Morgunblaðið - 06.05.2001, Síða 19

Morgunblaðið - 06.05.2001, Síða 19
LISTIR MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6. MAÍ 2001 19 Stéttarfélag íslenskra félagsráðgjafa býður til ráðstefnu um BÖRN ÁFÖLL OG MISSI Aðalfyrirlesari er dr. Phyllis R. Silverman félagsráðgjafi Dagskrá: Kl. 9.00-9.15 Sólveig Pétursdóttir, dómsmálaráðherra, setur ráðstefnuna. Kl. 9.15-12.00 Never too young to know, death in children´s Lives, dr. Phyllis R. Silverman. Einnig mun Nanna Sigurðardóttir, félagsráðgjafi, fjalla um börn, áföll og missi. Að alast upp sem langveikt barn; Ingveldur M. Hannesdóttir 14 ára segir frá reynslu sinni. Kl. 12.00-13.00 Hádegishlé. Kl. 13.00-15.00 Málstofur. 1. Börn og skilnaðir foreldra, dr. Sigrún Júlíusdóttir, félagsráðgjafi. 2. Börn og ástvinamissir, Bragi Skúlason, sjúkrahúsprestur. 3. Alvarleg veikindi og/eða fötlun barna, Vigdís Jónsdóttir og Áslaug Ólafsdóttir, félagsráðgjafar. 4. Börn á flótta og börn í nýjum heimkynnum, Lilja Hjartardóttir, stjórnmálafræðingur. 5. Börn sem búa við bágar heimilisað- stæður, Guðrún Frímannsdóttir, félagsráðgjafi 6. Börn, skólinn og sorgin, Ólöf Helga Þór, kennari. Kl. 15.00-15.20 Kaffihlé. Kl. 15.20-16.00 Pallborðsumræður-stjórnandi Lára Björnsdóttir, félagsráðgjafi og félagsmálastjóri. Kl. 16.00-16.15 Þórhildur Líndal, umboðsmaður barna slítur ráðstefnunni. föstudaginn 18. maí á Grand Hóteli kl. 9.00 – 16.15 Skráning fyrir 11. maí soc-work@soc-work.is og í símum 588 5679 og 696 9372 milli kl. 13.00-16.00 dagana 7. til 11. maí. Kostnaður er kr. 9.500. Vinsamlegast gefið upp nafn og kennitölu greiðenda, ásamt nafni, starfsheiti og vinnustað þátttakenda, ásamt þeirri málstofu sem þeir hafa valið. SAFNINU að Skógum hefur verið afhent gjafabréf frá menntamálaráð- herra, húsfriðunarnefnd ríkisins og Þjóðminjasafni Íslands að upphæð ein milljón króna til uppbyggingar fjóssins að Hnausum í Meðallandi. Var það gert í tilefni af áttræðisaf- mæli Þórðar Tómassonar, safnvarð- ar að Skógum, en hann hefur ásamt Vilhjálmi Eyjólfssyni bónda að Hnausum verið aðalhvatamaðurinn að endurbótum þess. „Við Vilhjálm- ur erum mjög þakklátir fyrir þann skilning sem menntamálaráðherra, húsfriðunarnefnd og Þjóðminjasafn- ið hafa sýnt okkur með þessum stuðningi en uppbygging hússins hefur verið okkar áhugamál lengi. Þetta er gömul bygging sem hefur mjög mikið minjagildi, enda eina uppistandandi húsið af sinni gerð í landinu,“ segir Þórður. Fjósið að Hnausum var nokkurs konar undanfari fjósbaðstofunnar. Þar voru kýr hafðar í fjósi en á loft- inu yfir var vinnupallur eða loft þar sem fólk sat og vann við ylinn af kún- um. Gamla fólkið undi sér svo vel í hlýjunni að það settist þar að og má segja að vinnupallurinn hafi orðið eins konar elliheimili. Þórður segist vona að hægt verði að halda áfram með framkvæmdir við fjósið á þessu ári. „Við réðumst í að endurbyggja húsið fyrir tveimur árum en þá voru máttarviðir orðnir mjög fúnir og var þá endurnýjað allt sem þurfti. Næsti áfangi er sá að setja glugga í húsið, bæði að fram- hlið og aftan, og leggja gólf í fjósið. Við stefnum á að settur verði melur í þakið þannig að fjósið fái alveg sitt upprunalega útlit,“ segir Þórður. Uppbygging og viðhald fjóssins verður í umsjón safnsins að Skógum og verður að sögn Þórðar kærkom- inn hluti af ferðamannaþjónustu í Skaftafellssýslu. Vilhjálmur Eyjólfsson og Þórður Tómasson fyrir utan fjósbaðstofuna á Hnausum. Fyrirhugað er að fjósið fái upprunalegt útlit. Gjöf til uppbygg- ingar fjóssins á Hnausum Á AÐALFUNDI Félags íslenskra tónlistarmanna nýverið voru kjörnir tveir heiðursfélagar, þau Guðrún Tómasdóttir söngkona og Haukur Guðlaugsson orgelleikari og söngmálastjóri þjóðkirkjunnar. Einnig var úthlutað styrkjum úr Hljómdiskasjóði félagsins. Styrki hlutu þau Edda Erlends- dóttir píanóleikari til útgáfu á pí- anóverkum Josep Haydn og Sím- on Ívarsson gítarleikari til að gefa út disk með íslenskum gít- arverkum, m.a. eftir Gunnar Reyni Sveinsson. Félagsmenn eru nú 125 talsins og formaður félagsins er Margrét Bóasdóttir. Morgunblaðið/Golli Margrét Bóasdóttir, formaður Félags íslenskra tónlistarmanna, Símon Ívarsson, Margrét Helgadóttir, sem tók við styrknum fyrir hönd Eddu Erlendsdóttur, Haukur Guðlaugsson og Guðrún Tómasdóttir. Kosin heiðursfélagar FÍT

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.