Morgunblaðið - 17.05.2001, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 17.05.2001, Blaðsíða 12
FRÉTTIR 12 FIMMTUDAGUR 17. MAÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ ALÞINGI samþykkti á sjötta tím- anum í gærkvöldi frumvarp til laga um kjaramál fiskimanna og fleira, en með því er stöðvað með lögum verkfall sjómannafélaga og verk- bann útvegsmanna. Var frumvarpið samþykkt að við- höfðu nafnakalli með 33 atkvæðum gegn 20. Þingmenn Sjálfstæðis- flokks og Framsóknarflokks greiddu atkvæði með frumvarpinu en þingmenn Frjálslynda flokksins, Samfylkingarinnar og Vinstrihreyf- ingarinnar – græns framboðs auk Guðmundar Hallvarðssonar, Sjálf- stæðisflokki, greiddu atkvæði gegn því. Fjöldi þingmanna gerði grein fyr- ir atkvæði sínu. Árni M. Mathiesen sjávarútvegsráðherra sagði að ef lögin hefðu ekki verið með þessum hætti hefði skapast alger ringulreið í kjaramálum sjómanna og fisk- verðsmálum. „Það vita allir að sjómannaverk- fall á Íslandi getur ekki staðið óend- anlega. Þegar sjómannaverkfall hef- ur staðið tvöfalt lengur en það hefur lengst staðið síðustu tuttugu ár er nauðsyn á því að Alþingi grípi inn í til þess að verja þjóðarheill,“ sagði Árni og bætti við að þeir þingmenn sem áður og fyrr hafi staðið að laga- setningum í svipuðum tilfellum en mótmæli nú séu einungis að sýna tvískinnung. Hjálmar Árnason, Framsóknar- flokki, sagði að með samþykkt frum- varpsins væri verið að bregðast við pattstöðu í samskiptum útgerðar- manna og sjómanna. „Með sam- þykkt frumvarpsins er verið að höggva á hnút, koma í veg fyrir gjaldþrot margra fyrirtækja og heimila. Með samþykkt þess er ver- ið að koma í veg fyrir efnahagslegt öngþveiti hér á landi,“ sagði hann. Stjórnarandstæðingar gagnrýndu hins vegar lagasetninguna harðlega. Össur Skarphéðinsson, formaður Samfylkingarinnar, sagðist ekki geta stutt að LÍÚ nyti sjálfsaf- greiðslu í sjávarútvegsráðuneytinu og ekki heldur að rétti heillar starfs- stéttar til að grípa til vinnustöðv- unar væri mokað burtu. Steingrímur J. Sigfússon sagði ekki um að ræða lög heldur ólög og lýsti hann allri ábyrgð á hendur rík- isstjórninni og stjórnarmeirihlutan- um. Sagði hann að um væri að ræða mannréttindabrot og valdníðslu og sérstaklega væri gagnrýnivert að þeir sem ekki væru aðilar að deil- unni skuli samt sviptir grundvall- armannréttindum og stjórnarskrár- bundnum réttindum. Slíkt væri mikil óhæfa. Guðjón A. Kristjánsson, Frjáls- lynda flokknum, sagði um valdníðslu og óréttlæti að ræða af hálfu stjórn- valda, en eini stjórnarliðinn sem greiddi atkvæði gegn frumvarpinu, Guðmundur Hallvarðsson, Sjálf- stæðisflokki, sagði að um skeið hefðu báðir aðilar kjaradeilunnar litið til Alþingis vonaraugum. Út- gerðarmenn vonast eftir lögum, en sjómenn vonað að þau kæmu ekki. Sagði hann lagasetningu ekki leysa vandann sem uppi væri og áfram yrði því ósætti milli aðila. Fjögurra sólar- hringa ferli Frumvarpið var samþykkt fjórum sólarhringum eftir að það var lagt fram á sk. útbýtingarfundi sl. laug- ardag. Síðan hefur það