Morgunblaðið - 17.05.2001, Síða 36
LISTIR
36 FIMMTUDAGUR 17. MAÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
AÐ loknu námi við mynd-listar- og hönnunar-deildir Listaháskóla Ís-lands, sem áður hét
Myndlista- og handíðaskóli Ís-
lands, sýna þremenningarnir loks
afrakstur erfiðis síns, ásamt öðr-
um útskriftarnemendum deild-
anna. Margrét er að útskrifast úr
textíldeild, Bjarki úr grafískri
hönnun og Rósa úr skúlptúrdeild.
Sýning á verkunum var opnuð
laugardaginn 12. maí í húsakynn-
um Listaháskólans og hefur verið
vel sótt, enda hefur þessi við-
burður fyrir löngu skipað sér
fastan sess í menningarlífi borg-
arinnar. Útskriftarnemendurnir
eru á ýmsum aldri og er óhætt að
segja að verkin sem þarna eru til
sýnis höfði til mismunandi skiln-
ings áhorfenda með ólíkum hætti.
Sýningin virðist vera ákaflega
blönduð innbyrðis, fólk úr málun
sýnir gjörninga og fólk sýnir mál-
verk sem kemur úr öðrum deild-
um. Er það rétt skilið?
Rósa: Það held ég, til dæmis
sjást mjög ólík vinnubrögð í
skúlptúrdeildinni. Víða í sýning-
unni má svo sjá mismunandi að-
ferðir í einu og sama verkinu.
Heldur engin deild sig við
hefðbundna útleggingu á sínum
miðli? Hvernig er hægt að fara til
dæmis út fyrir hefðbundna graf-
íska hönnun?
Bjarki: Í raun má segja að
grafísk hönnun sé hagnýt fjöl-
tækni. Það er hætt að líta svo á
að hún sé bara auglýsingateiknun
og nú er litið á hana sem hvern
annan miðil, rétt eins og málara-
list. Svo hefur þetta blandast
mjög, til dæmis má segja að allt
sem heitir texti og mynd sé bara
hrein grafísk hönnun, en margar
aðrar greinar notast við þann
miðil. Grafísk hönnun snýst ef til
vill um það að sérhæfa sig í að
tengja saman texta og myndmál,
eins og er notað ansi víða.
Margrét: Verkið mitt er til
dæmis þannig, og þó er ég í text-
íldeildinni.
Rósa: Það er líka áberandi á
sýningunni að þó að það sé svo-
lítil slagsíða í átt að tvívíðum
verkum, þá er mikil tenging við
rýmið. Það er líka áberandi í
grafísku hönnuninni, sum verkin
leiðast út í rýmið og nýta sér það.
Bjarki: Grafísk hönnun hefur
orðið mjög vinsælt fag á und-
anförnum árum. Ég held að það
sé aðallega vegna þessarar miklu
þarfar í nútímanum til að koma
miklum og flóknum upplýsingum
til skila á sem einfaldastan hátt.
Það er mikil vöntun á fólki sem
er menntað í því.
En býður nám úr öðrum deild-
um ekki upp á svipuð tækifæri
sem miða að myndrænni fram-
setningu?
Margrét: Jú, það eru margir
sem hafa notað tölvu við verk sín
hér á sýningunni, án þess að vera
í grafískri hönnun.
Rósa: Fyrir mig hefur þetta
nám líka verið nám í að hugsa að-
eins öðruvísi. Ég held að það geti
nýst víða í samfélaginu, annars
staðar en til að gera myndverk til
sýningar í sýningarsal. Þessi
hugsun, að leita lausna á sem
fjölbreyttastan hátt er hugsunar-
háttur sem mætti nýta miklu víð-
ar en þar.
Nóg að gera
Hvað er þá á dagskránni hjá
útskriftarnemum hönnunar- og
myndlistardeilda LHÍ árið 2001?
Rósa: Bara leigja vinnustofu og
sýna!
Er myndlist sem sagt á dag-
skrá?
Rósa: Já.
Margrét: Já.
Hvað með grafískan hönnuð?
Bjarki: Það hefur verið nóg að
gera hjá grafískum hönnuðum,
bæði við auglýsingagerð, netsíðu-
gerð og fleira.
Þannig að námið hérna tengist
beint því sem þið ætlið að taka
ykkur fyrir hendur?
