Morgunblaðið - 17.05.2001, Qupperneq 13
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. MAÍ 2001 13
BRYNJÓLFUR Jóns-
son, skipstjóri, er látinn
102 ára að aldri, en
hann var einn af elstu
núlifandi Íslendingum.
Brynjólfur fæddist
þann 17. janúar 1899 að
Höfðabrekku í Mýrdal.
Hann lauk prófi frá far-
mannadeild Stýri-
mannaskólans í
Reykjavík árið 1921.
Brynjólfur var alls 38
ár til sjós, fyrst var
hann háseti og stýri-
maður á togurum og
síðar skipstjóri á síldar-
bátum. Í byrjun stríðsins sigldi hann
til Englands með fisk og var síðar
skipstjóri á bát sem var í flutningum
fyrir bandaríska herliðið milli
Reykjavíkur og Hvalfjarðar. Brynj-
ólfur hætti sjómennsku árið 1954 og
hóf þá störf hjá Ham-
ilton, bandarísku verk-
takafyrirtæki hjá
Varnarliðinu. Við
stofnun Íslenskra aðal-
verktaka hóf hann
störf þar sem birgða-
stjóri og starfaði hann
þar til ársins 1984, þá
var hann 85 ára.
Brynjólfur kvæntist
Marínu Sigríði Guð-
mundsdóttur árið 1932
en hún andaðist árið
1990. Brynjólfur átti
einn son, Svein Hilmar,
sem lést árið 1997, með
Svanhvíti Sveinsdóttur frá Vík.
Einnig átti hann tvö uppeldisbörn,
Brynjólf Má Sveinsson og Guðfríði
Ólafsdóttur, sem búsett er í Banda-
ríkjunum. Barnabörn hans eru fimm
og barnabarnabörnin sömuleiðis.
Andlát
BRYNJÓLFUR
JÓNSSON
FLESTAR deildir Háskóla Ís-
lands efna til eigin námskynninga
á næstu dögum. Að sögn Halldóru
Tómasdóttur, kynningarstjóra hjá
háskólanum, verða þessar kynn-
ingar smærri í sniðum en stóra
námskynningin sem var 1. apríl sl.
Kynningarnar fara fram í hús-
næði deildanna og sitja nemendur
og kennarar fyrir svörum. Hall-
dóra segir að þarna gefist gott
tækifæri fyrir þá sem komu á
stóru námskynninguna til að fá
svör við þeim spurningum sem
kunna að hafa vaknað.
Námsráðgjöf Íslands verður
einnig með almenna kynningar-
fundi um Háskóla Íslands frá 22.
maí til 6. júní í stofu 2 í aðalbygg-
ingu háskólans. Fyrsta náms-
kynningin verður hjá lagadeild nk.
föstudag og á mánudag kynnir
læknadeild sjúkraþjálfun og lækn-
isfræði, nk. þriðjudag verða heim-
speki- og guðfræðideild með kynn-
ingar, hjúkrunarfræði verður
kynnt 23. maí, lyfjafræðideild 29.
maí og félagsvísinda- og viðskipta-
og hagfræðideild 30. maí.
Nánari upplýsingar um náms-
kynninguna er að finna á heima-
síðu Háskóla Íslands, www.hi.is.
Námskynningar í
Háskóla Íslands
VINNUMARKAÐURINN er í
jafnvægi samkvæmt atvinnukönn-
un Þjóðhagsstofnunar og er þetta í
fyrsta skipti frá árinu 1996 sem at-
vinnurekendur vilja ekki bæta við
sig starfsfólki í aprílmánuði.
Fram kemur að breytingin sé
veruleg miðað við aprílmánuð á síð-
asta ári, en þá vildu atvinnurekend-
ur fjölga starfsfólki um rúmlega
600 á landinu öllu. Eftirspurnin eft-
ir vinnuafli er mest í byggingariðn-
aði, 0,6% af mannafla, og í ýmiss
konar þjónustustarfsemi eða 0,8%
að meðaltali á landinu öllu, en í
verslun, iðnaði og samgöngum vilja
atvinnurekendur fækka fólki um
0,2–0,3%.
Minni eftirspurn á
höfuðborgarsvæðinu
Fram kemur einnig að á höfuð-
borgarsvæðinu hafi eftirspurn eftir
vinnuafli minnkað verulega frá
sama tíma í fyrra. Þá vildu þeir
bæta við sig 900 manns eða um
1,6% af mannafla en nú vilja þeir
bæta við sig 160 manns sem er um
0,3% af mannafla. Áberandi var
mest eftirspurn í byggingariðnaði
eða 4,3% af mannafla, en atvinnu-
rekendur vildu fækka í verslun um
0,5% af mannafla. Áætlað er að eft-
irspurnin muni vaxa í sumar á höf-
uðborgarsvæðinu og að störfum
fjölgi þar um 1,5% fram á haustið.
