Morgunblaðið - 06.05.2001, Qupperneq 50

Morgunblaðið - 06.05.2001, Qupperneq 50
50 SUNNUDAGUR 6. MAÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ BRÉF TIL BLAÐSINS Kringlunni 1 103 Reykjavík  Sími 569 1100  Símbréf 569 1329 Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi. SÆLL Skúli Jón Sigurðarson. Ég trúði ekki mínum eigin eyr- um þegar ég hlustaði á fréttirnar að kvöldi miðvikudagsins 2. maí sl. Þú virðist ætla að reyna að gera umræðu um flugöryggismál á Ís- landi að einhverju pólitísku bit- beini. Þú reynir að gera málflutn- ing manna tortryggilegan vegna einhverra, raunverulegra eða ímyndaðra, pólitískra tengsla. Sérðu ekki hve hjákátlegur mál- flutningur þinn er? Nefna má að sams konar pólitísk tengsl og þú nefnir eru milli ákveðins þing- manns í samgöngunefnd og upp- lýsingafulltrúa flugmálastjórnar. Einnig eru pólitísk tengsl milli flugmálastjóra og annars fulltrúa í umræddri nefnd. Mér er spurn: Hver eru pólitísk tengsl þín og formanns samgöngunefndar? Af viðbrögðum hans í þessu máli mætti halda að þau væru veruleg. Þú veist fullvel að benda mætti á slík tengsl milli sonar míns og for- manns samgöngunefndar. Hitt veistu sennilega ekki að þar eru einnig frændtengsl. En, hvað kemur það málinu við? Eru flugöryggismál flokkspólitísk? Ég er þess fullviss að syni mínum gæti ekki staðið meira á sama hvaða pólitískar skoðanir allir þeir hafa sem að þessum málum koma. Alvarlegar ávirðingar hafa kom- ið fram á þig og aðra sem starfa að flugöryggismálum í landinu. Og þú sérð þann kost vænstan að sveipa málið pólitískri ólykt. Ætli fýlan af málinu sé ekki næg fyrir! Svei þér, þú ættir að skammast þín! Og þú talar um tilfinningaöldur. Þú virð- ist greinilega ekki gera þér grein fyrir að umræðan um málið í fjöl- miðlum undanfarið hefur ekki beinst að flugslysinu í Skerjafirði sem slíku, nema að litlu leyti, held- ur flugöryggi í landinu almennt og starfsaðferðum þeirra sem eiga að stuðla að því. Þar á meðal rannsóknarnefnd flugslysa. Ég verð sterklega var við að almenningur í landinu hefur ekki traust á þér og öðrum sem stuðla eiga að flugöryggi á Íslandi. Og samgönguráðherra hefur greinilega orðið var við það líka. Fram hafa komið alvarlegar ávirð- ingar á þig og aðra. Starfsaðferðir þínar sæta opinberri lögreglurann- sókn. Og þú gefur í skyn að um pólitískar ofsóknir sé að ræða. Þú getur bara bætt ráð þitt á einn hátt ... Kveðja, P.S. Viltu fresta fundinum hjá samgöngunefnd fram á haust þar til þú hefur látið af störfum hjá flugslysanefnd? JÓN ÓLAFUR SKARPHÉÐINSSON, Víðimel 38, Reykjavík. Opið bréf til for- manns rannsóknar- nefndar flugslysa Frá Jóni Ólafi Skarphéðnissyni: KJARASAMNINGAR þroskaþjálfa hafa verið lausir um nokkurra mán- aða skeið, samningaumleitanir við ríki og sveitarfélög standa nú yfir og eru mislangt komnar. Til tals hefur komið hjá félögum í Þroska- þjálfafélagi Íslands að beita því ör- þrifa úrræði sem verkfall er. Starfssvið þroskaþjálfa er víð- tækt og starfsvettvangur þeirra innan hinna ýmsu stofnana. Þá er komið að stóru spurningunni: Hvaða keðjuverkandi áhrif myndi verkfall þeirra hafa ef til kæmi? 1. Loka þarf öllum dagvistar- stofnunum fatlaðra. 2. Loka þarf vinnustofum fatlaðra eins og t.d. Lækjarási, Bjarkarási o.fl. Þjónustuþegar þessara stofn- ana verða að vera heima við mjög skerta þjónustu. 3. Starfsemi Greiningarstöðvar ríkisins skerðist verulega. 4. Nemendur þroskaþjálfa í skól- um missa stuðning sinn. 5. Starfsemi leikfangasafna rask- ast. Þetta er einfölduð mynd af því sem mun gerast ef til verkfalls þroskaþjálfa kemur. Ofangreint ástand er ekki það sem þroskaþjálfar vilja skjólstæð- ingum sínum til handa, en þar sem tregðulögmálið virðist gilda í samn- ingum við ríkið, hvetjum við for- eldra og aðra aðstandendur fatlaðra að koma skoðunum sínum á fram- færi. SIGURBJÖRG DAN PÁLMADÓTTIR, forstöðuþroskaþjálfi. VERA SNÆHÓLM, yfirþroskaþjálfi B.ed. Afleiðingar hugsanlegs verk- falls þroskaþjálfa Frá Sigurbjörgu Dan Pálmadóttur og Veru Snæhólm:
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.