Morgunblaðið - 17.05.2001, Síða 6
FRÉTTIR
6 FIMMTUDAGUR 17. MAÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
GUÐNI Ágústsson landbúnaðarráð-
herra er ekki sáttur við niðurstöðu
þeirrar rannsóknar sem hann bað
Samkeppnisstofnun um að vinna um
verðmyndun innflutts grænmetis. Í
samtali við Morgunblaðið segir ráð-
herra skýrslu Samkeppnisstofnunar
vera ruglingslega og óljósa og hyggst
láta ráðgjafanefnd um inn- og út-
flutning landbúnaðarafurða krefja
stofnunina svara. Reiknað er með
fundi þessara aðila í dag eða á morg-
un, að sögn ráðherra.
Ráðgjafanefndin er skipuð fulltrú-
um fjármála-, viðskipta- og landbún-
aðarráðuneyta og hefur verið ráðgef-
andi um beitingu heimilda til
lækkunar á tollum frá því sem kveðið
er á um í lögum.
„Samkeppnisstofnun er að svara
spurningum sem ég spurði ekki um,
og við vissum svörin við, en í öðrum
tilfellum svara þeir alls ekki þeim
spurningum sem ég spurði þá um, til
dæmis um cif-verð grænmetisins og
hvernig verðið hefur þróast og
skipst. Mín ætlan var að kafað yrði til
botns í þessari verðmyndun. Ég vil fá
þetta miklu skýrar og fá svar við
mínum spurningum,“ segir Guðni.
Hagkaup hvetja Guðna til að
draga orð sín til baka
Framkvæmdastjóri Hagkaupa,
Finnur Árnason, fagnar niðurstöðu
skýrslu Samkeppnisstofnunar um
verðmyndun innflutts grænmetis en
segir það hafa vakið sérstaka athygli
sína að menn hafi ekki séð ástæðu til
að boða til blaðamannafundar um
niðurstöðuna líkt og gert hafi verið af
mörgum öðrum tilefnum. Skýrslunni
hafi verið laumað út.
„Skýrslan staðfestir með afger-
andi hætti að við fórum með rétt mál
hvað varðar verðmyndun á papriku
og landbúnaðarráðherra fór með
rangt mál. Tollar og hærri innkaups-
verð voru valdur að hækkuðu smá-
söluverði. Ég vil leggja sérstaka
áherslu á það að Hagkaup eru enn
eina fyrirtækið á smásölumarkaði
sem hefur lagt öll gögn um verð-
myndun á ávöxtum og grænmeti á
borðið til Morgunblaðsins. Ég bíð
eftir því og treysti því að ráðherra
dragi með jafneftirminnilegum og
áberandi hætti orð sín til baka um
85% álagningu á papriku. Ég vil
einnig bæta því við að skýrslan hrek-
ur það megininntak sem verið hefur í
málflutningi Morgunblaðsins í þessu
máli,“ segir Finnur.
SVÞ fagna rannsókninni
SVÞ – Samtök verslunar og þjón-
ustu sendu í gær frá sér yfirlýsingu í
tilefni af niðurstöðum rannsóknar
Samkeppnisstofnunar á verðmyndun
innflutts grænmetis. Þær leiði í ljós
að hækkun á grænmetisverði í mars-
mánuði síðastliðnum hafi að mestu
leyti stafað af álagningu tolla og
hærra innflutningsverði en ekki auk-
inni álagningu í verslunum. Rann-
sókninni beri að fagna því hún sé við-
leitni í þá átt að útskýra með hvaða
hætti verðmyndun á grænmeti eigi
sér stað.
SVÞ lýsa einnig yfir ánægju með
frumvarp, sem nú liggur fyrir Al-
þingi, þess efnis að landbúnaðarráð-
herra verði heimilt að lækka inn-
flutningstolla á grænmeti. Samtökin
telja þó að ganga hafi mátt lengra en
frumvarpið kveði á um.
„SVÞ hafa beitt sér fyrir afnámi
tolla og auknu gagnsæi í verðmynd-
un og telja að slíkar aðgerðir leiði til
lægra vöruverðs og meiri hvata til
aukinnar neyslu grænmetis. Í fram-
haldi af hugsanlegum tollalækkunum
vilja SVÞ að gripið verði til fleiri að-
gerða sem stuðli að heilbrigðara
starfsumhverfi þeirra sem framleiða
og selja grænmeti. Einungis þannig
verður réttlátum kröfum neytenda
fullnægt um lágt vöruverð á græn-
meti,“ segir m.a. í yfirlýsingunni.
Samtökin segjast hér eftir sem
hingað til ætla að beita sér fyrir
þarfri endurskoðun og breytingum á
verðmyndun grænmetis, neytendum
til hagsbóta.
Landbúnaðarráðherra ósáttur við skýrslu Samkeppnisstofnunar um grænmeti
Hyggst krefja stofn-
unina svara að nýju
Framkvæmdastjóri Hagkaupa
segir skýrsluna staðfesta sitt mál
Fylgst með
Keikó úr
þyrlu á
hvalaslóð
OCEAN Futures, samtökin
bandarísku sem hafa annast
Keikó hér við land, hyggjast
fylgja Keikó eftir við sunnan-
verðar Vestmannaeyjar í sum-
ar og hefur í þessum tilgangi
verið tekið á leigu nótaveiði-
skipið Gandí í Eyjum. Gandí
verður bækistöðin í þessu verk-
efni en jafnframt verður notuð
þyrla til að fylgja hvalnum eftir
og nokkrir smærri bátar.
Tilgangurinn með verkefn-
inu er sá að Keikó samlagist há-
hyrningavöðum sem eru á ferð-
inni í hafinu við sunnanvert
landið um þetta leyti árs.
