Morgunblaðið - 06.05.2001, Page 51

Morgunblaðið - 06.05.2001, Page 51
BRÉF TIL BLAÐSINS MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6. MAÍ 2001 51 Lið-a-mót FRÁ Apótekin Tvöfalt sterkara með GMP gæðastimpli 100% nýting/frásog H á g æ ð a fra m le ið sla EINS og ég drap á í bréfi mínu „Eru verkföll tímaskekkja?“ hafa verkföll almenns launafólks ekki skilað árangri til bættra kjara. Ár- angur hefur einungis náðst hjá þeim hópum sem hærra eru settir í launastiganum (líklega minna skuldsettir). Þeir hafa einnig þá að- stöðu að geta umsvifalaust lamað mikilvæga þætti þjóðlífsins. Sam- nefnari þeirra þátta er, að verkfalls- aðgerðir þeirra bitna harðast á fólki sem enga aðkomu á að deilunni. Má þar t. d. nefna; kennara, starfsfólk sjúkrastofnana, lögreglumenn, flug- umferðarstjóra og fleiri hópa sem álíka eru settir í þjónustuþætti þjóðlífsins. Aðferðir stéttarfélaga til öflunar kjarabóta fyrir félagsmenn sína hafa ekkert breyst í áratugi, þótt lífshættir fólks og rekstrarfyrir- komulag fyrirtækja hafi mikið breyst á sama tíma. Þetta hefur um langan tíma vakið mér undrun og hef ég lengi bent á leiðir sem far- sælli væru til árangurs, samhliða því að valda þjóðfélaginu minni skaða. Nýjar leiðir til kjarabóta Í núverandi fyrirkomulagi er þvælt saman í einn pakka atriðum er varða félagsleg réttindi. Eru það aðallega atriði er varða alla launa- menn svo sem; skattamál, heilbrigð- is- og tryggingamál, atriði er varða lög og reglur um aðbúnað á vinnu- stöðum, svo eitthvað sem nefnt. Öll slík atriði á að taka út úr kjara- samningum en vera tekið á í sam- eiginlegri nefnd allra stéttarfélaga, þar sem gagnaðilinn er hinn eig- inlegi viðsemjandi, ríkisstjórn og Alþingi. Útfærsla á ferli viðræðna getur verið í álíka farvegi og skýrt verður hér á eftir um ferli í kjara- samningum stéttarfélaga og at- vinnurekenda. Ferli samningsgerðar Gerð kjarasamninga milli stétt- arfélaga og atvinnurekenda lúti ákveðnum skýrum leikreglum, sem m.a. felist í eftirfarandi. 1. Þremur mánuðum fyrir lok samningstímabils sé stéttarfélagi skylt að leggja fyrir atvinnurekend- ur viðkomandi starfsgreinar kröfur sínar um breytingar á gildandi kjarasamningi. 2. Innan 14 daga frá afhendingu krafna stéttarfélaga skulu viðkom- andi atvinnurekendur hafa svarað erindinu, með skipulegri heildartil- lögu um breytingu á kjarasamn- ingnum. 3. Frá þeim tíma skulu aðilar skiptast á heildartillögum að nýjum kjarasamning á 7 daga fresti. Skal breyting frá síðustu heildartillögu vera að lágmarki ?% að mati rík- issáttasemjara. Uppfylli annar hvor aðilinn ekki skilyrði um framlagn- ingu nýrrar heildartillögu skoðast síðasta tillaga vera nýr kjarasamn- ingur. 4. Nýr kjarasamningur taki æv- inlega gildi frá og með fyrsta degi eftir lokadag síðasta kjarasamnings. 5. Náist ekki að ljúka nýjum kjarasamningi fyrir lok gildistíma fyrri samnings er ríkissáttasemjara heimilt að breyta tímalengd skila- frests nýrra heildartillagna og ákveða aðra prósentutölu sem breytingu frá fyrri tillögu. Slíka breytingu tilkynni ríkissáttasemjari samningsaðilum með 7 daga fyr- irvara. 6. Óski annar hvor samningsaðila eftir að funda með gagnaðila um málefni kjarasamningsins skal sá fundur haldinn hjá ríkissáttasemj- ara. Hann stýri fundi og bóki hjá sér helstu atriði sem fram koma á fundinum. Fundargerðina undirriti síðan báðir samningsaðilar. 