Morgunblaðið - 17.05.2001, Side 38
38 FIMMTUDAGUR 17. MAÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Hallgrímur B. Geirsson.
Styrmir Gunnarsson.
Framkvæmdastjóri:
Ritstjóri:
STOFNAÐ 1913
Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík.
Aðstoðarritstjórar:
Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen.
Fréttaritstjóri:
Björn Vignir Sigurpálsson.
„OKKUR var ekkert að vanbúnaði,
olía og kostur komin um borð, og
ekkert vantaði nema karlana en nú
eru þeir komnir líka,“ sagði Þorleif-
ur Ananíasson, aðstoðarútgerðar-
stjóri Útgerðarfélags Akureyringa
hf., við Morgunblaðið í gærkvöldi.
Þrjú skip ÚA fóru út á miðnætti.
Sléttbakur í úthafskarfann á
Reykjaneshrygg en Kaldbakur og
Árbakur í þorskinn. Harðbakur fer
væntanlega í dag eða kvöld en áhöfn
Rauðanúps, flýgur til Halifax í Kan-
ada í dag vegna rækjuveiða á
Flæmska hattinum.
Samherjaskipin héldu einnig á
miðin í gærkvöldi og nótt, að sögn
Kristjáns Vilhelmssonar, útgerðar-
stjóra Samherja hf. Björgvin er far-
inn á grálúðu, Akureyrin, Víðir og
Baldvin Þorsteinsson í úthafskarf-
ann, Vilhelm Þorsteinsson og Þor-
steinn í kolmunna og ísfisktogararn-
ir Björgúlfur og Kambaröst í
þorskinn, en Margrét verður vænt-
anlega tilbúin um helgina. Milli 160
og 170 sjómenn eru farnir út á skip-
um Samherja, en Kristján segir að
vonast sé til að vinnslan í landi hefj-
ist upp úr helgi.
Haukur Björnsson, útgerðarstjóri
hjá Hraðfrystihúsi Eskifjarðar hf.,
segir að Guðrún Þorkelsdóttir fari á
rækjuveiðar í dag. Votaberg er farið
á rækju, Hólmaborg og Jón Kjart-
ansson á kolmunna og Hólmatindur
í þorskinn. „Þetta lá í loftinu og
menn voru tilbúnir að fara enda
nauðsynlegt að hjólin fari að snúast í
atvinnulífinu hérna.“
Hraðfrystihúsið-Gunnvör hf. á
Ísafirði hefur sent fimm togara á
veiðar, þrjá á rækju og tvo á bolfisk-
veiðar, að sögn Einars Vals Krist-
jánssonar, framkvæmdastjóra.
Rækjuvinnsla hefur verið í gangi en
stefnt er að því að byrja að flaka bol-
fisk á mánudag. „Þetta hefur verið
langur og erfiður tími og ég held að
sjómennirnir séu mjög spenntir að
komast af stað.“
Að sögn Ægis Páls Friðbertsson-
ar, framkvæmdastjóra Ísfélags
Vestmannaeyja hf., hefur verið
ákveðið að senda Sigurð og Antares í
norsk-íslensku síldina en
ljóst hvenær verður farið. H
ar fór Bergey á bolfiskveið
kvöldi og Heimaey fer í dag
er að því að hefja vinnslu u
næstu viku.
Í gærkvöldi voru Snorri
og Örfirisey tilbúin í úthafsk
Reykjaneshrygg og Ásbjör
N. Þorláksson í karfa á
miðum, að sögn Rúnars Þ
ánssonar, útgerðarstjóra G
í Reykjavík. „Það verður g
fara út á miðin núna og sjá
þetta kemur út eftir mán
Hjólin snúa
fullu eftir h
Strax í gærkvöldi var mikil hreyfing á skipaflota landsman
stöðu og tilbúnir að fara á sjó með stuttum fyrirvara, en aðei
artíðindin með lögum um stöðvun verkfalls sjómannafélaga
kæmu út. Gert er ráð fyrir að fiskvinnslan verði komin á ful
en vinnsla hefst sums staðar strax í d
Morgunblaði
Sjómenn fylgdust grannt með umræðum á Alþingi í gær
BREYTINGAR Á
EVRÓPUUMRÆÐU
Áherzla Samtaka atvinnulífsins áEvrópumál á aðalfundi samtak-anna á þriðjudag vekur athygli.
Samtökin hvetja til upplýstrar umræðu
um kosti og galla aðildar að Evrópusam-
bandinu og „að stjórnvöld og hagsmuna-
samtök hefjist handa við skilgreiningu
samningsmarkmiða Íslands vegna hugs-
anlegrar aðildarumsóknar að ESB“. Með
þessu ganga samtökin mun lengra en
samtök vinnuveitenda hafa áður gert í af-
stöðu sinni til Evrópumála.
Það að heildarsamtök atvinnulífsins í
landinu skuli nú taka upp þessa stefnu
bendir til að breytingar séu að verða á
Evrópuumræðunni til svipaðs horfs og í
nágrannalöndum okkar, þar sem samtök
atvinnurekenda hafa gjarnan farið
fremst í flokki þeirra, sem hvatt hafa til
aðildar að Evrópusambandinu.
