Morgunblaðið - 17.05.2001, Síða 30
ERLENT
30 FIMMTUDAGUR 17. MAÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
JOSCHKA Fischer, utanríkis-
ráðherra Þýskalands, og Carol
Bellamy, framkvæmdastjóri
Barnahjálpar Sameinuðu þjóð-
anna (UNICEF), fyrir framan
veggspjald með myndum af hönd-
um barna í Berlín í gær. Þar
stendur fyrir dyrum Heims-
ráðstefna barna (World Children’s
Conference) og munu sækja hana
fulltrúar frá Evrópu og Mið-Asíu.
Er þessi ráðstefna liður í und-
irbúningi fyrir barnaheimsþing
sem haldið verður í New York 19.
til 21. september nk.
Reuters
Ráðstefna um börn
FLUGVÉLAR Atlantshafs-
bandalagsins (NATO) voru
reiðubúnar til að fljúga um
sænska lofthelgi á tímum kalda
stríðsins og virða með því að
vettugi hlutleysisstefnu Svía
og sjálfstæði, samkvæmt nið-
urstöðum rannsóknar sem
norska varnarmálaráðuneytið
greindi frá í vikunni. Segja höf-
undar rannsóknarinnar að þótt
hún hafi ekki beinst að Svíþjóð
sérstaklega hafi komið skýrt í
ljós að NATO hafi reitt sig á að
geta flogið um sænska lofthelgi
án þess að vélar þess yrðu
skotnar niður. Höfundarnir
hafa fínkembt skjalasöfn
NATO og skjalasöfn í Noregi
undanfarin þrjú ár.
N-Kórea
hótar að rifta
samningi
NORÐUR-Kóreumenn hótuðu
í gær eina ferðina enn að
standa ekki við samning sinn
við Bandaríkjamenn, sem
koma á í veg fyrir að N-Kórea
geti komið sér upp kjarna-
vopnum. Í tilkynningu sem
„gefin var út að fengnu leyfi“,
að því er opinbera n-kóreska
fréttastofan sagði, kom fram
að tafir á byggingu kjarnorku-
vers í Pyongyang geti orðið til
þess að landið virði að vettugi
samninginn sem gerður var
1994. Samkvæmt samningnum
ætluðu Bandaríkjamenn að
leyfa að alþjóðleg samsteypa
sæi N-Kóreu fyrir fjármagni
og tækni til að byggja tvo
kjarnaofna.
Tíu í fram-
boði í Íran
YFIRKJÖRSTJÓRN í Íran
birti í gær endanlegan lista yfir
þá sem verða í framboði til for-
seta í kosningunum sem fram
fara í landinu í næsta mánuði.
Geta kjósendur þá valið á milli
Mohammads Khatamis, núver-
andi forseta, og níu annarra
frambjóðenda, að því er opin-
ber fréttastofa landsins
greindi frá. Yfirkjörstjórnin
fækkaði frambjóðendum úr
814 í tíu. Hún útilokaði enn-
fremur allar konur sem hugð-
ust bjóða sig fram, en rúmlega
tuttugu konur höfðu tilkynnt
framboð sitt. Meðal þekktustu
nafnanna á listanum eru Ali
Shamkhani, sem er nú varnar-
málaráðherra, og Ali Fallahi-
an, fyrrverandi upplýsingaráð-
herra. Báðir hafa þeir tengsl
við harðlínuflokksbrot undir
forystu andlegs leiðtoga lands-
ins, Ayatollah Ali Khamenei.
Fundin sek
um morð
FYRRVERANDI aðstoðar-
kona hertogaynjunnar af York
var í gær fundin sek um að
hafa myrt unnusta sinn, og var
dæmd í ævilangt fangelsi, að
því er BBC greindi frá. Jane
Andrews var sagt upp störfum
sem einkahárgreiðslukonu
hertogaynjunnar 1997. Hún
var haldin þunglyndi og þjáðist
af alvarlegum skapsveiflum.
