Morgunblaðið - 06.05.2001, Blaðsíða 53

Morgunblaðið - 06.05.2001, Blaðsíða 53
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6. MAÍ 2001 53 DAGBÓK 70 ÁRA afmæli. Í dag,sunnudaginn 6. maí, verður sjötugur Vilhjálmur Sigtryggsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri Skóg- ræktarfélags Reykjavík, Lambastekk 3, Reykjavík. Eiginkona hans er Herdís Guðmundsdóttir. Þau verða að heiman á afmælisdaginn. 70 ÁRA afmæli. Í dag,sunnudaginn 6. maí, verður sjötug Þórhalla Sveinsdóttir, verslunar- maður, Fífuhvammi 15, Kópavogi. Eiginmaður hennar er Jón Kristinsson. Hún dvelur í Prag á afmæl- isdaginn. 50 ÁRA afmæli. Nk.mánudag 7. maí verður fimmtug Jóhanna Freyja Björnsdóttir. Hún og eiginmaður hennar Magnús S. Magnússon, taka á móti ættingjum og vinum á afmælisdaginn eftir kl. 7.30 (um morguninn) á heimili sínu, Orrahólum 5. GULLBRÚÐKAUP. Í dag, sunnudaginn 6. maí, eiga 50 ára hjúskaparafmæli hjónin Esther Jóhannsdóttir og Skarphéð- inn Guðmundsson, Sóleyjarhlíð 1, Hafnarfirði. Í DV 24. apríl sl. mátti lesa eftirfarandi fyrirsögn á baksíðu blaðsins: Þre- menningar stóðu að eld- sprengjunni. Ég hnaut hér um orðið þremenningar. Ég skildi fyrirsögnin svo í fyrstu, að hér hefði verið um að ræða skyld- menni í þriðja lið eins og talað er um í ættfræði, sbr. orð eins og fjórmenningar um menn, sem skyldir eru í fjórða lið. Þetta eru al- þekkt skyldleikaorð. Við nánari lestur kom í ljós, að hér var um þrjá menn að ræða, sem höfðu unnið þetta verk og þurftu alls ekki að vera skyldir. Blaðamaður hefði því eins getað sagt hér: Þrír menn stóðu að eldsprengj- unni í stað orðsins þre- menningar og það þá eng- um misskilningi getað valdið. Trúlega hefur þetta orð þótt fara eitthvað betur í fyrirsögninni. Við athugun á OM (1983) kemur í ljós, að ft. þremenningar getur verið höfð um þriggja manna hóp. Segja má, að blaðamaðurinn sé hér því í hróksvaldi með þessa notk- un sína. Við athugun á no. fjórmenningur í OM kemur enn fremur fram, að það getur táknað einn af fjór- um félögum: þeir fjór- menningarnir. Þessum merkingum er ég ekki vanur. Að sjálf- sögðu er skyldleikamerk- ing orðanna einnig tekin fram í OM. Vissulega má vel skilja orðin í þessu sambandi. En þar sem ég hygg, að menn noti þau oftast í sambandi við skyldleika, virðist óþarft að nota þau almennt um þrjá eða fjóra menn í hóp. Í OM er no. fimmmenn- ingur aftur á móti einungis skýrt sem ættingi í fimmta lið. Hér er þessum mis- munandi merkingum orðanna hreyft til um- hugsunar fyrir lesendur pistilsins. - J.A.J. ORÐABÓKIN Þremenningur STJÖRNUSPÁ ef t i r Frances Drake NAUT Afmælisbarn dagsins: Þú ert mikill efasemdar- maður og sérð stundum lít- inn tilgang í lífinu og þarft að breyta því viðhorfi. Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Oft getur saklaus umræða breyst í rifrildi. Reyndu að forðast slíkt því að fæst orð hafa minnsta ábyrgð. Naut (20. apríl - 20. maí)  Það er skemmtilegt að eign- ast nýja vini en vináttan get- ur stundum breyst í martröð ef ekki hefur verið búið vel um hnútana í upphafi. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Játningar náins vinar munu ganga nærri þér en eina ráðið er að taka sér tíma til þess að hugsa málin í gegn og halda síðan ótrauður áfram. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Þú hefur gaman af því að leika þér með börnum og full- orðnum. Skemmtilegur leik- ur er einmitt sú örvun sem þú þarft til að fá hugmyndir. