Morgunblaðið - 17.05.2001, Page 25
LANDIÐ
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. MAÍ 2001 25
Útsölustaðir: Hygea Kringlunni, Hygea Laugavegi,
Nana Hólagarði, Hjá Maríu Amaro, Hjá Maríu
Glerártorgi, Hagkaup Kringlan, Hagkaup Smárinn,
Hagkaup Skeifan, Miðbær Vestmanneyjum.
Nýr glæsilegur ilmur
SUNNUDAGASKÓLAR frá Fella-
bæ, Egilsstöðum, Seyðisfirði og
Fjarðarbyggð komu saman nýlega í í
Kirkjumiðstöðinni á Eskifirði til að
slíta vetrarstarfinu og er þetta í
fyrsta skipti sem þetta er gert. Það
var byrjað inni í kirkjunni með söng
og bænum. Eftir það var boðið upp á
pylsur og djús, og krakkarnir fóru í
leiki í góða veðrinu og skemmtu allir
sér mjög vel og fóru glaðir heim.
Vetrarstarf-
inu slitið
Eskifjörður
Morgunblaðið/Benedikt Jóhannsson
FLJÓTLEGA eftir að krían sést á
hverju vori hefjast víðavangshlaup
ungmennafélagsins Fram á Skaga-
strönd. Þrisvar sinnum eru hlaupnir
sprettir um götur bæjarins og er
keppt í nokkrum aldursflokkum.
Samanlagður árangur úr sprettun-
um þremur ræður síðan úrslitum um
sigur í víðavangshlaupi Fram það
vorið. Þátttaka í elstu flokkunum er
því miður ekki mikil en því meiri í
yngstu flokkunum. Þar má líka segja
að hver keppandi leggi allt í sölurnar
til að ná árangri og finnst þá sumum
ágætt að skríða upp í fangið á pabba
eða mömmu eftir að hlaupinu lýkur.
Fyrsta hlaupið á þessu vori fór fram
12. maí í blíðskaparveðri undir
styrkri stjórn Lárusar Ægis Guð-
mundssonar sem hefur stjórnað
þessum uppákomum hjá Fram í
mörg ár af mikilli röggsemi.
Víðavangs-
hlaup Fram
Skagaströnd
Morgunblaðið/Ólafur Bernodusson
AGE FITNESS
Áhrifaríkur kraftur ólífutrjáa - Yngri húð á 8 dögum.
Kynning í dag og á morgun
Kynnum m.a. Age Fitness, nýtt krem sem eykur
teygjanleika húðarinnar og verndar hana gegn
utanaðkomandi áreiti. Age Fitness inniheldur hreint efni
unnið úr laufblöðum ólífutrjáa. Áferðin og ilmurinn eru frábær.
Líttu við og fáðu ráðgjöf og sýnishorn.
Strandgötu 32
sími 555 2615