Vilja fækka á
landsbyggðinni
Eftirspurn eftir vinnuafli fer hins
vegar minnkandi á landsbyggðinni
og vilja atvinnurekendur fækka
starfsfólki þar um 180 manns eða
0,5% af vinnuafli. Eftirspurnin hef-
ur aðeins einu sinni á síðustu tíu ár-
um mælst minni, en það var í apríl á
síðastliðnu ári, en þá var vilji til að
fækka um 320 manns. Ástæða
fækkunarinnar samkvæmt frétt
Þjóðhagsstofnunar er minnkandi
eftirspurn í atvinnugreinum eins og
byggingariðnaði eða um 2,0%, í öðr-
um iðnaði um 1,6% og í samgöngum
um 0,7%. Aukning mældist helst í
annarri þjónustu eða um 0,6%.
Samkvæmt könnuninni mun eftir-
spurn eftir vinnuafli á landsbyggð-
inni vaxa lítillega fram á haust.
Atvinnukönnun Þjóðhagsstofnunar
Vinnumarkað-
urinn í jafnvægi
FÉLAGAR í Þroskaþjálfafélagi Ís-
lands hafa samþykkt að boða til
verkfalls þann 1. júní nk. hjá þroska-
þjálfum sem starfa hjá ríki og sveit-
arfélögum. Einnig hafa þroskaþjálf-
ar sem starfa hjá Reykjavíkurborg
boðað til verkfalls á morgun. Kosið
var um verkfallsboðun hjá þroska-
þjálfum sem starfa hjá ríkinu og
sveitarfélögum í fyrrakvöld. Á kjör-
skrá voru 195 þroskaþjálfar sem
starfa hjá ríkinu og var verkfallsboð-
un samþykkt með öllum þeirra at-
kvæðum og 91% atkvæða þeirra 34
þroskaþjálfa sem kusu og starfa hjá
sveitarfélögum.
Þroskaþjálfar boða verkföll
STUART Rose gekk til liðs viðArcadia Group síðastliðið haustog hefur síðan gengið vasklega
fram í að snúa rekstri fyrirtækisins til
betri vegar. Þegar hann tók við rekstr-
inum hafði verð hlutabréfa í félaginu
lækkað mikið og daglegur rekstur var
orðinn mikill og flókinn.
Fyrirtækið er byggt á gömlum
grunni, rætur þess liggja allt til fyrri
hluta síðustu aldar, og var það upp-
haflega framleiðslufyrirtæki sem
framleiddi einkanlega fatnað fyrir
karlmenn. Eftir seinni heimsstyrjöld-
ina tók það aftur á móti að þróast út í
að reka verslanakeðjur með fatnað.
Að sögn Rose gekk vel framan af
en árið 1987 var fyrirtækið sameinað
Debenhams, sem rekur deildaskiptar
stórverslanir. Rekstur Debenhams
gekk illa á þeim tíma og Rose segir að
eftir sameininguna hafi mikil áhersla
verið lögð á að rétta rekstur Deben-
hams af. Því hafi annað í rekstri hins
sameinaða fyrirtækis ekki fengið
næga athygli stjórnenda og halla tók
undan fæti. Auk þess hafi verið sam-
dráttur í bresku efnahagslífi á árun-
um 1989 til 1990.
Fyrirtækinu skipt upp aftur
Í kjölfarið komu nýir stjórnendur
að fyrirtækinu, þar á meðal var Rose
sjálfur, og segir hann að árin 1990–
1996 hafi farið í að renna aftur styrk-
um stoðum undir fyrirtækið. Það fól í
sér að auka hagnað Debenhams-
verslananna og bæta jafnframt af-
komu vörumerkjakeðjanna sem þá
voru orðnar sjö eða átta talsins.
Árið 1997 var tekin ákvörðun um að
sundra fyrirtækinu aftur upp í tvö
sjálfstæð fyrirtæki, Debenhams og
Arcadia, og fékk Arcadia við þau
skipti allar vörumerkjakeðjurnar.