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Þótt hugur þinn standi til annars verður þú að gefa vin- um og vandamönnum meiri tíma því annars áttu á hættu að öll sambönd rofni og þú standir uppi einn og vinalaus. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Það hendir margan manninn að kaupa hluti til þess að ganga í augun á öðrum en ekki af því að þörf sé fyrir þá. Leggðu af þessa vitleysu og notaðu fjármuni þína í annað. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Einhver sem þú hefur treyst veldur þér vonbrigðum. Láttu þau samt ekki draga þig niður því þú ertu þinnar eigin gæfu smiður. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Þú ættir að bregða örlítið út af daglegum vanan þínum og sjá hversu gefandi og hress- andi það er þótt ekki sé um neina stórvægilega hluti að ræða. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Þótt þér ói við þeim vandræð- um sem framundan eru skaltu ýta þeim hugsunum til hliðar og ráðast ótrauður á verkefnið. Þú hefur alla burði til þess að leysa það vel. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Gömul gáta er skyndilega ráðin og það rennur upp fyrir þér hvers þú hefur farið á mis. Þú skalt samt ekkert vorkenna þér heldur halda ótrauður áfram. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Þú ættir að ýta öllum vanda- sömum samningaviðræðum til hliðar í dag og leyfa sjálf- um þér að blómstra stundar- korn og síðan getur þú tekið aftur til óspilltra málanna. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Hlustaðu ekki á þá sem segja þér að draumar þínir geti ekki ræst. Það eru alltaf ein- hverjir sem af öfund og ill- girni vilja draga úr öðrum kjarkinn. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. LJÓÐABROT Lífs er orðinn lekur knör, líka ræðin fúin, hásetanna farið fjör og formaðurinn lúinn. Því er bezt að vinda’ upp voð, venda undan landi og láta byrinn bera gnoð beint að heljar sandi. – – – Páll Ólafsson. UM MARGRA áratuga skeið hefur opnun á tveimur tíglum í merkingunni annar hvor háliturinn og veik spil notið mikilla vinsælda. Opn- unin gengur undir nafninu „Multi tveir tíglar“. Eins og allar sagnvenjur er auðvelt að tína til kosti og galla.Eitt er óvissan um litinn. Það er galli í þeim skilningi að makker getur ekki hindrað hratt með góðan stuðning á móti. Á hinn bóginn er þessi óvissa mótherjunum oft skeinuhætt og einstaka sinnum ruglast makker opn- arans líka í ríminu. Setjum okkur í spor norðurs: Suður gefur; NS á hættu. Norður ♠ D982 ♥ -- ♦ Á ♣ KDG109632 Vestur Norður Austur Suður -- -- -- 2 tíglar * Pass 5 lauf Dobl Pass 5 tíglar Pass 6 lauf Pass 6 tíglar Pass 6 hjörtu Pass Pass ??? Makker vekur á Multi, sem lofar sexlit í spaða eða hjarta. Líklega á makker hjarta, svo það er eðlilegt að fara beint í fimm lauf eftir pass næsta manns. En sagn- ir eru rétt að byrja. Austur doblar til að sýna góð spil og vestur tekur út í fimm tígla. Áfram krefur austur með sex laufum, fær bara endur- sögn í tígli frá vestri, en breytir þá sjálfur í sex hjörtu. Sú sögn kemur yfir til norðurs. Hvað á hann að segja? Er hugsanlegt að makker sé með spaða, þrátt fyrir allt? Þegar spilið kom upp í keppni í Hollandi taldi norð- ur sér trú um að makker hlyti að vera með spaðalit og sagði sex spaða. Hann datt ekki í lukkupottinn. Norður ♠ D982 ♥ -- ♦ Á ♣ KDG109632 Vestur Austur ♠ 103 ♠ ÁKG76 ♥ 82 ♥ ÁDG103 ♦ KD1098754 ♦ -- ♣ 4 ♣ Á87 Suður ♠ 54 ♥ K97654 ♦ G632 ♣ 5 Suður breytti í sjö lauf, en það kostaði NS 1100. Var norður