Morgunblaðið - 17.05.2001, Page 33
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. MAÍ 2001 33
R
ÚSSNESK tónlist er í
sviðsljósinu á tónleik-
um Sinfóníuhljóm-
sveitar Íslands í kvöld.
Það verður Rússinn
Dimitrij Kitajenko sem stjórnar
hljómsveitinni, en þessi heimskunni
stjórnandi hefur lengi verið ofar-
lega á óskalista hljómsveitarinnar.
Efnisskráin er öll frá heimalandi
stjórnandans og spannar tímann
frá keisaraveldinu til ráðstjórnar-
innar. Verkin þrjú sem leikin verða
eru Ballettsvíta nr. 3 eftir Dimitrij
Sjostakovitsj, Fiðlukonsert nr. 1
eftir Sergej Prokofijev og Sinfónía
nr. 5 eftir Pjotr Tsjaíkovskíj. Ein-
leikari á fiðlu er rússneskur Ísraeli,
Vadim Gluzman, en hann er einn
efnilegasti fiðluleikari sinnar kyn-
slóðar í heiminum í dag.
Þegar Stalín skrapp
í óperuna
Ballettsvíta Sjostakovitsj, sem
frumflutt var 1952, er byggð á
tveimur eldri leikhúsverkum tón-
skáldsins; annars vegar tónlist við
leikritið Comédie humaine eftir
Balzac, og hins vegar á ballettinum
Tæra læknum frá 1935, en bæði
þessi verk voru þá fallin í
gleymsku. Sögusvið Tæra lækjar-
ins er samyrkjubú í Rússlandi og
segir frá hamingjusömum bændum
sem fá heimsókn enn hamingju-
samari listamanna, sem komnir eru
til að stytta hinni vinnandi stétt
stundirnar. Ballettinn naut vin-
sælda og Sjostakovitsj batt vonir
við velgengni hans. Eftir frumsýn-
inguna í Moskvu í nóvember 1935
virtist allt ætla að ganga eins og
Sjostakovitsj dreymdi um. En í
janúar 1936 gerðist það að Stalín
skrapp í óperuna til að sjá hina
margrómuðu óperu tónskáldsins,
Lafði Makbeð frá Minsk. Stalín var
ekki skemmt og fáum dögum síðar
birtist í Prövdu hin kunna grein
Óreiða í stað tónlistar, þar sem
skorin var upp herör gegn fram-
sækinni tónlist í anda Sjostakov-
itsj. Sýningar á óperunni voru
bannaðar og til frekara öryggis var
sýningum á ballettinum hætt, þótt
það verði að teljast sennilegt, að
Stalín hefði skemmt sér betur á
þessum gleðileik samhygðarinnar.
Spilaði til sín
Stradivarius-fiðlu
Vadim Gluzman er einn af efni-
legustu fiðluleikurum heimsins í
dag og berst hróður hans víðar
með hverjum deginum. Meðal fiðlu-
kennara hans eru fræg nöfn á borð
við Roman Schean, Arkadíj Fomin,
Masao Kawasaki og Dorothy
DeLay. Hann hefur unnið til alls
konar verðlauna, meðal annars
fyrstu verðlaun í Tibor Varga-
keppninni. Árið 1994 hlaut hann
hin eftirsóttu verðlaun Henryk
Szeryng-stofnunarinnar og eignað-
ist skömmu síðar einn af fiðlubog-
um fiðlusnillingsins Szeryngs. En
það er ekki allt og sumt, því með
framúrskarandi spilamennsku sinni
hreppti Vadim Gluzman lánsfiðlu
til afnota, en það er Stradivarius-
fiðla frá 1690, „ex Auer“, en það
þýðir það að hún var lengst af svo
kunnugt sé í eigu fiðlukennarans
Leopolds Auers, sem var kennari
Jascha Heifetz. Fiðlan er nú í eigu
Stradivarius-félagsins í Chicago,
sem lánar afburða fiðlur til afburða
hljóðfæraleikara af yngstu kynslóð-
inni. Vadim Gluzman segir þessa
fiðlu sennilega þá allra bestu í
heiminum. „Það má þó vera að ég
sé hlutdrægur, vegna þess að nú er
ég búin að spila á hana í fimm ár,
og er ennþá afar ástfanginn af
henni.“
Vadim Gluzman leikur einleik í
fiðlukonsert nr. 1 eftir Sergej
Prokofijev. Prokofijev tókst öðrum
tónskáldum betur að skapa sér
persónulegan stíl. Í tónlist hans
fara saman framsæknar hugmynd-
ir um samhljóm og hrynjandi og
einstaklega sterk tilfinning fyrir
laglínu.