7. Viðræðunefndir beggja aðila skulu vera jafn fjölmennar, skip- aðar 5-7 mönnum, þannig að allir nefndarmenn, að undanskildum tveimur frá hvorum aðila, skulu hafa beina tengingu við málefnið, þ.e. að vera launamaður eða stjórn- andi fyrirtækis í þeirri atvinnugrein er kjarasamningurinn fjallar um. Hér hefur í stuttu máli verið rak- in aðferðarfræði sem í flestum til- vikum myndi koma í veg fyrir verk- föll og tryggja reglubundið áframhald þróunar nýs kjarasamn- ings á síðustu þremur mánuðum þess samnings sem væri að renna út. Í svona stuttri grein er ekki hægt að tíunda öll smáatriði sem huga þarf að. Slíkt væri hægt að gera á undirbúningstíma nýrrar lagasetningar um gerð kjarasamn- inga. Vonandi verður sú vinna hafin sem fyrst, til hagsbóta fyrir þjóð- arheildina. GUÐBJÖRN JÓNSSON, Haukshólum 6, Reykjavík. Kjarabætur án verkfalla Frá Guðbirni Jónssyni: NÚ get ég ekki orða bundist leng- ur yfir þeirri vitleysu sem við sjó- menn látum yfir okkur ganga. Þetta verkfall sem nú er farið að ganga á annan mánuð fer sennilega fljótlega að taka enda og þá örugg- lega með lagasetningu enn og aft- ur. Í fullan áratug og rúmlega það hef ég hlustað á þessa fosvarsmenn sjómannasamtakanna koma í fjöl- miðla eftir lagasetningar og telja sig hlunnfarna af ríkisvaldinu og útgerðarmönnum sameiginlega. Það er nú kannski eitthvað til í þeirra rökum, að þeir séu ofurliði bornir og hafi engin svör við laga- setningum. En því má ekki gleyma að sjómannaforystan er í 10 ár búin að æða af stað með verðlagsmálin í fyrsta, öðru og þriðja sæti og þar af leiðandi hafa öll önnur mál setið á hakanum. Fyrir vikið eru samn- ingar sjómanna orðnir algerlega úreltir á mjög mörgum sviðum. En samt sjáum við þessa menn leggja úti í enn eina vonlausu brátt- una fyrir sama hlutnum og enn koma önnur mál einhvers staðar langt á eftir. Er ekki kominn tími til að þeir fari að hugsa um önnur og ekki síður mikilvæg mál og hvíla þetta verðlagsmál, því þeim er greinilega ofviða að semja um það eins og nú er? Er það ekki að verða sjálfsögð krafa sjómanna að þessir menn landi einu sinni samningi sjálfir? Það er svo auðvelt að segja alltaf nei og koma til sinna umbjóðenda sem hetjan er ekki gaf eftir. Þetta gengur ekki lengur, það liggur í hlutarins eðli að samningar breyt- ast með tímanum eins og allt ann- að. Við sjómenn hljótum að sjá að það er víða fáránlega yfirmannað á íslenskum skipum miðað við er- lendis. Við hljótum líka að sjá að til þess að okkar starfsgrein megi vaxa og dafna verða útgerðarmenn að geta hagrætt á móti auknum launakostnaði. Þannig er það í öll- um öðrum greinum, af hverju ekki okkar? Hins vegar er það algerlega óvið- unandi að lágmarkslaun sjómanna séu 85.000 kr. á mán og að menn séu ekki tryggðir almennilega við störf sín. Það er líka sanngirnismál að sjómenn fái sömu lífeyrissjóðs- hækkun og aðrir launþegar hafa verið að fá á undanförnum árum. En þetta eru mál sem menn væru fljótir að ná utan um ef hitt væri úr sögunni. Önnur verkalýðsfélög virðast hafa áttað sig á því að samningar snúast um það að báðir aðilar gefi aðeins eftir, en okkar ágætu félög eru greinilega ekki bú- in að átta sig á þessu og ég stað- hæfi það að vinna þessara manna síðustu árin er búin að stórskaða þeirra umbjóðendur. Þessir menn vita vel að verkfallinu verður lokið með lögum vegna þess að land sem byggir alla sína afkomu á fiskveið- um getur ekki látið flotann liggja við bryggju öllu lengur. Þá munu þeir koma aftur og segja: „Við gerðum það sem við gátum, en rík- ið er á bandi LÍÚ.