Hugsanlega er þessi breyting til
marks um aukið vægi annarra atvinnu-
greina en sjávarútvegs, sem ekki sjá
sömu augljósu annmarka á aðild að Evr-
ópusambandinu. Jafnframt er ljóst að af-
staðan til gengismála og peningastjórn-
unar vegur þungt í afstöðu SA eins og
Finnur Geirsson, formaður samtakanna,
gaf til kynna í ræðu sinni á aðalfundinum.
Samtökin vilja ekki útiloka að Íslandi
muni gefast kostur á aðild að Mynt-
bandalagi Evrópu (EMU) í framtíðinni
og vilja láta skoða kosti og galla mynt-
samstarfs eða tengingar við annað mynt-
svæði. Það verður raunar að teljast
óraunhæft að ætla að Ísland geti fengið
aðild að EMU án aðildar að Evrópusam-
bandinu sjálfu.
Við þær kringumstæður, sem verið
hafa á Íslandi að undanförnu, þar sem
sveiflur í genginu hafa verið talsverðar
og vextir mjög háir, er út af fyrir sig ekki
óeðlilegt að forsvarsmenn margra fyrir-
tækja spyrji þeirrar spurningar hvort
samkeppnisstaða fyrirtækja þeirra væri
betur tryggð ef evran væri lögeyrir hér á
landi í stað krónunnar. Í „Áherzlum at-
vinnulífsins“ er bent á að með myntsam-
starfi gætu vaxtakjör innanlands lækkað,
viðskiptakostnaður myndi lækka, óvissa
og gjaldeyrisáhætta í viðskiptum minnka
og líkur á erlendum fjárfestingum hér
aukast. Á hinn bóginn gæti aðild að
Myntbandalagi Evrópu haft í för með sér
auknar gengissveiflur í viðskiptum við
önnur myntsvæði og síðast en ekki sízt,
að Ísland missti stjórn á einu virkasta
hagstjórnartækinu, peningastefnunni.
Bent er á að þróunin í viðskiptalönd-
unum, t.d. aukin notkun evrunnar bæði í
Danmörku og Bretlandi þrátt fyrir að
þessi viðskiptalönd okkar séu ekki aðilar
að EMU, geti „gerbreytt allri stöðu Ís-
lendinga á skömmum tíma“. Til slíks hef-
ur enn ekki komið, en auðvitað er sjálf-
sagt að vera á varðbergi gagnvart þeim
breytingum í umhverfi okkar, sem kynnu
að kalla á stefnubreytingu í peningamál-
unum.
„Ljóst er að íslenzkur sjávarútvegur
gæti ekki unað við núverandi stefnu ESB
í sjávarútvegsmálum,“ segir í áherzlum
SA og þar stendur auðvitað hnífurinn í
kúnni. Með núverandi sjávarútvegs-
stefnu Evrópusambandsins myndi aðild
Íslands að sambandinu þýða að formleg
ákvörðun um heildarafla á Íslandsmiðum
yrði tekin í ráðherraráði Evrópusam-
bandsins. Slíkt geta Íslendingar aldrei
sætt sig við vegna afgerandi þýðingar
fiskveiða fyrir þjóðarbúskapinn.
Í viðtali við Morgunblaðið síðastliðinn
sunnudag lagði Franz Fischler, yfirmað-
ur sjávarútvegsmála í ESB, áherzlu á að
íslenzkur sjávarútvegur hefði ekkert að
óttast þótt Ísland gengi í sambandið.
ESB myndi virða rétt Íslendinga til veiða
á þeim svæðum, þar sem þeir hefðu einir
veitt áður og landhelgin því ekki fyllast af
ESB-togurum. Þetta er í sjálfu sér ekk-
ert nýtt, þótt það hafi ekki áður heyrzt
beint af munni æðsta yfirmanns sjávar-
útvegsmála í ESB. Þetta breytir heldur
engu um ofangreint grundvallaratriði
varðandi hið endanlega ákvörðunarvald
um afla á Íslandsmiðum.
Fischler gefur reyndar í skyn að hægt
sé að breyta reglum til að koma til móts
við hagsmuni einstakra ríkja og að ef ár-
angur náist í umbótum á sjávarútvegs-
stefnunni verði valdið fært í auknum
mæli til einstakra svæða, sem myndi
þýða að Íslendingar færu með vald yfir
auðlindum sínum sjálfir. Þetta er auðvit-
að sýnd veiði en ekki gefin og þessi um-
mæli gefa ekkert tilefni til að breyta um
stefnu í Evrópumálunum. Hins vegar er
ástæða til þess að bæði íslenzk stjórnvöld
og hagsmunasamtök fylgist vel með þeim
umræðum um breytingar á sjávarútvegs-
stefnunni, sem nú fara fram á vettvangi
ESB.