Aðstæður skipta ekki máli
þegar snilld er annars vegar
Prokofijev samdi fiðlukonsertinn
á árunum 1916–1917. Að sögn
Gluzmans á konsertinn sér
skemmtilegan landfræðilegan bak-
grunn. „Prokofijev var í París þeg-
ar hann byrjaði á verkinu; hélt því
áfram í þorpinu Varonisj heima í
Rússlandi og samdi það fyrir
spænskan fiðluleikara.“ Þegar
Gluzman er spurður að því hvort
þessir ólíku landfræðilegu þræðir í
bakgrunni verksins séu heyranleg-
ir í því svarar hann með sögu.
„Sonur Sjostakovitsj var spurður
að því, hvort hann teldi að faðir
hans hefði samið sams konar tón-
list, hefði hann átt þess kost að
dvelja fjarri angistinni í Rússlandi.
Hann svaraði spurningunni þannig
að hann teldi að faðir sinn hefði
samið sömu tónlist þótt hann hefði
verið á tunglinu. Ég held að þetta
sé rétt, landfræðilegur bakgrunnur
og þvíumlíkt skiptir engu þegar um
snilld á borð við Sjostakovitsj er að
ræða. En þessi fiðlukonsert Prok-
ofijevs er allt of sjaldan leikinn, og
ég var afar ánægður að Sinfóníu-
hljómsveit Íslands skyldi vilja
flytja þetta verk með mér.“ Kons-
ertinn er nokkuð óhefðbundinn,
bæði hvað snertir byggingu og
innihald. Lítið er um glæsikafla
fyrir einleikarann og engar eru
kadensurnar. Fiðluleikarinn Bron-
islav Huberman, sem ætlað var að
leika einleikshlutverkið við frum-
flutninginn, neitaði alfarið að læra
„þessa tónlist“ og var það því kons-
ertmeistari hljómsveitarinnar sem
stökk inn í hlutverkið með skömm-
um fyrirvara og leysti það víst vel
af hendi.
Konsertinn fyrst hugsaður
sem kammerverk
Vadim Gluzman er ekki sammála
því að eitthvað vanti í verkið þótt í
því séu engar hefðbundnar ein-
leikskadensur.
„Ég vil alls ekki gera lítið úr því
sem aðrir segja, hvað þá tónvís-
indamenn; mamma er tónvísinda-
maður og tengdapabbi minn líka.
Og hvað þetta atriði varðar er mér
hreinlega alveg nákvæmlega sama.
Það má þó benda á þá staðreynd að
Prokofijev hugsaði verkið fyrst
sem sónötu fyrir fiðlu og píanó.
Síðar breytti hann því í einhvers
konar fantasíu, og það er ekki ljóst
í dag hvort hann ætlaði fantasíunni
að vera fyrir fiðlu og píanó eða
fiðlu og hljómsveit. Þannig má
segja að grunnhugmynd Prokofij-
evs hafi verið að semja kammer-
verk. Það er mikið samspil við
hljómsveitina, og þegar maður
horfir á nóturnar er augljóst að
Prokofijev lagði mikla áherslu á
hljómsveitarpartinn. Staðreyndin
að það skuli ekki vera nein ein-
leikskadensa í verkinu skiptir mig
engu máli, þetta er stórkostlegt
verk.“ Vadim Gluzman gerir ekki
mikið úr því að rússnesk tónlist
höfði eitthvað frekar til rússneskra
tónlistarmanna en annarra. Hann
segist að sjálfsögðu finna sig vel
heima í tónlist rússnesku tónskáld-
anna, en að sér þyki hann jafn vel
heima í annarri tónlist, til dæmis í
Serenöðu fyrir fiðlu og hljómsveit
eftir Bernstein, og að hann unni