STUTT
Hugðust
hunsa
hlutleysi
Svía
DANIR standa nú frammi fyrir
þeirri köldu staðreynd að engir
storkaungar munu klekjast úr eggj-
um þetta árið í Danmörku í fyrsta
sinn í 500 ár. Félag danskra fugla-
fræðinga varar ennfremur við því að
verði ekki gripið til róttækra að-
gerða, hverfi storkurinn úr danskri
náttúru að fáum árum liðnum, rétt
eins og dýr á borð við bjór, gaupu og
elg. Ekki eru nema nokkrar vikur
frá því að formaður dönsku nátt-
úruverndarsamtakanna lýsti því yfir
að ástandið í danskri náttúru hefði
líklega aldrei verið jafn slæmt og nú.
Storkar sáust við þrjú hreiður í
vor en þeir reyndust allir karlkyns.
Hefur storkum fækkað mjög í Dan-
mörku undanfarin ár og kenna
fuglafræðingar einkum um því
hversu mikið votlendi hefur verið
þurrkað upp. Segja þeir að verði
ekki skapað votlendi muni storkarn-
ir hverfa með öllu innan fimm ára.
Félag danskra fuglafræðinga hef-
ur sett upp hreiður til að laða stork-
ana að og hefur auk þess fengið fjár-
framlög til að endurskapa votlendi
við Ribe sem er einn þekktasti
storkabær landsins. Það hefur hins
vegar ekki haft mikið að segja en
fuglafræðingarnir vona að verði
gerð alvara úr því að hækka vatns-
yfirborðið á ákveðnum svæðum á
Jótlandi og Lálandi, muni það hafa
sitt að segja.
Dönsk náttúra verður fátækari
með hverju árinu sem líður og til að
koma í veg fyrir það hefur á stund-
um verið gripið til aðgerða sem vak-
ið hafa harðar deilur. Enn er til
dæmis tekist á um réttmæti þess að
endurreisa bjórstofninn í Danmörku
en talið er að hann hafi dáið út fyrir
2000 árum. Fyrir nokkrum árum
var hins vegar ákveðið að sleppa
þýskum og sænskum bjórum lausum
á Jótlandi til að auka örlítið fjöl-
breytni danskrar náttúru.
Erlendi bjórinn þrífst vel en því
fer fjarri að allir séu hrifnir af gest-
unum. Hefur sportveiðifélag Dan-
merkur nú farið í mál við danska
náttúruverndarráðið og krefst þess
að bjórnum verði vísað úr landi, þar
sem hann sé hinn versti skaðvaldur.
Storkurinn
yfirgefur Dani
Kaupmannahöfn. Morgunblaðið.
SENDIMAÐUR Bandaríkja-
stjórnar, James Kelly aðstoðarut-
anríkisráðherra, fór í gær frá Kína
eftir árangurslausa tilraun til að fá
þarlenda ráðamenn til að styðja
áform George W. Bush Banda-
ríkjaforseta um að koma upp eld-
flaugavarnakerfi til að verjast
hugsanlegum árásum óvinveittra
ríkja í þriðja heiminum.
Málgagn kínverska kommúnista-
flokksins kvaddi aðstoðarutanrík-
isráðherrann með því að gagnrýna
ákvörðun Bandaríkjastjórnar um
að leyfa Chen Shui-bian, forseta
Taívans, að ræða við bandaríska
þingmenn í næstu viku þegar hann
hefur skamma viðdvöl í Bandaríkj-
unum. „Það að heimila Chen að
dvelja í Bandaríkjunum og ræða
við þingmennina er einn eitt dæm-
ið um ögranir Bandaríkjanna
gagnvart Kína,“ sagði blaðið.
Kelly sagði að viðræðurnar um
eldflaugavarnirnar hefðu verið
„uppbyggilegar“ og þeim yrði
haldið áfram.
Talsmaður kínverska utanríkis-
ráðuneytisins sagði hins vegar að
afstaða kínversku stjórnarinnar
hefði ekkert breyst. „Við erum
andvíg eldflaugavarnakerfinu
vegna þess að það raskar hern-
aðarjafnvæginu í heiminum og
grefur undan stöðugleika,“ sagði
hann.
Sendimaður Bush heimsækir Kína
Bandaríkin sök-
uð um „ögranir“
Peking. Reuters.