“ Eigum við þá að fara aftur í verkfall að ári? Ég spyr, er það ekki lágmark að þessir menn hætti þessari vitleysu og fari að vinna sína vinnu og það með því að semja, en ekki að bíða eftir laga- setningu eins og þeir gera nú? Ég borga ekki í stéttarfélag af því að mér finnst gaman í verkfalli heldur af því að þeir eiga að semja fyrir mig; og samningar byggjast, eins og áður sagði, á því að báðir aðilar gefi eftir, ekki bara annar. Þessir menn eru búnir að sýna það að þeir eru vanhæfir í þetta starf. Þetta kann að hljóma eins og sé al- veg á bandi LÍÚ en svo er ekki. Ég get bara ekki krafið félag sem ég er ekki í um nokkuð; það er verk óánægðra útgerðarmanna. En ég get krafist þess, og geri það, að mínir menn, sjómannaforystan, fari að gera alvarlegar tilraunir til að semja. Það er hennar hlutverk, ekki að halda okkur í enn einu ár- angurslausu verkfalli! Og geti þeir það ekki þá verða þeir að víkja fyr- ir öðrum mönnum sem það geta. JÓNAS SIGMARSSON, Sólbrekku 5, Húsavík. Opið bréf til sjó- manna Frá Jónasi Sigmarssyni: FRÓÐLEGT er að fylgjast með um- ræðunni í grænmetismálum síðustu daga. Við spurningum um hátt verð- lag spígspora allir tengdir aðilar um víðan völl sem litla gula hænan og segja „ekki ég“, eða ekki benda á mig. Hér skal ekki lagt mat á hvenær verndartollar verða ofurtollar. Það er umdeilanlegt. Kanski duga vægir tollar ef annað umhverfi batnar. Gegn háu verði á grænmeti þarf að vinna. Það er hins vegar óbilgirni að krefjast afnáms verndartolla á ís- lensku grænmeti þegar liggur fyrir að sambærileg framleiðsla er ríkis- styrkt með tollum og styrkjum á heimavelli samkeppnislanda. Slíkt er einfaldlega ekki samkeppni á jafn- réttisgrundvelli. Nema menn vilji viðkomandi atvinnugrein feiga. Þá er gjarnan bent á sjávarútveg. Hann gengur án beinna styrkja sem betur fer. Þar er hins vegar í flestum fiski- stofnum takmörkuð auðlind, frekar vöntun á vöru sem selst á góðu verði um allan heim. Og margir vilja þessa atvinnu- grein purrkunarlaust út og telja það bestu lausn fyrir alla. Hér má nefna sem dæmi sjálfumglaðan, ágætan þáttastjórnanda, Egil Helgason, sem mætir reglulega í sviðsettar sam- ræður á Rás 2. Með dyggilegum já og amen spyrjandi spyrlum í grænmet- isumræðu nýlega var niðurstaðan giska einföld og hlæjandi afgreidd. Bændum má fórna. Í gegnum þessa umræðu er farið með reglulegu milli- bili en þetta sjónarmið á langt í land að hafa þingmeirihluta. Vegna hugs- anlegs afnáms verndartolla er rétt að minna landbúnaðarráðherra á þá staðreynd. Nú þegar hann er undir ofurþrýstingi innflytjenda, heildsala, kaupmanna, DV, síðdegisspjallara ásamt Jóni og Jóhannesi, æviráðnum „neitendakeisurum“. En hvað með almenning? Hefur hann risið upp og mótmælt? Það hef- ur farið fram hjá mér. Boðið var upp á þægilega „mótmælaleið“ á Netinu sem er hentugt fyrir þjóð sem nennir ekki í kröfugöngur lengur . Ekki fer miklum sögum enn af þátttöku. Er ekki hugsanlegt, þrátt fyrir all- an kattarþvottinn síðustu daga, að einhver af öllum þessum fjölda versl- ana beri sig illa. Það virðist líkt og dæmin sanna freisting að leggja hressilega á vöru þegar verðmyndun sveiflast líkt og pendúll upp og niður. Ekki endilega vegna tolla heldur sí- breytilegs framboðs og eftirspurnar innanlands sem erlendis. Sérstak- lega virðist auðvelt að lauma inn nokkurra tuga eða hundruða pró- senta álagningu í uppsveiflu. En af sanngirni skal