grunnhygginn að melda sex spaða? Lík- lega. Sagnir austurs bentu til að hann ætti hálitina, minnst 5-5 skiptingu, því ella hefði hann sagt fimm eða sex hjörtu strax við fimm laufum eða fimm tíglum makkers. Ef norður kemur auga á þessa vísbendingu, sér hann að suður getur ekki verið með spaðalitinn, því þá væru að minnsta kosti 15 spaðar í stokknum. BRIDS Umsjón Guðmundur Páll Arnarson Árnað heilla Orlofsnefnd húsmæðra í Hafnarfirði auglýsir Konur athugið! Rétt til þess að sækja um orlofsferð hefur sérhver kona sem veitir eða hefur veitt heim- ili forstöðu án launagreiðslu fyrir það starf. Dvalið verður á Hótel Eddu að Laugum í Sælings- dal dagana 19.-22. ágúst 2001. Farið verður út á Látrabjarg. Siglt um Breiðafjarðareyjar og fleiri áhugaverðir staðir skoðaðir. Innritun og frekari upplýsingar veittar í safnaðarheimili Hafnarfjarðarkirkju í Vonarhöfn, gengið inn frá Suðurgötu. Laugardaginn 12. maí frá kl. 11-14 Þriðjudaginn 15. maí frá kl. 17-19 Orlofsnefnd Áskorun hugljómunar (Enlightenment Intensive) í Bláfjöllum 17. til 20. maí Áskorun hugljómunar er krefjandi en magnað og hefur sl. 30 ár verið vendipunktur til auk- innar meðvitundar fyrir þúsundir manna. Nánari upplýsingar og skráning í símum 562 0037 og 869 9293. Kynningarkvöld verður mánudaginn 14. maí kl. 20.00 í sal Lífssýnar, Bolholti 4, 3. hæð. Leiðbeinandi: Guðfinna Steinunn Svavarsdóttir. Fáðu sendan bækling. Spilakvöld Bridsskólans og BSÍ Mánudaginn 30. apríl mættu 16 pör til leiks. Úrslit urðu þessi: NS-riðill Jóna Samsonard. – Kristinn Stefánsson 110 Kristinn Pétursson – Jórunn Kristinsd. 90 Sjöfn Sigvaldad. – Guðmundur Ludvigss. 85 AV-riðill Benedikt Franklíns. – Hjálmtýr Baldurs. 99 Páll Guðmundss. – Eiríkur Þorsteinss. 94 Jóhannes Jónsson – Dúfa Ólafsdóttir 89 Spilað verður næst mánudaginn 7. maí en síðasta kvöld vetrarins verð- ur mánudaginn 14. maí. Spila- mennska hefst kl. 20.00 í Þöngla- bakka 1, 3. hæð. Allir velkomnir. Sveit Roche sigraði í aðal- sveitakeppni Bridsfélags Reykjavíkur sem lauk fyrir nokkru. Sveitin hlaut 150 stig en sveit Helga Jó- hannssonar varð í öðru sæti með 149 stig og sveit Skeljungs í því þriðja með 143 stig, en þetta er annað árið í röð sem sveitin vinnur þessa sterku keppni. Sveitina skipa Haukur Inga- son, Sigurður B. Þorsteinsson, Gylfi Baldursson, Jón Steinar Gunnlaugs- son, Jón Hjaltason og Steinberg Ríkarðsson. Þeir eru allir þekktir spilarar sem oft hafa náð góðum ár- angri á Bridshátíð og í Íslands- mótinu. Þeir félagar náðu ekki inn í úrslitin í ár þrátt fyrir ágætt gengi í undanúrslitunum að undanskildum 12 síðustu spilum mótsins þar sem „örfáar rangar ákvarðanir“ voru teknar. Morgunblaðið/Arnór Ragnarsson Sveit Roche, sigursveitin í aðalsveitakeppni Bridsfélags Reykjavíkur tvö ár í röð. Talið frá vinstri: Haukur Ingason, Jón Steinar Gunnlaugs- son, Sigurður B. Þorsteinsson, Jón Hjaltason og Steinberg Ríkarðsson. Fyrir framan þá situr Gylfi Baldursson BRIDS U m s j ó n A r n ó r G . R a g n a r s s o n Gullsmári Beztum árangri í tvímenningi eldri borgara að Gullsmára 13, fimmtudaginn 3. maí, náðu: NS Sigurpáll Árnas. og Sig. Gunnlaugss. 136 Sig. Björnss. og Auðunn Bergsveinss. 135 Sigurj. H. Sigurjónss. og Björn Bjarnas. 134 AV Fróði Pálsson og Þórarinn Árnason 148 Sig. Jóhannss. og Kristján Guðmundss. 139 Halldór Jónsson og Stefán Jóhansson 135 - Miðlungur var 126. Mætum mánudaga og fimmtu- daga kl. 12.45.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.