Rósa: Já, já, en það er auðvitað
óljóst hvað maður er að fara að
gera. Ég er ekki beint komin með
ákveðið starf þar sem myndlistin
nýtist mér, en ég held að hún
muni samt gera það. Þó að ég sé
komin með vinnustofu og verði
með sýningu í sumar, verður
maður einhvers staðar að fá salt í
grautinn. Ég er ekki viss um að
myndlistin gefi mér það alveg
strax.
Margrét: Það getur verið að ég
blandi saman mínu fyrra námi við
myndlistina sem er læknisfræði.
Ég er læknir og finnst bæði
myndlistarþerapía og stoðtækja-
gerð spennandi. Ég er sjálf gigt-
veik og þarf að nota spelkur,
þannig að ég er bæði læknirinn,
sjúklingurinn og hönnuðurinn.
Bjarki: Það sem er skemmti-
legt við grafíska hönnun er að
það eru svo margar leiðir, svo
margt sem hægt er að vinna við.
Mörg svið innan atvinnulífsins
þurfa á grafískri hönnun að
halda.
Hvað eru svo útskriftarnem-
endurnir að fást við í verkum sín-
um þetta árið?
Rósa: Ég myndi segja að fólk
væri að fást við sína persónulegu
sýn á veruleikann sem birtist þá í
heimum, sem það býr til. Og svo
eru líka ýmiskonar „dokúmenta-
sjónir“ úr daglega lífinu og ýms-
um pörtum veruleikans.
Eruð þið þá að fást við ykkar
eigin veruleika og horfa inn á
við?
Margrét: Nei, ég myndi frekar
segja að við værum að fjalla um
einstaklinginn, ekki endilega
listamanninn sem slíkan. Bara
hvernig það er að vera mann-
eskja og vera til í þessum heimi
eins og hann er í dag.
Ég veit ekki hvort það er bara
vegna þess að mitt verk er þann-
ig, sem ég held það.
Rósa: Ég held að þetta séu
verk sem flestir eiga auðvelt með
að samsama sig við, ef maður á
að alhæfa um sýninguna.
Bjarki: Ég held líka að fólk sé í
friði núna fyrir afgerandi skoð-
unum í samfélaginu, til dæmis í
stjórnmálum, þannig að fólk hef-
ur loksins frið til að vera það
sjálft.
Rósa: Það þykir nú bara ekk-
ert fínt að hafa hugsjónir í dag,
við höfum það hreinlega alltof
gott til þess!
Bjarki: Þá er eiginlega spurn-
ing hvort fólk fari að búa til sinn
eigin draumaheim.
Er það það sem fólk er að gera
hérna?
Rósa: Já, ég held það. Svo
snýst þetta líka að mörgu leyti
um að búa til spurningar, spyrja
sig nýrra spurninga. Taka eitt-
hvað sem er viðtekið og skoða
það í nýju samhengi.
Margrét: Það er svolítið sterkt
hérna að verið sé að gera ljótt
fallegt, það sýnt sem venjulega
er ekki sýnt. Litli ljóti andarung-
inn er tekinn og sýnt að hann er
bara fallegur. Hér er verið að
sætta sig við hvernig hlutirnir
eru. Öll mismunandi menningin
sem hér er sýnd, hún er við-
urkennd sem góð. Það er svaka-
leg jákvæðni í gangi.
Ævintýri í verkunum
Taka allar greinarnar á sýning-
unni þátt í þessu?
Margrét: Þetta virðist bara
liggja í loftinu.
Bjarki: Það er eins og það sé
ævintýri í mörgum verkunum.
Hvað er þá að baki ykkar verk-
um?
Rósa: Margir hérna lýsa verk-
unum með orðum eins og heimur
smásagna eða ævintýri. Það felst
að minnsta kosti í mínu verki.
Margrét: Mitt verk snýst að-
allega um mannlýsingar, lyklana
að lífi fólks.
Bjarki: Ég er að vinna með það
að blanda ólíkum menningar-
heimum saman, að draga það sem
er framandi hingað til Íslands og
njóta þess.
Hafa þetta verið góð ár í þess-
um skóla?
Rósa: Já.
Margrét: Já.
Bjarki: Já. Það sem er gott við
þennan skóla er að fólk getur
ráðið því dálítið hversu krefjandi
hann er. Fyrir suma eru þetta
endalausir sigrar og ósigrar.
Margrét: Það krefst ákveðins
sjálfstæðis að vera í þessum
skóla, því sjálfstæðari, því betra í
raun.
Er sá undirbúningur ekki
nauðsynlegur, þar sem starf
listamannsins byggist svo mikið á
hans eigin framlagi og hugmynd-
um?
