Morgunblaðið - 17.05.2001, Page 4
FRÉTTIR
4 FIMMTUDAGUR 17. MAÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
VERKSMIÐJAN Kjötmjöl hf. í Ölf-
usi, sem framleiðir kjötmjöl úr slát-
urafgöngum dýra, hefur enn ekki
getað selt afurðir sínar eftir að bann
var sett á sölu kjötmjöls til skepnu-
fóðurs sl. vetur í kjölfar gin- og
klaufaveikifaraldurs í Evrópu.
Framleiðslu er haldið áfram á
minnstu afköstum.
Þorvarður Hjaltason, stjórnarfor-
maður Kjötmjöls, sagði við Morgun-
blaðið að erlendir markaðir fyrir
kjötmjöl væru bágbornir um þessar
mundir. Evrópumarkaður væri í
raun lokaður og eftir könnun í
Bandaríkjunum hefði komið í ljós að
verðið sem þar bauðst svaraði ekki
flutningskostnaði.
„Á þessum forsendum eru okkur
ekki margar leiðir færar að reka fyr-
irtækið. Það er ljóst að við þurfum að
fá niðurstöðu í okkar mál á næstu
vikum. Við getum ekki haldið lengi
áfram með þessum hætti. Við höfum
verið að skoða aðrar leiðir, einkum
innanlands,“ sagði Þorvarður.
Tilraun með áburð
fyrir skógarplöntur
Sem dæmi um leiðir innanlands,
sem Kjötmjöl er að skoða, má nefna
sölu til loðdýraræktar og áburðar
fyrir skógarplöntur. Verkefnið Suð-
urlandsskógar hefur sýnt því áhuga
að nota kjötmjöl til áburðar, sem tal-
ið er hafa marga kosti umfram tilbú-
inn áburð, og vill gera tilraun í þeim
efnum í samráði við RALA í sumar.
Þorvarður sagði að þetta verkefni
eitt og sér myndi ekki standa undir
rekstri Kjötmjöls heldur þyrfti
meira að koma til. Forráðamenn fyr-
irtækisins hafa rætt við landbúnað-
arráðherra og vonast eftir einhverri
niðurstöðu úr ráðuneyti hans á næst-
unni.
Rekstur
Kjötmjöls
hf. enn
í óvissu
SJÚKRALIÐAR sem starfa hjá
Landspítala – háskólasjúkrahúsi
fjölmenntu í gær í húsakynni ríkis-
sáttasemjara og afhentu þar for-
manni samninganefndar ríkisins
bréf sem stílað var á fjármálaráð-
herra, en í bréfinu er ráðherra hvatt-
ur til þess að gera allt sem í hans
valdi stendur til að leysa kjaradeilu
sjúkraliða við ríkið. Bréfið var einnig
sent heilbrigðisráðherra og þeim til-
mælum beint til hans að beita sér í
því að tryggja sjúkraliðum réttmæt-
ar kjarabætur.
Veruleg óánægja er meðal sjúkra-
liða vegna seinagangs í samningavið-
ræðum, en samningar hafa verið
lausir síðan í nóvember og aðeins
örfáir fundir verið haldnir í deilunni.
Eftir afhendingu bréfsins var fimmti
samningafundur sjúkraliða við ríkið
haldinn en staðan breyttist lítið og
hefur annar fundur ekki verið boð-
aður.
Trúnaðarmenn á Landspítalanum
boðuðu í gærmorgun til vinnustaða-
fundar til að fara yfir stöðuna og
mættu um 140 manns á fundinn. Af
þeim sökum voru fáir sjúkraliðar að
störfum á sjúkrahúsunum við Hring-
braut og í Fossvogi í gær, enda ráð-
gerðu sjúkraliðar að halda fundar-
höldum áfram fram á kvöld.
Hanna M. Geirsdóttir, aðaltrúnað-
armaður sjúkraliða á Landspítalan-
um við Hringbraut, sagðist ánægð
með mætingu sjúkraliða í fundinn.
„Við erum að ræða stöðuna í kjara-
málum, sem er eiginlega engin
vegna þess að þrátt fyrir að hafa haft
lausa samninga síðan í nóvember
höfum aðeins setið fjóra fundi og það
hefur ekkert komið út úr þeim nema,
ef eitthvað er, tilboð um launalækk-
un.“
Krafa um 150.000 króna
byrjunarlaun
Hún sagði sjúkraliða vilja mót-
mæla því sérstaklega að hafa þurft
að vera í sjö mánuði með lausa samn-
inga án þess að neitt sé gert í mál-
unum. Þá vilji sjúkraliðar bregðast
við fáliðun í stéttinni með því að
bæta kjörin, því sjúkraliðar hafi
dregist verulega aftur úr tilteknum
viðmiðunarstéttum. „Við auðvitað
mótmælum þessum hlægilegu laun-
um sem við erum að vinna fyrir, sem
valda því að engin nýliðun er í stétt-
inni. Við viljum bregðast við þessari
fáliðun í stéttinni með því að fá al-
mennar launabætur fyrir þá sem nú
þegar eru starfandi í stéttinni og til
þess að laða að nýtt fólk.“
Fulltrúaþing Sjúkraliðafélags Ís-
lands hefur samþykkt ályktun þar
sem sett er fram krafa um 150.000
króna byrjunarlaun. Að sögn Hönnu
eru lægstu laun sem nú bjóðast nýút-
skrifuðum sjúkraliða samkvæmt
kjarasamningi 76.000 krónur og síð-
an er það á valdi hvers vinnuveit-
anda hvort hann borgar betur. „En
ungir sjúkraliðar hafa allir minna en
100.000 krónur í mánaðarlaun með-
an þeir eldri skríða örlítið yfir
100.000. Ég fæ aldrei útborgað
meira en 90.000 krónur á mánuði og
er mjög ósátt við það,“ segir Hanna.