Rose sagði skilið við fyrirtækið í kjöl-
far þessarar ákvörðunar enda ekki
sáttur við sundrunina. Hann segir að
með þessu hafi átt að leggja meiri
rækt við uppbyggingu keðjanna og ná
fram samlegðaráhrifum á mörgum
sviðum. „Í hreinskilni sagt hefur það
ekki gengið eftir,“ segir Rose og telur
að meginástæðan sé að mikill þrýst-
ingur hafi verið á smásölugeirann
eins og sjá megi m.a. á gengi M&S og
Sears síðustu ár.
Hlutabréfaverðið lækkar hratt
Hann segir að á svipuðum tíma hafi
Arcadia bætt enn fleiri keðjum við
rekstur sinn og voru vörumerkjakeðj-
urnar þá orðnar 13 talsins. „Það sem
gerðist var að reksturinn varð of flók-
inn og vandamál sköpuðust við stjórn-
un og rekstur. Einnig átti fyrirtækið í
nokkrum fjárhagserfiðleikum þar
sem hagnaðurinn fór sífellt minnk-
andi og fyrirtækið var að stórum
hluta rekið með lánsfé,“ segir Rose. Í
kjölfarið fór gengi hlutabréfa í fyrir-
tækinu að gefa eftir og rýrnaði virði
þeirra verulega á tveimur árum. Að
sögn Rose var hlutabréfaverðið við
sundrun Arcadia og Debenhams árið
1998 um 408 pens en á síðasta ári fór
gengið lægst í 38 pens.
Þá var Stuart Rose kallaður til og
frá því að hann tók við rekstrinum í
nóvember sl. hefur hann hrint mikl-
um breytingum í framkvæmd. Síðan
hefur verð hlutabréfanna hækkað
mikið og var lokagengi þeirra í gær
273 pens. Trú fjárfesta á fyrirtækinu
virðist því vera að aukast enda gaf ný-
legt sex mánaða uppgjör þess tilefni
til bjartsýni.
450 verslunum lokað
og vörumerki seld
Rose segir að fyrsta mál á dagskrá
hafi verið að draga saman seglin og
reyna að hámarka möguleika vöru-
merkja fyrirtækisins. Þær aðgerðir
muni leiða til þess að í lok þessa árs
mun fyrirtækið hafa lokað 450 versl-
unum. „Kostnaðurinn sem af þessu
hlýst kemur til með að nema um 150
milljónum punda en þetta lækkar
grunnkostnað rekstrarins. Rekstrar-
kostnaður fyrirtækisins mun því í
raun lækka,“ segir Rose.
Hann segir að rekstur fyrirtækis-
ins hafi jafnframt verið orðinn allt of
flókinn enda rak það 13 vörumerkja-
keðjur. Því hafi verið ákveðið að fyr-
irtækið einbeitti sér að einungis sex
vörumerkjum en losaði sig við allt
annað og einfaldaði þannig rekstur-
inn til muna. Vörumerkin sex eru
Dorothy Perkins, Burton, Evans,
Wallis, Topshop/Topman og Miss
Selfridge.
Tvö þessara merkja eru ætluð
mjög breiðum hópi viðskiptavina,
Dorothy Perkins og Burton. „Þetta
eru mjög stór vörumerki með tísku-
fatnað fyrir drengi, stúlkur, karla og
konur á mjög góðu verði,“ segir Rose
og telur að mikill markaður sé fyrir
þessi merki. Dorothy Perkins segir
hann stórt vörumerki með góða
markaðshlutdeild og það sé í stöðugri
sókn. Um Burton-keðjuna segir hann
að hún sé orðin eina sjálfstæða keðjan
með karlmannafatnað á Bretlandi og
það skapi mikil tækifæri á þeim
markaði.
„Eigum unglingatísku-
bransann“
Verslanir Evans og Wallis eru sér-
verslanir. „Evans er ætlað stórum
konum sem nota frá stærð 18 og við
erum þeir einu í Bretlandi með slíkar
sérverslanir. Þetta er góður rekstur
og við ætlum okkur að þróa hann
áfram.“ Wallis-merkið er svipað stað-
sett og Dorothy Perkins en í svolítið
hærri gæða- og verðflokki.
Loks eru Topshop/Topman og
Miss Selfridge sem eru ætlaðar ungu
fólki. „Það má segja að við eigum ung-
lingatískubransann í dag. Topshop er
tískuverslun í forystu fyrir unglings-
stúlkur í Bretlandi og Topman gerir
það sama fyrir strákana. Miss Self-
ridge, sem við keyptum fyrir um ári,
er svo á aðeins annarri bylgju. Það er
fönkaðra, meira um ballföt og svolítið
beinskeyttara en Topshop.“
Rose segist telja að með því að ein-
beita sér að þessum sex vörumerkj-
um, að fá sem mest út úr þeim, geti
stjórnendur fyrirtækisins náð betri
tökum á rekstrinum.
