Morgunblaðið - 06.05.2001, Page 26

Morgunblaðið - 06.05.2001, Page 26
26 SUNNUDAGUR 6. MAÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ NÆST á eftir fóstbræðrun-um norsku, Ingólfi Arn-arsyni og Hjörleifi Hróð-marssyni má segja að Óli norski Haldorsen sé í röð minnis- stæðra Norðmanna, sem í hugann koma þegar kallaðir eru fram á skjá minninganna fjarskyldir „frændur“ af norsku kyni. Þótt ár og aldir skilji þá að í ættarkeðju kynslóðanna þá lifa sögur og sagnir um þá „þre- menninga“, sem eru þess virði að rifja upp til fróðleiks og skemmtun- ar. Þessa dagana verður húsasmiðum og listamönnum þeim, sem hafa næmt auga fyrir fegurð húsa og varðveislugildi, tíðrætt um hús eitt við Laugaveg, sem þeir hafa orðið sammála um að beri að þyrma og bjarga frá hruni og eyðileggingu. Hindra tímans tönn í að vinna á því með hægfara en markvissri tæringu sinni. Morgunblaðið birti nýlega ljós- mynd af húsi því sem Magnús Páls- son múrari frá Pálshúsum á Bráð- ræðisholti lét reisa norðan við Vegamótabrú í Reykjavík og taldist til að stæði við Laugaveg númer 21. Magnús múrari var bróðir Þóru, sem brasaði og brúnaði stórsteikur á veisluborð konunga og keisara í höll Valdemars Danaprins, yngsta sonar Kristjáns IX Danakonungs, þess sem kom með stjórnarskrána 1874 og bað Íslendinga í Guðanna bænum að syngja íslenskt lag þegar kór Jón- asar Helgasonar stóð á grasblettin- um við heimili landshöfðingja, sællar minningar. Saga Þóru, systur Magn- úsar múrara, er líkust ævintýri, en hér ber að segja frá bróður hennar, Magnúsi múrara. Hann réð norskan mann, Ole Haldorsen, til þess að standa fyrir smíðinni árið 1884. Ole Johan Haldorsen (Óli norski) var yf- irsmiður við bygginguna. Hann stækkaði húsið og hækkaði árið 1895 en hann hafði flutt í húsið ári áður, 1894. Freyja Jónsdóttir sem oft hefir ritað fróðlegar greinar um hús í höf- uðstaðnum ritaði um húsið í Dag/ Tímann 5. apríl 1997. Þar birtir Freyja skrá um íbúa hússins árið 1901. Þar er þá getið meðal íbúa hússins fjölskyldu Eiríks Guð- mundssonar, sem er húsbóndi og trésmiður. 33 ára. Kona hans er Vil- borg Guðnadóttir 32 ára fædd í Lágafellssókn. Börn þeirra hjóna eru Guðmundur 9 ára og Ásta Sigríð- ur 7 ára. Hér mun vera um að ræða móður Vigdísar Finnbogadóttur for- seta Íslands. Guðmundur Eiríksson var faðir Ívars Daníelssonar lyfsala. Hann fór til Ameríku. Óla norska er víða getið í bókum og bréfum. Kristleifur Þorsteinsson, fræðimaðurinn góðkunni, segir frá ferð sinni í Borgarnes vorið 1877. Þá sér hann fyrstu húsgrindina reista þar. „Var það þar sem verslunarhús Jóns frá Bæ standa nú. Einn maður var þar að verki, lágvaxinn og kýttur í herðum. Hann var Norðmaður, skildi dálítið í íslensku, en gat þó ekkert óbjagað orð talað. Hann kvaðst heita Óli og vera tuttugu og sjö og hálfs árs að aldri. Óli þessi mun hafa dvalist hér á landi upp frá þessu og lifði í Reykjavík til elli. Eft- ir að hann hafði bangað saman þetta fyrsta hús sem byggt var í Borgar- nesi, fór hann til Norðtungu til Jóns bónda Þórðarsonar og smíðaði timb- urkirkju, sem stendur þar á klöpp við ána. Var sú kirkja af sumum nefnd Berghylskirkja, því að hylur sá í Örnólfsdalsá, sem kirkjan stend- ur hjá, heitir Berghylur. Vegna þess að Óli norski var fyrsti maðurinn, sem lagði hönd að húsbyggingu í Borgarnesi, og Akra-Jón fyrsti mað- ur, sem tók sér þar bólfestu, tel ég ástæðu til að minnast þeirra nokkuð í sambandi við upphaf þessarar byggðar. Óli var enginn listamaður, eins og smíðar hans bera vitni um. En hann vildi bera margt við, og meðal annars var hann að reyna að yrkja á ís- lensku, og urðu nokkr- ar vísur hans land- fleygar. Meðal þeirra er þessi um Akra-Jón: