Morgunblaðið - 17.05.2001, Page 32
ERLENT
32 FIMMTUDAGUR 17. MAÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Ábyrgð –
áreiðanleiki
Gullsmiðir
Barmmerki við öll tækifæri
Fyrir fundi , ráðstefnur og ættarmót
Hægt er að velja á
milli þess að hafa
hangandi klemmu
eða klemmu og
nælu á baki
bammerkis.
Vinnustofa SÍBS • Hátúni 10c • Sími: 562 8500 • Fax: 552 8819 • Heimasíða www.mulalundur.is
Barmmerkin fást í mörgum litum sem bjóða upp á
flokkun ættartengsla þegar ættarmót er haldið.
Prentum á
barmmerkin,
ef okkur eru
send nöfnin í
Excel skjali.
Pappírinn kemur
rifgataður í A4
örkum, fyrir þá
sem vilja prenta
sjálfir.
BIBLÍU- og bænastundin hefst
stundvíslega klukkan átta að
morgni undir handleiðslu John D.
Ashcrofts, dómsmálaráðherra
Bandaríkjanna. Þá kemur hópur
starfsmanna í höfuðstöðvum dóms-
málaráðuneytisins í Washington
saman á skrifstofu hans eða í fund-
arherbergi til að lesa upp úr Ritn-
ingunni og sameinast í bæn með
ráðherranum. Hjá bandaríska
dómsmálaráðuneytinu starfa um
135.000 manns víða um heim og
margir, hvort sem þeir eru kristnir
eða annarrar trúar, telja að með
þessu sé æðsti yfirmaður dómsmála
í landinu að misnota aðstöðu sína og
fara á svig við stjórnarskrána sem
mælir fyrir um aðskilnað ríkis og
kirkju.
Ashcroft hafði þennan sama sið er
hann var öldungadeildarþingmaður
og Mindy Tucker, talsmaður hans,
sagði í viðtali við Washington Post
að hann væri aðeins að „nota stjórn-
arskrárbundinn rétt til að láta trú
sína í ljós“. Sagði hún að allir starfs-
mennirnir væru velkomnir á bæna-
fundina en þess ekki krafist af nein-
um að hann mætti.
Ekki í anda
stjórnarskrárinnar
Eins og fyrr segir eru margir
mjög óánægðir með þetta. „Það er
verkefni dómsmálaráðuneytisins að
reka erindi ríkisstjórnarinnar og
réttarkerfisins en ekki að halda á
loft ákveðnum trúarskoðunum,“
sagði lögfræðingur hjá ráðuneytinu
en hann eins og margir aðrir vildi
ekki að nafn hans kæmi fram. „Í
mínum augum og margra er hér um
að ræða virðingarleysi og þetta er
ekki í anda stjórnarskrárinnar.“
Laura W. Murphy, forstöðumað-
ur bandarísku borgararéttindasam-
takanna, segir að bænastundir Ash-
crofts brjóti í bága við reglur um
vinnustaði alríkisins og annar lög-
fræðingur hjá ráðuneytinu segir
þær „algert hneyksli“.
Óbein þvingun
„Það er auðvelt að fá það á tilfinn-
inguna að taki maður ekki þátt í
þessu geti það haft áhrif á starfs-
framann,“ sagði hann og undir það
tekur Phillip B. Heyman, prófessor
við Harvard og aðstoðardómsmála-
ráðherra í ríkisstjórn Bills Clintons.
Segir hann að bænastundirnar séu
ekki beinlínis ólöglegar en líklegt sé
að þeir, sem taka þátt í þeim, séu
þóknanlegri Ashcroft en aðrir.
Ashcroft vildi ekkert um þetta
mál segja en trúin hefur alltaf skipt
hann miklu máli. Hann íhugaði einu
sinni að gefa kost á sér í forseta-
kosningum með stuðningi kristinna
íhaldsmanna og guð og Biblían eru
oft fyrirferðarmikil í ræðum hans.
1998 sagði hann að „skikkjuklædd
klíka notar lögin um aðskilnað ríkis
og kirkju, sem hugsuð voru kirkj-
unni til verndar, til að kúga trúað
fólk.“ Ári síðar sagði hann í ræðu
við háskólaútskrift að Bandaríkin
væru grundvölluð á trúnni „og við
eigum engan annan konung en Jes-
ús“. Fór þessi yfirlýsing hans fyrir
brjóstið á sumum þingmönnum er
útnefning hans sem ráðherra kom
til kasta þingsins.
Bannorð í
bréfaskriftum
Ashcroft hefur sett undirmönnum
sínum nýjar og strangar reglur um
bréfaskriftir á vegum ráðuneytisins,
á bréfsefni sem ber nafn hans. Þeir
mega til dæmis ekki nota orðið
„stolt“, sem Biblían segir synd, og
þeir mega ekki taka þannig til orða
að „ekkert er eftirsóknarverðara en
opinber þjónusta“.
„Hann rekur ráðuneytið eins og
kirkju með öllum helgisiðunum og
bannorðunum,“ segir Barry W.
