Morgunblaðið - 06.05.2001, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6. MAÍ 2001 27
AÐALFUNDUR
Aðalfundur Lífeyrissjóðs verkfræðinga verður
haldinn á Grand Hótel Reykjavík, Sigtúni 38,
Reykjavík, þriðjudaginn 22. maí 2001 kl. 17.15.
Fundarefni:
1. Skýrsla sjóðsstjórnar
2. Reikningsskil
3. Fjárfestingarstefna kynnt
4. Lífeyrisuppgjör pr. 31.12.2000
-skýrsla tryggingafræðings sjóðsins
5. Kosning eins manns í stjórn og eins til vara
6. Kosning endurskoðanda og tveggja
skoðunarmanna
7. Kynning á heimasíðu sjóðsins
8. Önnur mál
Endurskoðaðir og undirritaðir reikningar sjóðsins
ásamt skýrslu tryggingafræðings munu liggja
frammi á skrifstofu sjóðsins viku fyrir aðalfund,
sjóðfélögum til sýnis. Ársreikning má einnig
nálgast á heimasíðu sjóðsins www.lifsverk.is.
Reykjavík, 3. maí 2001.
Stjórnin.
„Þegar ég fékk fyrst handritið í
hendur hafði ég sárafáar setning-
ar,“ er haft eftir Keir Dullea, „og
síðar meir fækkaði þeim enn frek-
ar.
Í fyrstu umferð átti geimfarið
Discovery að stefna á Júpíter og
tæknimeistararnir byrjuðu að fást
við hið þokukennda umhverfi plán-
etunnar. Þá breytti Kubrick um
skoðun og ákvað að senda skipið til
Satúrnusar. Honum líkaði hringir
plánetunnar. Nokkur tími leið og
aftur skipti Kubrick um skoðun og
tæknimennirnir tóku enn að ein-
beita sér að Júpíter.
Ein hugmyndin var sú að fá sér-
fræðinga samtímans til þess að
ræða um möguleikann á lífi úti í
geimnum og sýna viðtöl við þá í
upphafi myndarinnar. Alls voru
filmaðir 17 klukkutímar þar sem
sérfræðingarnir veltu spurning-
unni fyrir sér en ekkert af því var
notað. Tónskáldið Alex North, sem
samið hafði tónlistina við Spor-
vagninn girnd og Spartakus, missti
starfið sem tónsmiður myndarinn-
ar þegar Kubrick ákvað að notast
við klassíska tónlist. Þegar Clarke
nefndi í sakleysi sínu að ein leik-
myndin minnti hann á kínverskt
veitingahús, lét Kubrick þegar rífa
hana niður og byggja nýja. Clarke
gætti sín að koma ekki nálægt leik-
myndadeildinni í nokkurn tíma eft-
ir það.
Leiðist að tala um hana
Brellumeistarinn Douglas Trum-
bull á mikinn þátt í útliti Odyssey
enda sagður undrabarn á sínu svið;
hann hannaði meðal annars atriðin
„handan óendanleikans sem hipp-
arnir á sjöunda áratugnum höfðu
svo mikið yndi af. Kubrick lét reisa
sérstaklega fyrir myndina leik-
mynd sem gat snúist og hermdi
með því eftir þyngdarleysi en
kostnaðurinn við hana nam um tíu
prósentum af heildarkostnaði við
myndina. Einnig var gríðarleg
vinna lögð í módel af geimskipum
framtíðarinnar sem liðu yfir breið-
tjaldið í minnisstæðum tignarleik.
Þann 1. apríl árið 1968 var
myndin prufusýnd og Kubrick var
ekki ánægður með niðurstöðuna.
Áhorfendum leiddist og voru farnir
að týnast út áður en myndinni
lauk. Kubrick horfði á fólkið hverfa
úr salnum og vissi hvað til síns
friðar heyrði. Hann stytti myndina
um nítján mínútur. Tveimur dög-
um síðar var myndin frumsýnd,
þann 3. apríl árið 1968.
Viðtökur gagnrýnenda voru ekki
sérlega uppbyggilegar. Leiðinleg,
sagði The New Republic. Tilgerð-
arleg, óskiljanleg, löng, sagði
Vouge. Leiðinleg, sagði The New
York Times. Aðrir sáu snilldina í
verkinu frá fyrstu stundu og hún
náði í öllufalli gríðarlegum vin-
sældum. Alls græddi hún 40 millj-
ónir dollara og er í dag viðurkennd
sem ein af mikilvægustu myndum
síðustu aldar.
„Mér leiðist að tala um 2001,
sagði Kubrick einu sinni. Öðrum
leiðist það ekki og hún er sífellt í
umræðunni og er reglulega tekin
til sýninga í kvikmyndahúsum og
kvikmyndaklúbbum um heim allan.
Er skemmst að minnast þess þegar
Hreyfimyndafélagið skaut henni á
hvíta tjaldið í Háskólabíói fyrir
nokkrum árum. Það er ógleyman-
leg sýning.
Mannapi uppgötvar bareflið í myndinni 2001.
Keir Dullea horfir út í geiminn í myndinni 2001.
Skráning á staðnum. Nánari upplýsingar í síma 514 4000.
Við minnum á miðnæturhlaup ÍSÍ á Jónsmessu 23. júní og Reykjavíkurmaraþon 18. ágúst.
Nú er ekki eftir
neinu að bíða
Í tilefni af Kvennahlaupi ÍSÍ 16. júní bjóðum við upp á göngu/skokk
hópa ÍFA fyrir byrjendur 7. maí - 15. júní
Tilvalið tækifæri fyrir alla (já líka þig) að bæta heilsuna undir leiðsögn fagfólks.
Heilbrigð hreyfing í hádeginu
Hádegishópar mán., mið. og föst.
kl. 12:10-12:45.
Komið saman við Laugardalshöllina
(sturtur og búningsaðstaða).
Verð: 1.500 kr.
Eftir vinnu
Eftirmiðdagshópar, mán., mið og fimmt.
kl. 18.00-19:00
Komið saman við Laugardalslaug
Verð: 2.500 kr.
Verð m/sundi: 5.000 kr.
HRINGSNÚRUR
Hringsnúrurnar vinsælu eru komnar aftur.
Mikið úrval