Morgunblaðið - 17.05.2001, Qupperneq 18
AKUREYRI
18 FIMMTUDAGUR 17. MAÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
FRAMKVÆMDARÁÐ Akureyrar samþykkti á
fundi sínum í vikunni að taka tilboði SS Byggis í
framkvæmdir við Amtsbókasafnið. Um er að
ræða framkvæmdir við nýbyggingu safnsins,
breytingar á eldra húsnæði og frágang á lóð.
Alls bárust fimm tilboð og tvö frávikstilboð í
verkið og voru þau öll yfir kostnaðaráætlun. SS
Byggir bauðst til að vinna verkið fyrir rúmar 317
milljónir króna, sem er tæplega 105% af kostn-
aðaráætlun. Verktími er 2001-2004.
Ásgeir Magnússon formaður framkvæmdaráðs
sagði það vissulega tímamót að framkvæmdir við
safnið væru nú að hefjast og hann sagðist fagna
því. „Það hefur verið beðið lengi eftir því að bæta
aðstöðuna í safninu og þetta er ein af þeim menn-
ingarstofnunum bæjarins sem mest eru sóttar af
almenningi. Í safnið koma fleiri hundruð manns á
hverjum degi.“
Ásgeir sagði að tilboð SS Byggis væri heldur
yfir kostnaðaráætlun en að ákveðið hefði verið að
ganga að því. Aðspurður um hvort það hefði kom-
ið mönnum á óvart að öll tilboðin voru yfir kostn-
aðaráætlun, sagði Ásgeir að menn hefðu ekkert
endilega átt von á því, „en þetta er nokkuð flókin
bygging.“
14 ár frá því byrjað var
að hanna húsið
Við opnun tilboðanna á dögunum og sagt var
frá í Morgunblaðinu, kom fram hjá verktökunum
sem buðu í verkið að þarna væri um að ræða
nokkuð erfiða byggingu í framkvæmd, auk þess
sem gögn málsins hefðu ekki verið allt of auð-
skilin. Sigurður Sigurðsson, framkvæmdastjóri
SS Byggis, sagði jafnframt að það að gögnin
hefðu ekki verið nógu skýr, væri að hluta til skýr-
ingin á því að tilboðin voru öll yfir kostnaðar-
áætlun.
Ásgeir sagðist ekki geta sagt til um það en að
hins vegar hafi hönnuðir haft nægan tíma til að
ganga frá þessum gögnum. „Það eru 14 ár síðan
byrjað var að hanna húsið og hönnuðirnir höfðu
eitt og hálft ár frá því að við settum verkið af stað
á nýjan leik og þar til gögnin voru tilbúin. Þannig
að tímaskortur hefði ekki átt að há þeim.“
Tilboði SS Byggis í framkvæmdir við Amtsbókasafnið tekið
Lengi verið beðið eftir því
að bæta aðstöðuna í safninu
ÁVEITAN í Sandgerði og Bygg-
ingaráðgjafinn í Garðabæ fengu út-
hlutað sitt hvorum raðhúsareitnum á
nýju byggingasvæði við Klettaborg á
Akureyri, en þessi félög voru þau
einu sem sóttust eftir þessum bygg-
ingareitum. Alls er um að ræða
svæði með 36 raðhúsaíbúðum.
Á fundi umhverfisráðs í gær var
einnig úthlutað tveimur bygginga-
reitum við Lindarsíðu, en á hvorum
reit fyrir sig verður rými fyrir 45–60
íbúðir. Reitunum var úthlutað til
Byggingafyrirtækjanna Hyrnu og
SS-Byggis. Alls sóttu 10 bygginga-
fyrirtæki um þessa reiti.
Heimamenn sniðgengu
reitina við Klettaborg
Vilborg Gunnarsdóttir formaður
umhverfisráðs sagði það vissulega
valda vonbrigðum að heimamenn
hefðu sniðgengið þá byggingareiti
sem til úthlutunar voru við Kletta-
borg. Hún sagðist hafa heyrt af
óánægju meðal þeirra með skipulag
svæðisins, en þó hefði enginn þeirra
gert athugasemdir við skipulagið á
þeim tíma sem upp á slíkt var boðið.