Lynn, framkvæmdastjóri samtaka
sem standa vörð um aðskilnað ríkis
og kirkju. „Það er ástæða til að hafa
áhyggjur af því.“
John D. Ashcroft, dómsmálaráð-
herra Bandaríkjanna. Hér ræðir
hann við fréttamenn um aftöku
Timothy McVeighs.
Sagður reka ráðu-
neytið eins og kirkju
Reuters
Ekki allir ánægðir með biblíu- og bænafundi
Ashcrofts, dómsmálaráðherra Bandaríkjanna
MIKIL harka hefur færst í skilnað-
armál Rudolphs Giulianis, borgar-
stjóra New York, og hefur hann
þurft að þagga niður í lögfræðingi
sínum sem úthúðaði borgarstjóra-
frúnni í fjölmiðlunum. Þykir málið
vera orðið að þvílíkum skrípaleik að
jafnvel æsifréttablöðum borgarinnar
þykir nóg um.
Raoul Felder, lögfræðingur Giuli-
anis, lét þau orð falla að borgar-
stjórafrúin rýtti „eins og pikkfast
svín“ sem þyrfti að „draga sparkandi
og öskrandi“ út úr borgarstjórabú-
staðnum, Gracie Mansion.
Vinir Giulianis hafa séð slúður-
blöðunum í New York fyrir sögum
um hversu illa borgarstjórafrúin,
Donna Hanover, hafi komið fram við
eiginmann sinn eftir að hann greind-
ist með krabbamein í blöðruhálskirtli
í fyrra. Vinir borgarstjórafrúarinnar
hafa svarað þessu með frásögnum af
því hvernig Giuliani hafi auðmýkt
hana með því halda framhjá henni og
koma fram opinberlega með hjákonu
sinni, Judith Nathan.
Rimman færðist í aukana í fyrra-
dag þegar New York Post, sem styð-
ur Giuliani, birti mynd af Hanover á
forsíðu, lýsti henni sem grimmri
norn og uppnefndi hana „Cruella
DeHanover“.
Kvartar yfir „grimmi-
legri meðferð“
Giuliani óskaði eftir skilnaði í fyrra
og skýrði fjölmiðlunum frá því án
þess að hafa rætt það áður við eig-
inkonu sína. Hún hefndi sín með því
að taka þátt í umdeildu leikriti um
konur og kynfæri og var það mikið
vandræðamál fyrir borgarstjórann
sem barðist þá við Hillary Clinton
um öldungadeildarsæti fyrir New
York en dró sig síðar í hlé vegna
krabbameinsins.
Hanover hefur neitað að flytjast úr
borgarstjórabústaðnum og býr þar
enn með tveimur börnum þeirra, ell-
efu og fimmtán ára. Borgarstjórinn
hefur þurft að sofa í litlu gestaher-
bergi í bústaðnum.
Í skilnaðarbeiðninni kvaðst Giul-
iani hafa mátt þola „grimmilega og
ómannúðlega meðferð“ af hálfu eig-
inkonu sinnar eftir að hann greindist
með krabbamein í blöðruhálskirtli.
Hann lýsti andvökunóttum sínum
þegar hann gekkst undir meðferð við
krabbameininu. Kvaðst hann hafa
vaknað klukkan fimm á hverjum
morgni og ekki getað sofnað aftur
vegna hávaða frá æfingatækjum eig-
inkonu sinnar.
Borgarstjórinn kvaðst ennfremur
hafa kastað upp allt að átta sinnum á
hverri nóttu vegna krabbameins-
meðferðarinnar en herbergið sem
hann þyrfti að sofa í væri án baðher-
bergis.
Þegar Giuliani var spurður um
ummæli Felders kvaðst hann vera
andvígur því að lögfræðingar
hjónanna ræddu skilnaðarmálið í
fjölmiðlunum.
Borgarstjórafrúin hefur farið fram
á það við dómara að hann banni hjá-
konu Giulianis að koma í borgar-
stjórabústaðinn á þeirri forsendu að
heimsóknir hennar þangað hleyptu
enn meiri illsku í skilnaðarmálið.
Felder skýrði frá því um helgina
að Giuliani væri orðinn getulaus
vegna krabbameinsmeðferðarinnar
og samband hans við Nathan væri
því ekki kynferðislegt, þau væru
miklu frekar vinir en elskendur.
Hann bætti við að Hanover væri
„kjánaleg“ og „ómerkileg“ kona sem
vildi aðeins vekja á sér athygli til að
hljóta frægð og frama sem sjón-
varps- og leikkona.
AP
Harka færist í skilnaðarmál
borgarstjórans í New York
Eiginkonu
Giulianis úthúð-
að í fjölmiðlum
AP
Borgarstjórafrúin, Donna Han-
over (t.v.), með Ellen Levine, rit-
stjóra tímaritsins Good House-
keeping.
New York. The Daily Telegraph.
Giuliani, borgarstjóri New York, með ástkonu sinni, Judith Nathan.