Bjarki: Jú.
Rósa: Frelsið er og verður allt-
af harður húsbóndi.
Sýningu útskriftarnemanna
lýkur á sunnudag.
Frelsið er
harður
húsbóndi
Fjölbreytt sýning er á veggjum, gólfi og í
lofti Listaháskóla Íslands um þessar
mundir. Um er að ræða útskriftarverkefni
nemenda úr myndlistar- og hönnunar-
deildum. Þau Margrét Oddný Leópolds-
dóttir, Guðmundur Bjarki Guðmundsson
og Rósa Sigrún Jónsdóttir spjölluðu við
Ingu Maríu Leifsdóttur um sýninguna og
framtíðarsýn upprennandi listamanna.
ingamaria@mbl.is
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Útskriftarnemarnir Rósa Sigrún Jónsdóttir, Guðmundur Bjarki Guð-
mundsson og Margrét Oddný Leópoldsdóttir í Listaháskóla Íslands.
Frá sýningunni í Laugarnesi.
ÓLAFUR Gaukur gítarleikari leikur
þekkt djasslög í djassklúbbnum
Múlanum, í kvöld, fimmtudagskvöld,
kl. 21. Múlinn hefur aðsetur sitt í
Húsi málarans, Bankastræti 7a.
Ólafur hefur komið víða við í tón-
listarlífi á Íslandi á liðnum áratug-
um. Að þessu sinni velur hann al-
þekkt lög sem honum og félögum
hans hafa verið hugleikin í langan
tíma. Með honum leika Þórir Bald-
ursson á hljómborð, Guðmundur
Steingrímsson á trommur og Bjarni
Sveinbjörnsson á bassa.
Miðaverð 1.200 kr., 600 kr. fyrir
námsmenn og eldri borgara.
Ólafur Gauk-
ur djassar á
Múlanum
Í TE og kaffi á Laugaveginum
stendur yfir myndlistarsýning Grétu
Berg. Hún vill undirstrika þessa
sýningu með „Ævintýrinu“ og segir
um sýningu sína: „Ég hef leyft hug-
anum að flæða að því sem verða vill í
minni sköpun að þessu sinni. Ég
óska þess að þeir sem koma geti séð
sitt ævintýri og sannleik og notið
þess.“ Gréta hefur haldið fjölda
einkasýninga og samsýninga.
Myndlist í Te
og kaffi
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦
Íslensk grafík,
Hafnarhúsinu
Sýningu Iréne Jensen, „Á leið-
inni“, í sýningarsal félagsins Íslensk
grafík í Hafnarhúsinu við Tryggva-
götu, lýkur á sunnudag. Iréne sýnir
þar myndir unnar í grafíktækni, sem
kallast ImagOn og fjallar um nú-
tímamanneskjuna á sífelldri ferð
sinni í breytilegum tíma og um-
hverfi.
Sýningin er opin frá kl 14-18.
Listasafn ASÍ við
Freyjugötu
Sýningu Jóns Reykdals og Jó-
hönnu Þórðardóttur lýkur á sunnu-
dag. Þau blanda saman verkum sín-
um og sýna í öllu húsinu. Jón sýnir
uppstillingar með ýmsum tilbrigðum
og myndir þar sem konan er í önd-
vegi. Jóhanna sýnir myndir málaðar
með olíulitum á tré þar sem hún not-
ar einnig pappír sem hún mótar eða
límir niður.
Listasafn ASÍ er opið alla daga,
nema mánudaga, kl. 14-18. Aðgang-
ur er ókeypis.
Sýningum
lýkur
♦ ♦ ♦
PÁLL Ísólfsson – „Complet
Original piano music“ nefnist ein-
leiksdiskur Nínu Margrétar Gríms-
dóttur píanóleik-
ara. Diskurinn
inniheldur fyrstu
heildarútgáfu
frumsaminna pí-
anóverka dr. Páls
Ísólfssonar og má
þar finna Til-
brigði um stef
eftir Ísólf Páls-
son, Glettur, Þrjú
píanóstykki og
Svipmyndir.
Þetta er annar einleiksdiskur
Nínu Margrétar en árið 1996 kom út
geisladiskur hennar þar sem hún lék
Mozart og Mendelssohn, gefinn út á
vegum Skref og var í dreifingu á
Bandaríkjamarkaði um nokkurt
skeið.
Útgefandi er BIS gramophone en
Japis sér um dreifingu hérlendis.
Nýjar
geislaplötur
Nína Margrét
Grímsdóttir