Í Borgarnesi höfðinginn búer, undir sig hann sveitung- inn kúer, með svikin og lygin hann spiller sig op, ég trúi hann sé ekki af mjallhvítum flokk. Kristleifur telur að lítið beri að leggja upp úr þessari mannlýsingu Óla norska. Akra-Jón hafi ekki verið óvinsæll maður. Árið sem Kristleifur nefnir í frá- sögn sinni, 1877, er einmitt hið sama og tengir þá Akra-Jón og Óla norska böndum viðskipta og verslunar. Jón Jónsson, sem nefndur var Akra-Jón, var kenndur við fæðingarstað sinn. Hann hafði hug á kaupmennsku. Í því skyni tók hann sér ferð á hendur til Bergen og gekk á fund Johan Langes athafnamanns sem hafði mikil umsvif og stundaði viðskipti við Ísland. Jón hugðist stofna verslun við Brákarpoll og kom í þeim erind- um að koma á sambandi við Lange, ná við hann samningum um lánskjör og umboð til kaupskapar. Jóni tókst að ná samningum. Jafnframt því að gera samning við Akra-Jón um verslunarstörf hans og kaupskap við Brákarpoll sendir Lange Ole Johan Haldorsen (Óla norska) með skútu sinni sem eins- konar fulltrúa er gæti hagsmuna og sendi sér skýrslu um framgang allan og afkomuhorfur. Lange hafði tekið tryggð við Ole og fann til samkennd- ar með honum vegna bæklunar hans og líkamslýta, en Óli hafði slasast á yngri árum og bar þess menjar alla tíð. Óli norski færði sér í nyt alla þá þekkingu sem hann gat aflað sér og var iðinn við skriftir sínar og skýrslur er hann sendi til Langes stórkaupmanns og grósséra. Thor Jensen, sem frægur varð fyrir framtak sitt og stór- hug, var faktor í Borg- arnesi um skeið. Mág- ur hans, Albert Þórðarson, faðir Krist- jáns Albertssonar, teiknaði mynd af krambúð og vöru- geymsluhúsi því sem reist var við Brákarpoll í Borgarnesi. Knud Zimsen borgarstjóri segir frá Óla norska í bók sinni „Úr bæ í borg“. Óli býr þá á Laugavegi 21. Hann tekur til máls á borgarafundi sem haldinn er um vatnsveitu Reykjavíkur. Fundurinn er haldinn í Báruhúsinu. Guðmundur Björnsson landlæknir talar þar um vatnsveitu. Óli norski sagði í ræðu að óþrifnaður bæjarbúa stafaði ekki af vatnsskorti. Gæti hann fært rök fyrir því. Við hús sitt væri fimmtíu tunna brunnur og þar þryti aldrei vatn. Þó hefði fjöl- skylda í einni íbúðinni hjá sér ekki þvegið gólf frá jólaföstu til páska. Í bókinni „Til en artig forlystelse“, sem fjallar um ævi og störf Johan Lange, norska athafnamannsins sem rak verslun í Borgarnesi, er sagt ít- arlega frá ævi Óla norska, ástarsaga hans rakin og greint frá kvonfangi hans og æviferli. Væntanlega gefst tækifæri til þess að greina nánar frá sögu hans. Sonarsonur Óla norska var Þorlákur Haldorsen listmálari. Hann hafði málverkasýningar á Laugavegi 21 og tók þátt í mörgum samsýningum listmálara, auk þess sem hann hélt fjölda einkasýninga. Óli norski og Laugavegur 21 Eftir Pétur Pétursson. Morgunblaðið/Ásdís Laugavegur 21. Húsið stendur á horni Laugavegar og Klapparstígs. Óli norski og fjölskylda hans. Magnús Pálsson múrari. ÓVÍST er hvenær Stanley Kubrick fyrst fékk hugmyndina að kvikmynd um geimferðir. Hann kynnti hana í það minnsta MGM – kvikmyndaverinu árið 1964 og hafði þá gert samning við vísinda- skáldskaparhöfundinn Arthur C. Clarke um samstarf um gerð hand- rits eftir einni af sögum Clarkes. MGM samþykkti að greiða fram- leiðslukostnaðinn, sem var svim- andi hár eða 6 milljónir dollara (endaði í 10.5 milljónum og fór einu og hálfu ári fram úr tökuáætlun). Miðað við verklag Kubricks má vel gera ráð fyrir því að hann hafi ver- ið farin að huga að geimferðar- mynd mörgum árum fyrr. Æðri máttarvöld Eitt var víst. Myndin átti ekki að eiga neitt sameiginlegt með geimævintýrum sjötta og sjöunda áratugarins, sem að mestu leyti áttu heima í barnatímum