Sjúkraliðar mótmæla seinagangi í samningaviðræðum við ríkið
Án samninga í sjö mánuði
Morgunblaðið/Jim Smart
Hanna M. Geirsdóttir, trúnaðarmaður sjúkraliða, les upp bréfið til fjármálaráðherra fyrir Gunnar Björnsson,
formann samninganefndar ríkisins.
SPÆNSKA herskipið Arnomendi,
sem hefur eftirlit með veiðum á út-
hafskarfa utan íslenskrar land-
helgi, út af Reykjaneshrygg, liggur
nú við Reykjavíkurhöfn. Auk fjöru-
tíu manna áhafnar liðsmanna sjó-
hersins eru um borð tveir sérfræð-
ingar, annar á vegum
Evrópusambandsins en hinn á veg-
um spænska sjávar-
útvegsráðuneytisins. Um 300 skip
hafa leyfi Norðaustur-Atlants-
hafsfiskveiðinefndarinnar
(NEAFC) til að veiða á svæðinu og
eru allt að 60 skip við veiðar á degi
hverjum, frá Rússlandi, Spáni,
Portúgal, Grænlandi, Færeyjum,
Noregi, Lettlandi, Írlandi og fleiri
löndum.
Sérhvert ríki sem á aðild að
NEAFC fær úthlutað ákveðnum
kvóta og er hann ekki bundinn við
ákveðið veiðitímabil. Auk Arnom-
endi eru tvö önnur spænsk skip
sem sinna eftirlitinu, Chilreu og
Alborau. Um borð í Arnomendi eru
fullþjálfaðir liðsmenn sjóhersins og
þar af eru átta liðsforingjar og
hafa tveir þeirra hlotið lækn-
isþjálfun. Af skipverjunum fjörutíu
eru einungis tvær konur, læknir og
kokkur.
Skipið mun sinna eftirliti út af
Reykjaneshrygg út maímánuð en
þá kemur hingað breskt skip sem
leysir það af. Á skipinu er þyrlu-
pallur, skurðstofa og líkamsrækt-
arstöð.
Fylgst er með því hvort skipin á
veiðasvæðinu hafi tilskilin leyfi til
veiðanna, hvort veiðarfæri séu lög-
leg en leyfileg möskvastærð neta
þar er 10 mm. Þá er einnig fylgst
með því hvort skipin veiði umfram
kvóta og hvort aflinn sé rétt skráð-
ur í bækur. Sé um að ræða brot á
einhverjum þessara atriða til-
kynnir áhöfn Arnomendi brotið til
höfuðstöðvar NEAFC í Lundúnum
sem sér síðan um að gera viðeig-
andi ríki viðvart, segir Jaime
Golmayo, æðsti yfirmaður um borð.
Mjög mikið eftirlit er með veið-
um þeirra sem hafa kvóta frá
NEAFC. Sérhvert skip sendir upp-
lýsingar á sex klukkustunda fresti
um staðsetningu og er þessi til-
kynningaskylda sjálfvirk um sér-
stakt eftirlitskerfi. Hvern mánudag
á skipstjóri einnig að tilkynna eftir-
litsstöðinni í Lundúnum um heild-
arafla síðustu viku, miðað við afla
upp úr sjó, sundurgreindan eftir
tegundum.
Ástand karfans gott
Dietmar Meissner, eftirlitsmaður
ESB, segir að veiðarnar hafi verið
dræmar í ár. Hann segir þó að
ástand fisksins sé gott enda sé hann
á miklu dýpi, eða um 700 metra
dýpi. Fiskurinn sé stór og góður lit-
ur á honum. Auk Meissners er um
borð eftirlitsmaður frá spænska
sjávarútvegsráðuneytinu, Manuel
Rios.
Heildarkvóti Íslendinga er sá
sami og í fyrra eða 45 þúsund tonn.
Morgunblaðið/Golli
Arnomendi lagðist við Reykja-
víkurhöfn á sunnudag og lagði
úr höfn í gær.
Spænska herskipið Arnomendi hafði viðdvöl í Reykjavíkurhöfn
Hefur eftirlit með
úthafskarfaveiðum
Jaime Golmayo, yfirmaður
á Arnomendi.
VIGNIR Sveinsson lést af slysförum
í Svíþjóð mánudaginn 14. maí.
Vöruflutningabifreið sem Vignir
ók fór út af veginum rétt utan við
Jönköping en ekki er vitað um til-
drög slyssins. Talið er að hann hafi
látist samstundis.
Vignir fæddist 6. mars 1955. Hann
var fyrrverandi lögreglumaður og
starfaði sem ökukennari um áratuga
skeið. Hann fluttust nýlega til Sví-
þjóðar þar sem hann starfaði. Vignir
skilur eftir sig unnustu og sjö mán-
aða dóttur.
Vignir Sveinsson
Lést af slysför-
um í Svíþjóð
Louisa Matthíasdóttir 1917-2000.
Úr Reykjavík 75x55. © Erfingjar/Myndstef
Búnaðarbankans
Listgluggi
www.bi.is