Fjögur vörumerki seld saman
Nú stendur fyrir dyrum sala fjög-
urra vörumerkja sem Arcadia hefur
ákveðið að losa sig við. Þetta eru
vörumerkin Hawkshead, Racing
Green, Principles og Warehouse.
Vörumerkin fjögur verða, að sögn
Rose, öll seld saman til hóps stjórn-
enda hjá Arcadia, sem fer með rekst-
urinn út úr fyrirtækinu. Sá hópur hef-
ur frest til loka þessa mánaðar til að
fjármagna kaupin.
„Með því að selja þetta saman fáum
við hagræði af einni sölu í stað fjög-
urra auk þess sem nýja fyrirtækið
mun kaupa af okkur ýmsa þjónustu,
s.s. flutning og dreifingu. Þetta verð-
ur samt sem áður sjálfstætt fyrirtæki
enda seljum við vörumerkin og við
ætlum ekki að gefa þau.“
Rose vill ekki gefa upp söluverð
vörumerkjanna en segir að vel viðun-
andi verð fáist fyrir þau. Breski fjár-
málaheimurinn áætlar að verðið muni
nema um 20 milljónum punda en
Rose segir að það sé töluvert hærra.
Betri nýting fjármagns
Hvað lækkun skulda Arcadia varð-
ar segir Rose að ein leiðin sé betri
nýting fjármagns. „Við sjáum nú þeg-
ar fram á að geta sparað okkur 40
milljónir punda með betri nýtingu
fjármagns, sem þýðir að við höldum
fjármunum lengur í rekstrinum. Til
dæmis með lengingu greiðslufrests
hjá birgjunum okkar sem kemur til
með að skila okkur 40–50 milljónum
punda á tveimur árum.“
Hann nefnir einnig að margs konar
hagræðing í rekstri komi til með að
skila fyrirtækinu miklu. Nú þegar sjái
menn fram á að lækka rekstrarkostn-
að um fimm milljónir punda. „En
fyrst viljum við afgreiða hitt, stefnu-
mótunina, sölu vörumerkjanna og
aukna fjármagnsnýtingu. Við munum
því skoða kostnaðarliðina mun betur
þegar frá líður og án efa verður
sparnaðurinn talsvert meiri en 5
milljónir punda.“
Markaðurinn ekki
eins erfiður og af er látið
„Ég tel að smásölumarkaður í
Bretlandi sé ekki eins erfiður og af er
látið heldur hafi fyrirtækin ekki hald-
ið rétt á spilunum. Það eru aðeins 4–5
stórir aðilar á þessum markaði, það
eru auk okkar M&S, Bhs, Next og
Debenhams. Það er gott pláss fyrir
okkur þarna mitt á milli,“ segir Rose.
Hann segir Arcadia-vörumerkin sex
vera samtals í öðru sæti á eftir M&S í
markaðshlutdeild.
Um samstarf Arcadia við Baug,
sem nú á 20% hlut í Arcadia, segir
Rose að hann fagni því að starfa með
hluthöfum sem sýna áhuga á rekstr-
inum og eru jafnframt sjálfir í smá-
sölu. Stjórnendur fyrirtækjanna geti
sjálfsagt lært ýmislegt hver af öðrum.
Mikilvægasta tækifærið fyrir Arcadia
segir hann þó liggja í því að fá að
starfa með Baugi á alþjóðavettvangi í
stað þess að beina spjótum sínum ein-
göngu að breskum markaði. Sem
kunnugt er hefur Baugur verið sér-
leyfishafi Arcadia á Norðurlöndum og
Rose segir að jafnvel sé von á að sam-
starf fyrirtækjanna hvað sérleyfi
varðar verði enn meira. Of snemmt sé
þó að segja til um hvað verður.
Reksturinn var
orðinn of flókinn
Morgunblaðið/Þorkell
Síðan Stuart Rose tók við rekstri Arcadia hefur trú fjárfesta aukist á ný.
Baugur eignaðist nýver-
ið rúman 20% hlut í
breska fyrirtækinu Ar-
cadia Group, sem rekur
nokkrar keðjur tísku-
verslana. Soffía Har-
aldsdóttir hitti Stuart
Rose, forstjóra Arcadia,
að máli og fékk upplýs-
ingar um félagið.
soffia@mbl.is