sjón- varpsins. Lélegar brellur og vond- ur söguþráður einkenndi þær flest- ar og innrásarmyndirnar snérust um risamaura og pappalíkön; ein besta undantekningin var Innrás líkamsþjófanna með Kevin Mc- Carthy. Odyssey átti að vera um ferðalög í geimnum og örlagarík kynni mannsins af dularfullum, æðri máttarvöldum. Þar var höfundur- inn Clarke á heimavelli. Hann hélt í fyrstu, samkvæmt frásögn um gerð myndarinnar í nýlegu hefti breska kvikmyndatímaritsins Empire en myndin var sett í bíó- dreifingu í Bretlandi þann 30. mars sl., að Kubrick væri enn einn dæmigerði Hollywoodframleiðand- inn sem hefði í hyggju að filma meira af ódýrum vísindaskáldskap. Hann þurrkaði rykið af gamalli smásögu sem hann hafði kallað The Sentinel og hitti Kubrick í New York nokkrum vikum síðar. Engin af vísindasögum Clarkes hafði verið kvikmynduð fram að því en maðurinn þótti erfiður í við- kynningu. Var kallaður „Egóið“. Þeir urðu hinir mestu mátar þótt ólíkir væru. Kubrick var New York – búi og vakti flestar nætur og vann. Clarke var Breti og breskur í háttum, leiddist stórborgir og fór í háttinn ekki síðar en hálf níu á kvöldin. Þeir ræddu fram og aftur um söguna og myndina sem þeir ætluðu að gera og úr varð eins- konar beinagrind að 2001: A Space Odyssey. Hún varð strax allt annars eðlis en smásaga Clarkes sem var um uppgötvun „risastórs þjófavarnar- kerfis í óravíddum geimsins og snertingu mannsins við óþekkt afl í geimnum. Kubrick sá fyrir sér sögulega stórmynd um tengsl manns og tækni og hvert tæknin gæti borið okkur í framtíðinni. Segja má að hann hafi litið of stutt fram í tímann. Framtíð Kubricks er liðin án þess að sýn hans hafi orðið að veruleika en á þeim tíma þegar myndin var gerð voru menn ákaflega stórhuga í geimferðaáætl- unum sínum og ári eftir frumsýn- ingu hennar steig fyrsti maðurinn á tunglið. Fyrir augað Handritið sem þeir Kubrick og Clarke sömdu fór í gegnum heil- miklar breytingar fram að því er tökur hófust. Atriði röðuðust upp á nýtt og sum voru tekin út og önnur bættust við. Í einni útgáfunni snerti frummaðurinn á hinum dul- arfulla, svarta fleti sem birtist hon- um í auðninni strax við upphaf myndarinnar en nokkru síðar var atriðið sett í lok myndarinnar. Tölvan sorgmædda, HAL, var fyrst með kvenmannsrödd og hét Athena og varð alls ekki morðóð. Síðar fékk hún karlmannsrödd (Douglas Rain) og ógnaði áhöfn geimskipsins Discovery. Um það leyti sem tökur hófust hafði Stjörnubarnið, sem birtist utan úr geimnum í lok myndarinnar, það verkefni að setja í gang kjarnorku- vopn á braut umhverfis jörðu og eyða öllu mannlífi. Myndin var að miklum hluta tek- in í kvikmyndaveri MGM í Bret- landi og á meðal leikara sem reyndu að fá hlutverk sem frum- menn er birtast í apabúningum í upphafi myndarinnar, var smávax- inn leikari að nafni Ronnie Corb- ett, er síðar átti eftir að verða einn af fremstu grínurum Breta. Kub- rick hafnaði honum og mörgum fleirum. Það var meðvituð stefna hjá Kubrick að hafa engar stjörnur í myndinni. Þær máttu ekki að skyggja á geimferðina, tæknina og inntakið. Hann réði Keir Dullea og Gary Lockwood í hlutverk geimfar- anna tveggja, Bowmans og Pooles, sem eru tvö burðamestu hlutverkin í myndinni. Þeir höfðu nær engar setningar til þess að fara með enda hafði myndin þróast í þá átt að reyna nær alfarið á sjóntaugarnar. Framtíðin er liðin Reuters Stanley Kubrick bak við myndavélina. Árið 1964 samþykkti MGM – kvik- myndaverið að framleiða myndina Journey Beyond the Stars eftir Stanley Kubrick, sem átti að gerast árið 2001 og segja frá geimferðum framtíðarinnar. Seinna fékk mynd- in heitið 2001: A Space Odyssey.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.