælt skemmtiefni og eru
ágætis vettvangur fyrir höfunda og
flytjendur til að koma sér á fram-
færi. En því miður eru margir að
halda þetta án þess að vita hvað þeir
eru að fara út í eða hvað þeir eru að
gera.“
Magnús segir að F.T.T. ætli að
beita sér fyrir því að samdar verði
reglur og félagið ætli að fara að
skipta sér af þessu á sama hátt og
Arkitektafélagið og Rithöfundasam-
bandið geri varðandi sambærilegar
keppnir á þeirra vettvangi.
„Það heldur enginn arkitekta-
keppni án þess að tala við Arkitekta-
félagið. Þar eru þá siðferðisreglur
sem mönnum er gert að lúta, ætli
þeir að halda keppni.“
Magnús segir vandamálið vera
þetta: „Norðurljós heldur sönglaga-
keppni og að henni kemur fjöldinn
allur af aðilum sem tengist þessu
félagi, með samningum eða eru bara
beinlínis starfsmenn þess. Þeir eru
svo heiðraðir í bak og fyrir, sigra í
keppninni og
taka þátt í henni.
Samstarfsmenn
þeirra eru svo úti
á gólfi og í dóm-
nefndinni. Þann-
ig að þetta virtist
vera einhver inn-
anbúðarskemmt-
un hjá þessu
félagi eingöngu.
Ég er samt alls
ekki að halda því
fram að það hafi verið meiningin hjá
þeim en það þarf ekki mjög reynda
menn í stjórnun til þess að átta sig á
því hvenær menn þurfa að ganga af
fundi af því að þeir eru of tengdir
málum.“
Magnús segir að það hefði mátt
standa að málunum á annan hátt.
„Ég vil þó taka fram að það má ekki
verða mönnum fjötur um fót þótt
þeir vinni einhvers staðar eða séu
með hljómplötusamning. En þá á
þetta ekki að heita Landslagið; þá á
þetta bara að heita Skífulagið eða
Norðurljósalagið eða eitthvað slíkt.“
Það þykir einnig vera dálítið und-
arlegt að á geisladiski sem út kemur
með lögum keppninnar var búið að
raða niður lögum – og merkilegt
nokk er sigurlagið fyrsta lagið. „Ég
veit að það fór alls ekkert vel í kepp-
endur að vita að það var búið að raða
inn á diskinn og það var ekki gert
með neinu hlutkesti. Þarna var ein-
hver sem vildi hafa þetta svona. Og
þetta er náttúrlega afskaplega
klaufalega að verki staðið gagnvart
keppendunum,“ segir Magnús að
lokum.
Okkar keppni
Ágúst Héðinsson, starfsmaður
Bylgjunnar og einn dómnefndar-
manna, hafði aftur á móti þetta að
segja: „Við eigum nú að standa fyrir
þessu. Þetta er okkar keppni; þetta
er bara keppni sem Bylgjan er að
standa fyrir. Við erum að gera þetta
á okkar forsendum og ekki neinna
annarra.“
Hann segir þetta vera landslags-
keppni Bylgjunnar. „Bylgjan er að
búa til sönglagakeppni fyrir sig, dag-
skrárefni fyrir sig og er að koma til
móts við höfunda og flytjendur,
reynda og óreynda. Það er verið að
gefa þeim tækifæri til að koma sínu
efni á framfæri. Það er nú markmið-
ið með þessu; að búa til skemmtilega
uppákomu og styðja við bakið á tón-
listarmönnum.“
Athygli vakti að þeir sem fengu
heiðursverðlaun um kvöldið, Björg-
vin Halldórsson og Þorgeir Ást-
valdsson, tengjast báðir Norðurljós-
um. „Við erum náttúrlega að heiðra
okkar fólk – ég meina, þetta er okkar
skemmtun. Við erum ekki að gera
þetta fyrir einhverja aðra.“
Ágúst segist þó skilja þessar
gagnrýnisraddir.
„Þetta er 500 manna fyrirtæki
sem er í þessum skemmtanabransa
og hjá okkur starfa held ég 10 af
þekktustu söngvurum landsins,
þannig að þetta er afskaplega erfið
staða. Einar Ágúst starfar á FM957
og þó að það fyrirtæki sé innan vé-
banda Norðurljósa þá er það sam-
keppnisaðili Bylgjunnar sem slíkt.
Hver deild horfir á sig og hugsar um
sinn rekstur þannig að við reynum
að hugsa svolítið út fyrir þessar
raddir sem ég skil þó alveg að séu á
lofti.“
Ágúst segist ekki hafa haft vitn-
eskju um uppröðunina á disknum.
„Ég hélt að það ætti að raða þessu
eftir þeirri röð sem lögin voru kynnt
hérna á Bylgjunni. Annars vísa ég á
Skífumenn hvað það varðar.“
Ágúst blæs að lokum á að fara
þurfi eftir reglum hvað svona keppni
varðar. „Ég held að hver sem er geti
haldið lagakeppni án þess að þurfa
að fara í gegnum F.Í.H. eða F.T.T.,
ég sé ekki að það skipti neinu máli.
Þetta var uppákoma sem Bylgjan
stóð fyrir, við lítum á það þannig.“
Landslagskeppni Bylgjunnar
Óánægja með
framkvæmd
Morgunblaðið/Jón Svavarsson.
Einar Ágúst flytur sigurlagið í
Landslagi Bylgjunnar. Gagn-
rýnisraddir hafa komið fram í
garð keppninnar sem segja að
ekki hafi allt verið með felldu í
framkvæmd hennar.
Jón Kjell
Seljeseth
Magnús
Kjartansson
Ágúst
Héðinsson