Morgunblaðið - 06.05.2001, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 06.05.2001, Blaðsíða 23
Þegar íslensku kvikmyndirnar tvær 101 Reykjavík og Englar al- heimsins voru sýndar á Sundance- kvikmyndahátíðinni í Utah létu Emil og Ingibjörg sig ekki vanta. Emil hafði sérstaklega gaman af því að fylgjast með viðbrögðum Utah- búa á sýningu á 101 Reykjavík í Salt Lake City. „Mér þótti gaman að myndinni þó svo að það hafi verið ljótar senur í henni. Það var hlegið mikið í upp- hafi en eftir því sem myndin var meira um bert hold og svoleiðis þá held ég að það hafi aðeins farið um mormónana í salnum. Það gefur al- veg augaleið að þetta stendur ekki í biblíunni. Það er ekki mikið um bert hold í bíómyndum og sjónvarpi hér í Utah. Blöð eins og Playboy eru ekki seld hér. Fólk er ekki vant þessu. Hins vegar var myndinni mjög vel tekið.“ Emil er mikill jeppaáhugamaður og er kominn með hugmynd að nýju fyrirtæki sem hann ætlar að setja á fót. Hugmyndin er að finna heima á Íslandi sérsmíðaða jeppahluti og koma þeim á markað hér í Banda- ríkjunum, fara út í það að breyta jeppum í þau tryllitæki sem þekkj- ast á Íslandi. Eins ætla Emil og Ingibjörg að bjóða Íslendingum upp á jeppaferð- ir um óbyggðir Utah líkt og þær fjallaferðir sem tíðkast á Íslandi, en landslagið er meira á borð við það sem við erum vön að sjá í gömlum vestrum. „Náttúran hér er alveg stórkost- leg og það eru svo margir staðir hér sem hægt er að fara á. Hér í fjöll- unum eru endalausar óbyggðir og mjóir slóðar, mismunandi erfiðir. Þúsund vötn með silungsveiði og op- in svæði sem hægt er að fara um. Þetta eru oft erfiðir slóðar og mjög gaman að fara um á góðum jeppa. Við ferðumst mikið um eyðimörkina hér í suðurhluta Utah þar sem ekki er óalgengt að rekast á slöngur og önnur kvikindi. Fyrst á vorin eru kaktusarnir í eyðimörkinni í fullum blóma og gróðurinn ekki farinn að skrælna. Hugmyndin er að fara með 5–10 Íslendinga í hópferðir inn í eyðimörkina og upp í fjöllin. Þar tjaldar maður á svæðum þar sem á kvöldin er svo mikið logn að maður getur kveikt á eldspýtu og sér log- ann ekki blakta.“ Emil var eitt sinn einn á ferð á grýttum slóða í fjöllunum í suð- urhluta Utah þegar hann lenti í því að brjóta öxul. Hann hringdi eftir varahlutum en þurfti að bíða í tvo daga eftir því að þeir bærust til hans. Emil segir að þetta hafi verið einhver besta upplifun hans í Utah því kyrrðin var svo mikil að það heyrðist ekki eitt einasta hljóð og hann hafi sjaldan slappað jafn vel af. „Við bræðurnir fórum alltaf í veiðiferð einu sinni á ári heima á Ís- landi og það var sama hvenær árs- ins við fórum, ég þurfti alltaf að vera í samfestingnum og með regngall- ann tilbúinn,“ segir Emil. „Í Utah er ein minnsta úrkoma í Bandaríkjun- um og á sumrin getur hitinn farið upp í 45 gráður. Svona jeppaferðir gætu því verið spennandi upplifun fyrir Íslendinga.“ MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6. MAÍ 2001 23 Skráning skuldabréfa á Verðbréfaþingi Íslands Útgefandi: Delta hf, Reykjavíkurvegi 78, 220 Hafnarfjörður, kt. 500490-1799. Lýsing á flokknum: Heiti flokksins er 1. flokkur 2001. Bréfin eru til 5 ára, bundin vísitölu neysluverðs og bera 8,1% ársvexti. Nafnverð útgáfu: Heildarfjárhæð útgáfunnar er allt að 1.000.000.000 kr. að nafnverði og eru 200.000.000 kr. að nafnverði þegar seldar. Gjalddagar: Útgefandi greiðir verðbættan höfuðstól skuldarinnar í einu lagi þann 1. apríl 2006. Skuldabréfin hafa vaxtagjalddaga 1. apríl ár hvert. Fyrsti gjalddagi vaxta er 1. apríl 2002, og sá síðasti þann 1. apríl 2006. Skráningardagur á VÞÍ: Bréfin verða skráð á VÞÍ þann 10. maí 2001. Milliganga vegna skráningar: Búnaðarbankinn Verðbréf, kt. 491296-2249. Hafnarstræti 5, 155 Reykjavík. Skráningarlýsing og aðrar upplýsingar varðandi ofangreind skuldabréf liggja frammi hjá Búnaðarbankanum Verðbréfum. Emil Þór Emilsson og Ingibjörg Einarsdóttir ásamt dóttur þeirra og jeppanum góða.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.