Vegna hins mikla áhuga sem
byggingaverktakar hefðu hins vegar
sýnt á reitunum við Lindarsíðu þar
sem mun færri fengu en vildu hefði
verið bókað á fundi ráðsins að skoða
strax möguleika á að gera bygging-
arhæf viðbótarsvæði austan Glerár-
kirkju frá Arnarsíðu og eins sunnan
Reynilundar.
„Byggingaverktakar hafa klárað
að byggja á þeim svæðum sem þeir
hafa mun fyrr en áætlanir þeirra
gera ráð fyrir og því þurfum við að
spýta í og útbúa ný svæði með meiri
hraði en menn kannski áttu von á,“
sagði Vilborg.
Nýtt fyrirkomulag við úthlutun
Umhverfisráð hefur einnig úthlut-
að 19 einbýlishúsalóðum við Kletta-
borg, en ný aðferð var viðhöfð við út-
hlutunina að þessu sinni. Alls barst
31 umsókn um þessar 19 lóðir og var
fyrirkomulagið með þeim hætti að
umsækjendur mættu á fund ráðsins
og fengu þar númer. Síðan var dreg-
ið með bingóvél eitt númer og fékk
sá er það hafði að velja fyrstu lóðina
og síðan koll af kolli. Vilborg sagði að
almenn ánægja hefði verið með þetta
fyrirkomulag og þeir sem ekki fengu
lóðir í þetta sinn hefðu haft á orði að
ekki væri hægt að vera svekktur, því
aðferðin hefði verið réttlát.
Lóðum úthlutað við Klettaborg og Lindarsíðu
Heimamenn bitust
um Lindarsíðu en
sniðgengu Klettaborg
HJÓNIN Jakobína og Haraldur
nota tímann frá vori og fram á
haust til að róa á skektu sinni um
Pollinn og falla fáir dagar úr.
Veðrið hafði leikið við Akureyr-
inga og þau Jakobína og Har-
aldur voru búin að koma trillunni
á flot og byrjuð að dóla sér á
Pollinum.
„Ég held hún heitir Ringó,“
sagði Jakobína spurð um heiti
trillunnar. Þau voru að ganga frá
eftir róður dagsins þegar Morg-
unblaðið hitti á þau en Jakobína
sagði eitthvað af þorski á sveimi
og eins hefðu þau orðið vör sil-
unga. „Við sáum hann vaka svona
hingað og þangað,“ sagði hún.
Róa um Pollinn á góðviðrisdögum
ÁKVEÐIÐ var á aðalfundi Akureyr-
ardeildar Vinstrihreyfingarinnar –
græns framboðs í fyrrakvöld að bjóða
fram lista við sveitarstjórnarkosning-
arnar á Akureyri á næsta ári.
Ný stjórn var kosin á fundinum, en
hana skipa Valgerður Jónsdóttir,
Kristín Sigfúsdóttir, Jóhannes Árna-
son, Björn Vigfússon og Guðmundur
Ármann. Var nýrri stjórn falið að
vinna að framboðsmálunum.
„Við finnum fyrir miklum stuðningi
og það hafa margir haft við okkur
samband og hvatt okkur til að bjóða
fram og við erum hörð á að gera það,“
sagði Valgerður.
Hún sagði að þess yrði ekki langt
að bíða að farið yrði að ræða málefni
og áherslur varðandi framboðið, en
hvað væntanlega frambjóðendur
varðar sagði hún nægan tíma til
stefnu. „En við höfum úr stórum hópi
frambærilegs fólks að velja,“ sagði
Valgerður.
Í þjóðmálakönnun Rannsóknar-
stofnunar Háskólans á Akureyri sem
gerð var í síðasta mánuði kom fram að
Vinstri-grænir nutu stuðnings 15,5%
þeirra sem þátt tóku í könnuninni og
fengju tvo menn kjörna í bæjarstjórn.