því verki jafnt og öðrum. „Tónlist-
armenn eru sígaunar. Ég er með
ísraelskt vegabréf sem ég er stolt-
ur af, en það snýst bara um einka-
líf mitt. Að vera tónlistarmaður
snýst ekki um uppruna eða bak-
grunn, tónlistin tilheyrir heiminum
öllum, og þess vegna erum við á
þessu flakki um heiminn, milli New
York og Reykjavíkur og þaðan eitt-
hvert annað, til þess að miðla þess-
ari list sem við eigum öll saman.“
Ferill Pjotrs Tsjaíkovskíjs er
ákaflega sérstæður, því líf hans og
starf var markað djúpum sporum
geðrænna vandamála. Tónlistin,
sem var honum nánast allt, var
honum líka versti óvinurinn. Hið
mikla þunglyndi, sem fylgdi oft í
kjölfar tónsmíða hans, stöðugur efi
um ágæti eigin verka og eilíft
laumuspil með eigin samkynhneigð
urðu honum þó jafnframt mikill
innblástur. Það var því oft svo, að
afkastamikil tímabil enduðu á svip-
legan hátt og Tsjaíkovskíj hafði
hægt um sig í nokkurn tíma. Eitt
af þessum afkastamiklu tímabilum
hófst árið 1888, en eftir því sem
Tsjaíkovskíj sendi frá sér fleiri
meistaraverk jókst andleg vanlíðan
hans uns hann fékk alvarlegt
taugaáfall árið 1891. Taugaáfallið
var rakið til sambandsslita hans við
Nadzhedu von Meck, sem var auð-
ug ekkja, en þau áttu í andlegu ást-
arsambandi. Á þessu tímabili
samdi Tsjaíkovskíj m.a. fimmtu
sinfóníu sína, tónaljóðið Hamlet,
ballettana Þyrnirós og Hnotubrjót-
inn og óperuna Spaðadrottninguna.
Sinfónían fékk dræmar viðtökur en
hróður hennar jókst þó hægt og
bítandi. Tsjaíkovskíj sagði sjálfur
af sinni einskæru hógværð, að
þessi sinfónía sín væri fremur mis-
heppnuð því að formhugsunin væri
ekki nægilega sterk. Ævilok
Tsjaíkovskíjs urðu jafn dramatísk
og lífshlaup hans. Hann drakk vís-
vitandi kólerusmitað vatn og lést
fjórum dögum síðar.
Með rússneska arfinn
í blóðinu
Stjórnandi á sinfóníutónleikun-
um í kvöld verður Dmitrij Kitaj-
enko, einn þekktasti hljómsveitar-
stjóri Rússa í dag. Hann hóf feril
sinn í Bolshoj-óperunni í Moskvu,
en hann stjórnaði einnig Fílharm-
óníusveit Moskvuborgar um fimm-
tán ára skeið. Hann þekkir mjög
vel til hinnar sígildu rússnesku
hljómsveitarhefðar jafnframt því
sem hann hefur stýrt þekktum
verkum samlanda sinna frá nýlið-
inni öld. Þekktastur er hann þó
fyrir túlkun sína á hinum stóru sin-
fóníum rómantíska tímabilsins og
þá sér í lagi verkum Richards
Strauss. Ferill hans hefur verið
einkar glæsilegur og hefur hann
stjórnað flestum þekktustu hljóm-
sveitum heims svo sem Fílharm-
óníusveitum Vínarborgar, Berlínar
og Parísar.
TÓNLISTARMENN
ERU SÍGAUNAR
Morgunblaðið/Sigurður Jökull
Fiðluleikarinn Vadim Gluzman og stjórnandinn Dimitrij Kitajenko á æfingu með Sinfóníuhljómsveit Íslands.
Þrjú verk rússneskra
tónskálda verða flutt á
tónleikum Sinfóníu-
hljómsveitar Íslands í
kvöld. Einleikarinn og
hljómsveitarstjórinn
eru einnig báðir Rússar.