KONUR HVATTAR TIL FORYSTU
Jafnréttisstofa og Háskóli Íslandsstanda að námskeiðum í sumar
sem einkum er ætlað að undirbúa
kvennemendur Háskólans fyrir
ábyrgðarstörf á framtíðarstarfsvett-
vangi þeirra. Á kynningarfundi, sem
sagt var frá í Morgunblaðinu sl.
sunnudag, kom fram að hlutur kvenna
í ábyrgðarstörfum væri hvergi nærri
nógu góður. Í 100 stærstu fyrirtækj-
um landsins er t.d. aðeins ein kona í
forstjórastól, engin kona stjórnarfor-
maður og aðeins 10 konur sitja í stjórn
þessara fyrirtækja.
Þetta vekur óneitanlega upp spurn-
ingar um það hvort jafnréttisbarátta
liðinna áratuga hafi ekki verið nægi-
lega áhrifarík þegar að því kemur að
deila völdum og ábyrgð í samfélaginu.
Sú áhersla sem lögð hefur verið á
jafnrétti á heimilum er að sjálfsögðu
ein forsenda atvinnuþátttöku kvenna,
en þrátt fyrir að karlar kjósi í vaxandi
mæli að axla þá ábyrgð til jafns við
konur hefur það ekki dugað til að
tryggja konum greiðari aðgang að for-
ystustörfum á vinnumarkaði.
Óviðunandi hlutskipti kvenna í at-
vinnulífinu kemur ekki einungis fram í
minni áhrifum í forystu og stjórnun,
heldur einnig í lægri launum, eins og
margoft hefur verið sýnt fram á. Þetta
er erfitt að túlka á annan veg en þann
að stjórnendur í atvinnulífinu meti
störf og hæfileika kvenna ekki til jafns
við karla, sem einnig kann að skýra
hvers vegna konum gengur svo erf-
iðlega að komast í áhrifastöður. Það
atvinnuumhverfi sem þessar stað-
reyndir lýsa hlýtur að eiga drjúgan
þátt í því að draga úr sjálfstrausti og
væntingum ungra kvenna sem eru að
hefja starfsferil sinn.
Það er því full ástæða til að fagna
námskeiðum sem miða að því að efla
sjálfsmynd kvenna og vekja athygli á
þeim vandamálum sem þær þurfa að
takast á við til að uppskera til jafns
við karla að námi loknu. Jafnframt
kveður nú við nýjan tón í samþykktum
Samtaka atvinnulífsins, en frá aðal-
fundi þeirra berast þau boð að „fjölga
eigi konum í stjórnunarstöðum í at-
vinnulífinu en hlutur þeirra hefur auk-
ist hægt þrátt fyrir aukna menntun og
umræðu.“
ÞORSKAFLINN frá 1. septem-
ber 2000 til 10. maí 2001 var
tæplega 132.000 tonn en um
173.000 tonn frá 1. september
1999 til 10. maí 2000, samkvæmt
upplýsingum frá Fiskistofu.
Munurinn er um 41.000 tonn og
gera má því skóna að hann sé
fyrst og fremst tilkominn vegna
minni heimilda og 40 daga verk-
falls sjómanna.
Leyfilegur heildarafli þorsks
var 250.000 lestir fiskveiðiárið 1.
september 1999 til 31. ágúst
2000, en er 220.000 lestir frá 1.
september 2000 til 31. ágúst
2001. Leyfilegur heildarafli ýsu
var 35.000 tonn á fyrrnefnda
tímabilinu en er 30.000 á því síð-
arnefnda. Sambærilegar tölur
fyrir grálúðu eru 10.000 og
20.000 tonn.
Ásgeir Daníelsson, hagfræð-
ingur hjá Þjóðhagsstofnun, segir
að útflutningsverðmæti sjávaraf-
urða sé um níu til 10 milljarðar
króna á mánuði að meðaltali, en
verðmæti landaðs afla um fimm
milljarðar á mánuði að meðal-
tali. Hann segir ennfremur að
þótt minna hafi veiðst af t.d.
þorski undanfarna átta mánuði
miðað við sama tíma fyrir ári,
megi ætla að kvótinn náist á
fiskveiðiárinu og því sé ekki um
töpuð verðmæti að ræða.
Að sögn Ásgeirs má áætla,
miðað við tölur í fyrra, að út-
flutningsverðmæti 10.000 tonna
af þorski sé um 1,8 milljarðar
króna og fyrrnefndur 40.000
tonna munur á milli ára sé því
um sjö milljarðar að verð
Hann áréttar að miklar s
séu í verðmæti þorsksins
ir að nefnt hafi verið í sa
við verkfallið að menn h
jafnaði veitt stærri fiskin
! "
#
$!
%! &%!
'()*+'(
,+*)-)
'*..(
/*/.+
0*+1+
,+*),1
'*-.1
''*+0+
'+1
0++
-/*/))
1+(
,*./.
,*1,.
''*-+'
'+'*+)'
(.,*1'+
'*'/0*-1,
,
! "
Þorskaflinn um
tonnum minni en