tekið tvíveg- is efnislegum breytingum í meðför- um sjávarútvegsnefndar og í tvígang verið gerðar við það breyt- ingartillögur meirihluta nefndarinn- ar. Í gærmorgun stóð til að þriðja umræða um frumvarpið yrði fyrst á dagskrá, en þegar í ljós kom að framhaldsálit og breytingartillaga meirihlutans í sjávarútvegsnefnd voru ekki tilbúin, tók forseti Alþing- is önnur mál á dagskrá. Gagnrýndu fulltrúar stjórnarandstöðunnar mál- ið þá harkalega og sögðu tafirnar merki um hve fullkomið klúður frumvarpið og smíði þess væri. Umræðan hófst svo um miðjan daginn og þá mælti Einar K. Guð- finnsson, formaður sjávarútvegs- nefndar, fyrir álitinu og breyting- artillögu þess efnis að lögin nái til verkfalls Sjómannafélags Eyjafjarð- ar og aðildarfélaga Farmanna- og fiskimannasambands Íslands, auk verkbanns aðildarfélaga Landssam- bands íslenskra útvegsmanna gagn- vart aðildarfélögum Alþýðusam- bands Vestfjarða og Sjómannasam- bandsins. Einar K. Guðfinnsson sagði að staðan í kjaradeilu sjómanna væri óbreytt þótt Sjómannasamband Ís- lands hefði aflýst verkfalli í gær. Að- ildarfélög Farmanna- og fiski- mannasambandsins hefðu ákveðið að halda áfram verkfalli sínu og sama ætti við um Sjómannafélag Eyjafjarðar. Þá stæði verkbann að- ildarfélaga LÍÚ enn og hefði ekkert komið fram um að til standi að af- lýsa því, hvorki að hluta né í heild. Staðan í vinnustöðvuninni væri því óbreytt, skipin kæmust ekki á sjó og deilan um kjaramálin væri í jafn- miklum hnút og áður. Guðjón A. Kristjánsson, þingmað- ur Frjálslynda flokksins, sagði að þetta þýddi að allir sjómenn, utan félagar í Vélstjórafélagi Íslands, féllu undir gerðardóminn, sem frumvarpið gerir ráð fyrir. Með þessu væru stjórnvöld að ganga er- inda útvegsmanna sem væru farnir að beita verkbanni með nýjum hætti. Guðjón Arnar er í minnihluta sjávarútvegsnefndar, auk þeirra Svanfríðar Jónasdóttur og Jóhanns Ársælssonar. Árni Steinar Jóhanns- son er hins vegar áheyrnarfulltrúi í nefndinni og sem slíkur samþykkur áliti minnihlutans. Í áliti minnihlutans var málatil- búnaður stjórnvalda og þá einkum sjávarútvegsráðherra harðlega gagnrýndur og sagt að nú hefði komið í ljós að málið snerist ekki um að koma flotanum út á sjó, jafnvel þótt það hefði hingað til réttlætt af- skipti stjórnvalda af deilunni. „Þótt félög séu ekki í verkfalli, eins og aðildarfélög Alþýðusam- bands Vestfjarða, eða hafi aflýst verkfalli, eins og Sjómannasamband Íslands, virðist ríkisstjórnin reikna með að LÍÚ haldi áfram úti verk- banni á þau félög. Þannig virðist ríkisstjórnin ganga út frá því að LÍÚ muni varna því með verkbanni að flotinn komist á veiðar,“ segir í álitinu og bent á að þessi staða hafi orðið ríkisstjórninni tilefni til að setja alla sjómenn, utan vélstjóra, undir gerðardóm og gildi þá einu hvort félögin hafi verið í verkfalli eða ekki. „Þau skulu öll undir sama ,,lands- sambandsverðið“ og hin nýju mönn- unarákvæði sem er að finna í vél- stjórasamningnum og forskriftin er gefin fyrir í 2. gr. frumvarpsins. Þannig á sér stað sérstaklega nakin valdbeiting gagnvart Sjómannasam- bandinu sem aflýsti verkfalli til að geta samið sem frjálsir menn.