þess getið að hátt verð er stundum tilkomið vegna áherslu verslana á hátt þjónustustig. Íslenskir neytendur kunna að meta gæði íslensks grænmetis þó að Jón Magnússon og fleiri hafi hæðst að slíku tali. Því miður duga gæðin vart ein og sér. Ætli ástæða verðs í hærri kantinum sé ekki staðan á hnettinum, veðurfar og dýr aðföng. Hátt verð getur hins vega aldrei ver- ið markmið bænda, aðeins að greinin sé lífvænleg og arðbær. Ástæður gæðanna eru margar en hér skal nefnt tvennt. Flestir nota lífrænar varnir. Notk- un eiturefna er lítil. Gúrkur og tómatar eru 80 – 90 % vatn. Drekkur fólk vatn úr krana á hótelum í Hollandi eða á Spáni? Finnst fólki þetta vatn (yfirleitt end- urunnið) betra en íslenskt lindar- vatn? Ef svarið er já finnst fólki án efa spænskir tómatar og hollenskar gúrkur betri en íslenskar. VALDIMAR GUÐJÓNSSON. Gaulverjabæ. Innlegg ofan í grænmetispottinn Frá Valdimari Guðjónssyni: KENNARAR við Suzukitónlistar- skólann í Reykjavík og Tónlistar- skóla Árbæjar senda frá sér eft- irfarandi ályktun: Tónlistarkennarar eru orðnir langþreyttir á stefnuleysi í launa- málum þeirra. Kennarar í tónlist- arskólum hafa dregist verulega aftur úr í launaþróun í samanburði við aðra kennara og launþega í landinu. Árið 1989 tóku sveitar- félögin alfarið við rekstri tónlistar- skólanna en áður höfðu ríki og sveitarfélög skipt milli sín kostnaði við reksturinn. Á þeim tíma voru launakjör tónlistarskólakennara sambærileg launakjörum fram- haldsskólakennara og grunnskóla- kennara með tvöfalt leyfisbréf. Sagt var að þessi breyting myndi ekki koma niður á kjörum þeirra. Nú eru byrjunarlaun tónlistar- skólakennara með kennararéttindi eða BA-próf í tónlist 102.020 krón- ur á mánuði! Tónlistarkennarar hafa að baki langt og sérhæft nám sem hefur útheimt mikla vinnu, tíma og peninga. Fjölmargar ástæður liggja að baki kröfu okkar um endurmat á launum. Þar má helst nefna: 1. Vinnutími tónlistarkennara hefur færst til með einsetningu grunnskóla. Mjög fáir kennarar geta leyft sér þann munað að vinna á morgnana og ljúka kennslu fyrir klukkan 17.00. Algengt er að vinnudagur byrji ekki fyrr en við lok skóladags hjá nemendum og standi langt fram eftir kvöldi. Einnig eru allir tónleikar, tónfund- ir, æfingar fyrir tónleika og próf, skipulags- og samstarfsfundir utan samfellds vinnutíma, iðulega á kvöldin og um helgar. 2. Kennarar þurfa að útvega hljóðfæri, nótur, upptökur og önn- ur gögn til nota við kennslu eða undirbúning kennslu 3. Í flestum skólum er aðstaða til undirbúnings kennslu afar bág- borin þannig að kennarar þurfa að koma upp aðstöðu heima hjá sér. 4. Í mörgum greinum er mjög takmarkað til af námsefni. Kenn- arar þurfa ýmist að semja eða staðfæra námsefni, jafnvel útsetja lög til samspils og hljómsveitar- vinnu. Tónlist er ríkur þáttur í allri menningu og daglegu lífi fólks. Á bak við alla tónlistariðkun liggur ómæld vinna. Rannsóknir sýna að tónlistarnám hefur jákvæð áhrif á almenna greind og þroska ein- staklingsins auk þess að vera mikilvægt forvarnarstarf, á borð við íþróttaiðkun og önnur áhuga- mál. Tónlistarkennarar telja að sú menntun sem þeir veita sé ekki síður mikilvæg en önnur grunn- menntun sem veitt er í þjóðfélag- inu og vilja að þeirra vinna sé met- in til jafns við aðra kennara. HILDIGUNNUR RÚNARSDÓTTIR, Njálsgötu 6, Reykjavík. Tónlistarkennarar langþreyttir Frá Hildigunni Rúnarsdóttur:

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.