DANSKIR og færeyskir kaf-
arar leita nú að kössum, sem
talið er að innihaldi 260.000
sjaldgæfa, danska myntpen-
inga, í flaki breska skipsins
Sauternes á botni Fugløyar-
fjarðar í Færeyjum.
Skipsflakið er á 104 metra
dýpi og kafararnir komust
inn í það á mánudag þegar
leitin hófst. Þeir sáu þar tvo
járnkassa, sem hugsanlega
innihalda myntpeningana, en
þeim tókst ekki að flytja þá
upp á yfirborðið.
Þetta er annað árið í röð
sem kafararnir leita að köss-
unum en þeir þurftu að hætta
leitinni í fyrra vegna slæms
veðurs. Mjög erfitt er að kafa
í skipsflakið þar sem mikill
straumur er á þessum slóð-
um.
Hjartað
vantar
Sauternes sökk í fárviðri 7.
desember 1941 þegar skipið
var á leið með jólasvein og
gjafir til hermanna í breska
hernámsliðinu í Færeyjum.
Það hefur því verið kallað
„jólaskipið“. Öll áhöfnin, 19
manns, fórst.
Í skipinu voru einnig ný-
slegnir, danskir myntpening-
ar sem flytja átti til æðsta
embættismanns Dana í Fær-
eyjum, amtmannsins. Pening-
arnir eru sjaldgæfir sökum
þess að þeir voru slegnir í
Bretlandi vegna stríðsins og á
þá vantar hjarta sem er á öll-
um öðrum myntpeningum
Danmerkur.
Danski aðalræðismaðurinn
í London sendi amtmanninum
í Færeyjum bréf 23. janúar
1942 þar sem hann skýrði frá
því að peningarnir væru í
Sauternes. Í kössunum eiga
að vera 50.000 25-eyringar,
60.000 tí-eyringar, 50.000
tvíeyringar og 50.000 einseyr-
ingar.
Færeyjar
Kafað eft-
ir sjald-
gæfum
peningum
Þórshöfn. Morgunblaðið.
MOAMMAR Gaddafi,
leiðtogi Líbýu, hefur
viðurkennt að hann og
stjórn hans hafi borið
ábyrgð á sprengingu á
veitingastað í Berlín
1986 en hún varð þrem-
ur mönnum að bana og
slasaði um 200 manns.
Er þetta haft eftir lög-
fræðingi þeirra sem
særðust og ættingjum
hinna látnu.
Lögfræðingurinn,
Andreas Schulz, sagði
að Gaddafi hefði viður-
kennt þetta fyrir
Michael Steiner, örygg-
isráðgjafa Gerhards Schröders,
kanslara Þýskalands, og hefði verið
skýrt frá því í skeyti sem sent var frá
þýska sendiráðinu í Washington til
utanríkisráðuneytisins í Berlín.
Kvaðst Schulz hafa komist yfir afrit
af skeytinu.
Málaferli og rannsókn á hermdar-
verkinu á veitingastaðnum, sem
heitir La Belle og var
mjög sóttur af banda-
rískum hermönnum,
hafa staðið yfir í nokk-
ur ár. Hefur Schulz nú
krafist þess að Steiner
beri vitni í málinu.
Dagblaðið Frankfurter
Allgemeine Zeitung
sagði í gær að Steiner
hefði átt fund með
Gaddafi í Líbýu og þá
hefði Líbýuleiðtoginn
viðurkennt að bera
ábyrgð á hryðjuverk-
inu. Hefði hann jafn-
framt lagt á það
áherslu að hann styddi
ekki slíkt athæfi lengur. Talsmaður
þýsku stjórnarinnar vildi ekki kann-
ast við, að þessi mál hefði borið á
góma á fundi Steiner með Gadhafi.
Hryðjuverkið á La Belle varð til
þess að Ronald Reagan, þáverandi
Bandaríkjaforseti, fyrirskipaði loft-
árásir á líbýsku borgirnar Tripoli og
Bengazi.
Hryðjuverk í Berlín 1986
Gaddafi sagður
gangast við ábyrgð
Berlín. AP, AFP.
Gaddafi