Bergþóra Jónsdóttir
ræddi við Vadim Gluzm-
an sem leikur einleik
með hljómsveitinni í
Fiðlukonsert nr. 1 eftir
Prokofijev um konsert-
inn og fiðluna hans, sem
hann telur þá bestu í
heimi.
begga@mbl.is
FYRRA tölublað tímaritsins Börn
og bækur 2001 er komið út. Megin-
viðfangsefni blaðsins er mynd-
skreytingar í barnabókum. Áslaug
Jónsdóttir bókaverkakona, Ragn-
heiður Gestsdóttir, mynd- og rithöf-
undur, og Guðmundur Oddur
Magnússon, kennari í LHÍ, fjalla um
ýmsar hliðar myndskreytingafags-
ins hér á landi. Einnig er fjallað um
þá grósku sem nú ríkir í mynd-
skreytingum í barnabókum í Dan-
mörku. Að auki eru í blaðinu rit-
dómar eftir Katrínu Jakobsdóttur
og Ingu Ósk Ásgeirsdóttur, grein
eftir Soffíu Auði Birgisdóttur sem
hún nefnir Börn og leiklist á Íslandi
í dag og umfjöllun eftir Úlfhildi
Dagsdóttur um íslenskar kvik-
myndir fyrir börn og þá sérstaklega
um nýjustu myndina, Ikíngut. Bryn-
dís Loftsdóttir verslunarstjóri viðr-
ar hugmyndir sínar um börn og
bækur og Andri Snær Magnason
rithöfundur skrifar um ævi hug-
sjónamannsins Janusz Korczak.
Að venju á Gréta S. Guðjónsdóttir
ljósmyndina sem prýðir kápu blaðs-
ins.
Blaðið er gefið út af félaginu Börn
og bækur, Íslandsdeild IBBY. Rit-
stjóri er Guðlaug Richter.
Tímarit
ÓPERUSTÚDÍÓ Austurlands vinn-
ur nú að undirbúningi sýningar á
Brúðkaupi Figarós eftir Wolfgang
Amadeus Mozart. Óperan verður
frumsýnd 10. júní nk. á Eiðum.
Þessa dagana fara fram svokall-
aðar sviðsæfingar, en æft hefur verið
markvisst síðan um páska. Hljóm-
sveit og söngvarar koma af landinu
öllu, en listrænn stjórnandi er að
vanda Keith Reed.
Óperan verður þrisvar sinnum
sýnd á Eiðum og þrisvar í Eskifjarð-
arkirkju. Einsöngvarar eru m.a. Sig-
rún Hjálmtýsdóttir, Ólafur Kjartan
Sigurðarson, Ágúst Ólafsson, Xu
Wen, Kristín Ragnhildur Sigurðar-
dóttir, Lindita Óttarsson, Þorbjörn
Björnsson og Herbjörn Þórðarson.
30 manna hljómsveit sér um undir-
leik, en allt í allt koma um 75 manns
að uppfærslunni að þessu sinni.
Óperustúdíóið heldur einnig Moz-
artveislu í Eskifjarðarkirkju 13. júní.
Þar verða fluttir forleikir að óperum,
aríur og dúettar, ásamt flautu-, pí-
anó- og klarinettukonsertum. Í Moz-
artveislunni bætast Elisaveta Kop-
elman píanóleikari, Stefán Ragnar
Höskuldsson flautuleikari og Einar
Jóhannesson klarinettuleikari í hóp
flytjenda.
Landsbankinn á Austurlandi hef-
ur tekið að sér að sjá um miðasölu
eftir 28. maí nk.
Brúðkaup Fíg-
arós á Austur-
landi 2001
Egilsstöðum. Morgunblaðið.
Í VÖLUNDI, húsi Leikfélags
Hveragerðis, verða tónleikar annað
kvöld kl. 21, með kontrabassaleikar-
anum Dean Ferrell og Völu Þórs-
dóttur leikkonu. Þau hafa sett saman
efnisskrá fyrir kontrabassa og leik-
konu með ýmiss konar tónlist og
glensi. Þar verður m.a. flutt Velkom-
inn í kontrabassaland eftir Barney
Childs, Prufuspil eftir Jon Deak sem
er grínverk fyrir bassa og leikara
þar sem Vala bregður sér í hlutverk
kontrabassaleikara sem er að prufu-
spila fyrir valnefnd og Dean leikur
nefndina og Síðasti kontrabassinn í
Las Vegas eftir Eugene Kurtz sem
er verk um konu sem þráir að eiga
náin samskipti við kontrabassa. Tón-
leikarnir eru haldnir á vegum Tón-
listarfélags Hveragerðis og Ölfuss
og Félags ísl. tónlistarmanna með
styrk frá menntamálaráðuneytinu.
Kontrabassi
og leikkona
í Hveragerði
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