Morgunblaðið - 17.05.2001, Page 23
LANDIÐ
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. MAÍ 2001 23
MOSATÆTARAR
- SEM VIRKA -
Þar sem garðáhöldin fást
verslunarmiðst. Eiðstorgi,
sími 552 3970.
Stretchbuxur
St. 38–50 - Frábært úrval
VEFSÍÐAN www.west.is verður
opnuð fimmtudaginn 24. maí kl.
14.00 en hún er á vegum Upplýsinga-
og kynningamiðstöðvar Vesturlands
við Brúartorg í Borgarnesi.
Það er Guðrún Bergmann, for-
maður Ferðamálasamtaka Vestur-
lands og stjórnarmaður í UKV, sem
mun formlega opna vefsíðuna. Ís-
lensk upplýsingatækni í Borgarnesi
hefur séð um vinnslu vefjarins ásamt
framkvæmdastjóra UKV, Hrafnhildi
Tryggvadóttur, Ingu Huld Sigurðar-
dóttur ferðamálafulltrúa Vestur-
lands og Guðrúnu Bergmann. Á
vefnum er að finna upplýsingar um
ferðaþjónustu á svæðinu, auk upp-
lýsingasíðna um náttúru, sögu og
menningu svæðisins. Í framtíðinni
verður tölva í afgreiðslu UKV þar
sem ferðamönnum gefst kostur á að
skreppa á vefinn gegn vægu gjaldi.
Stjórn og starfsfólk UKV vonast til
að sem flestir sjái sér fært að líta við
og fylgjast með opnun vefjarins. Ef
veður leyfir verður farið í stutta
gönguferð með leiðsögn um gamla
bæinn í Borgarnesi. Í tilefni opnun-
arinnar býður UKV gestum að koma
við og þiggja kaffisopa og meðlæti að
hætti Geira bakara.
Ný vefsíða
um Vestur-
land opnuð
Borgarnes