“ Meirihlutinn á hæpnum forsendum Svanfríður Jónasdóttir benti í umræðunni á að sjávarútvegsráð- herra hefði lýst því yfir á Alþingi að ef aðili aflýsti verkfalli væri heldur ekki ástæða til gerðardóms eins og hann orðaði það við 1. umræðu málsins, enda yrði þá megintilgangi frumvarpsins náð og flotinn gæti farið aftur til veiða. Þetta hafi ráð- herrann svo endurtekið efnislega við 2. umræðu málsins þegar ljóst var að Sjómannasambandið hafði af- lýst verkfalli sínu, í góðri trú vegna yfirlýsinga sjávarútvegsráðherra. „Meirihlutinn er á afar hæpnum forsendum með málið allt. Þegar stjórnvöld telja sig knúin til að hafa afskipti af kjaradeilum er það lág- markskrafa að þau inngrip séu eins takmörkuð og nokkur kostur er, bæði að umfangi og tímalengd. Réttur launafólks til að semja um kaup og kjör er varinn í stjórnar- skrá Íslands og lögum um stéttar- félög og vinnudeilur. Alþingi Íslend- inga og íslensk stjórnvöld eru einnig bundin af samþykktum Alþjóða- vinnumálastofnunarinnar um félagafrelsi og verndun þess um réttinn til þess að semja sameig- inlega, auk þess að vera bundin af 11. gr. mannréttindasáttmála Evr- ópu. Þannig varinn telst kjarasamn- ingsrétturinn og rétturinn til þess að beita lögmætum aðgerðum til þess að knýja á um kröfur í kjara- deilu til helgustu mannréttinda launafólks og verkalýðshreyfingar,“ sagði Svanfríður. Lög á verkfall sjómanna og verkbann útvegsmanna samþykkt með 33 atkvæðum gegn 20 Morgunblaðið/Þorkell Ráðherrar greiða atkvæði á Alþingi í gær um lögin um kjaramál sjómanna. Frá vinstri: Björn Bjarnason, Sól- veig Pétursdóttir, Árni M. Mathiesen, Valgerður Sverrisdóttir og Jón Kristjánsson. Sjávarútvegsráð- herra segir verið að verja þjóðarheill EKKI fer á milli mála að annir eru framundan á Alþingi þegar dag- skrá 127. fundar, sem hefst kl. 10.30 í dag, er skoðuð. Alls eru 56 mál á dagskrá, þar af mörg stór- mál. Meðal þess sem á að ræða í 2. um- ræðu er frumvarp um sölu Lands- símans, lögleiðingu ólympískra hnefaleika, viðskiptabanka og sparisjóði, málefni útlendinga, al- mannatryggingar, breytingar á tollalögum (grænmetistollar), stofnun hlutafélags um Orkubú Vestfjarða og lax- og silungsveiði sem tekur til fiskeldis í sjó. Til 3. umræðu eru einnig fjöl- mörg mál, t.d. Seðlabanki Íslands og frumvarp um sölu hlutar ríkisins í Landsbanka og Búnaðarbanka. Annir framundan EFNAHAGSMÁL og áform stjórn- valda í stóriðjumálum voru í nokkr- um brennidepli í almennum stjórn- málaumræðum á eldhúsdegi á Alþingi í gærkvöldi. Nýsett lög á verkfall sjómanna settu aukinheldur svip á umræðuna, en ekki síður var áberandi hversu mjög forystumenn Framsóknarflokks og Vinstri hreyf- ingarinnar – græns framboðs beindu spjótum sínum hvor gegn öðrum. Árni M. Mathiesen sjávarútvegs- ráðherra hóf umræðuna fyrir Sjálf- stæðisflokkinn og kom fram í máli hans að vilji beggja stjórnarflokka er fyrir því að ýta undir frumkvæði og örva