Vinstri-
grænir
bjóða fram
á Akureyri
Sveitarstjórnar-
kosningar næsta vor
SAMNINGANEFND Starfs-
mannafélags Akureyrarbæjar bíður
þess að setjast að samningaborðinu
með launanefnd sveitarfélaga að
nýju. Eins og fram hefur komið
felldu félagsmenn STAK, sem vinna
hjá Akureyrarbæ, kjarasamning
þann sem skrifað var undir við
launanefndina fyrr í vetur.
Arna Jakobína Björnsdóttir for-
maður STAK sagði að vilji væri til
þess innan félagsins að setjast að
samningaborðinu á ný og freista
þess að ná viðunandi samningi, áður
en farið yrði að huga að einhverjum
aðgerðum, eins og t.d. verkfalli.
Hins vegar væri verulegur pirringur
í félagsmönnum, sem hafa verið
samningslausir frá áramótum. „Tím-
inn er að hlaupa frá okkur og við get-
um því ekki beðið mikið lengur.“
Allsherjaratkvæðagreiðslu
þarf um verkfall
Arna Jakobína sagði að launa-
nefndin ætti í samningaviðræðum
við aðra aðila og því væri óvíst hve-
nær hægt yrði að funda með samn-
inganefnd STAK á Akureyri.
Hún sagði að STAK væri ekki
félag sem gæti tekið ákvörðun um
verkfall á einum félagsfundi.
„Ákvörðun um verkfall þarf að fara í
allsherjaratkvæðagreiðslu, þar sem
helmingur félagsmanna þarf að taka
þátt og helmingur þeirra að sam-
þykkja verkfall. Það þarf því að und-
irbúa slíkar aðgerðir nokkuð vel.“
Alls starfa um 320 félagsmenn
STAK hjá Akureyrarbæ.
Félagsmenn í STAK
hjá Akureyrarbæ
enn samningslausir
„Tíminn er
að hlaupa
frá okkur“
SÍÐASTI fyrirlestur vetrarins hjá
Samhygð verður n.k. fimmtudags-
kvöld kl. 20.00 í Safnaðarheimili
Akureyrarkirkju. Þá mun sr. Gunn-
ar Rúnar Matthíasson sjúkrahúss-
prestur flytja fyrirlestur er hann
nefnir Sorgin og sumartíminn.
Sumartíminn reynist mörgum
syrgjandanum erfiður. Sumarleyf-
isferðir og sumarbústaðir kalla á
glaðværð og bros, sem oft getur
verið djúpt á hjá þeim sem nýlega
hafa misst.
Sr. Gunnar Rúnar mun ræða
leiðir fyrir syrgjandann til að tak-
ast á við þennan tíma og vinna með
sínar tilfinningar. Sr. Gunnar Rún-
ar Matthíasson hefur fjölþætta
menntun frá Bandaríkjunum á sviði
sálgæslu og starfar nú á Sjúkrahúsi
Reykjavíkur og kennir sálgæslu við
guðfræðideild Háskóla Íslands Að
fyrirlestri sr. Gunnars Rúnars lokn-
um verða kaffiveitingar og almenn-
ar umræður.
Samhygð vill hvetja sem flesta til
að koma á þennan fyrirlestur og fá
stuðning og leiðsögn í sinni tilfinn-
ingavinnu. Fyrirlesturinn er öllum
opinn.
Rætt um sorg og sumar
FERÐAFÉLAG Akureyrar býður
upp á fuglaskoðunarferð á laugar-
daginn, 19. maí.
Farið verður um Krossanesborg-
ir, þar sem er mikið og fjölbreytt
fuglalíf. Brottför kl 10:00 frá Strand-
götu 23. Fararstjóri verður Sverrir
Thorstensen og ferðin tekur 2-3
tíma. Skrifstofan er opin á föstudag-
inn milli kl 17:30 og 19:00, s. 462
2720.
Ferðafélag Akureyrar
Fuglaskoð-
unarferð
♦ ♦ ♦
Morgunblaðið/Kristján