Morgunblaðið - 17.05.2001, Page 19
HJARTAVERND
❤
AUGLÝSING
www. hjarta.is
Hjartavernd Lágmúla 9 108 Reykjavík S. 535 1800 Minningarkortaþjónusta s. 535 1825 Samantekt: Ástrós Sverrisdóttir, fræðslufulltrúi
Bón- og þvottastöðin, Sóltúni 3 Akureyrarbær Optíma Starfsmannafélag ríkisstofnana
Verzlunarmannafélag Reykjavíkur
❤AÐALFUNDUR HJARTAVERNDARAðalfundur Hjartaverndar verður haldinn í dag, 17. maí, í húsnæði Hjartaverndar aðLágmúla 9, 6. hæð, kl.16.15.
Fundarefni:
Venjuleg aðalfundarstörf.
Vilmundur Guðnason, forstöðulæknir
Hjartaverndar, flytur yfirlitserindi um
fyrirhugaða öldrunarrannsókn
Hjartaverndar.
Stjórnin
Þekkir þú áhættuþætti hjarta- og æðasjúkdóma?
Forðastu þá! Hjartavernd gefur út bæklinga í ritröð þar sem fjallað er um hvernþekktan áhættuþátt hjarta- og æðasjúkdóma. Stuðst er við niðurstöðurúr rannsóknum Hjartaverndar. Fyrstu tveir sem komnir eru út hafa fengiðfeiknagóðar viðtökur. Eintök fást gefins á skrifstofu Hjartaverndar.
Pantanir eru einnig afgreiddar í gegnum tölvupóst á astros@hjarta.is
OFFITA
Taktu hana alvarlega ...
Þriðji bæklingurinn í þessari ritröð kemur út í maí 2001.
Hóprannsókn Hjartaverndar hefur staðfest að offitu fylgja auknar
líkur á hjarta- og æðasjúkdómum. Offita hefur einnig skaðleg áhrif á
aðra áhættuþætti hjarta- og æðasjúkdóma eins og háþrýsting, sykursýki og
blóðfitu. Hjá miðaldra karlmanni sem þyngist um 10 kílógrömm eykst
áhættan á að fá kransæðasjúkdóm um 20–30%. Það er því ekki að
ástæðulausu að skilaboð Hjartaverndar eru þau að fólk taki offitu alvar-
lega. Spyrna verði við þeirri þróun, sem sést af gögnum Hjartaverndar, að
þjóðin sé að fitna. Bent er á raunhæfar leiðir til að snúa þeirri óheillaþróun
við. Bæklingnum verður dreift í lok maí, m.a. á heilsugæslustöðvar, læknastofur og víðar.
Tekið er á móti pöntunum í Hjartavernd í s: 535 1800 og með tölvupósti: astros@hjarta.is
Þú getur haft áhrif á
kólesterólgildi þitt!
„Heilsusamlegt mataræði og regluleg
hreyfing hafa jákvæð áhrif á kólesteról.
Reykingar hafa ekki bein áhrif á heildar-
magn kólesteróls en magna verulega upp
skaðleg áhrif þess. Slepptu því alfarið
reykingum. Þú getur sjálfur/sjálf haft veru-
leg áhrif á kólesterólgildið þitt.“
Heimild: Þekkir þú þitt kólesteról ...
Útg. Hjartavernd, september 2000.
Það er aldrei of seint að hætta!
Það borgar sig alltaf!
„Niðurstöður rannsókna Hjartaverndar
hafa sýnt fram á að meðal þeirra sem
hættu að reykja, á hvaða aldri sem er,
minnkar hættan á að fá hjarta- og æða-
sjúkdóm verulega. Fólk sem fengið hefur
kransæðastíflu og reykir fær hana síður
aftur ef það hættir að reykja. Því fyrr sem
hætt er að reykja, þeim mun betra.“
Heimild: Reykingar, dauðans alvara.
Útg. Hjartavernd, mars 2000.
styrkir afkomendarannsókn HjartaverndarXY
Z
E
T
A
/S
ÍA