Morgunblaðið - 06.05.2001, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 06.05.2001, Blaðsíða 21
LISTIR MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6. MAÍ 2001 21 FRÁ HÁSKÓLA ÍSLANDS SKRÁSETNING NÝRRA STÚDENTA Skrásetning nýrra stúd- enta til náms í Háskóla Íslands háskólaárið 2001-2002 fer fram í Nemendaskrá í Aðalbyggingu Háskólans og lýkur 6. júní 2001. Umsóknareyðublöð fást í Nemendaskrá sem opin er frá kl. 10 til 15 virka daga. Einnig er unnt að fá umsóknareyðublöð í öllum framhaldsskólum landsins. Í Háskóla Íslands eru ellefu deildir sem hver um sig býður upp á nám til fyrstu háskóla- gráðu og framhaldsnám. Samtals eru 57 námsleiðir til fyrstu háskólagráðu (BA/BS/kandídatspróf), starfs- tengt viðbótarnám (eitt ár) eftir fyrstu háskólagráðu er í 19 greinum og 74 námsleiðir eru til meistaraprófs sem margar geta einnig leitt til doktorsprófs. Auk þess er boðið upp á stutt hag- nýtt nám í nokkrum greinum. Nánari upplýsingar um nám við Háskóla Íslands er að finna á heimasíðu Háskólans, www.hi.is Námsráðgjöf Háskóla Íslands býður upp á eftirfarandi þjónustu dagana 22. maí til 6. júní frá kl. 9 til 16: • Aðstoð við útfyllingu umsóknareyðublaða í anddyri Aðalbyggingar. • Áhugasviðskönnun Strong fyrir nýnema. Áhugasviðskönnunin fer fram í stofu IX í Aðalbyggingu frá kl. 10 ti 15. (Þeir sem forskrá sig og vilja taka áhugasviðspróf hafi beint samband við Námsráðgjöf HÍ í síma 525 4315 frá kl. 13 til 14 mánudaga til fimmtudaga.) • Stutta kynningarfundi um hagnýt atriði fyrir nýnema og upplýsingar um námsleiðir í stofu II í Aðalbyggingu. Stúdentspróf er inntökuski- lyrði í allar deildir Háskólans, en athugið þó eftirfarandi: Þeir sem hyggjast skrá sig til náms í raunvísindadeild (allar greinar nema landafræði) skulu hafa stúdentspróf af nát- túrufræðibraut. Í eftirtöldum greinum eru samkeppnispróf við lok haust- misseris í desember og fjöldi þeirra sem öðlast rétt til að halda áfram námi á síðara mis- seri tak- markaður (fjöldi í sviga): læknis- fræði (40), hjúkrunarfræði (65), sjúkraþjálfun (18) og tann- læknadeild (6). Við nýskrásetningu skrá stúdentar sig jafnframt í námskeið á komandi haust- og vormisseri Umsóknum um skrásetningu skal fylgja: • Ljósrit eða staðfest eftirrit af stúdentsprófsskírteini. (Ath! Öllu skírteininu. Athugið að hægt er að forskrá sig áður en til útskriftar úr framhaldsskóla kemur í vor, enda verði staðfest ljósrit af öllu stúdents- prófsskírteininu lagt fram um leið og það liggur fyrir). • Skrásetningargjald kr. 25.000. • Ljósmynd af umsækjanda (í umslagi merktu nafni og kennitölu). Ekki er tekið á móti beiðnum um nýskrásetningu eftir að auglýstu skrásetningartímabili lýkur 6. júní nk. Athugið einnig að skrásetn- ingargjaldið er ekki endurkræft eftir 20. ágúst 2001. Skrásetning er þegar hafin. Mætið tímanlega til að forðast örtröð. Í KVÖLD, sunnudagskvöld, verða haldnir tvíleikstónleikar í Salnum í Tíbrártónleikaröðinni og hefjast þeir kl. 20. Það eru þau Sigurbjörn Bern- harðsson fiðluleikari og Anna Guðný Guðmundsdóttir píanóleikari sem flytja verk eftir Bach, Bartók, Beethoven og Brahms. „Þetta eru stóru B-in fjögur,“ segir Sigurbjörn um efnisskrána. „Við byrjuðum á að velja Bartók-verkið og reyndum svo að byggja upp heilsteypta og fjöl- breytta efnisskrá í kringum hana. Það má kannski segja að það gangi tragískt stef í gegnum tónleikana þar sem þrjú verkanna eru í c-moll, sem hefur verið kölluð tragíska tónteg- undin.“ Fyrsta verkið á efnisskránni er Sónata fyrir fiðlu og píanó nr. 4 í c- moll eftir J.S. Bach og segir Sigur- björn þar vera um trúarlega og áreynslulausa en jafnframt mjög tjáningarríka tónlist að ræða. Annað verkið á efnisskránni er Sónata nr. 2 fyrir fiðlu og píanó eftir Béla Bartók. „Það var samið árið 1922 og var eitt af eftirlætisverkum hans. Þótt sónatan sé ekki nema áttatíu ára gömul er hún næstum orðin eitt af klassískum verk- um tónbókmenntanna. Þetta er alveg hreint yfirþyrmandi mögnuð tónlist, sem fer í gegnum allt tilfinningaróf mannsins. Hún er oft ómstríð en alltaf ljóðræn og syngjandi. Það er mjög magnað fyrir flytjandann að leika þessa tónlist, hún líkt og smýgur inn í kerfið hjá manni og situr þar,“ segir Sigurbjörn. Þriðja verkið á efnisskránni er eftir Beethoven, Sónata nr. 7 í c-moll fyrir fiðlu og pínaó. „Beethoven átti erfiða ævi, sem endurspeglast í verkum hans. Samt gaf hann alltaf í skyn að til væri von og enda verkin hans yfirleitt í dúr. Það eru þó til nokkrar undan- tekningar og þetta verk er ein af þeim. Það endar í moll á afar drama- tískan og tragískan hátt. Af fiðlusón- ötunum tíu er þetta sú allra dramatískasta.“ Síðasta verkið á efn- isskránni er æskuverk eftir Brahms, afar glæsilegt verk að mati flytjend- anna. Sigurbjörn hefur verið búsettur í Bandaríkjunum undanfarin tíu ár en hann lauk meistaranámi frá Northern Illinois University árið 1998. Auk þess að sinna tónlistarkennslu leikur hann í Pacifica-strengjakvartettinum, sem kemur fram á um sjötíu tónleik- um á ári víðs vegar um Bandaríkin. Anna Guðný Guðmundsdóttir lauk námi frá Guildhall School of Music í London. Hún hefur um árabil starfað sem píanókennari í Reykjavík og tek- ið virkan þátt í íslensku tónlistarlífi. Samstarf þeirra Sigurbjarnar hófst fyrir um þremur árum, en þá léku þau saman í tengslum við sjónvarpsþátt um Salinn í Kópavogi. „Við Anna Guðný höfum átt mjög gott samstarf, en tónleikarnir í kvöld verða tíundu tónleikar okkar saman. Það er frá- bært að geta komið heim og haldið tónleika með svo góðum meðleikara, og yfirleitt er gaman að sjá hversu blómlegt tónlistarlífið er hér,“ segir Sigurbjörn. Fiðla og píanó á Tíbrártónleikum í Salnum Stóru B-in fjögur Morgunblaðið/Jim Smart Anna Guðný Guðmundsdóttir píanóleikari og Sigurbjörn Bernharðsson fiðluleikari halda tónleika í Salnum í Kópavogi í kvöld kl. 20.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.