atvinnulífið með breytingum á skattakerfi. Þá sagði Árni að þegar frumvarp að lögum um verkfall sjó- manna hafi verið samið hafi verið komin skýr merki um neikvæð áhrif á efnahagslíf. Sjávarútvegsráðherra sagði að verkfallið hefði haft áhrif langt út fyrir raðir samningsaðila. Frést hefði af karfamörkuðum í Þýskalandi að viktoríukarfi hefði komið þar í stað íslensks fisks og ennfremur að birgð- ir freðfisks og saltfisks hér á landi væru uppurnar. Þá sagðist hann ótt- ast að menn gæfu sér fullmikið þegar þeir héldu að Íslendingar eigi alltaf afturkvæmt á markaði sem þeir hefðu vanrækt sökum verkfalls. Halldór Ásgrímsson, utanríkisráð- herra og formaður Framsóknar- flokksins, lagði áherslu á hagsæld síðustu ára og rakti upptökin m.a. til uppbyggingar stóriðju á Grundar- tanga og stækkunar járnblendiverk- smiðjunnar þar ásamt stækkun ál- versins í Straumsvík fyrir nokkrum árum. Við þetta hafi bjartsýni í sam- félaginu farið vaxandi. Hann sagði að áfram yrði að sækja í stóriðjumálunum. „Ef ekki er byggt álver á Austurlandi og álver á Grund- artanga stækkað eru stjórnvöld að bregðast íslensku þjóðinni,“ sagði Halldór. Samfylking vill stórauka fjárfestingar í menntakerfinu Bryndís Hlöðversdóttir, þing- flokksformaður Samfylkingarinnar, lagði áherslu á menntamál og sagði Samfylkinguna vilja stórauka fjár- festingar í menntakerfinu. Þá sagði Bryndís að tryggja þurfi jafnan að- gang allra landsmanna að mennta- kerfinu og það væri vilji Samfylking- arinnar að háskólanemar geti hafið nám einu eða tveimur árum fyrr en nú. Ögmundur Jónasson, þingflokks- formaður Vinstri grænna, sagði að ríkisstjónarrýtingur hafi verið rek- inn í bak sjómanna. Ögmundur sagði að ekki væri við sjómenn að sakast í kjaradeilunni heldur stjórnarmeirihlutann á Al- þingi, ríkisstjórnina og „sjálfa hús- bændurna í LÍÚ, því þeir skipa hér fyrir verkum“. Guðjón Arnar Kristjánsson, for- maður þingflokks Frjálslynda flokksins, fjallaði einnig um nýsett lög og gagnrýndi harkalega vinnu- brögð stjórnvalda, ekki síst að félög sem ekki hefðu verið í verkfalli og félög sem aflýst hefðu verkfalli væru sett undir gerðardóm. Kommarnir og Hollywood-liðið Fram kom í máli Guðna Ágústs- sonar landbúnaðarráðherra að Vinstri grænir væru gamalt vín á nýjum belgjum; þverklofinn flokkur með gömlum allaböllum og kommum og hins vegar Hollywood-liðinu. Árni Steinar Jóhannsson, VG, sagði hins vegar þakkarverðan hinn mikla áhuga og það væri merki um að Vinstri grænir væru verðugur and- stæðingur. Kallaði hann Framsókn taglhnýtinga sjálfstæðismanna og bætti Ögmundur Jónasson um betur og sagði formann Framsóknar- flokksins svo blindan að hann sæi ekkert annað en mengandi málm- bræðslur. Lokaorðin átti svo Ísólfur Gylfi Pálmason, Framsóknarflokki, sem sagði Vinstri græna eins og gamlan handsnúinn grammófón sem sífellt spilaði sama lagið; „Allir eru að gera það gott nema ég.“ Halldór Ásgrímsson við eldhúsdagsumræður í gærkvöldi Áfram verður að sækja í stóriðjumálunum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.