Hallur Hallsson, talsmaður
Ocean Futures, segir að stefnt
sé að því að vera með Keikó
langdvölum á hvalaslóð. Hann
segir að mikil vinna hafi verið
lögð í það í fyrra að kortleggja
ferðir háhyrninga á þessum
slóðum. Þá var farið með Keikó
í 40 ferðir á haf út. Þá komst
hann í námunda við háhyrninga
15 sinnum og segir Hallur að
greinilegt hafi verið að sam-
skiptin urðu meiri því oftar sem
Keikó komst í tæri við aðra há-
hyrninga.
„Þetta gaf okkur fyrirheit
um að það takist að sleppa
Keikó út í villta náttúru. Nú
ætlum við að taka skrefið
lengra og vera á háhyrninga-
slóð og við vonumst til þess að
hann komist í námunda við há-
hyrninga og að hann samlagist
háhyrningavöðu,“ segir Hallur.
Hann segir að með þessu séu
samtökin að gera allt sem í
mannlegu valdi stendur til að
gefa háhyrningnum Keikó kost
á því að fara út í villta náttúr-
una á ný. Þeirri spurningu,
hvort þetta takist, verði svarað
í sumar.
Takist það ekki hafi Ocean
Futures undirgengist þær
skuldbindingar við íslensk
stjórnvöld að tryggja velferð
dýrsins.
ÞAÐ VAR kátt á hjalla á Barna-
spítala Hringsins í gær þegar leik-
arar úr söngleiknum Syngjandi í
rigningunni heimsóttu krakkana.
Það var Lionsklúbburinn Þór sem
stóð fyrir skemmtuninni en klúbb-
urinn hefur um skeið gefið leiksýn-
ingar á barnadeildir spítalanna.
Leiksýningarnar eru hugsaðar
sem viðbót við leikfangagjafirnar
sem Lionsmenn hafa látið af hendi
rakna mörg undangengin ár.
Leikararnir Stefán Karl Stef-
ánsson, Rúnar Freyr Gíslason og
Selma Björnsdóttir fluttu brot úr
sýningu Þjóðleikhússins og vakti
sýningin mikla lukku – bæði meðal
barnanna og líka hinna fullorðnu
sem ráku inn nefið til að njóta um
stund dans- og söngvatilþrifa lista-
mannanna. Sérstaklega þóttu
steppskórnir spennandi og eflaust
dreymir mörg barnanna um að
eignast slíka töfraskó. Rúmliggj-
andi sjúklingar fóru ekki heldur
varhluta af skemmtuninni þar sem
þau Rúnar, Selma og Stefán Karl
fóru inn á deildir til þeirra sem
komust ekki fram og töfruðu fram
gleðibros á hverju andliti.
Morgunblaðið/Sigurður Jökull
Stefán Karl fór á kostum í heimsókn þjóðleikhússleikara á Barnaspítala Hringsins.
Sungið
á sjúkra-
húsinu
ERFIÐLEIKAR hafa steðjað að
rekstri og efnahag Genealogia Is-
landorum, að því er kemur fram í
yfirlýsingu Tryggva Péturssyni,
stjórnarformanni fyrirtækisins.
Segir hann ástæðurnar margar og
slungnar, en helstar séu þær, að
forsendur áætlanagerðar fyrir út-
gáfu ættfræðibóka hafi ekki staðist
og ættfræðigrunnur á tölvutæku
formi hafi ekki enn komið að gagni
til rannsóknarstarfsemi í líftækni.
„Viðamikil almenn bókaútgáfa
fyrir sl. jól varð afdrifarík fyrir
félagið,“ segir í yfirlýsingunni.
„Rekstur félagsins fór kostnaðar-
lega úr böndum á sl. ári. Sölumál-
efni voru í óheppilegum farvegi.
Hlutirnir gerðust því ógnarhratt
á stuttum tíma og varð stjórn
félagsins staðan ekki ljós fyrr en í
óefni var komið. Tölvuupplýsinga-
kerfi, sem keypt var til félagsins,
virkaði ekki og gerir ekki enn.
Ársuppgjörið með
öðrum aðferðum
Ársuppgjör fyrir 2000 hefur und-
anfarnar vikur verið unnið með
öðrum aðferðum, og eru því ýmsar
fjárhagslegar stærðir fyrst að koma
fyllilega í ljós um þessar mundir.
Öllu starfsfólki félagsins var sagt
upp störfum um mánaðamótin nóv-
ember-desember á sl. ári. Ætlunin
var þá að hefja endurskipulagningu
samkvæmt ákveðinni áætlun
stjórnar félagsins. Þetta var ekki
gert.
Framkvæmdastjóra félagsins var
því m.a. þess vegna endanlega sagt
upp störfum. Ekki tókst að gera
starfslokasamning við útgáfustjóra
ættfræðibóka, sem jafnframt er
stærsti hluthafinn, fyrr en í apr-
ílbyrjun.
Starfsemin verður
í algjöru lágmarki
Stjórn félagsins ákvað síðan á
fundi sínum í gær, að starfsemin
yrði sett í algjört lágmark að svo
stöddu, og starfsfólki því tilkynnt,
að síðasti starfsdagur þess væri í
dag, a.m.k. þar til öll kurl verða
komin til grafar.
Stjórn félagsins og hluthafar
vinna að því öllum kröftum að finna
leiðir í vanda félagsins.
Páll Bragi Kristjónsson, við-
skiptafræðingur og bókaútgefandi,
hefur undanfarnar vikur verið ráð-
gefandi við málefni félagsins og
mun hann verða það um sinn með-
an allar hugsanlegar leiðir eru
kannaðar til hlítar.“
Erfiðleikar í rekstri
Genealogia Islandorum